Morgunblaðið - 04.09.2019, Page 32

Morgunblaðið - 04.09.2019, Page 32
Tveir Íslendingar verða meðal við- takenda nýrra þýskra tónlistar- verðlauna í klassískri tónlist, Opus Klassik, þegar þau verða veitt í Berlín 13. október. Benedikt Krist- jánsson söngvari hlýtur verðlaunin fyrir frumleika á tónleikum og Vík- ingur Heiðar Ólafsson píanóleikari fyrir bestu einleiksupptökuna. Dómnefnd velur verðalaunahafana. Tveir Íslendingar verð- launaðir í Þýskalandi MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 247. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Bjarki Már Gunnarsson, handknatt- leiksmaður úr Stjörnunni, segir að Garðabæjarliðið hafi sett sér það markmið að berjast um titla á kom- andi keppnistímabili. Sérfræðingur Morgunblaðsins segir erfitt að staðsetja Stjörnumenn, sem geti hvort sem er lent í efri eða neðri hluta Olísdeildar karla, en Íslands- mótið hefst á sunnudag. »24 Stjörnumenn ætla sér að berjast um titla ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Einar Ingi Hrafnsson, handknatt- leiksmaður úr Aftureldingu, kveðst ekki vera búinn að ná þeim mark- miðum sem hann setti sér við kom- una til félagsins fyrir tveimur árum. Einar segir Mosfellinga mjög bjart- sýna fyrir tímabilið sem hefst á sunnudaginn, liðið geti komist í toppbaráttu ef allir haldist heilir, en sérfræðingur Morgunblaðsins telur að liðið verði um miðja deild í vetur. »25 Einar er ekki búinn að ná markmiðum sínum Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Áhuginn á íslensku ullinni er gríðar- lega mikill hér úti. Við verðum með hraðprjónakeppni, fyrirlestra, tísku- sýningu og hægt verður að læra að prjóna á færeyska vísu, en Fær- eyingar prjóna eins og Bretar, sem er öfugt við það sem við Íslendingar gerum, við notum dönsku aðferðina í prjóni,“ segir Ásta Stefánsdóttir, önnur þeirra sem halda utan um skipulag prjónahátíðarinnar Pakhus- strik sem haldin verður í sjötta sinn í Kaupmannahöfn um næstu helgi, en uppselt er á hátíðina. „Þetta byrjaði í íslenska sendi- ráðinu fyrir sjö árum þegar haldin var prjónasamkoma þar sem komu fram nokkur íslensk fyrirtæki, en áhuginn var svo mikill að það var kjaftfullt. Því var prjónahátíðin færð ári seinna yfir í menningarhús Ís- lands, Grænlands og Færeyja á Norðurbryggju, sem er í sama húsi og sendiráðið. Nánast eingöngu Danir sækja þessa hátíð, en það er mikil með- vitund meðal Dana um íslensku ullina og hæfi- leikaríka íslenska fólkið sem er að hanna prjónaflíkur. Danskar konur hér í prjónaheiminum eru mjög vel að sér í þessum málum,“ segir Ásta og bætir við að kvenkynið sé ríkjandi meðal gesta hátíðarinnar, þó að ein- staka karl kaupi miða af þeim 400 sem í boði eru. „Við erum með sölu- bása þar sem þátttakendur kynna uppskriftir, bækur og hönnun. Marg- ir eru með eigin garnframleiðslu, til dæmis hún Kristín Brynja Gunnars- dóttir hjá Einrúmi, hún framleiðir garn sem er blanda af íslenskri ull og taílensku silki, en það er gríðarlega vinsælt hér í Danmörku. Stöllurnar í Kvíkví spinna sjálfar sitt garn af eigin kindum og þær rækta líka kanínur og selja ull af þeim. Þingborgarkonur verða með bás, en sumar þeirra eru með eigin framleiðslu á garni. Dönsk verslun ætlar að sjá um að kynna vörur frá Ístex því þær eru seldar hér í búðum. Hin sérstaka sauðnautsull frá Grænlandi verður líka kynnt.“ Ásta segir að danskt prjónaáhugafólk horfi mikið til norðurs, bæði Íslands og Færeyja, enda prjónahefðin öflug þar. „Danir hafa frá því fyrir 300 árum keypt í stórum stíl frá Færeyjum prjónaðar peysur og sokka. Margir danskir menn eiga færeyskar peysur í sínum skápum. Danir þekkja líka ís- lensku lopapeysuna allt frá því á hippaárunum.“ Töff og hlý Allir þátttakendur prjónahátíðarinnar fá að gjöf uppskrift og lopa í þessa íslensku lopahúfu frá Ístex. Danir meðvitaðir um gæði íslenskrar ullar  Uppselt á prjónahátíðina Pakhusstrik í Kaupmannahöfn Ásta Stefánsdóttir *Heppinn áskrifandi fær að velja á milli Corolla Hatchback, Corolla Touring Sports og Corolla Sedan; þriggja glæsilegra Hybrid- bíla með 1,8 lítra vél í Active-útfærslu. ÍS LE N SK A/ SI A. IS /M O R 92 31 6 08 /1 9 ÁENDANUM VELURÞÚ COROLLU HEPPINN ÁSKRIFANDI verður dreginn út 16. október. Allir áskrifendurMorgunblaðsins erumeð í leiknum. Hérmá sjá valkostina sem einn af áskrif- endum okkar fær að velja um þegar hann fær að gjöf nýja og glæsilega Toyota Corolla.* Fylgstumeð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.