Morgunblaðið - 07.10.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2019
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
., '*-�-��,�rKu�,
Kæli- & frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Nýtt og býsna náttúrulegt listaverk prýðir
Spennistöðina, félags- og menningarmiðstöð
íbúa miðborgarinnar. Það er úr mosa sem virðist
hafa teygt sig af sjálfsdáðum yfir vegginn og
gefur þannig óraunverulegum grænum lit
Spennistöðvarinnar dýpri og raunverulegri tón.
Morgunblaðið/Eggert
Mosalistaverk prýðir litríka Spennistöðina
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Bílaleigur eru byrjaðar að setja
nagladekk undir sína bíla og eru ein-
hverjir þeirra komnir út á göturnar,
jafnvel í Reykjavík þar sem óvenju-
hlýtt hefur verið þetta haustið.
Strangt til tekið má ekki keyra á
negldum hjólbörðum frá 15. apríl til
1. nóvember.
Umferðardeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu gerir engar at-
hugasemdir við það að fólk keyri um
á negldum hjólbörðum í október þar
sem veðurskilyrði geti breyst hratt.
Borgarstjóri er ekki sáttur við
ástandið.
Forstjóri bílaleigunnar Avis á Ís-
landi og forstjóri Bílaleigu Akureyr-
ar segja báðir að ómögulegt sé að
skipta um dekk á öllum bílaleigubíl-
unum á skömmum tíma og því þurfi
að byrja fyrr. Báðir vilja þeir að bíla-
leigum sé veitt einhvers konar und-
anþága frá takmörkunum á notkun
nagladekkja.
„Bílaleigurnar óskuðu eftir fundi
með ráðherra um þetta mál vegna
þess að það er alveg ljóst að við get-
um ekki beðið til fyrsta nóvember,
oftast er nú kominn snjór og hálka
fyrr, sérstaklega úti á landi. Við
verðum fyrst og fremst að hugsa um
öryggi ferðamanna í þessum efnum
en ekki einhverja reglugerð sem
segir fyrsti nóvember,“ segir Stein-
grímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu
Akureyrar.
„Bara sem dæmi þá leigjum við
oft út bíla til einnar eða tveggja
vikna. Hvað eigum við að gera í þeim
efnum fyrir fólk sem er að keyra
hringinn?“ bætir Steingrímur við.
Sigfús B. Sigfússon, forstjóri
Hertz á Íslandi, segir að leigan sé
ekki búin að setja bíla með nagla-
dekkjum út á göturnar en eigi þá „á
kantinum“ ef aðstæður breytast.
Það sé ferðamanna að ákveða hvort
þeir taki bíla með nagladekkjum
eður ei.
Af umhverfisástæðum setur
Hertz bíla á vetrardekk í auknum
mæli frekar en nagladekk, segir Sig-
fús.
„Margar bílaleigur setja allan flot-
ann sinn á nagladekk en það gerum
við ekki og höfum verið að draga úr
því undanfarin ár.“
Ættu að greiða fyrir notkun
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
telur að íbúar Reykjavíkur séu að
draga úr notkun nagladekkja en
sömu sögu sé ekki að segja um bíla-
leigurnar.
„Mér finnst það algjör plága að
allir bílaleigubílar séu á nöglum,
hvað þá mánuði áður en það er í raun
og veru heimilt,“ segir Dagur sem
telur nagladekk í Reykjavík veita
falskt öryggi. „Í mínum huga undir-
strikar þetta rækilega að loftgæða-
stefna stjórnvalda nær ekki fram að
ganga. Þar er tekið fram að ein af
lykilaðgerðum við að auka loftgæðin
sé að stemma stigu við notkun
nagladekkja vegna þess að malbik er
mjög stór hluti af svifryki.“
Spurður hvort sérákvæði ættu að
gilda um bílaleigubíla þar sem not-
endur þeirra fari gjarnan út fyrir
borgina segir Dagur: „Bílaleigurnar
ættu að vera með einhverja sérstaka
bíla til að fara út fyrir bæinn. Það
sem okkur sýnist er að bílaleigurnar
setji bara alla bíla á nagla og mér
finnst þá algjört lágmark að það
yrðu lögð einhver gjöld á leigurnar
til þess að borga fyrir göturnar sem
þeir spæna upp hérna.“
Bílaleigur þjófstarta nöglunum
Negldir hjólbarðar eru komnir út á götur borgarinnar Lögreglan gerir ekki athugasemdir við slíkt
þótt notkun nagladekkja sé óheimil til fyrsta nóvember Borgarstjóri segir notkunina „algjöra plágu“
Dagur B.
