Morgunblaðið - 04.09.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.09.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2019 Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550 progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17. JAPANSKIR HNÍFAR Allt fyrir eldhúsið Hágæða hnífar og töskur Allir velkomnir Einstaklingar og fyrirtæki Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin! Eins og fram hefur komið getur KR orðið Íslandsmeistari karla í knattspyrnu í næstu umferð sem er þriðja síðasta umferð Pepsí Max-deildarinnar. Sú athyglisverða staða gæti komið upp að KR-ingar fagni Ís- landsmeistaratitli á Hlíðarenda. Ég er ekki nógu vel að mér í sögu Íslandsmótsins til að vita hvort slíkt hafi gerst, þ.e.a.s að KR hafi formlega tryggt sér Íslands- meistaratitil í knattspyrnunni á heimavelli Vals. Ég þekki nokkra KR-inga sem ylja sér reglulega við upptökur af 9:1 sigri KR á Hlíðarenda í lokaumferð fyrir tuttugu og sjö árum. Þá varð KR hins vegar ekki meistari. Þar sem rígurinn á milli félag- anna er talsverður þá er þetta nokkuð forvitnileg staða. Munu Valsmenn leyfa slíku að gerast á gervigrasinu sínu? Nú kann að vera að rígurinn á milli félaganna sé meira í nösunum á fólki og ekki sé beinlínis um hatur að ræða eins og þekkist stundum á milli liða sunnarlega í álfunni. Hæfilegur rígur kryddar hins vegar yfirleitt íþróttirnar og af þeim sökum verður áhugavert að finna andrúmsloftið þegar Valur og KR mætast. Nú háttar þannig til að leikurinn verður skömmu eftir fráfall Atla Eðvaldssonar. Ef til vill er við hæfi að þessi lið mætist eftir að sá sorgaratburður átti sér stað svo hægt sé að minnast Atla við það tækifæri. Atli lék jú með þessum liðum þegar hann var upp á sitt besta. Atli skoraði einmitt magnað mark fyrir KR frá endalínu í leiknum sem áður var minnst á árið 1992. Svipurinn á þraut- reyndum landsliðsmarkverði, Bjarna Sigurðssyni, var ógleym- anlegur. Roberto Carlos er eini maðurinn sem ég hef séð leika þau tilþrif Atla eftir. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is AFTURELDING Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Einar Ingi Hrafnsson, leikmaður Aftureldingar, telur að ef allir leik- menn liðsins haldist heilir í vetur geti Afturelding hæglega blandað sér í baráttu um deildarmeistara- titilinn. Afturelding fær KA í heim- sókn í Mosfellsbæ á sunnudaginn kemur, en liðið endaði í sjötta sæti deildarinnar á síðustu leiktíð og féll úr leik í átta liða úrslitum Íslands- mótsins eftir tap gegn Val. Aftur- eldingu er spáð sjötta sætinu á nýj- an leik af fyrirliðum og þjálfurum deildarinnar. „Tímabilið leggst mjög vel í mig og okkur í Aftureldingu. Það eru allir mjög bjartsýnir fyrir komandi tímabil, mikil tilhlökkun í Mosfells- bænum og allt undir sjötta sætinu yrði vonbrigði fyrir okkur myndi ég segja. Það eru mjög sterk lið í þessari deild en við erum með okk- ar markmið og það er að gera bet- ur en sjötta sætið. Deildin er mjög jöfn og það eru í raun átta lið þarna sem geta öll unnið hvert annað þeg- ar þannig liggur við. Við förum með háleit markmið inn í þetta tímabil en við gerum okkur líka grein fyrir því að það eru önnur lið í þessari deild sem eru gríðarlega vel mönn- uð.