Morgunblaðið - 04.09.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2019
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
FIGGJO LEIRTAU FYRIR
MÖTUNEYTI OG SKÓLA
Figgjo er norskt hágæða merki í borðbúnaði
HANDBOLTI
Þýskaland
RN Löwen – Bergischer ..................... 30:24
Alexander Petersson skoraði ekki fyrir
Löwen. Kristján Andrésson þjálfar liðið.
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 4 mörk
fyrir Bergischer en Ragnar Jóhannsson
skoraði ekki.
Kiel – Ludwigshafen........................... 30:27
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði ekki-
fyrir Kiel.
Leipzig – Stuttgart.............................. 31:28
Viggó Kristjánsson skoraði 2 mörk fyrir
Leipzig. Elvar Ásgeirsson skoraði 1 mark
fyrir Stuttgart.
Danmörk
SönderjyskE – Skjern......................... 26:25
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 2
mörk fyrir SönderjyskE og Sveinn Jó-
hannsson 2. Elvar Örn Jónsson skoraði
ekki fyrir Skjern og Björgvin Páll Gúst-
avsson varði 2 skot í markinu. Patrekur Jó-
hannesson þjálfar liðið.
Aarhus – Kolding ................................ 35:30
Árni Bragi Eyjólfsson skoraði ekki fyrir
Kolding en Ólafur Gústafsson lék ekki með.
Svíþjóð
Kristianstad – Lugi ............................. 31:24
Ólafur Guðmundsson skoraði 5 mörk
fyrir Kristianstad og Teitur Einarsson 3.
Austurríki
West Wien – Linz ................................. 24:22
Guðmundur Hólmar Helgason skoraði 1
mark fyrir West Wien.
Lokakeppni HM karla í Kína
E-RIÐILL:
Japan – Tékkland ................................. 76:89
Bandaríkin – Tyrkland................ (frl.) 93:92
Bandaríkin 4, Tyrkland 3, Tékkland 3,
Japan 2.
F-RIÐILL:
Svartfjallaland – Nýja-Sjáland ........... 83:93
Brasilía – Grikkland ............................. 79:78
Brasilía 4, Grikkland 3, Nýja-Sjáland 3,
Svartfjallaland 2.
G-RIÐILL:
Þýskaland – Dóminíska lýðveldið ....... 68:70
Jórdanía – Frakkland ........................ 64:103
Frakkland 4, Dóminíska lýðveldið 4,
Þýskaland 2, Jórdanía 2.
H-RIÐILL:
Ástralía – Senegal ................................ 81:68
Litháen – Kanada................................. 92:69
Litháen 4, Ástralía 4, Kanada 2, Senegal
2.
KÖRFUBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
Meistarakeppni karla:
Hleðsluhöllin: Selfoss – FH................. 19.30
Í KVÖLD!
EM 2020
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Landsliðsmarkvörðurinn Hannes
Þór Halldórsson átti erfiða helgi með
Íslandsmeisturum Vals um síðustu
helgi, en Valur tapaði fyrir botnliði
ÍBV í Pepsi Max deildinni þar sem
Hannes gerði sig sekan um slæm
mistök í báðum mörkunum sem Gary
Martin skoraði fyrir Eyjamenn.
Hannes segir að það hafi verið erfitt
að kyngja þessu tapi og mistökunum
sem hann gerði en hann segir að
þetta hafi ekki áhrif á sig fyrir kom-
andi leiki með íslenska landsliðinu í
undankeppni EM. Ísland tekur á
móti Moldóvu á Laugardalsvellinum
á laugardaginn og sækir svo Albaníu
heim á þriðjudaginn.
Umræðan hávær og öfgakennd
,,Að mörgu leyti hefur þetta verið
erfitt sumar og síðasta helgi var mjög
erfið en það hefur engin áhrif á mig.
Ef ég er góður í einhverju þá er það
að skilja við erfiðan tíma hjá fé-
lagsliðum og skila svo mínu með
landsliðinu. Það hefur verið viðloð-
andi allan landsliðsferil minn að yfir-
leitt hefur verið eitthvert bras á
félagsliðunum og ég hef oft komið í
landsliðsverkefni eftir erfiðan tíma
með félagsliði mínu en það hefur ekki
haft nein áhrif. Hér er annað um-
hverfi og maður er minntur á það að
það er ekki allt vonlaust sem maður
er að gera, eins og vill oft verða þegar
umræðan verður svona hávær og
öfgakennd,“ sagði Hannes Þór í sam-
tali við Morgunblaðið fyrir æfingu
landsliðsins á Laugardalsvellinum í
gær.
Hannes segir það tvennt ólíkt að
spila með landsliði og félagsliði.
