Morgunblaðið - 04.09.2019, Side 9

Morgunblaðið - 04.09.2019, Side 9
BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Birgir Þórarinsson, þingmaður Mið- flokksins í Suðurkjördæmi, var ræðukóngur Alþingis á 149. lög- gjafarþinginu, sem lauk á mánu- daginn. Hann hefur ekki áður hlotið titilinn. Birgir flutti 168 ræður og gerði 698 athugasemdir við ræður annarra þingmanna. Hann talaði alls í 2.469 mínútur, eða í 41 klukkustund. Annað löggjafarþingið í röð raða karlar sér í efstu 10 sætin á ræðu- listanum. Sú þingkona sem mest tal- aði, Bryndís Haraldsdóttir Sjálf- stæðisflokki, varð í 12. sæti með sínar 930 mínútur. Varaþingmaður ofarlega Listinn í ár ber þess merki að þingmenn Miðflokksins beittu mál- þófi í umræðum um þriðja orku- pakkann. Á lista yfir þá 10 þingmenn sem mest töluðu má finna sjö þing- menn Miðflokksins. Þeir verma fimm efstu sætin. Athygli vekur að í 11. sæti er varaþingmaður Mið- flokksins í Norðvesturkjördæmi, Jón Þór Þorvaldsson, en hann talaði í 954 mínútur. Jón Þór var öflugur í maraþonumræðunni um 3. orku- pakkann. Eins og jafnan gerist eru þing- menn stjórnarflokkanna þeir sem minnst töluðu á 149. löggjafar- þinginu. Skemmst talaði Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Fram- sóknarflokksins, eða í 152 mínútur. Í næstu þremur sætum koma þing- menn Sjálfstæðisflokksins og þing- maður VG er í 5. sæti. Að öðru leyti vísast til lista sem fylgir fréttinni. Ræðukóngur 148. þingsins, Björn Leví Gunnarsson, er nú í 8. sæti. Þá var Helgi Hrafn Gunnarsson pírati í 2. sæti, en hann kemst ekki á „topp 10“ að þessu sinni. Á því sama þingi var Birgir Þórarinsson í 10. sæti. Á vef Alþingis kemur fram að á 149. löggjafarþinginu voru fluttar 6.862 þingræður í samtals 29.093 mínútur (484,88 klst.) Athugasemdir voru 9.839 og stóðu yfir í 5.969 mín- útur (266.15 klst.) Meðallengd þing- ræðu var 4,2 mínútur og athuga- semda 1,6 mínútur. Þingfundum 149. löggjafarþings var frestað 20. júní 2019. Þingið var að störfum frá 11. september til 14. desember 2018 og frá 21. janúar til 20. júní 2019. Svokallaður þing- stubbur um 3. orkupakkann stóð síð- an yfir í þrjá daga og lauk á mánu- daginn, er þingfundum var frestað á ný. Umræðan um 3. orkupakkann er sú lengsta sem staðið hefur yfir á Al- þingi um eitt einstakt mál. Lengsti þingfundurinn um málið stóð í 24 klst. og 16 mín., sem einnig er met. Nýtt þing, 150. löggjafarþingið, verður sett þriðjudaginn 10. septem- ber næstkomandi, í samræmi við þingsköp. Birgir er nýr ræðukóngur Alþingis  Maraþonræður þingmanna Miðflokksins skiluðu þeim í efstu sæti ræðulista 149. löggjafarþingsins  Ræðukóngurinn talaði í 41 klukkustund  Engin kona er meðal þeirra 10 efstu að þessu sinni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alþingi Hér má sjá tvo af þingmönnum Miðflokksins sem lengst töluðu, þá Ólaf Ísleifsson og Birgi Þórarinsson. Fjær er Ari Trausti Guðmundsson, VG. Birgir Þórarinsson 2.469 mín. (41 klst.) Þorsteinn Sæmundsson 2.210 mín. (37 klst.) Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 1.614 mín. (27 klst.) Ólafur Ísleifsson 1.545 mín. (26 klst.) Bergþór Ólason 1.357 mín. (23 klst.) Þorsteinn Víglundsson 1.277 mín. (21 klst.) Gunnar Bragi Sveinsson 1.198 mín. (20 klst.) Björn Leví Gunnarsson 1.190 mín. (20 klst.) Karl Gauti Hjaltason 1.184 mín. (20 klst.) Willum Þór Þórsson 984 mín. (16 klst.) 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 1 2 3 4 5 Þingmenn sem töluðu lengst á Alþingi Þingmenn sem skemmst töluðu Silja Dögg Gunnarsdóttir 152 mín. Páll Magnússon 214 mín. Jón Gunnarsson 227 mín. Birgir Ármannsson 252 mín. Steinunn Þóra Árnadóttir 253 mín. FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2019 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bæjarráð Seyðisfjarðar átti nýlega símafund með Arnoddi Erlendssyni kafara um olíuskipið El Grillo. Enn gætir olíumengunar frá flakinu. Arnoddur var í teyminu sem dældi olíu úr El Grillo árið 2001. Hann sagði í samtali við Morgun- blaðið að boruð hefðu verið göt efst í olíutankana og þeirri olíu sem náðist verið dælt upp. Þverbönd eru undir dekkinu og sagði Arnoddur að enn sæti olía á milli þverbanda þar sem ekki voru boruð tæmingargöt. Hann sagði að ákveðið