Morgunblaðið - 02.09.2019, Side 35
byrða 3:1 sigur gegn nýliðum HK
þegar liðin áttust við í Kórnum í gær.
Víkingar voru betri aðilinn lungann
úr leiknum og lærisveinar Arnars
Gunnlaugssonar fóru langt með að
kveðja falldrauginn og eiga mögu-
leika á að ná Evrópusæti, hvort sem
það verður í gegnum Pepsi Max-
deildina eða Mjólkurbikarkeppnina,
en Víkingur mætir FH í úrslitaleik
bikarkeppninnar 14. þessa mánaðar.
Landsliðsmiðvörðurinn Kári
Árnason var svo sannarlega maður
leiksins í Kórnum í gær. Kári opn-
aði markareikning sinn í efstu deild
hér á landi en hann skoraði tvö
fyrstu mörk sinna manna, sem
komu eftir hornspyrnur. Hinn ungi
og efnilegi Valgeir Valgeirsson
jafnaði metin á milli marka Kára og
það var síðan Guðmundur Andri
Tryggvason sem innsiglaði sigur
Víkinga með sjötta marki sínu í
deildinni í sumar.
Þetta var annar sigur Víkinga í
röð og með honum eru þeir nú sjö
stigum frá fallsæti og eiga mögu-
leika á að klifra ofar á töfluna. Það
var góður bragur á leik Víkinga og
hvergi veikan hlekk að finna, þar
sem Kári Árnason átti afbragðsleik.
Liðið tók völdin frá upphafsflauti og
hélt HK gjörsamlega í skefjum.
HK-ingar, sem hafa komið svo
skemmtilega á óvart í sumar, áttu
dapran dag að þessu sinni. Liðið náði
engum dampi og tapaði verðskuldað
öðrum leik sínum í röð. HK er eins
og Víkingur með 25 stig og sæti í
deild þeirra bestu ætti að vera nokk-
uð tryggt, sem fæstir reiknuðu með
hjá Kópavogsliðinu fyrir tímabilið.
gummih@mbl.is
Martin hélt ekki aftur af sér
ÍBV, sem þegar er fallið, vann af-
ar óvæntan sigur á Íslandsmeist-
urum Vals 2:1. Valsmenn byrjuðu
með látum og skoruðu fyrsta mark
leiksins eftir 90 sekúndur. Eyja-
menn virtust átta sig á að leikurinn
væri byrjaður þegar þeir tóku miðj-
una og jöfnuðu á 11. mínútu. Vals-
menn komust aðeins inn í leikinn eft-
ir jöfnunarmarkið en skópu enga
hættu það sem eftir lifði fyrri hálf-
leiks.
Gary Martin, maður leiksins,
skoraði annað mark sitt í leiknum og
þar með sigurmarkið þegar 58 mín-
útur voru liðnar af leiknum. Gary
hélt ekki aftur af sér í fögnuði marka
sinna. Í seinna markinu virtist hann
ná beittu augnsambandi við fyrrver-
andi þjálfara sinn, Óla Jó, en sá
síðarnefndi gat ekki notað Gary í
leikskipulagi Valsmanna.
Valsliðið átti góða spretti undir
lok leiksins en ÍBV hélt haus, með
Telmo fastan fyrir á miðjunni, hann
keyrði liðið áfram og ÍBV sigldi sigr-
inum heim. Margir ungir, efnilegir
leikmenn hafa fengið tækifæri í sum-
ar og það er vert að minnast á Tóm-
as Bent Magnússon, sem var í fyrsta
skiptið í byrjunarliði ÍBV í dag.
Hann skilaði góðu dagsverki, var
duglegur, skóp nokkur færi og lét
finna fyrir sér. sport@mbl.is
Þrenna í síðari hálfleik
Daninn Morten Beck Guldsmed
sló í gegn í Garðabænum á laugar-
dagskvöldið og skoraði þrennu í síð-
ari hálfleik þegar FH sneri við leikn-
um gegn Stjörnunni og sigraði 3:1
eftir að hafa verið 1:0 undir að lokn-
um fyrri hálfleik.
