Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2019, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.9. 2019
LÍFSSTÍLL
Spegillinn Það getur verið gaman að spegla sig,
sérstaklega þegar árangurinn verður sýnilegri. Það
er þó varla smart að gleyma sér fyrir framan speg-
ilinn til að dást að sér. Slíkt er betra að gera í ein-
rúmi.
Hangið í tækjum Það telst seint til fyrirmyndar að
sitja í tækjunum ef við erum ekki að nota þau. Ef ein-
hver situr áberandi lengi og gleymir sér t.d. í síman-
um er í lagi að fara til viðkomandi og athuga hvort
hann sé búinn. Allt í lagi að fá að fara á milli líka.
Teppum aldrei tvö tæki á sama tíma. Já og æfum ekki
á „göngusvæðum“, svæðum sem eru greinilega ætl-
uð til að fara á milli - merkt eða ómerkt.
Spjallað við fólk Oft rekumst við á
fólk í ræktinni sem gaman er að hitta,
jafnvel gamla kunningja eða skóla-
félaga. Það er gaman að eiga stutt
spjall - bara ekki of langt. Helst ekki
nema örfáar mínútur, það kann að
vera pirrandi fyrir viðmælandann að
kólna niður. Svo þarf að varast að
ræða eldfim mál eða sem tengjast
persónum sem ekki geta svarað fyrir
sig.
Sviti á tækjum Margir eru með handklæði
um hálsinn í ræktinni og þerra svitann af tækj-
um eftir að hafa tekið á því og sumir þurrka líka
yfir áður en þeir byrja. Það er til fyrirmyndar.
Sviti Þvo þarf æfingafötin eftir hverja æfingu.
Glápið Það getur verið
verulega hressandi að sjá
fagra kroppa í ræktinni,
EN gleymum okkur ekki
þar frekar en annars
staðar í glápinu.
Heyrnartól Ef fólk er
með heyrnartól í eyr-
unum, eru það ákveðin
skilaboð til okkar hinna
að það vilji enga truflun. Við virðum slíkt nema eitt-
hvað sérstakt sé.
Myndataka Best er að sleppa henni alveg, það vill
enginn láta mynda sig í ræktinni með svitatauma og
rauður í framan af áreynslu. Tökum síma ekki upp í
búningsklefum.
Ráð til annarra gesta? Það er aðeins á
færi hinna margreyndu og fróðu að gefa
öðrum góð ráð í ræktinni. Sleppum því
óumbeðnum ráðum um það hvernig
best sé að bera sig að eða hvað virkar.
Öðru máli gegnir ef við óskum sjálf eftir
aðstoð, ef við erum óörugg hvernig tæk-
ið virkar eða hvernig best er að haga sér.
Keppni við aðra Við erum í ræktinni á
okkar forsendum. Keppum ekki við aðra,
aðeins við okkur sjálf.
Aftur á sinn stað Lóð, bjöllur, boltar og
annað slíkt fer und-
antekningalaust á sinn
stað að lokinni notk-
un. Við viljum sjálf
finna það sem við leit-
um að, fyrirhafn-
arlaust. Það er því
ekki síst okkur sjálfum
í hag.
Tíska Það er í góðu
lagi að stunda líkams-
rækt þó við séum ekki
í dýrustu merkjavör-
unni eða sífellt að kaupa okkur ný æfingaföt. Í þessu
er þó tíska, eins og öðru, sumum finnst t.d. æskilegt
að blanda ekki saman fötum/skóm frá mörgum
framleiðendum, bara svo að það sé sagt. Við æfum
ekki í úlpum eða öðrum útifötum. Bannað er að
vera berfætt/ur eða ber að ofan. Að vera sokkalaus
er óþægilegt og við notum ekki sömu sokkana og
við notum annarsstaðar yfir daginn.
Veikindi Ef við erum slöpp þá sleppum við ræktinni
alveg. Við smitum ekki aðra, hvorki af flensu né
öðru. Það getur jafnvel verið hættulegt að æfa las-
in/n.
Snerting Náin snerting í ræktinni á yfirleitt ekki
við. Við viljum síður að einhver faðmi okkur og kyssi
þegar við komum löðrandi sveitt úr hot-yoga tím-
anum. Stundum á handaband við og svo er „klesst-
ann“ einfalt og skemmtilegt.