hefði verið á sínum tíma að olíutæma ekki á milli allra þverbandanna. Arnoddur nefndi að hálftómir tankar skipsins hefðu get- að sprungið og lagst saman vegna þrýstings þegar skipið sökk og olían úr þeim skriðið með þiljum út um allt skipið. „Þetta er svartolía og hún þykknar í kulda og lekur hægt út um lítil göt. Ef hlýnar lekur hún frekar,“ sagði Arnoddur. Hann telur alveg framkvæmanlegt að olíutæma flakið til fulls, en það sé heilmikil aðgerð sem kosti bæði tíma og peninga. Olíumengun meira áberandi „Hér er orðin mikil skipaum- ferð og skip leggjast úti á firðinum. Við höfum áhyggjur af því að þessi aukna umferð kunni að hafa hreyft við einhverju í flakinu. Okkur finnst olíumengunin frá því hafa verið meira áberandi hin síðari ár, hvort sem það tengist hlýnun sjávar eða aukinni skipaumferð. Flakið er orðið gamalt og gæti verið að bila þess vegna. Það er mjög óljóst hvað er að gerast þarna niðri,“ sagði Aðal- heiður Borgþórsdóttir, bæjarstjóri á Seyðisfirði. Hún sagði bæjaryfirvöld hafa áhyggjur af menguninni og vilja láta fjarlægja allar olíuleifar úr flakinu. Aðalheiður sagði umfang verkefnisins ekki þekkt né heldur hvað það myndi mögulega kosta. „Það er líka spurning hver á að borga brúsann,“ sagði Aðalheiður. Flugvélar sökktu skipinu Hún sagði að Seyðisfjarðar- kaupstaður væri búinn að skrifa um- hverfisráðuneytinu og óska eftir við- tali við umhverfisráðherra vegna málsins. Einnig hefðu þau skrifað breska sendiráðinu og óskað eftir fundi því El Grillo sigldi undir breskum fána og þjónaði sjóherjum bandamanna í seinni heimsstyrjöld- inni. Þýskar herflugvélar réðust á breska olíuflutningaskipið El Grillo þar sem það lá á Seyðisfirði 10. febr- úar 1944, fyrir rúmum 75 árum. Skipið laskaðist mikið og var sökkt í kjölfarið. Mikil olíumengun kom frá flakinu, en skipið gat borið um 9.000 tonn af olíu. Olíu var dælt úr því í nokkrum atrennum, fyrst 1952 þeg- ar náðust um 4.500 tonn. Aftur var dælt úr flakinu árið 2001 en einhver olía er þar eftir því enn sést olíubrák á sjónum, einkum þegar hlýnar. Vinsælt hefur verið hjá áhuga- köfurum að kafa niður að flakinu. Fyrirtækið Dive.is hefur m.a. skipu- lagt köfunarferðir að flaki El Grillo. Á heimasíðu þess segir að flakið sé um 150 metra langt og vegi meira en 7.000 tonn. Flakið liggur á um 45 metra botndýpi en hæsti punktur þess er á um 28 metra dýpi. Morgunblaðið/Bogi Þór Arason Seyðisfjörður El Grillo var sökkt innarlega í firðinum. Olíumengun hefur borist frá flakinu og þykir heimamönnum hún heldur hafa aukist í seinni tíð. Enn leynast olíuleifar í El Grillo  Aukinnar olíumengunar gætir frá flakinu  Bæjaryfirvöld vilja aðgerðir Nafn systur Atla vantaði Í andlátsfrétt um Atla Eðvaldsson í blaðinu í gær láðist að geta systur hans, Önnu, sem dyggilega studdi börn Atla í veikindabaráttu hans. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT Ef gengið yrði til kosninga til Al- þingis í dag yrði fylgi Pírata ríflega 9%. Fylgi þeirra minnkar um rösk- lega þrjú prósentustig frá síðustu mælingu Gallup, að því er fram kemur í nýjum Þjóðarpúlsi. Fylgi Samfylkingarinnar eykst um nær tvö prósentustig milli mæl- inga, en tæplega 16% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi annarra flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,1-1,2 prósentu- stig, og eru breytingarnar ekki töl- fræðilega marktækar. Nær 22% segjast myndu kjósa Sjálfstæð- isflokkinn, rúmlega 13% Miðflokk- inn, næstum 13% Vinstri græn, rösklega 11% Viðreisn, ríflega 8% Framsókn og um 4% Flokk fólksins. Fylgi Pírata minnkar í könnun Gallup Hrannar Péturs- son hefur verið ráðinn aðstoðar- maður Lilju Al- freðsdóttur, mennta- og menn- ingarmálaráð- herra, í stað Jóns Péturs Zimsen, sem nýverið fór aftur til starfa í Réttarholtsskóla. Hrannar var aðstoðarmaður Lilju er hún gegndi embætti utanríkis- ráðherra 2016-2017 og starfaði hann einnig í forsætisráðuneytinu. Hrann- ar var framkvæmdastjóri mann- auðs- og markaðsmála hjá Voda- fone, upplýsingafulltrúi álversins í Straumsvík og fréttamaður á RÚV. Fyrir er Hafþór Eide Hafþórsson aðstoðarmaður mennta- og menn- ingarmálaráðherra. Hrannar Pétursson Hrannar nýr aðstoð- armaður Lilju

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.