Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2019, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.9. 2019
LÍFSSTÍLL
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Leiðandi í litum
Almött veggmálning
Dýpri litir – dásamleg áferð
Svansvottuð
Azeb kaupir kryddið í Eþíópíu því það fæst ekki hérlendis.
Morgunblaðið/Ásdís
Í einu horni staðarins er hægt að setjast og fá sér kaffi sem er borið fram eftir
kúnstarinnar reglum. Íslendingar kunna vel að meta eþíópíska kaffið.
Undarlegt nokk má finna eþí-ópískan veitingastað áFlúðum sem ber nafnið
Minilik. Staðurinn var opnaður árið
2011 en þar eru bornir fram þjóð-
legir réttir frá Eþíópíu ásamt afar
sérstöku kaffi. Staðurinn lætur lítið
yfir sér í dökku litlu timburhúsi en
innandyra blasa við skærir litir, fal-
legir og skrautlegir munir, afrískar
myndir og horn þar sem kaffi er bor-
ið fram eftir kúnstarinnar reglum.
Afar sérstakt er að stíga þar inn
beint úr íslenskri sveit því inni ríkir
allt annað andrúmsloft en utandyra.
Einn eigandi staðarins, hin eþíóp-
íska Azeb Kahssay, tekur brosandi á
móti blaðamanni og býður í bæinn.
Hún ætlar að töfra fram nokkra
gómsæta rétti sem blaðamaður fær
að smakka. Engin voru hnífapörin
en eþíópískur matur er borðaður
með höndunum. Bakað er sérstakt
pönnukökalaga súrdeigsbrauð sem
fólk notar til þess að ná upp matnum
og kemur það í stað hnífapara.
Kaupir kryddið heima
Azeb var 25 ára er hún kom til Ís-
lands til að vinna sem au pair-stúlka.
Á Flúðum fann hún ástina og opn-
uðu þau hjón Minilik árið 2011. „Mig
langaði að prófa að opna veitinga-
stað og það var ekki til afrískur stað-
ur á Íslandi,“ segir hún.
Azeb er alin upp í Addis Ababa og
elti systur sína til Íslands á sínum
tíma. Hún fer reglulega heim til Eþí-
ópíu að heimsækja fjölskyldu sína en
hún vann á veitingahúsi í heimaland-
inu áður en hún kom hingað. Azeb
sér um matreiðsluna á Minilik og
segist þurfa að kaupa kryddið heima
í Eþíópíu.
„Þessi krydd eru ekki til á Íslandi
þannig að ég fylli ferðatöskur af
kryddi árlega þegar ég fer heim,“
segir hún og hlær.
Fastar í 165 daga á ári
Matarvenjur Eþíópíumanna eru
ólíkar því sem við eigum að venjast
og segir Azeb frá hefðunum.
„Eþíópískur matur er ekki svo
sterkur. Það er borðað mikið græn-
meti af því að við föstum mjög oft; í
165 daga á ári. Þegar ég fasta má ég
ekki borða fisk, kjöt og mjólkur-
vörur en ég má borða grænmeti og
ávexti,“ segir hún og ber á borð þrjá
óvenjulega rétti fyrir blaðamann.
„Þú átt að borða með höndunum;
nota brauðið,“ útskýrir hún og er
það smá áskorun fyrir Íslending sem
alinn er upp við hnífapör, en það er
enn einn þáttur í sjarma staðarins að
prófa að borða eins og Eþíópíu-
maður og vona að ekki subbist út um
allt.
Maturinn er gjarnan borinn fram með sérstöku brauði. Kjöt og grænmeti er í boði á Minilik.
Með fullar
töskur af kryddi
Það blása eþíópískir vindar á Flúðum en þar má finna veitingastaðinn Minilik. Azeb
Kahssay er önnum kafin alla daga að matreiða eþíópískan mat ofan í landann.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is