Morgunblaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 19
A ð fjárfesta í vönduðum barnabílstól geta verið töluverð fjárútlát fyrir foreldra og því hentugt fyrir suma að greiða tiltölulega lága fjárhæð mánaðarlega. Að meðaltali þarf hvert barn þrjá bílstóla í uppvexti sín- um og því geta stólakaup verið ansi kostnaðarsöm. Í mörgum tilvikum eru fleiri en einn stóll í umferð fyrir barnið þar sem ömmur og afar og aðrir sem aðstoða foreldra með auka stól í sínum bíl. Að leigja er ódýrt og bindingin er engin, þar sem skila má stólnum hvenær sem er. Færa má rök fyrir því að það að leigja stól sé einnig umhverfisvænt þar sem stóllinn er nýttur aft- ur og aftur og dregið úr kolefnisspori sem felst í því að framleiða, flytja og farga stól,“ segir Ægir. Hvað þarf góður barnabílstóll að hafa til að bera? „Góður barnabílstóll þarf að uppfylla reglugerðir um notkun öryggis- og verndarbúnaðar í ökutækjum sem settar eru af Evrópusambandinu og samgönguyfirvöldum. Einnig þarf að huga að því að stólarnir hafi góða hliðar- og höfuðvörn og komi vel út í árekstrarprófunum.“ Hvernig er barnið öruggast í bílnum? „Það hefur margsinnis verið sýnt fram á að barn er öruggast í bakvísandi bílstól og er talið að það sé fimm sinnum öruggara þannig. Þar spilar mest inn í að höfuð barns er hlutfallslega þyngra eftir því sem barnið er yngra og álagið á hálsvöðva því meira við árekstur í framvísandi en bakvísandi stól. Við mælum með að börn yngri en þriggja ára séu alltaf í bakvísandi stól.“ Hvað kostar að leigja barnabílstól á mánuði? „Við afhendingu á leigðum stól er greitt svokallað stofngjald sem er kr. 3.980. Næstu mánaðamót þar á eftir eru rukkaðar mánaðarlega 1.990 kr. þar til stól er skilað. Fyrir ungbarnastól er hægt er að leigja sökkul og kostar það 600 kr. aukalega. Leigu- samningurinn er ótímasettur og því hægt að skila stólnum hve- nær sem er.“ Hverjir eru helst að nýta sér þessa þjónustu? „Það er fjöldi fólks sem nýtir sér að leigja barnabílstól. Í hópi viðskiptavina okkar eru meðal annars nýbakaðir foreldrar, ömm- ur og afar og aðrir sem aðstoða með barnið eða börnin, helst þá svo ekki þurfi að flytja stóla á milli bíla þegar verið er að skutlast með barnið. Einnig Íslendingar sem búa erlendis sem koma til landsins með börn, nýta sér mögleikann að geta leigt stól frekar en að ferðast með stólinn.“ Hvernig hafa barnabílstólar þróast síðasta áratuginn? „Þróunin á barnabílstólum hefur verið margþætt. ISOFIX- festingar eru orðnar staðalbúnaður í flestum bílum, þá er stól- unum einfaldlega smellt í festingarnar. Nýjustu stólarnir eru með snúningssökkul sem hægt er að snúa í 360 gráður og auðveldar að setja barnið í og að taka það úr bílnum. Kröfur um öryggi og endingartíma barnabílstóla eru í sífelldri endurskoðun hjá fram- leiðendum og eftirlitsaðilum. Fræðsla og umræða um öryggi barnabílstóla hefur einnig aukist til muna. Í könnun frá Sam- göngustofu frá 2017 kemur fram að árið 1985 voru um 80% barna laus í bílum. Um aldamótin 2000 hafi þessi prósenta verið 17% og talin vera 2% í dag.“ Að leigja stól er umhverfisvænt Það færist í vöxt að foreldrar kjósi að leigja barnabílstóla í stað þess að fjárfesta í þeim. Ægir Birgisson hjá Barnabíl- stólum segir að hvert barn fari á uppvexti sínum í gegnum þrjá barnabílstóla og þessi kaup geti verið kostnaðarsöm. Marta María | mm@mbl.is Öryggi barnsins í bíl skiptir miklu máli. LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 19 Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 LEIKFÖNG fyrir allan aldur Leikföngin eru úr náttúrulegum efnivið eins og tré, silki og lífrænni bómull. Efniviðurinn er mikilvægur út frá umhverfissjónarmiði en ekki síður fyrir upplifun og skynjun barnsins. Fyrsta silkið! Naghringur úr tré með áföstum silkiklút í regnboga- lit. Litlir fingur ná auðveldlega taki á hringnum og fær barnið að upplifa andstæðurnar í harða trénu og mjúka silkinu. Regnbogi Tréregnbogarnir eru sígildir og henta öllum aldri. Þeir koma í mismunandi stærðum og litum. Hvort sem hann er notaður sem brú, hellir, girðing í kringum dýr, kúlubraut eða eitthvað allt annað. Leiksilki Leiksilki fyrir hugmyndaríkan leik barns er eitt vinsælasta waldorf leikfangið, notað í leikskólum og skólum um allan heim. Silkið er notað í búninga, til að byggja virki, sem himinn eða gras og margt fleira. Létt og flögrandi leikfang sem eykur ímyndunaraflið í skapandi leik. Fyrstu kubbarnir Fyrstu kubbarnir eru óreglu- legir waldorfkubbar, í regn- bogalitum eða ólitaðir. Þegar barn byrjar að byggja turn með óreglulegum kubbum æfir það fínhreyfinguna og jafnvægið. Svo er aðdráttarafl jarðar kannað með því að láta turninn detta. Fyrsta dúkkan Handgerðar dúkkur úr lífrænni bómull. Hnútadúkkan er kúrudúkka úr einstak- lega mjúku bómullarefni. Pokadúkkan fæðist á Íslandi og er fyllt með íslenskri ull. Segulkubbar Segulkubbar henta eldri börnum þar sem sköpunin fær lausan taum og eru möguleikarnir óendanlegir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.