Sigurinn var mikilvægur fyrir FH
í baráttunni um Evrópusæti því liðin
voru með jafn mörg stig fyrir leik-
inn. FH er nú með 31 stig og kom sér
fyrir í 3. sæti. Stjarnan er þremur
stigum á eftir en liðin þar fyrir neð-
an, HK og Valur, töpuðu bæði. Útlit-
ið er því nokkuð gott hjá FH, sem á
auk þess aðra möguleika til að
tryggja sér sæti í Evrópukeppni á
næsta tímabili. Fram undan hjá lið-
inu er bikarúrslitaleikur gegn Vík-
ingi, en sigur í þeirri keppni gefur
sæti í Evrópudeildinni.
Guldsmed heillaði mig ekki sér-
staklega þegar hann lék síðast hér-
lendis með KR en hann var flug-
beittur í Garðabænum. Tvö síðustu
mörk hans voru mjög vel afgreidd en
um leið voru varnartilburðir Garð-
bæinga á lágu plani.
Þorsteinn Már Ragnarsson hefði
getað skorað þrennu fyrir Stjörnuna
í fyrri hálfleik. Skoraði eitt en Guð-
mundur Kristjánsson kom í veg fyrir
hin tvö mörkin á síðustu stundu.
kris@mbl.is
Taflan laug ekki í Grindavík
KA er svo gott sem öruggt með
sæti sitt í efstu deild eftir torsóttan
2:0-sigur gegn Grindavík á Mustad-
vellinum í Grindavík á laugardaginn.
Að sama skapi eru Grindvíkingar
svo gott sem fallnir, en þeir eru nú
sex stigum frá öruggu sæti þegar
þrjár umferðir eru eftir.
Akureyringar voru sterkari aðil-
inn í leiknum, án þess þó að skapa
sér afgerandi marktækifæri. KA-
menn þurftu tvær vítaspyrnur til
þess að skora og það tókst að lokum.
Grindvíkingar vörðust ágætlega
framan af en einstaklingsmistök
kostuðu liðið að lokum. Annars var
sóknarleikur Grindvíkinga hreinasta
hörmung og liðið hefði getað spilað
samfleytt út vikuna án þess að skora.
Taflan laug engu í Grindavík í gær
og það var ljóst frá fyrstu mínútu að
þarna voru tvö af þremur slökustu
liðum deildarinnar að mætast.
Gæðin voru engin og Akureyringum
til happs sendu Eyjamenn yfir-
burðalélegt lið til keppni á þessari
leiktíð. Grindvíkingar virtust ekki
hafa neinn áhuga á því að skora
mörk í allt sumar og það varð liðinu
að falli. Þjálfari liðsins, Srdjan Tu-
fegdzic, hljóp heldur betur á sig þeg-
ar hann líkti liði sínu við Atlético Ma-
drid og hann ætti kannski að horfa á
fleiri leiki með Diego Simeone og
lærisveinum hans í vetur enda Atlé-
tico Madrid fullfært um að bæði
verjast og sækja. bjarnih@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Í Garðabæ Morten
Beck Guldsmed
í baráttunni en hann
skoraði þrennu.
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019
Norðlingabraut 8
110 Reykjavík
S: 530-2005
Bíldshöfði 16
110 Reykjavík
S: 530-2002
Tryggvabraut 24
600 Akureyri
S: 461-4800
&530 2000
www.wurth.is
Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur
Arvada flísjakki
• 100% prjónað pólýester
• Einstaklega þægilegir og flottir
flísjakkar með hettu og vösum
• Til í gulum og bláum lit
• Stærðir: XS - 3XL
Vnr: 1899 312
Verð: 8.900 kr.
1:0 Þorsteinn Már Ragnarsson 45.
1:1 Morten Beck Guldsmed 61.
1:2 Morten Beck Guldsmed 72.
1:3 Morten Beck Guldsmed 82.
I Gul spjöldÞorri Geir Rúnarsson, Þor-
steinn Már Ragnarsson og Brynjar
Gauti Guðjónsson (Stjörnunni).
Björn Daníel Sverrisson, Brandur Ol-
sen og Halldór Orri Björnsson (FH).
Dómari: Erlendur Eiríksson, 7.
STJARNAN – FH 1:3
Áhorfendur: 1.109.
MM
Morten Beck Guldsmed (FH)
Guðmundur Kristjánsson (FH)
M
Sölvi Guðbjargarson (Stjörnunni)
Nimo Gribenco (Stjörnunni)
Þorsteinn Már Ragnarsson
(Stjörnunni)
Daði Freyr Arnarsson (FH)
Björn Daníel Sverrisson (FH)
Steven Lennon (FH).