Eggertsson
Steingrímur
Birgisson
Einn var fluttur á Borgarspítalann í
Reykjavík eftir að bíll valt á Snæ-
fellsnesi austan Vegamóta um
klukkan hálfátta í gærkvöldi. Frá
þessu var greint á mbl.is í gær.
Ásgeir Erlendsson, upplýsinga-
fulltrúi Landhelgisgæslunnar, stað-
festir í samtali við mbl.is að lög-
reglan á Vesturlandi hafi óskað
eftir aðstoð Gæslunnar og var mað-
urinn fluttur með þyrlu til borg-
arinnar, þar sem lent var um
klukkustund síðar.
Tildrög slyssins liggja ekki fyrir,
né heldur hvort fleiri voru í bílnum.
Þá fengust engar upplýsingar um
líðan hins slasaða hjá lögreglunni á
Vesturlandi.
Slys Þyrla Landhelgisgæslunnar.
Bílvelta á
Snæfellsnesi
Fluttur með þyrlu
til Reykjavíkur
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Erfitt er að segja fyrir um það hve-
nær hinn árlegi inflúensufaraldur
kemur hingað til lands eða hversu
slæmur hann verður. Það hefur lítið
upp á sig að horfa til flensufaraldra
í öðrum löndum, svo sem á suð-
urhveli. Þetta segir Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir í samtali
við Morgunblaðið.
Greint var frá því í frétt The
New York Times á föstudag að
inflúensufaraldur í Ástralíu hefði
verið sérstaklega slæmur í ár og
hefði byrjað um tveimur mánuðum
fyrr en venjulega. Var það talið
geta gefið vísbendingu um það hve-
nær og hvernig faraldurinn yrði í
Bandaríkjunum.
„Það er hægt að horfa til ríkja á
suðurhveli jarðar og segja fyrir um
hvaða tegundir inflúensu muni
ganga á norðurhveli næsta vetur en
ekki hvenær. Það segir ekkert til
um það,“ segir Þórólfur, sem stað-
festir að inflúensan byrji yfirleitt á
sama tíma hér á landi eða upp úr
áramótum. Þess vegna sé mikil-
vægt að byrja að bólusetja upp úr
september eða október.
„Svo er það undir hælinn lagt
hversu vel bóluefnið passar við far-
aldurinn því að enginn veit ná-
kvæmlega hvaða tegund af inflú-
ensunni mun ganga þó að menn
spái í það,“ segir Ingólfur og bætir
við að inflúensan sé alltaf breytileg
milli ára og endurtaki sig aldrei ná-
kvæmlega.
Vonlaust sé að spá um það
hversu slæm flensan verði í ár með
því að horfa til annarra landa.
„Þetta getur verið breytilegt frá
einu landi til annars og jafnvel á
norðurhveli er þetta ekki alltaf það
nákvæmlega sama. Kannski er einn
stofn af tegund A ríkjandi í einu
landinu en annar stofn af A í öðru
landi. Inflúensan er ólíkindatól. Það
er erfitt að segja fyrir um það
hvernig hún verður. Í rauninni er
ekkert vitað,“ segir hann.
Inflúensan ólíkindatól sem
erfitt er að segja fyrir um
„Í rauninni er ekkert vitað,“ segir sóttvarnalæknir