Morgunblaðið - 04.09.2019, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2019
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Marina
Karagianni
Grísk og spænsk ljóðatónlist í dag
Gríska mezzósópransöngkonan Marina Karagianni
og píanóleikarinn Eva Þyri Hilmarsdóttir flytja efnis-
skrá verka frá Grikklandi og Spáni á fyrstu hádeg-
istónleikum vetrarins í Salnum í dag kl. 12.15. „Verk-
in á efnisskránni eiga það sameiginlegt að vera
annaðhvort þjóðlagaútsetningar eða innblásin af
þjóðlögum. Tónskáldin Montsalvatge og Hadjidakis
deila ástríðu sinni fyrir þjóðlögum, hafa jafnvel safn-
að þeim og þannig stuðlað að varðveislu þeirra og síð-
an nýtt þau í tónsmíðum sínum,“ segir í tilkynningu.
Suðurkóreska
kvikmyndin
Parasite, sem
hlaut aðalverð-
launin á Cannes-
kvikmyndahátíð-
inni í vor, Gull-
pálmann, verður
lokamynd Al-
þjóðlegu kvik-
myndahátíðar-
innar í Reykja-
vík, RIFF, sem hefst 26. september
og lýkur 6. október. Af öðrum
myndum hátíðarinnar má nefna að
í flokknum Fyrir opnu hafi verður
sýnd uppvakningagrínhryllings-
myndin The Dead Don’t Die eftir
Jim Jarmusch og The Lighthouse
eftir Robert Eggs sem hlaut gagn-
rýnendaverðlaunin í Cannes. Er
henni lýst sem svarthvítri hroll-
vekju.
Austurrískar kvikmyndir verða
einnig í brennidepli á hátíðinni, en
austurrískir leikstjórar hafa vakið
mikla athygli hin síðustu ár fyrir
verk sín. Má af þeim nefna Karl
Markovics, sem vakti mikla athygli
fyrir fyrir leik sinn í Óskarsverð-
launamyndinni Die Fälscher frá
árinu 2007. Hann hefur nú sest í
leikstjórastólinn og verður þriðja
kvikmynd hans, Nobodi, sýnd á
RIFF. Sérstaka athygli fær leik-
stjórinn Sara Fattahi, sem kom til
Austurríkis sem flóttamaður úr
sýrlenska borgarastríðinu en starf-
ar nú sem leikstjóri í Vín.
Gullpálmamynd
og austurrískar
Sarah
Fattahi
dagskránni þar sem hann tók þátt í
samtali við sýningarstjóra. Þegar
blaðamaður kom við á bás Hverf-
isgallerís á föstudag gekk mikið á,
verk voru þá seld eftir tvo fyrr-
nefndu málarana og ekki bara hið
stóra útsaumsverk Loja heldur
einnig þrjú önnur sem höfðu verið
tekin með til Kaupmannahafnar. Og
auðheyrilega kræktu færri áhuga-
samir í verk eftir hann en vildu.
Hátíð á tveimur fótum
Það var forvitnilegt að ganga milli
sýninga galleríanna í hópi blaða-
manna víða að og áhugasamra safn-
ara. Galleristarnir kepptust við að
benda á einkenni verka og hug-
myndir listamannanna. Timothy
Person, sem er þekktur er fyrir að
steypa mörgum fremstu samtíma-
ljósmyndurum Finnlands saman
undir heitinu Helsinki School og
starfrækir galleríið Persons Proj-
ects, skýrði til að mynda hvernig
ljósmyndaverkin á hans sýningu eft-
ir nokkra listamenn, og sum hríf-
andi, fjölluðu öll um marglaga tíma –
á gólfinu sýndi hann svo skúlptúr
eftir Rögnu Róbertsdóttur. Verk
eftir einn listamanna hans, Ville
Kumpulainen, voru við lok kaup-
stefnunnar valin af dómnefnd til að
hreppa svokölluð Artproof-verðlaun,
fyrir „ljóðrænan einfaldleika og leik-
inn í tengslum við áhorfandann“.
Stjórnandi danska gallerísins
Croy Nielsen útskýrði hvernig hann
hafði flutt galleríið til Vínar fyrir
þremur árum, til að vinna með hópi
danskra listamanna sem búsettir
eru í hinum þýskumælandi heimi, og
bæta við verkum eftir aðra austur-
ríska. Fyrir miðju í sýningu hans
voru verk úr dánarbúi hins danska
Alberts Mertz.
Og stjórnandi annars dansks gall-
erís, Nils Stærk, útskýrði hvers
vegna hann stillti saman verkum eft-
ir mexíkóskan listamann, Runo
Lagomarsino, og hina ungu dönsku
Tove Storch. Hún gerir skúlptúra úr
silki og hörðum efnum, steinsteypu
og stáli, og nutu þeir vinsælda á
kaupstefnunni; allmargir seldust.
Verðið átta til tólf þúsund evrur,
sagði galleristinn.
Blaðamaður hefur notið þess að
heimsækja CHART undanfarin ár,
ásamt þúsundum annarra; og ís-
lenska gesti hefur ekki vantað, nú
mátti sjá safnafólk héðan sem safn-
ara spígspora þar um sali.