,,Maður gírar sig upp að spila einn
eða tvo leiki með landsliðinu þar sem
þarf bara að komast í gegnum leikinn
með einum eða öðrum hætti og ná í
úrslit, eða spila viku eftir viku með fé-
lagsliði. Ég er reyndar á því að
frammistaða mín í sumar hafi verið
fín en auðvitað er hægt að finna
augnablik þar sem betur hefði mátt
fara. Síðasti leikur er sérstaklega
áberandi en þetta er bara fótbolti og
oft er umræðan öfgakennd. Það er
okkar að leiða hana hjá okkur og
muna það að maður þarf bara að
sinna sinni vinnu. Það er ekki hægt að
stjórna öllu sem markmaður. Vel-
gengnin og mótlætið koma alltaf í
bylgjum og það þarf bara að standa í
lappirnar í mótlætinu og fara ekki of
hátt upp í skýin í meðvindinum,“
sagði Hannes, sem hefur átt frábæru
gengi að fagna á milli stanganna með
íslenska landsliðinu síðustu árin.
Hannes á að baki 61 leik með íslenska
landsliðinu, en hann sneri heim úr at-
vinnumennsku fyrir tímabilið og
gekk til liðs við Íslandsmeistara Vals.
Megum ekki misstíga okkur
Hannes Þór vonast eftir góðum úr-
slitum í komandi landsleikjum og að
liðið fylgi eftir góðri frammistöðu í
leikjunum á móti Albaníu og Tyrk-
landi á Laugardalsvelli í júní í sumar.
,,Þetta verða erfiðir leikir eins og
þeir eru allir orðnir í þessum al-
þjóðlega fótbolta. Vissulega erum við
sigurstranglegra liðið á laugardaginn
og eigum að vinna þann leik. Í gegn-
um tíðina hafa leikir þar sem við er-
um taldir sigurstranglegri aðilinn
reynst okkur erfiðir. Við megum hins
vegar ekki misstíga okkur. Tyrkirnir
hafa verið það stöðugir í þessari riðla-
keppni að við verðum að koma okkur í
eins góða stöðu og mögulegt er áður
en við mætum þeim aftur. Þessir leik-
ir verða verðugt verkefni fyrir okk-
ur.“
Velgengnin og mótlætið
koma alltaf í bylgjum
Landsliðsmarkvörðurinn átti erfiða helgi en segir það ekki hafa nein áhrif á sig
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Undirbúningur Hannes Þór Halldórsson gerir sig kláran fyrir æfingu á Laugardalsvellinum í gær ásamt Rúnari
Alex Rúnarssyni, keppinaut sínum um markvarðarstöðuna, og Guðlaugi Victori Pálssyni.
„Ég var kominn með samning og allt var klárt en svo
varð ekkert af því þar sem félagið valdi að fá annan leik-
mann,“ sagði Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, þegar mbl.is spurði hann út í stöðu hans í gær.
Birkir vildi ekki upplýsa hvaða félag þetta var en félög í
Tyrklandi og á Ítalíu hafa sýnt áhuga á að fá hann í sínar
raðir fyrir veturinn.
„Ég og umboðsmaðurinn ætlum að gefa okkur tíma og
meta stöðuna eftir landsleikina. Ég þarf á þessum æfing-
um og leikjum að halda og einbeiti mér alfarið að því
verkefni núna. Ég er í toppformi. Ég tók heilt undirbún-
ingstímabil með Aston Villa og gekk vel og ég hef verið
að æfa með styrktarþjálfurum á æfingasvæði Aston Villa. Formið er fínt og
svipað og fyrir síðustu leiki landsliðsins,“ sagði Birkir einnig en hann hefur
á sínum atvinnumannaferli leikið í Noregi, á Ítalíu, í Sviss og á Englandi.
Birkir gekk frá starfslokasamningi sínum við Aston Villa hinn 8. ágúst og
er því tæpur mánuður síðan hann varð falur. sport@mbl.is
Samningur var á borðinu
Birkir
Bjarnason
„Eins og staðan er í dag er Ítalía
efst á blaði og svo sjáum við hvort
það verður að veruleika að ég spili
þar áfram. Okkur fjölskyldunni
hefur liðið ákaflega vel á Ítalíu og
þegar maður er kominn á þennan
tíma ferilsins og börnin á þennan
aldur skiptir fjölskyldan rosalega
miklu máli en ekki endilega hvaða
deild ég kem til með að spila í,“
sagði Emil Hallfreðsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, m.a. við
mbl.is en hann er án félags. Hefur
Emil leikið á Ítalíu frá því 2007.
Í forgangi að
vera á Ítalíu
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Reyndur Emil Hallfreðsson spáir í
spilin um þessar mundir.