Morgunblaðið - 02.09.2019, Side 32
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell gæða lofthreinsitæki
Hreint loft - betri heilsa
Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum.
Honeywell lofthreinsitæki eru góð viðmyglu-
gróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og
fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum.
Verð kr
18.890
Verð kr
49.920
Verð kr.
35.850
Verð kr.
15.960
England
Everton – Wolves..................................... 3:2
Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn og
átti stoðsendingu.
Burnley – Liverpool ................................ 0:3
Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með
vegna meiðsla.
Southampton – Manchester United ....... 1:1
Chelsea – Sheffield United.......................2:2
Crystal Palace – Aston Villa.................... 1:0
Leicester City – Bournemouth ............... 3:1
Manchester City – Brighton ................... 4:0
Newcastle – Watford ............................... 1:1
West Ham – Norwich............................... 2:0
Staðan:
Liverpool 4 4 0 0 12:3 12
Manch.City 4 3 1 0 14:3 10
Leicester 4 2 2 0 6:3 8
Crystal Palace 4 2 1 1 3:2 7
Arsenal 4 2 1 1 6:6 7
Everton 4 2 1 1 4:4 7
West Ham 4 2 1 1 6:7 7
Manch.Utd 4 1 2 1 7:4 5
Tottenham 4 1 2 1 7:6 5
Sheffield Utd 4 1 2 1 5:5 5
Chelsea 4 1 2 1 6:9 5
Burnley 4 1 1 2 5:6 4
Southampton 4 1 1 2 4:6 4
Newcastle 4 1 1 2 3:5 4
Bournemouth 4 1 1 2 5:8 4
Brighton 4 1 1 2 4:7 4
Wolves 4 0 3 1 4:5 3
Aston Villa 4 1 0 3 4:6 3
Norwich 4 1 0 3 6:10 3
Watford 4 0 1 3 2:8 1
B-deild:
Millwall – Hull...........................................1:1
Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem
varamaður á 68. mínútu hjá Millwall.
Brentford – Derby................................... 3:0
Patrik Sigurður Gunnarsson var ekki í
leikmannahópi Brentford.
Þýskaland
Werder Bremen – Augsburg.................. 3:2
Alfreð Finnbogason kom inn á hjá Augs-
burg eftir 73 mínútur.
Spánn
B-deild:
Fuenlabrada – Real Oviedo.................... 2:1
Diego Jóhannesson lék allan leikinn með
Real Oviedo.
Frakkland
Angers – Dijon ..........................................2:0
Rúnar A. Rúnarsson varði mark Dijon.
Rússland
Lokomotic Moskva – Rostov ...................1:2
Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn með
Rostov en Björn Bergmann Sigurðarson
var ekki í leikmannahópnum.
Arsenal Tula – CSKA Moskva................ 1:2
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn með CSKA en Arnór Sigurðsson
var ekki í leikmannahópnum.
Rubin Kazan – Sochi ................................0:3
Viðar Örn Kjartansson kom inn á hjá
Rubin Kazan á 55. mínútu.
Ural – Krasnodar..................................... 2:4
Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með
Krasnodar.
KNATTSPYRNA
Á ÁSVÖLLUM
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Haukar eiga erfitt verkefni fyrir
höndum í Tékklandi næstkomandi
laugardag eftir 20:25-tap fyrir
Tékklandsmeisturum Talent Plzen
í fyrri leik liðanna í 1. umferð
EHF-bikars karla í handbolta á
Ásvöllum í gærkvöldi. Tékkarnir
skoruðu fjögur fyrstu mörkin og
náðu Haukar aðeins að minnka
muninn í þrjú mörk í seinni hálf-
leik.
Tékkneska liðið er ekki endilega
betra en Haukar, heldur var þetta
einfaldlega dagur Tékkanna. Þeir
nýttu sér sofandahátt í Haukalið-
inu í byrjun leiks og eftir það voru
liðin jöfn. Í hvert skipti sem
Haukarnir hótuðu að gera leikinn
mjög spennandi duttu hlutirnir
svolítið með Talent Plzen. Var það
til skiptis Haukar að fara illa með
góð færi, gestirnir að skora úr
verri færum eða furðulegir dómar
hjá þeim þýsku Maike Merz og
Tönju Schilha.
Að vera fimm mörkum undir
eftir heimaleik er langt frá því að
vera óskastaða, en möguleikarnir
eru fyrir hendi. Haukar geta spil-
að mikið betur en þeir gerðu í
gærkvöldi. Adam Haukur Baum-
ruk lék ágætlega í seinni hálfleik
eftir erfiðan fyrri hálfleik og Hall-
dór Ingi Jónasson kom með góðan
kraft í sóknarleik Hauka í seinni
hálfleik. Grétar Ari Guðjónsson
var ágætur í markinu og Vignir
Svavarsson sterkur í vörn. Liðið í
heild á samt sem áður mikið inni,
sérstaklega í sóknarleiknum.