Nanna Hjortenberg var að stýra
CHART í annað sinn og sagði blaða-
manni markmiðið hafa verið að
skapa af metnaði dagskrá þar sem
ýmiss konar viðburðum væri fléttað
saman. Gott dæmi væri fyrirlestra-
prógrammið, þar sem við sögu komu
að mestu listamenn og hönnuðir sem
einnig mátti sjá verk eftir á sýning-
unum. „Með því að heyra og sjá
listamenn tala og segja frá eykst oft
skilningur á því um hvað verkin snú-
ast og hver hugsunin er að baki.“
Hjortenberg ítrekaði að CHART
væri ekki hefðbundin listkaupstefna
og sagði hátíðina standa á tveimur
fótum. „Annar er list- og hönnunar-
kaupstefna, með viðskipti og kynn-
ingu að meginmarkmiði, hitt er það
sem ég kalla almannaþjónustu, og
við Norðurlandabúar skiljum vel
hvað það þýðir. Við höfum áhuga á
gjörvöllu ferlinu í listinni og við vilj-
um kynna jöfnum höndum fyrir
gestum verk ungra listamanna sem
eru að taka sín fyrstu skref og ann-
arra sem eru jafnvel orðir heims-
frægir og verk þeirra afar eftirsótt.
Hér viljum við endurspegla á fjöl-
breytilegan hátt hvað listheimurinn
er spennandi deigla,“ sagði hún og
bætti við að staðsetningin í hjarta
Kaupmannahafnar væri vitaskuld
frábær fyrir hátíð sem þessa.
Sögur Sigríður L. Gunnarsdóttir í Hverfisgalleríi útskýrði verk eftir Steingrím Eyfjörð fyrir
gestum. Aftar er eitt útsaumsverka Loja Höskuldssonar sem margir vildu eignast.
Safnaraspjall Gestir í sýningarrými i8 gallerís, þar sem sjá má málverk eftir Callum Innes og
vefnað eftir Örnu Óttarsdóttur. Algengt er að ungir Danir kaupi reglulega samtímamyndlist.
Hiti Í djarflegu sýningarrými hins sænska Gallery Steinsland Berliner.
Náttúruheimur Galleríið BERG Contemporary lagði allt sýningarrými sitt
undir sýningu á nýjum verkum eftir listamanninn Pál Hauk Björnsson.
Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands (SÍ)
býður til tónleika
á Ísafirði annað
kvöld kl. 19.30
sem eru liður í 70
ára afmæli Tón-
listarskóla Ísa-
fjarðar og Tón-
listarfélags Ísa-
fjarðar. „Sópran-
söngkonan Her-
dís Anna Jónasdóttir flytur nokkur
vinsæl sönglög og aríur með hljóm-
sveitinni en hún er borin og barn-
fædd á Ísafirði og vakti nýverið
mikla hrifningu fyrir söng sinn í La
traviata hjá Íslensku óperunni. Á
tónleikunum kemur einnig fram Há-
tíðarkór Tónlistarskóla Ísafjarðar
auk þess sem hinn bráðefnilegi
píanóleikari Mikolaj Ólafur Frach,
sem er aðeins 19 ára gamall, leikur
lokaþátt úr píanókonsert nr. 2 eftir
Chopin,“ segir í tilkynningu.
Þar kemur fram að á tónleikunum
muni hljóma valdir kaflar úr vinsælli
leikhústónlist Griegs við Pétur Gaut,
m.a. „Morgunstemning“ og „Í höll
Dofrakonungs“. „Stefán Jón Bern-
harðsson, sem leiðir horndeild SÍ,
leikur einleik í hornkonserti sem
Mozart samdi á hátindi ferils síns,
um svipað leyti og hann samdi
óperuna Brúðkaup Fígarós. Tón-
leikunum lýkur með fimmtu sinfóníu
Sibeliusar. Hljómsveitarstjóri er
Daníel Bjarnason, aðalgestastjórn-
andi Sinfóníuhljómsveitarinnar.“
Sinfóníuhljóm-
sveitin á Ísafirði
Herdís Anna
Jónasdóttir
Iceland Air-
waves-tónlistar-
hátíðin er einn
stofnmeðlima
Keychange-
verkefnisins, sem
miðar að því að
auka sýnileika
kvenna í tónlist í
Evrópu. Felst
það m.a. í því að
tónlistarhátíðir
sem taka þátt heita því að ná jöfnu
kynjahlutfalli fyrir árið 2022 og
varð Iceland Airwaves fyrst hátíða
til að ná takmarkinu í fyrra, skv. til-
kynningu. Nú hefur sama markmiði
verið náð fyrir hátíðina í ár og frá
því að verkefnið hófst hafa yfir 250
stofnanir, fyrirtæki og tónlistarhá-
tíðir bæst í hópinn og heitið því að
jafna kynjahlutföll.
„Við stóðum frammi fyrir algjöru
lúxusvandamáli í ár, eins og önnur
ár, þar sem mjög breiður hópur
fólks sækist eftir því að spila á há-
tíðinni,“ er haft eftir Önnu Ásthildi
Thorsteinsson, markaðsstjóra Ice-
land Airwaves og meðlimi í Key-
change, í tilkynningu.
Meðal þeirra sem bæst hafa á
lista yfir flytjendur hátíðarinnar í
ár eru Papercutz frá Portúgal,
Ayelle frá Bretlandi, Bashar Murad
frá Palestínu sem hefur m.a. starf-
að með Hatara, Booka Shade frá
Þýskalandi, Detalji frá Finnlandi
og Joe & The Shitboys frá Fær-
eyjum.
Jöfn kynjahlutföll
annað árið í röð
Anna Ásthildur
Thorsteinsson