Áfengi Sleppum alveg ræktinni ef við erum undir
áhrifum áfengis eða vímuefna.
Í líkamsræktinni
Sturta? Sama hversu tímabundin við erum - engar afsakanir. Það getur verið að
okkur finnist við lítið eða ekkert svitna, en aðrir finna greinilega svitalykt. Sumir
fara í sturtu heima vegna ýmissa aðstæðna og er það gott og vel. Hins vegar er góð
regla að fara í sturtu fyrir æfingu, bæði veldur það vellíðan og líkamslykt dregst ekki
í fötin meðan æft er.
Líkamshárasnyrting Fer ekki fram í lík-
amsræktarstöðvum. Í sumum stöðv-
um hanga uppi tilkynningar
þar sem fólk er beðið að
snyrta ekki eða klippa lík-
amshár. Eina undantekningin
á þessu er að karlmenn mega raka sig, en yfir vaskinum, ekki í sturtu eða gufu. Mun-
um að skola vaskinn vel eftir rakstur.
Snyrting og hárþurrkun Þar sem þröngt er, höfum við bak við eyrað að fleiri
þurfa að komast að. Lítið svæði og fáar hárþurrkur táknar að við eyðum ekki of
löngum tíma í snyrtinguna.
Eftir æfingu
Tillitssemi og
kurteisi í líkams-
ræktarstöðvum
Hvað skal gera?
Albert Eiríksson
albert.eiriksson@gmail.com
H eilsan og lífsstíllinn er okkur mikilvægur og það er merkilegtþegar eldra fólk er spurt þá er það það sem það sér mest eftirað hafa ekki hugað betur að sér og sínu nánasta fólki. Að taka
ábyrgð á heilsunni og sinna henni eins og það að mæta í ræktina eru því
forréttindi að hafa möguleika og tækifæri að gera. Tökum ábyrgð og
við sem eru svo heppin/n að getað mætt og sinnt líkama okkar þá hvet
ég ykkur að taka skrefið og byrja. Það eru nokkur góð ráð fyrir ykkur
sem eruð óvön eða ykkur sem eruð heimakær í ykkar rækt að skoða.
Matur og vatn Það er góð regla að mæta hvorki
glorhungraður né pakksaddur í líkamsræktina.
Við nærumst ekki í ræktinni, en drekkum nóg af
vatni, fyrir æfingu, á meðan á henni stendur og á
eftir. Tyggjó gerir ekkert fyrir okkur í ræktinni.
Handklæði/ jógadýna Líkamsræktarstöðvar
hafa þá reglu að iðkendur mæta með eigin hand-
klæði eða dýnur í heitu tímana eins og í heitt
jóga.
Skáparnir Þótt það veiti mörgum öryggis-
tilfinningu að vera alltaf með sama skápinn þá
eigum við ekki ákveðna skápa og hressandi að
breyta til.
Fyrir æfingu
Í ræktinni hættir mörgum til að fara
alltaf í sömu tækin eða fara sama hring-
inn.
Góður einkaþjálfari gætir þess að við
gerum fjölbreyttar æfingar og gerum
þær rétt. Hann fer yfir mataræði og
margt fleira gagnlegt í samband við
þjálfunina.
Nokkur atriði sem gott er að hafa í
huga varðandi einkaþjálfara:
Truflum ekki „okkar þjálfara“ ef hann
er að þjálfa aðra. Sleppum símanum
alveg í tímanum með honum Höld-
um einbeitingunni. Sleppum því að
mæta ef við erum slöpp eða veik.
Mætum í hreinum íþróttafötum. Ekki
viljum við að líði yfir einkaþjálfarann úr
svitafýlu Mætum tímanlega og byrjum
að hita upp Ekki skæla í þjálfaranum og
henda vandamálunum okkar yfir hann.
Tökum vatnsbrúsa með á æfingu.
Verum með handklæði. Þvoum okkur
um hendur eða sótthreinsum fyrir og
eftir æfingu. Hjálpa þjálfaranum að
ganga frá lóðum. Maður sýnir honum
þar með virðingu og kurteisi. Góð
regla er að læra æfingarnar. Ekki bara
þumbast í gegn um þær hugs-
unarlaust. Við erum ekki í ræktinni
fyrir einkaþjálfarann, við erum þar á
eigin forsendum því við viljum ná ár-
angri og okkur er annt um heilsuna.
Einkaþjálfarar