Morgunblaðið - 04.09.2019, Side 20

Morgunblaðið - 04.09.2019, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2019 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 - Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Jóga með Grétu 60+ kl. 12.15 og 13.30, hægt er að skrá sig í síma 411-2702 og á staðnum. Söngstund með Helgu kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30-15.20. Bókaspjall með Hrafni kl.15. Árbæjarkirkja Kyrrðarstund kl. 12 í kirkjunni. Opið hús, félagsstarf fullorðinna, í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 13-16. Stólaleikfimi með Öldu Maríu í Opna húsinu. Allir hjartanlega velkomnir. Árskógar Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15. Bridge kl. 12. Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-16. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S: 535 2700. Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 9-15.Vatnsleikfimi kl. 14.30. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Línudans kl. 10. Þátttöku- listarnir liggja í holinu, komdu og athugaðu hvort það er ekki eitthvað sem heillar þig að gera í vetur. Hádegismatur kl. 11.30. Tálgun með Valdóri kl. 13. Zumba kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband í smiðjunni kl. 9. Postulíns- málun í handverksstofu kl. 9. Minigolf í setustofunni kl. 10. Tölvu- og snjallsímakennsla í setusofunni kl. 10.30. Bókband í smiðjunni kl. 13. Myndlist í handverksstofu kl. 13.30. Dans með Vitatorgsbandinu í matsalnum kl. 14. Frjáls spilamennska kl. 13.-16.30. Heitt á könnunni. Verið öll hjartanlega velkomin. Nánari upplýsingar í síma 411 9450. Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Vatnsleikf. kl. 7.10/7.50/15.15. Kvennaleikf. Ásg. kl. 9.30. Kvennaleikf Sjál. kl. 10.30. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15. Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurðurm/leiðbeinanda kl. 9-12. Qigong 10-11. Línudans kl. 11-12. Leikfimi Helgu Ben kl. 11-11.30. Útskurður / Pappamódel m/leiðb. kl. 13-16. Félagsvist kl. 13-16. Döff Félag heyrnalausra kl. 12.30-15. Allir velkomnir. Gullsmári Myndlist kl. 9. Postulínsmálun kl. 13. Kvennabridge kl. 13. Silfursmíði kl. 13. Línudans fyrir lengra komna kl.16. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Útskurður og tálgun með leiðbeinanda hefst 11. september, nýliðar velkomnir. Boccia kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Spil og púsl kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og hádegismatur kl. 11.30. Handavinna kl. 13 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Korpúlfar Gönguhópar kl. 10 gengið frá Borgum. Kynningarhátíð kl. 13 í Borgum í dag, félagsstarfið kynnt, fyrirspurnum svarað og leiðbeinendur segja frá. Vonumst til að sjá ykkur sem flest. Síðan mun Elvis Iceland mæta með gamla slagara og hrista upp í hátíðinni með rokki og rómantík. Kaffi á könnunni og Borgardætur verða með rjómapönnukökur. Seltjarnarnes Gler og bræðsla á neðri hæð Félagsheimilisins við Suðurströnd kl. 9. og 13. Leir, Skólabraut kl. 9. Botsía, Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn, Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna, Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Á morgun fimmtudag verður félagsvist í salnum á Skólabraut kl. 13.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hittist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir vel- komnir. Síminn í Selinu er: 568 2586. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl. 10. Kaffi og rúnstykki eftir göngu. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Vantar þig fagmann? FINNA.is Atvinnublað Morgunblaðsins fimmtudaga og laugardaga Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað? Sendu pöntun á atvinna@mbl.is eða hafðu samband í síma 569 1100 Allar auglýsingar birtast í Mogganum, á mbl.is og finna.is ✝ Jóna AuðbjörgGuðný Jóns- dóttir Snæland, fæddist í Reykjavík 3. febrúar 1936. Hún lést á líkn- ardeild Landspít- alans 24. júlí 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jón Klemenzson, f. 31.12. 1907, d. 23.6. 1936, og Soffía Schiöth Lárusdóttir, f. 1.7. 1912, d. 28.8. 2001. Albróðir hennar var Garðar Jónsson, f. 4.1. 1935, d. 7.6. 1935. Síðar giftist Soffía Rögnvaldi Þórðarsyni, f. 10.1. 1907, d. 19.12. 1962, með honum eignaðist hún hálfsystkini Jónu, þau Guðmund Þórð, f. 4.12. 1938, og Ragnhildi, f. 12.5. 1944, Rögn- land, fyrir átti Gunnar soninn Al- exander. Þóra átti fyrir soninn Sigurbjörn, börn hans eru Vík- ingur Aron og Nína Brimdís. 2) Soffía Snæland, f. 3.8. 1963, gift Ingibirni G. Hafsteinssyni, f. 30.8. 1962, börn þeirra eru: a) Arnar Már; b) Heiðdís Jóna, börn hennar eru Aron Daníel Finns- son og Sóldís Soffía Jónsdóttir; c) Hafsteinn Jarl, í sambúð með Ju- liu Gamaniek. 3) Sólveig Snæ- land, f. 24.7. 1970 í sambúð með Jóni Ebba Halldórssyni, f. 30.4. 1958, synir Sólveigar úr fyrra hjónabandi með Kristjáni Þ. Ár- sælssyni eru a) Ársæll Þór, b) Ar- on Freyr, c) Arnór Snæland, í sambúð með Bjarna Frey Þór- hallssyni. Útförin fór fram í kyrrþey frá Fossvogskapellu 2. ágúst. 2019. valdsbörn. Rögn- valdur Þórðarson reyndist Jónu ákaf- lega traustur og góður faðir. Eiginmaður Jónu var Kristinn Snæ- land, f. 24.10. 1935, d. 21.1. 2017. Giftust þau 3. febrúar 1956. Börn þeirra eru: 1) Jón Garðar Snæ- land, f. 10.7. 1956, í sambúð með Þóru Sigurbjörns- dóttir, f. 10.5. 1956, börn þeirra eru a) Kristinn Snæland, í sam- búð með Guðnýju Lilju Ómars- dóttur, dóttir þeirra er Diljá Rós Snæland; b) Helena Auðbjörg Snæland, í sambúð með Gunnari Árnasyni, fyrir átti Helena dótt- ur Victoríu Tómasdóttir Snæ- Elsku mamma, ég á fá orð til að lýsa því hve ég sakna þín mik- ið. Ég er alltaf að hugsa til þín, á leið að hringja í þig eða á leið í heimsókn. Þegar ég fer út að versla í matinn er ég ennþá að reyna að finna eitthvað gott fyrir þig í matinn líka, nema að þá man ég að þú og pabbi eruð að fara að borða saman á dásamlega him- neskum stað. Ég á eftir að sakna allra okkar góðu stunda, sérstaklega hvað við gátum talað saman um allt milli himins og jarðar endalaust og haft gaman af, sömuleiðis öll hlátursköstin okkar Soffíu og þín. Þessar stundir okkar og margar fleiri eiga eftir að ylja mér um hjartað um ókomin ár. Elsku mamma, þú varst ávallt tilbúin að hlusta og hugga ef ég var langt niðri, þú reyndist mér alltaf vel og varst ekki bara ynd- isleg móðir heldur líka einstakur vinur í gegnum súrt og sætt, takk fyrir allt. Ég vona að núna sért þú komin í faðm hans pabba sem elskaði þig svo mikið og allra hinna ástvina þinna sem hafa beðið þín á fallega staðnum sem bíður okkar allra. Elsku hjartans mamma mín, nú kveð ég þig í bili, þú munt ávallt eiga stað í hjarta mínu. Þín verður sárt saknað en minning þín mun lifa með okkur og svo vitum við að þér líður