0:1 Kári Árnason 24.
1:1 Valgeir Valgeirsson 48.
1:2 Kári Árnason 53.
1:3 Guðmundur A. Tryggvason 59.
I Gul spjöldBirnir Snær Ingason (HK),
Guðmundur Andri Tryggvason,
Kwame Quee, Halldór Smári
Sigurðsson (Víkingi).
I Rauð spjöldEngin.
HK – VÍKINGUR R. 1:3
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þór-
arinsson, 8.
Áhorfendur: 1.050.
MM
Kári Árnason (Víkingi)
M
Atli Arnarson (HK)
Valgeir Valgeirsson (HK)
Sölvi Geir Ottesen (Víkingi)
Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi)
Júlíus Magnússon (Víkingi)
Guðm. A. Tryggvason (Víkingi)
3. deild karla
Skallagrímur – Höttur/Huginn.............. 1:4
Einherji – KH .......................................... 1:1
Sindri – KV............................................... 0:4
KF – Kórdrengir ..................................... 1:2
Staðan:
Kórdrengir 19 15 3 1 49:20 48
KF 19 14 2 3 50:22 44
KV 19 12 2 5 46:25 38
Reynir S. 19 10 5 4 37:32 35
Vængir Júpiters 18 11 1 6 33:25 34
Einherji 19 6 6 7 24:24 24
Höttur/Huginn 19 5 6 8 34:32 21
Sindri 19 6 3 10 38:52 21
Álftanes 19 5 4 10 34:36 19
KH 19 5 2 12 27:44 17
Augnablik 18 3 4 11 23:39 13
Skallagrímur 19 2 0 17 22:66 6
Holland
Vitesse – AZ Alkmaar.............................2:1
Albert Guðmundsson kom inn á hjá AZ
á 78. mínútu.
Belgía
Kortrijk – Oostende ............................... 2:2
Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn og
skoraði jöfnunarmark Oostende.
B-deild:
Roeselare – Lommel ................................1:1
Arnar Grétarsson þjálfar Roeselare.
Kolbeinn Þórðarson lék fyrstu 82 mín-
úturnar með Lommel. Stefán Gíslason
þjálfar liðið.
Danmörk
Midtjylland – Bröndby ........................... 1:0
Hjörtur Hermannsson lék fyrstu 69.
mínúturnar hjá Bröndby.
Mikael Anderson lék fyrstu 71 mín-
útuna hjá Midtjylland.
Horsens – Lyngby................................... 2:1
Frederik Schram var ónotaður varamaður
hjá Lyngby.
AGF– Esbjerg.......................................... 1:0
Jón Dagur Þorsteinsson var á vara-
mannabekknum hjá AGF.
Svíþjóð
Kalmar – Malmö ..................................... 0:5
Arnór Ingvi Traustason lék allan leik-
inn með Malmö og skoraði fjórða mark
liðsins.
AIK – Djurgården................................... 1:0
Kolbeinn Sigþórsson lék fyrstu 62. mín-
úturnar hjá AIK.
Norrköping – Hammarby...................... 2:0
Guðmundur Þórarinsson lék allan leik-
inn með Norrköping.
Aron Jóhannsson kom inn á sem vara-
maður á 19. mínútu hjá Hammarby.
Noregur
Lilleström – Brann ................................. 1:3
Arnór Smárason lék allan leikinn með
Lilleström.
Sarpsborg –Viking ................................. 2:2
Samúel Kári Friðjónsson kom inn á
sem varamaður á 73. mínútu hjá Viking.
Axel Óskar Andrésson er frá keppni
vegna meiðsla.
KNATTSPYRNA
1:0 Óskar Örn Hauksson 35.
2:0 Kristinn Jónsson 87.
I Gul spjöldSkúli Jón Friðgeirsson (KR).
Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA).
I Rauð spjöldEngin.
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson, 7.
KR – ÍA 2:0
Áhorfendur: 1.643.
MM
Kristinn Jónsson (KR)
M
Óskar Örn Hauksson (KR)
Pálmi Rafn Pálmason (KR)
Kennie Chopart (KR)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson (KR)
Einar Logi Einarson (ÍA)
Marcus Johansson (ÍA)
Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA)