Morgunblaðið - 04.09.2019, Qupperneq 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2019
Opið virka daga 10.00-18.15, laugardaga 11.00-14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | Sími 588 8686
Gómsætir og girnilegir réttir
í fiskborði beint í ofninn
Þorskhnakkar
Glæný lúða
Klausturbleikja
Glæný línuýsa
Nýlöguð
humarsúpa
Undankeppni EM kvenna
F-RIÐILL:
Lettland – Svíþjóð .................................... 1:4
Staðan:
Ísland 2 2 0 0 5:1 6
Svíþjóð 1 1 0 0 4:1 3
Slóvakía 1 0 0 1 0:1 0
Lettland 1 0 0 1 1:4 0
Ungverjaland 1 0 0 1 1:4 0
Lettland – Slóvakía og Ungverjaland –
Svíþjóð mætast 4. október.
Lettland – Ísland og Svíþjóð – Slóvakía
mætast 8. október.
A-riðill:
Slóvenía – Kósóvó..................................... 5:0
Rússland – Eistland ................................. 4:0
Holland – Tyrkland .................................. 3:0
B-riðill:
Georgía – Ítalía ......................................... 0:1
Bosnía – Malta .......................................... 2:0
Ísrael – Danmörk ..................................... 0:3
C-riðill:
Hvíta-Rússland – Færeyjar .................... 6:0
Wales – Norður-Írland ............................ 2:2
D-riðill:
Tékkland – Pólland .......................... frestað.
G-riðill:
Austurríki – N-Makedónía ...................... 3:0
H-riðill:
Sviss – Litháen ......................................... 4:0
Belgía – Króatía........................................ 6:1
I-riðill:
Úkraína – Þýskaland ............................... 0:8
Írland – Svartfjallaland ........................... 2:0
Mót U15 stúlkna í Víetnam
Ísland – Mjanmar..................................... 1:1
Snædís María Jörundsdóttir 75.
Ísland vann Hong Kong 8:0 í fyrsta leik
sínum á mótinu og mætir Víetnam í loka-
umferðinni á morgun.
3. deild karla
Augnablik – Vængir Júpíters.................. 0:2
Staðan:
Kórdrengir 19 15 3 1 49:20 48
KF 19 14 2 3 50:22 44
KV 19 12 2 5 46:25 38
Vængir Júpiters 19 12 1 6 35:25 37
Reynir S. 19 10 5 4 37:32 35
Einherji 19 6 6 7 24:24 24
Höttur/Huginn 19 5 6 8 34:32 21
Sindri 19 6 3 10 38:52 21
Álftanes 19 5 4 10 34:36 19
KH 19 5 2 12 27:44 17
Augnablik 19 3 4 12 23:41 13
Skallagrímur 19 2 0 17 22:66 6
Kórdrengir hafa tryggt sér sæti í 2. deild
og Skallagrímur er fallinn í 4. deild.
4. deild karla
8-liða úrslit, seinni leikir:
GG – Elliði ................................................. 3:5
Elliði áfram, 9:5 samanlagt.
Kormákur/Hvöt – Hamar........................ 2:1
Kormákur/Hvöt áfram, 4:4 samanlagt.
Ægir – Ýmir.............................................. 2:2
Ægir áfram, 4:2 samanlagt.
Björninn – Hvíti riddarinn ...................... 0:3
Hvíti riddarinn áfram, 4:1 samanlagt.
Elliði – Hvíti riddarinn og Kormákur/
Hvöt – Ægirmætast í einvígjum um tvö
sæti í 3. deild.
KNATTSPYRNA
STJARNAN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Bjarki Már Gunnarsson, leikmaður
Stjörnunnar í úrvalsdeild karla í
handknattleik, vonast til þess að nýir
leikmenn liðsins geti hjálpað liðinu
að ná upp þeim stöðugleika sem hef-
ur vantað í Garðabæinn á undan-
förnum árum. Stjarnan hefur leik í
deildinni á sunnudaginn kemur þeg-
ar liðið heimsækir ÍBV en Garðbæ-
ingar enduðu í áttunda sæti deild-
arinnar á síðustu leiktíð og féllu úr
leik í átta liða úrslitum Íslandsmóts-
ins eftir 2:1-tap gegn deildarmeist-
urum Hauka. Stjörnunni er spáð sjö-
unda sæti í ár af þjálfurum og
fyrirliðum deildarinnar.
„Ég held að þetta verði spennandi
tímabil hjá Stjörnunni. Við erum
búnir að missa nokkra sterka leik-
menn sem hefði verið gaman að geta
haldið en á móti fáum við aðra sterka
og reynda leikmenn inn í staðinn og
það verður spennandi að sjá hvernig
þetta þróast hjá okkur. Spáin er í
raun bara í samræmi við það hvernig
við höfum verið að spila. Á pappír er-
um við svipað sterkir og í fyrra og
okkur er spáð á svipuðum stað og bú-
ast mátti við. Það er enginn í þessu til
þess að enda í sjöunda sæti og öll lið
á Íslandi setja stefnuna á titla og það
gerum við að sjálfsögðu líka, annars
væri maður ekki að standa í þessu.“
Maður kemur í manns stað
Garðbæingar hafa misst sterka
pósta í sumar en að sama skapi hefur
liðið styrkt sig mikið með tilkomu
Ólafs Bjarka Ragnarssonar og
Tandra Más Konráðssonar. Bjarki
þekkir þá vel, en þeir urðu Íslands-
meistarar saman með HK árið 2012.
