Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2019, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2019, Blaðsíða 9
22.9. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9 Þrennt þykir mér standa uppúr þegar ég lít til baka yfirsíðustu sjö daga. Í fyrsta lagi mjög vel heppnaður flokks- ráðsfundur okkar Sjálfstæðis- manna um liðna helgi. Í öðru lagi skýrsla OECD um Ísland. Og í þriðja lagi hið merkilega nýmæli að taka upp velsældarmælikvarða sem víðara sjónarhorn á þá við- leitni okkar að hámarka hamingju og lífsgæði landsmanna. Góð einkunn Efnahags- og framfarastofnunin OECD er merkilegur samstarfs- vettvangur 36 ríkja sem í grunn- inn gengur út á að miðla af reynslu til að bæta lífskjör og stuðla að hagvexti. Hún var stofnuð 1961 á grunni eldri stofnunar sem hafði verið sett á laggirnar 1948 til að hafa umsjón með Marshall-áætluninni um endurreisn Evrópu. Marshall-áætlunin gekk nefni- lega ekki bara út á peningastyrki heldur líka stefnu um bætta við- skiptahætti, umbætur á regluverki í þágu frjálsra viðskipta og niður- fellingu á viðskiptahindrunum. Í vikunni var kynnt ítarleg skýrsla OECD um íslensk efna- hagsmál í þremur hlutum. Fyrsti hlutinn fjallar um efnahagsmál okkar almennt, annar hlutinn um menntun og hæfni og þriðji hlut- inn um umbætur á ríkisútgjöldum til að viðhalda hagvexti og al- mennri hagsæld. Meginniðurstaðan er að íslenskt efnahagsumhverfi er heilbrigt, jöfnuður með því mesta sem þekk- ist og staða ríkissjóðs traust. Lífs- kjör hér eru einhver hin bestu sem þekkjast meðal aðildarríkja OECD, þökk sé miklum hagvexti undanfarin ár með litlu atvinnu- leysi, lágri verðbólgu og jákvæð- um ytri skilyrðum. Á sama tíma hefur umgjörð hins opinbera verið styrkt og fjármálastjórnin ein- kennst af varfærni og lækkun skulda. Staða hins opinbera er því bæði sterk og sjálfbær. Tillögur til úrbóta Tilgangur OECD er ekki síst að miðla af reynslu aðildarríkjanna og leggja til umbætur. Fjölmargar slíkar tillögur eru í nýju skýrsl- unni. Varðandi opinberan rekstur er lagt til að haldið verði áfram að lækka skuldir og virða umgjörð opinberra fjármála. Haldið verði áfram með áætlanir um sölu banka. Aukin áhersla verði lögð á endurmat útgjalda og slíkt mat verði einnig látið ná til stærstu út- gjaldaflokka ríkisins, ekki síst heilbrigðiskerfisins og mennta- kerfisins. Fjárfestingar í innviðum verði auknar, til að mynda í veg- um, fjarskiptum og raforkukerfi. Veggjöld verði tekin upp sem stýringar- og fjármögnunartæki. Dregið verði úr áherslu á bóta- greiðslur í því skyni að styðja við atvinnuþátttöku. Varðandi framleiðni og sam- keppnishæfni íslenska hagkerfisins er lagt til að dregið verði úr rekstrarhindrunum, ekki síst í þjónustu- og flutningsgreinum. Við ákvörðun launa verði fylgt fram- leiðnivexti og umgjörð kjarasamn- inga treyst. Stuðlað verði að aukn- um hreyfanleika vinnuafls yfir í verðmætari störf með aukinni menntun. Ég fagna þessum tillögum til úrbóta og tel mikilvægt að horfa til þeirra í okkar störfum á næstu misserum. Velsældarmælikvarðarnir Æ meiri skilningur er á því að hagvöxtur og landsframleiðsla eru ekki einu mælikvarðarnir sem máli skipta þegar við mælum ár- angur ríkja í að hámarka ham- ingju, velferð og lífsgæði borgar- anna. Það voru því ánægjuleg tímamót í vikunni þegar kynntar voru til- lögur að þrjátíu og níu velsældar- mælikvörðum, sem nefnd um hag- sæld og lífsgæði vann fyrir forsætisráðherra. Þetta er mjög spennandi og mikilvæg viðleitni til að gefa heildstæðari mynd af stöðu okkar og árangri. Með tillögunum fylgja einnig niðurstöður skoðanakönnunar um það hvað almenningi finnst skipta mestu máli varðandi lífsgæði. Fróðlegt er að bera þær niður- stöður saman við mælikvarðana þrjátíu og níu. Tillögurnar eru í samráðsferli í samráðsgátt Stjórnarráðsins og geta allir sagt sitt álit á þeim þar. Flokksráðsfundur um orkumál og umfang hins opinbera Fyrir viku héldum við Sjálfstæðis- fólk fjölmennan flokksráðsfund sem var einkum helgaður tveimur málefnum: umfangi hins opinbera og orkumálum. Mikill samhugur var á fundin- um og almenn ánægja með um- ræður þar og árangur af þeim. Skoðanaskipti voru lífleg en mál- efnaleg og þetta var ekki „hita- fundur“ eins og stundum er sagt. Stjórnmálaályktun fundarins fjallar að verulegu leyti um orku- mál og þar er tekið sterkt og af- dráttarlaust til orða: Forræði yfir orkuauðlindum skal vera í höndum okkar Íslendinga. Orkuauðlindir í opinberri eigu skulu vera það áfram. Ríkja skal jafnræði milli landsmanna varðandi dreifikostnað raforku. Tryggja skal nægt fram- boð af raforku og nýta kosti frjálsrar samkeppni. Koma þarf í veg fyrir að almennir notendur séu berskjaldaðir gagnvart orkufá- tækt. Tryggja skal landsmönnum ábata af hagnaði orkufyrirtækja í eigu ríkisins með beinum hætti. Fleira mætti telja en það var ein- staklega jákvætt hve djúpar og málefnalegar umræður sköpuðust um orkumál á þessum stóra flokksráðsfundi okkar. Þá áréttaði fundurinn mikilvægi þess að einfalda regluverk at- vinnulífsins til að styrkja sam- keppnishæfni fyrirtækja, lækka vöruverð og auka framleiðni og svigrúm til launahækkana. Ég hlakka mjög til að fylgja áherslum fundarins eftir. Tíðindamikil vika Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is ’Það var einstaklega jákvætt hve djúpar og málefnalegar umræður sköpuðust um orkumálá þessum stóra flokksráðsfundi okkar. Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Góð heyrn glæðir samskipti Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður. ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Erum flutt í Hlíðasmára 19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.