“ Missir í leiðtoganum Stórt skarð var höggvið í lið Aft- ureldingar í sumar þegar Elvar Ás- geirsson fór til Þýskalands, þar sem hann hafði samið við 1. deild- arlið Stuttgart, en Elvar skoraði fimm mörk að meðaltali í leik á síð- ustu leiktíð. „Við missum auðvitað Elvar, sem var leiðtogi okkar í sóknarleiknum. Hann var alltaf tilbúinn að taka af skarið þegar á þurfti að halda og það var ákveðið högg að missa hann. Aðrir menn þurfa því að stíga upp núna og Þorsteinn Gauti hefur komið mjög vel inn í þetta hjá okk- ur, finnst mér. Hann er öðruvísi leikmaður en Elvar en hann hentar leik okkar ágætlega. Stropus er líka leikmaður sem mun styrkja okkur og hjálpa á báðum endum vallarins. Birkir Benedikts, Böðvar Páll og Gestur Ólafur eru allir að koma til baka eftir meiðsli þannig að þetta er allt á réttri leið hjá okk- ur.“ Vonbrigði síðustu tvö ár Einar Ingi sneri heim úr atvinnu- mennsku sumarið 2017 þegar hann samdi við Aftureldingu en hann við- urkennir að hann hafi ekki náð þeim markmiðum með liðinu sem hann setti sér haustið 2017. „Þegar ég kom inn í þetta hafði Afturelding verið að vera gera frá- bæra hluti og það vantaði í raun bara herslumuninn upp á að félag- inu tækist að vinna titil. Ég lýg engu um það þegar ég segi að það hafa verið vonbrigði að detta út í átta liða úrslitum Íslandsmótsins undanfarin tvö ár. Ég get alveg við- urkennt það að ég hef ekki náð þeim markmiðum með liðinu sem ég setti mér þegar ég kom hingað aftur en eins og þetta lítur út núna verðum við með mjög gott lið í vet- ur, ef allir haldast heilir, og við verðum að berjast við toppinn. Í ár setjum við stefnuna á að gera eitt- hvað og vonandi gengur það eftir,“ sagði Einar Ingi í samtali við Morgunblaðið. Markmiðum ekki enn náð í Mosfellsbæ  Einar Ingi telur að allt geti gerst hjá Aftureldingu ef allir haldast heilir Morgunblaðið/Hari Nýr Þorsteinn Gauti Hjálmarsson var markahæsti leikmaður Fram í deild- inni síðasta vetur og hann er kominn til liðs við Aftureldingu.  Afturelding verður um miðja deild og í baráttu um heimaleikjarétt ef vel gengur.  Hópurinn er sterkur og liðið hefur bætt við sig spennandi leikmönnum frá því í fyrra.  Hugmyndafræðin er sú sama en spurning um framkvæmdina.  Áhugavert: Verður þetta „copy/paste“ tímabil? Sebastian Alexandersson um Aftureldingu MARKVERÐIR: Arnór Freyr Stefánsson Björgvin Franz Björgvinsson Brynjar Sigurjónsson HORNAMENN: Agnar Ingi Rúnarsson Guðmundur Árni Ólafsson Gunn- ar Malmquist Þórsson Júlíus Þórir Stefánsson LÍNUMENN: Einar Ingi Hrafnsson Kristófer Karl Karlsson Sveinn Jose Rivera ÚTISPILARAR: Birkir Benediktsson Böðvar Páll Ásgeirsson Gestur Ólafur Ingvarsson Hilmar Ásgeirsson Karolis Stropus Tumi Steinn Rúnarsson Þorsteinn Gauti Hjálmarsson Þjálfari: Einar Andri Einarsson. Aðstoðarþjálfari: Ásgeir Jónsson. Árangur 2018-19: 6. sæti og 8-liða úrslit. Íslandsmeistari: 1999. Bikarmeistari: 1999.  Afturelding tekur á móti KA í sínum fyrsta leik í deildinni á sunnudaginn klukkan 17. Lið Aftureldingar 2019-20 KOMNIR Guðmundur Árni Ólafsson frá HK Karolis Stropus frá Klaipeda Dragunas (Litháen) Sveinn Jose Rivera frá Val Þorsteinn Gauti Hjálmarsson frá Fram FARNIR Árni Bragi Eyjólfsson í Kolding (Danmörku) Elvar Ásgeirsson í Stuttgart (Þýskalandi) Emils Kurzemnieks í Tenax Dobele (Lettlandi) Finnur Ingi Stefánsson í Val Kristinn Hrannar Bjarkason í Fram Pálmar Pétursson, hættur Sturla Magnússon, hættur Breytingar hjá Aftureldingu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.