„Ég væri alveg til í að bæði Egill
og Aron Dagur væru áfram með okk-
ur en núna er það bara annarra að
stíga upp og fylla skörð þeirra. Það
er vissulega slæmt að hafa misst
Sveinbjörn úr markinu og það er
stórt skarð höggvið í liðið en eins og
alltaf kemur maður í manns stað.
Það er komin meiri reynsla í hópinn
en á síðustu leiktíð og vonandi mun
þessi reynsla skila okkur meiri
stöðugleika. Við Ólafur Bjarki erum
uppaldir saman í HK þannig að við
þekkjumst vel. Ég spilaði líka með
Tandra í HK og þeir eru báðir algjör-
ir toppnáungar. Okkur hefur gengið
vel saman í gegnum tíðina, líka með
landsliðinu, þannig að ég er bara
mjög spenntur að spila með þeim á
nýjan leik. Þeir eru báðir mjög góðir
handboltamenn sem vita nákvæm-
lega út á hvað þetta gengur. Þeir
hafa verið í atvinnumennsku lengi og
þeir munu ekki bara hjálpa liðinu
heldur munu þeir einnig hjálpa ung-
um leikmönnunum að fóta sig í efstu
deild,“ sagði Bjarki, sem sjálfur var
atvinnumaður í nokkur ár.
Stöðugleiki hefur verið ákveðið
vandamál í Garðabæ á undanförnum
fjórum árum en Bjarki vonast til
þess að nú verði breyting þar á.
„Mórallinn og andinn í liðinu hefur
aldrei verið vandamál og ég á ekki
von á því að það breytist í ár. Við átt-
um mjög góða leiki inni á milli í fyrra
þar sem við gátum unnið hvaða lið
sem var en svo komu líka leikir þar
sem hlutirnir voru ekki að ganga
upp. Vonandi getum við fjölgað góðu
leikjunum á komandi tímabili og
fækkað þeim slæmu,“ sagði Bjarki
við Morgunblaðið.
Uppeldisbræð-
ur sameinast
í Garðabænum
Bjarki Már segir að markmið Stjörn-
unnar í vetur sé að berjast um titla
Ljósmynd/Handball-westwien.at
Heimkoma Ólafur Bjarki Ragnarsson er kominn til liðs við Stjörnuna frá
West Wien í Austurríki og getur miðlað af reynslunni til liðsins.
Það er erfitt að staðsetja Stjörnumenn. Þeir
geta farið í báðar áttir, í efri eða neðri hluta
deildarinnar.
Öðruvísi hópur sem hefur allt annað yfirbragð
en í fyrra, en það gæti verið stór plús.
Stjarnan er með mun meiri breidd en í fyrra.
Áhugavert: Ná lykilmenn að vera heilir og þá
sérstaklega Ólafur Bjarki og Bjarki Már?
Sebastian Alexandersson
um Stjörnuna
MARKVERÐIR:
Brynjar Darri Baldursson
Ólafur Rafn Gíslason
Stephen Nielsen
HORNAMENN:
Andri Þór Helgason
Leó Snær Pétursson
Óliver Magnússon
Starri Friðriksson
LÍNUMENN:
Bjarki Már Gunnarsson
Hannes Grimm
Hrannar Bragi Eyjólfsson
Sverrir Eyjólfsson
ÚTISPILARAR:
Andri Már Rúnarsson
Ari Magnús Þorgeirsson
Birgir Steinn Jónsson
Gunnar Johnsen
Hjálmtýr Alfreðsson
Ólafur Bjarki Ragnarsson
Tandri Már Konráðsson
Þjálfari: Rúnar Sigtryggsson.
Aðstoðarþjálfari: Árni Þór Sig-
tryggsson.
Árangur 2018-19: 8. sæti og 8-liða
úrslit.
Íslandsmeistari: Aldrei.
Bikarmeistari: 1987, 1989, 2006,
2007.
Stjarnan sækir ÍBV heim í
fyrsta leik deildarinnar á sunnu-
daginn klukkan 16.00.
Lið Stjörnunnar 2019-20
KOMNIR
Andri Þór Helgason
Brynjar Darri Baldursson frá FH
(lék síðast 2016)
Hannes Grimm frá Gróttu
Ólafur Bjarki Ragnarsson frá West
Wien (Austurríki)
Stephen Nielsen frá ÍR
Tandri Már Konráðsson frá Skjern
(Danmörku)
FARNIR
Andri Hjartar Grétarsson, hættur
Aron Dagur Pálsson í Alingsås
(Svíþjóð)
Egill Magnússon í FH
Garðar B. Sigurjónsson, hættur
Sigurður Ingiberg Ólafsson í ÍR
Sveinbjörn Pétursson, hættur
Breytingar hjá Stjörnunni