vel á nýjum stað við hlið pabba. Hvíl þú í friði, elsku mamma. Það er svo þungt að missa, tilveran er skekin á yfirþyrmandi hátt, angist fyllir hugann, örvæntingin og umkomuleysið er algjört, tómarúmið hellist yfir, tilgangsleysið virðist blasa við. Það er svo sárt að sakna en það er svo gott að gráta. Tárin eru dýrmætar daggir, perlur úr lind minninganna. Minninga sem tjá kærleika og ást, væntumþykju og þakklæti fyrir liðna tíma. Minninga sem þú einn átt og enginn getur afmáð eða frá þér tekið. Tárin mýkja og tárin styrkja. Í þeim speglast fegurð minninganna. Gráttu, „Því að sælir eru sorgbitnir því að þeir munu huggaðir verða.“ Sælir eru þeir sem eiga von á Kristi í hjarta því að þeir munu lífið erfa, og eignast framtíð bjarta. (Sigurbjörn Þorkelsson) Sólveig Snæland. Jóna Auðbjörg Guðný Jónsdóttir Snæland ✝ Sigrún fæddistí Hólsgerði í Saurbæjarhreppi 28. september1915. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Blönduóss 4. júlí 2019. Foreldrar henn- ar voru fæddir í Skagafirði, Ingi- björg Jónsdóttir á Bústöðum í Aust- urdal 1879 og Hjálmar S. Þor- láksson á Hofi í Vesturdal 1874. Hann var af Djúpadalsætt sem kennd er við Djúpadal í Skaga- firði. Hálfsystkini Sigrúnar sam- feðra voru Steinunn, húsfreyja á Reykhólum, f. 1898, Snjólaug, ljósmóðir í Neskaupstað og í Reykjavík, f. 1901, og Hjörtur, 7. janúar 1961, maki: Guðrún Halldóra Baldursdóttir bóndi, f. 21. ágúst 1969. Sonur þeirra er Sigursteinn Víkingur, húsa- smiður, f. 22. júní 1997. Sigrún ólst upp í Hólsgerði og Syðri-Villingadal. Árið 1922 flutti fjölskyldan í Syðri- Villingadal og Ytri-Villingadal 1934. Sigrún var í farskóla nokkrar vikur á vetri í fjóra vet- ur, hún sótti námskeið í garð- rækt hjá Ræktunarfélagi Norð- urlands, var einn vetur í Húsmæðraskólanum á Lauga- landi í Eyjafirði og lauk ljós- mæðranámi frá Ljósmæðra- skóla Íslands 1944. Sigrún var síðan ljósmóðir í hreppunum framan Akureyrar 1944-1958 með aðsetur á Espihóli í Hrafna- gilshreppi. Sigrún var vel hag- mælt og samdi einnig frásagnir og smásögur. Ritsmíðar hennar birtust einkum í Húnavöku og Heima er best. Útför Sigrúnar fór fram í kyrrþey frá Blönduósskirkju 20. júlí 2019. skólastjóri á Flat- eyri, f.1905. Al- bræður hennar voru Þorlákur, bóndi í Villingadal, f. 1909, Jón, bóndi í Villingadal, f. 1912, og Angantýr Hjörv- ar, skólastjóri í Sól- garði og kennari á Hrafnagili, f. 1919. Sigrún giftist ár- ið 1960 Ólafi Rune- bergssyni, Kárdalstungu í Vatnsdal, f. 22. okt. 1926, d. 5. mars 1993, og var húsfreyja í Kárdalstungu frá þeim tíma. Foreldrar Ólafs voru Dýrunn Ólafsdóttir húsfreyja og Rune- berg Ólafsson bóndi í Kárdals- tungu. Sonur Sigrúnar og Ólafs er Hjálmar Þorlákur forritari, f. Sigrún föðursystir okkar fæddist í lágreistum kotbæ þar sem aðeins brýnustu nauðsynjar voru fyrir hendi. Hún lauk veg- ferð sinni á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi nær 104 árum síðar við aðrar og betri aðstæður. Æskuárin liðu hjá samheldinni fjölskyldu, lífsbaráttan var stundum ströng á dalajörðum. Sigrún veiktist af berklum 12 ára. Foreldrar hennar höfðu um tvennt að velja; senda hana á Kristneshæli eða berjast við berklana heima og þann kost völdu þau. Þetta var í gróandan- um þegar mjólkin var kraftmest og sagði Sigrún að rjóminn hefði skipt sköpum, á öðrum mat hafði hún um tíma ekki lyst. Hún fékk síðar lömunarveiki en yfirsteig hana. Barnafræðslan