Morgunblaðið - 07.09.2019, Síða 19
A
ð fjárfesta í vönduðum barnabílstól geta verið töluverð
fjárútlát fyrir foreldra og því hentugt fyrir suma að
greiða tiltölulega lága fjárhæð mánaðarlega. Að
meðaltali þarf hvert barn þrjá bílstóla í uppvexti sín-
um og því geta stólakaup verið ansi kostnaðarsöm. Í
mörgum tilvikum eru fleiri en einn stóll í umferð fyrir barnið þar
sem ömmur og afar og aðrir sem aðstoða foreldra með auka stól í
sínum bíl. Að leigja er ódýrt og bindingin er engin, þar sem skila
má stólnum hvenær sem er. Færa má rök fyrir því að það að
leigja stól sé einnig umhverfisvænt þar sem stóllinn er nýttur aft-
ur og aftur og dregið úr kolefnisspori sem felst í því að framleiða,
flytja og farga stól,“ segir Ægir.
Hvað þarf góður barnabílstóll að hafa til að bera?
„Góður barnabílstóll þarf að uppfylla reglugerðir um notkun
öryggis- og verndarbúnaðar í ökutækjum sem settar eru af
Evrópusambandinu og samgönguyfirvöldum. Einnig þarf að
huga að því að stólarnir hafi góða hliðar- og höfuðvörn og komi
vel út í árekstrarprófunum.“
Hvernig er barnið öruggast í bílnum?
„Það hefur margsinnis verið sýnt fram á að barn er öruggast í
bakvísandi bílstól og er talið að það sé fimm sinnum öruggara
þannig. Þar spilar mest inn í að höfuð barns er hlutfallslega
þyngra eftir því sem barnið er yngra og álagið á hálsvöðva því
meira við árekstur í framvísandi en bakvísandi stól. Við mælum
með að börn yngri en þriggja ára séu alltaf í bakvísandi stól.“
Hvað kostar að leigja barnabílstól á mánuði?
„Við afhendingu á leigðum stól er greitt svokallað stofngjald
sem er kr. 3.980. Næstu mánaðamót þar á eftir eru rukkaðar
mánaðarlega 1.990 kr. þar til stól er skilað. Fyrir ungbarnastól er
hægt er að leigja sökkul og kostar það 600 kr. aukalega. Leigu-
samningurinn er ótímasettur og því hægt að skila stólnum hve-
nær sem er.“
Hverjir eru helst að nýta sér þessa þjónustu?
„Það er fjöldi fólks sem nýtir sér að leigja barnabílstól. Í hópi
viðskiptavina okkar eru meðal annars nýbakaðir foreldrar, ömm-
ur og afar og aðrir sem aðstoða með barnið eða börnin, helst þá
svo ekki þurfi að flytja stóla á milli bíla þegar verið er að skutlast
með barnið. Einnig Íslendingar sem búa erlendis sem koma til
landsins með börn, nýta sér mögleikann að geta leigt stól frekar
en að ferðast með stólinn.“
Hvernig hafa barnabílstólar þróast síðasta áratuginn?
„Þróunin á barnabílstólum hefur verið margþætt. ISOFIX-
festingar eru orðnar staðalbúnaður í flestum bílum, þá er stól-
unum einfaldlega smellt í festingarnar. Nýjustu stólarnir eru með
snúningssökkul sem hægt er að snúa í 360 gráður og auðveldar
að setja barnið í og að taka það úr bílnum. Kröfur um öryggi og
endingartíma barnabílstóla eru í sífelldri endurskoðun hjá fram-
leiðendum og eftirlitsaðilum. Fræðsla og umræða um öryggi
barnabílstóla hefur einnig aukist til muna. Í könnun frá Sam-
göngustofu frá 2017 kemur fram að árið 1985 voru um 80% barna
laus í bílum. Um aldamótin 2000 hafi þessi prósenta verið 17% og
talin vera 2% í dag.“
Að leigja stól er umhverfisvænt
Það færist í vöxt að foreldrar kjósi að leigja barnabílstóla í stað þess að fjárfesta í þeim. Ægir Birgisson hjá Barnabíl-
stólum segir að hvert barn fari á uppvexti sínum í gegnum þrjá barnabílstóla og þessi kaup geti verið kostnaðarsöm.
Marta María | mm@mbl.is
Öryggi barnsins í bíl
skiptir miklu máli.
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 19
Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
LEIKFÖNG
fyrir allan aldur
Leikföngin eru úr náttúrulegum efnivið
eins og tré, silki og lífrænni bómull.
Efniviðurinn er mikilvægur út frá
umhverfissjónarmiði en ekki síður
fyrir upplifun og skynjun barnsins.
Fyrsta silkið!
Naghringur úr tré með
áföstum silkiklút í regnboga-
lit. Litlir fingur ná auðveldlega
taki á hringnum og fær barnið
að upplifa andstæðurnar í
harða trénu og mjúka silkinu.
Regnbogi
Tréregnbogarnir eru sígildir og
henta öllum aldri. Þeir koma í
mismunandi stærðum og litum.
Hvort sem hann er notaður
sem brú, hellir, girðing í kringum
dýr, kúlubraut eða eitthvað
allt annað.
Leiksilki
Leiksilki fyrir hugmyndaríkan
leik barns er eitt vinsælasta
waldorf leikfangið, notað í
leikskólum og skólum um
allan heim. Silkið er notað í
búninga, til að byggja virki,
sem himinn eða gras og
margt fleira.
Létt og flögrandi leikfang
sem eykur ímyndunaraflið í
skapandi leik.
Fyrstu kubbarnir
Fyrstu kubbarnir eru óreglu-
legir waldorfkubbar, í regn-
bogalitum eða ólitaðir.
Þegar barn byrjar að byggja
turn með óreglulegum kubbum æfir
það fínhreyfinguna og jafnvægið. Svo er
aðdráttarafl jarðar kannað með því að
láta turninn detta.
Fyrsta dúkkan
Handgerðar dúkkur úr lífrænni bómull.
Hnútadúkkan er kúrudúkka úr einstak-
lega mjúku bómullarefni.
Pokadúkkan fæðist á Íslandi og er fyllt
með íslenskri ull.
Segulkubbar
Segulkubbar henta eldri börnum þar sem sköpunin fær lausan
taum og eru möguleikarnir óendanlegir.