Betri staða grannanna
Staða grannanna í FH er öllu
betri eftir 27:27-jafntefli við Hc
Vise Bm frá Belgíu á útivelli. FH
var undir nánast allan leikinn en
náði að knýja fram jafntefli með
góðum kafla í seinni hálfleik.
Fyrirliðinn Ásbjörn Friðriksson
skoraði sex mörk fyrir FH og
Bjarni Ófeigur Valdimarsson og
Einar Rafn Eiðsson skoruðu fimm
mörk hvor. Þjóðverjinn Phil
Döhler varði 16 skot í markinu.
FH mætir Íslandsmeisturum Sel-
foss í Meistarakeppni HSÍ á mið-
vikudag og fer síðari leikurinn við
Hc Vise Bm fram í Kaplakrika
næsta laugardag.
Brött brekka bíður
Hauka í Tékklandi
Fimm marka heimatap Haukamanna
Morgunblaðið/Hari
Markahæstur Adam Haukur Baumruk skoraði sex mörk fyrir Hauka.
Aron Pálmarsson og samherjar
hans hjá Barcelona eru heimsbikar-
meistarar félagsliða í handknatt-
leik eftir 34:32-sigur á Kiel í úrslita-
leik í Sádi-Arabíu. Staðan í hálfleik
var 17:15, Kiel í vil, og var leikur-
inn jafn og spennandi.
Aron átti mjög góðan leik hjá
Barcelona, skoraði sjö mörk úr níu
skotum og var næstmarkahæstur á
eftir Luca Cindric sem skoraði ell-
efu mörk.
Gísli Þorgeir Kristjánsson komst
ekki á blað hjá Kiel en Niclas Ek-
berg skoraði sjö mörk.
Bikar í skápinn
hjá Barcelona
IHF
Góður Aron Pálmarsson skoraði 7
mörk í úrslitaleiknum.
Oddur Gretarsson var markahæstur
hjá Balingen með sex mörk í 25:23-
heimasigri gegn Geir Sveinssyni og
lærisveinum hans í Nordhorn í
þýsku 1. deildinni í handbolta í gær.
Balingen er með tvö stig eftir tvo
leiki en Nordhorn án stiga. Bjarki
Már Elísson skoraði átta mörk og
var markahæstur hjá Lemgo í 24:32-
tapi fyrir Magdeburg á heimavelli.
Lemgo er einnig með tvö stig. Aðal-
steinn Eyjólfsson og lærisveinar
hans í Erlangen máttu þola 23:30-
tap fyrir Füchse Berlín á útivelli.
Erlangen er með tvö stig.
Íslendingarnir röð-
uðu inn mörkum
Heimasíða Balingen
Mörk Oddur Gretarsson var marka-
hæstur í sigri á lærisveinum Geirs.
Ásvellir, EHF-bikar karla, fyrri leikur,
sunnudaginn 1. september 2019.
Gangur leiksins: 0:3, 2:5, 2:6, 3:9,
5:10, 7:13, 9:14, 10:17, 13:19, 15:20,
19:22, 20:25.
Mörk Haukar: Adam Haukur Baum-
ruk 6, Halldór Ingi Jónasson 3, Ás-
geir Örn Hallgrímsson 2, Gunnar Dan
Hlynsson 2, Vignir Svavarsson 2,
Tjörvi Þorgeirsson 2, Ólafur Ægir
Ólafsson 1/1, Einar Pétur Pétursson
1, Grétar Ari Guðjónsson 1.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 8,
Haukar – Talent Plzen 20:25
Andri Sigmarsson Scheving 3/2.
Utan vallar: 10 mínútur
Mörk Talent Plzen: Jakub Tonar
7/4, Jakub Douda 4/1, Petr Vinkel-
hofer 3, Jakub Sindelar 2, Ondrej
Safanek 2, Jan Chmelik 2, Tim Bogd-
anic 2, Milan Ivancev 1, Tomas Nejdl
1, Simon Mahác 1.
Varin skot: Karel Smid 12.
Utan vallar: 12 mínútur
Dómarar: Maike Merz og Tanja
Schilha, Þýskalandi
Áhorfendur: 700.
Guðmundur Ágúst Krist-
jánsson, Íslandsmeistari í
golfi, lauk keppni á KPMG-
mótinu í Belgíu á samtals ell-
efu höggum undir pari. Mót-
ið er hluti af Áskorenda-
mótaröð Evrópu en Guð-
mundur fékk þar keppnisrétt
fyrr á þessu ári vegna ár-
angurs síns á Nordic-móta-
röðinni.
Skorið í mótinu var mjög
lágt og þessi fína spila-
mennska Guðmundar skilaði
honum því þó ekki nema í
53. sæti. Guðmundur lék
fyrsta hringinn í mótinu á
átta undir pari. sport@mbl.is
Lék á ellefu
undir pari
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Íslandsmeistari Guðmundur Ágúst reynir
að fóta sig á nýrri mótaröð.