var fáeinar vik- ur á vetri í fjóra vetur og síðar var hún einn vetur á Húsmæðra- skólanum á Laugalandi. Sigrún nam ljósmóðurfræði og starfaði í hreppunum framan Akureyrar 1944-1958. Ljósmóðir þurfti far- artæki starfs síns vegna svo hún keypti Willysjeppa 1947 sem hún notaði einnig til ferðalaga vítt og breitt um landið. Margir eiga ógleymanlegar minningar um hana og jeppann. Í Vatnsdalnum hófst nýr kafli í lífi Sigrúnar. Þar reyndi sem fyrr á dug og útsjónarsemi. Í Kárdals- tungu eignaðist hún sína eigin fjölskyldu. Hálffimmtug ól hún soninn Hjálmar sem veitti henni hamingju og lífsfyllingu. Erfið- leikar knúðu þó dyra við veikindi Dýrunnar tengdamóður og Óla eiginmanns hennar og reyndi þá á getu og hæfileika til hjúkrunar og umönnunar. En gæfan hafði ekki snúið baki við Kárdals- tungufólki. Halldóra Baldurs- dóttir réðst kaupakona þangað og hefur ekki farið síðan. Þau Hjálmar og Halldóra eignuðust soninn Sigurstein, augastein ömmu sinnar. Hún varð þeirrar gæfu aðnjótandi að sjá hann alast upp og ljúka námi frá Verk- menntaskólanum á Akureyri sl. vor. Dóra brást ekki þegar á reyndi, annaðist tengdamóður sína af alúð síðustu árin hennar í Kárdalstungu. Skömmu fyrir aldarafmælið varð brottför úr sveitinni óum- flýjanleg en vistin á Blönduósi var eins og best varð á kosið. Hjálmar og Dóra sinntu Sigrúnu vel sem fyrr, með heimsóknum og símtölum og Sigursteinn leit til ömmu sinnar hvenær sem færi gafst. Við eyfirsku bræðrabörnin lögðum af og til leið okkar í Húnaþing. Úr hverri ferð á henn- ar fund komum við fróðari um hagi forfeðranna og oft með vísu í farteskinu. Við Ingurnar fórum vestur 21. júní, það var síðasta ferðin okkar. Frænka var ótrú- lega hress, nýkomin úr baði en með hroll og bað um volga mjólk. Frænku þótti mjólkin bragð- lítil enda var hún vatnsblönduð af vissum ástæðum. E.t.v. hefur henni orðið hugsað til rjómans sem bjargaði lífi hennar forðum ásamt árvekni og bænum ömmu. Frænka hafði afburðaminni, var ættrækin og fylgdist vel með ættingjum sínum og vinum. Á síðustu árum notaði hún símann mikið til að halda sambandi við fólk. Þjóðmál voru henni ætíð of- arlega í huga og komu þau oft til umræðu í símtölunum. Við þökkum frænku samfylgd- ina og sendum innilegar samúð- arkveðjur til Hjálmars, Dóru og Sigursteins. Fyrir hönd eyfirsku bræðra- barnanna, Ingibjörg Jónsdóttir. Við Reykhólafólkið minnumst móðursystur okkar með ljúfri minningu og þökk fyrir hlýhug og einstaklega góð kynni. Hún hafði alla tíð góð samskipti við okkur og fylgdist vel með frændfólkinu sínu á Reykhólum. Hún hafði öðru hvoru sam- band við okkur og spurði frétta af frændfólki sínu þar vestra. Ættrækni hennar og frænd- semi var einlæg og okkur mikils virði. Það var notalegt og fróðlegt að líta inn til hennar á Blönduósi og rifja upp liðna tíð við hana. Það var athyglisvert að finna hve hlý- legt og alúðlegt viðmót ríkti þar á síðkveldi hennar. Slíkt viðmót er sannarlega þakkarvert. Lífshlaup hennar og ættir eru tengd norðlenskum byggðum. Í tilefni 100 ára afmælis hennar 2015 var henni send eftirfarandi kveðja: Kona í kveldsólar skini einn kunnasti Húnvetningur. Af skagfirsku skarpgreindu kyni, en skýlaust sem Eyfirðingur. Frændfólkið á Reykhólum kveður hana með þökk og virð- ingu. Blessuð sé minning hennar. Hjörtur og Bryndís, Kristín og Máni. Sigrún Þórey Guð- rún Hjálmarsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.