Morgunblaðið - 07.09.2019, Page 23
Falleg litarpaletta í
barnaherbergi
yngstu dótturinnar.
Elín Maríu er
margt til lista lagt.
þrjá mánuði um allan heim þar sem
þær fengu að upplifa ólíkamenning-
arheima með mér. Það er án efa ein
dýrmætasta reynslan og upplifun sem
ég hef átt með eldri dætrum mínum
og hefur klárlega mótað þær fyrir
framtíðina.“
Elín María segir reynsluna sem
hún öðlaðist á ferðalögum sínum hafa
haft djúpstæð áhrif á afstöðu hennar
til lífsins.
„Að sjá og upplifa frumstæðar að-
stæður fær mann til að kunna enn bet-
ur að meta hvað maður hefur hér
heima. Við Íslendingar höfum svo
margt sem við getum verið þakklát
fyrir. Sem dæmi þegar kemur að nátt-
úrunni sem er einstök og við ættum að
varðveita. Svo ekki sé talað um öryggi
sem við búum við hér, mennta- og
heilbrigðiskerfið svo dæmi séu tekin.
Hversdagslífið hér er nokkuð sem
stór hluti heimsbyggðarinnar kemur
ekki til með að búa við. Ég held að við
höfum tilhneigingu til að taka því sem
sjálfsögðum hlut.“
Við erum líkari en við höldum
Hún segir mannfólkið líkara en við
gerum okkur grein fyrir.
„Sér í lagi þegar kemur að ást, fjöl-
skyldu og vinnu. Flestir þrá að til-
heyra hópi, hvort heldur sem það er
fjölskylda eða vina.
Að framlag þeirra til vinnu sé metið
eða leiði til einhvers sem skiptir máli
og er gott. Þessi þörf fyrir að tilheyra
og að finna til öryggis mótar sjálfs-
traust og persónuleika einstaklinga og
gerir þá færari í að takast á við áskor-
anir, bæði í einkalífi og í starfi.“
Hún segir að skilningur hennar hafi
dýpkast hvað mest með þeirri ákvörð-
un sem hún tók að virða fjölbreytileik-
ann, ólíkar skoðanir, gildi og sjónar-
mið, sem hún telur alla eiga rétt á að
eiga.
„Það er einmitt í fjölbreytileikanum
sem styrkleikurinn liggur, ef færnin
til að eiga árangursrík samskipti við
ólíka einstaklinga er til staðar. Með
því að sýna öllum virðingu sköpum við
sameiginlegan árangur.“
Barnaherbergið griðastaður
barnsins
Hvaða máli skiptir barnaherbergið
að þínu mati?
„Barnaherbergið skiptir mig máli
og finnst mér mikilvægt ef hægt er að
búa barni til sinn eigin griðastað. Ég
hef alltaf lagt áherslu á að þetta sé
staður til að leika sér og dunda. Þó að
Mathilda sé bara sjö mánaða unir hún
sér mjög vel á gólfinu og reynir að
brölta um og leika sér. Að bjóða upp á
leikföng sem örva bæði líkama og at-
hygli barnsins finnst mér mikilvægt,
sem og að hafa herbergið fallegt. Ég
er með notalega lýsingu frá Bamb-
ljósi, huggulega mottu úr Epal sem
má þvo, rúmið hennar er gamalt frá
vinkonu minni og sængurverin,
himnasængin og stuðkanturinn er úr
Bíum Bíum.
Það er dásamlegt að fylgjast með
Mathildu dunda sér í herberginu og
spjalla við sig. Hvað varðar herbergið
finnst mér afar gaman að blanda sam-
an gömlu og nýju. Hillan er t.a.m. frá
eldri dætrum mínum, litlu skórnir
prjónaðir af Rósu Björgvinsdóttur
handa Siggu minni fyrir 20 árum,
Disney-myndin er original Disney-
mynd frá pabba hennar sem hefur
fylgt honum alla tíð. Svo eru litlu kjól-
arnir frá því að hún fæddist sem
hanga til skrauts og annað praktískt
sem maður þarf að hafa tiltækt. Tré-
SJÁ SÍÐU24
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 23