Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2019, Page 9
22.9. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Þrennt þykir mér standa uppúr þegar ég lít til baka yfirsíðustu sjö daga. Í fyrsta
lagi mjög vel heppnaður flokks-
ráðsfundur okkar Sjálfstæðis-
manna um liðna helgi. Í öðru lagi
skýrsla OECD um Ísland. Og í
þriðja lagi hið merkilega nýmæli
að taka upp velsældarmælikvarða
sem víðara sjónarhorn á þá við-
leitni okkar að hámarka hamingju
og lífsgæði landsmanna.
Góð einkunn
Efnahags- og framfarastofnunin
OECD er merkilegur samstarfs-
vettvangur 36 ríkja sem í grunn-
inn gengur út á að miðla af
reynslu til að bæta lífskjör og
stuðla að hagvexti.
Hún var stofnuð 1961 á grunni
eldri stofnunar sem hafði verið
sett á laggirnar 1948 til að hafa
umsjón með Marshall-áætluninni
um endurreisn Evrópu.
Marshall-áætlunin gekk nefni-
lega ekki bara út á peningastyrki
heldur líka stefnu um bætta við-
skiptahætti, umbætur á regluverki
í þágu frjálsra viðskipta og niður-
fellingu á viðskiptahindrunum.
Í vikunni var kynnt ítarleg
skýrsla OECD um íslensk efna-
hagsmál í þremur hlutum. Fyrsti
hlutinn fjallar um efnahagsmál
okkar almennt, annar hlutinn um
menntun og hæfni og þriðji hlut-
inn um umbætur á ríkisútgjöldum
til að viðhalda hagvexti og al-
mennri hagsæld.
Meginniðurstaðan er að íslenskt
efnahagsumhverfi er heilbrigt,
jöfnuður með því mesta sem þekk-
ist og staða ríkissjóðs traust. Lífs-
kjör hér eru einhver hin bestu
sem þekkjast meðal aðildarríkja
OECD, þökk sé miklum hagvexti
undanfarin ár með litlu atvinnu-
leysi, lágri verðbólgu og jákvæð-
um ytri skilyrðum. Á sama tíma
hefur umgjörð hins opinbera verið
styrkt og fjármálastjórnin ein-
kennst af varfærni og lækkun
skulda. Staða hins opinbera er því
bæði sterk og sjálfbær.
Tillögur til úrbóta
Tilgangur OECD er ekki síst að
miðla af reynslu aðildarríkjanna
og leggja til umbætur. Fjölmargar
slíkar tillögur eru í nýju skýrsl-
unni.
Varðandi opinberan rekstur er
lagt til að haldið verði áfram að
lækka skuldir og virða umgjörð
opinberra fjármála. Haldið verði
áfram með áætlanir um sölu
banka. Aukin áhersla verði lögð á
endurmat útgjalda og slíkt mat
verði einnig látið ná til stærstu út-
gjaldaflokka ríkisins, ekki síst
heilbrigðiskerfisins og mennta-
kerfisins. Fjárfestingar í innviðum
verði auknar, til að mynda í veg-
um, fjarskiptum og raforkukerfi.
Veggjöld verði tekin upp sem
stýringar- og fjármögnunartæki.
Dregið verði úr áherslu á bóta-
greiðslur í því skyni að styðja við
atvinnuþátttöku.
Varðandi framleiðni og sam-
keppnishæfni íslenska hagkerfisins
er lagt til að dregið verði úr
rekstrarhindrunum, ekki síst í
þjónustu- og flutningsgreinum. Við
ákvörðun launa verði fylgt fram-
leiðnivexti og umgjörð kjarasamn-
inga treyst. Stuðlað verði að aukn-
um hreyfanleika vinnuafls yfir í
verðmætari störf með aukinni
menntun.
Ég fagna þessum tillögum til
úrbóta og tel mikilvægt að horfa
til þeirra í okkar störfum á næstu
misserum.
Velsældarmælikvarðarnir
Æ meiri skilningur er á því að
hagvöxtur og landsframleiðsla eru
ekki einu mælikvarðarnir sem
máli skipta þegar við mælum ár-
angur ríkja í að hámarka ham-
ingju, velferð og lífsgæði borgar-
anna.
Það voru því ánægjuleg tímamót
í vikunni þegar kynntar voru til-
lögur að þrjátíu og níu velsældar-
mælikvörðum, sem nefnd um hag-
sæld og lífsgæði vann fyrir
forsætisráðherra. Þetta er mjög
spennandi og mikilvæg viðleitni til
að gefa heildstæðari mynd af
stöðu okkar og árangri.
Með tillögunum fylgja einnig
niðurstöður skoðanakönnunar um
það hvað almenningi finnst skipta
mestu máli varðandi lífsgæði.
Fróðlegt er að bera þær niður-
stöður saman við mælikvarðana
þrjátíu og níu.
Tillögurnar eru í samráðsferli í
samráðsgátt Stjórnarráðsins og
geta allir sagt sitt álit á þeim þar.
Flokksráðsfundur
um orkumál og umfang
hins opinbera
Fyrir viku héldum við Sjálfstæðis-
fólk fjölmennan flokksráðsfund
sem var einkum helgaður tveimur
málefnum: umfangi hins opinbera
og orkumálum.
Mikill samhugur var á fundin-
um og almenn ánægja með um-
ræður þar og árangur af þeim.
Skoðanaskipti voru lífleg en mál-
efnaleg og þetta var ekki „hita-
fundur“ eins og stundum er sagt.
Stjórnmálaályktun fundarins
fjallar að verulegu leyti um orku-
mál og þar er tekið sterkt og af-
dráttarlaust til orða: Forræði yfir
orkuauðlindum skal vera í höndum
okkar Íslendinga. Orkuauðlindir í
opinberri eigu skulu vera það
áfram. Ríkja skal jafnræði milli
landsmanna varðandi dreifikostnað
raforku. Tryggja skal nægt fram-
boð af raforku og nýta kosti
frjálsrar samkeppni. Koma þarf í
veg fyrir að almennir notendur
séu berskjaldaðir gagnvart orkufá-
tækt. Tryggja skal landsmönnum
ábata af hagnaði orkufyrirtækja í
eigu ríkisins með beinum hætti.
Fleira mætti telja en það var ein-
staklega jákvætt hve djúpar og
málefnalegar umræður sköpuðust
um orkumál á þessum stóra
flokksráðsfundi okkar.
Þá áréttaði fundurinn mikilvægi
þess að einfalda regluverk at-
vinnulífsins til að styrkja sam-
keppnishæfni fyrirtækja, lækka
vöruverð og auka framleiðni og
svigrúm til launahækkana.
Ég hlakka mjög til að fylgja
áherslum fundarins eftir.
Tíðindamikil vika
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
’Það var einstaklega jákvætt hve djúpar og málefnalegar umræður sköpuðust um orkumálá þessum stóra flokksráðsfundi okkar.
Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi
Góð
heyrn
glæðir samskipti
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða,
tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með
takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19