Morgunblaðið - 07.10.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 07.10.2019, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2019 Gs import ehf | S. 892 6975 | www.gsimport.is Frábær ending Léttvínsglös úr hertu gleri Bókin Skjáskot, eftir Berg Ebba Bene-diktsson, er sögð vera ferðalag ummannshugann og krufning á þeimvandamálum sem blasa við okkur í samfélaginu. Fram kemur í inngangi bókarinnar að hún hafi fyrst átt að heita Skjáskot – spádómur, þar sem ætlunin var að rýna í framtíðina. Höfundur komst hins vegar ekki lengra en í okkar tíma og var það þó feikinóg. Rithöfundurinn, lögfræðingurinn og síðast en alls ekki síst uppistandarinn Bergur Ebbi veltir því upp í Skjáskoti (ekki spádómi) hvaða áhrif sífellt hraðari tækniþróun hinnar svoköll- uðu fjórðu iðnbyltingar hef- ur á mannskepnuna. Bókinni er skipt upp í fimm undirflokka en í þeim fyrsta, þar sem höfundur segir frá ferðalagi um Bandaríkin nokkrum dögum áður en Donald Trump varð Bandaríkjaforseti, leið mér á köfl- um eins og ég væri staddur á uppistandi með Bergi Ebba. Engir uppistandarar hafa fengið mig til að hlæja jafn mikið og það er ekkert endilega út af bröndurunum sjálfum, jú vissulega eru þeir góðir, heldur út af æsingnum. Þegar Bergur biður lesendur um að læsa bíltegundina Chevrolet Suburban í heilann er auðvelt að ímynda sér að maður sé staddur í Þjóðleik- húskjallaranum og að Bergur öskri á viðstadda. Bergur talar um að þegar fram líði stundir muni mannfólkið ná betri tökum á tækninni og öllum þeim áskorunum sem henni fylgja en staðan verði ekki þannig að við lifum bara í staf- rænum heimi. Þótt vissulega séum við mikið þar. Tekin eru dæmi af öðrum byltingarkenndum hlutum; útvarpi, sjónvarpi og svo tekur höfund- ur skemmtilegt dæmi af rúllustigum. Bergur Ebbi segir rúllustiga afar tæknilega en einnig mjög klunnalega. Þetta samspil þess tæknilega og hversdagslega geri það að verkum að rúllu- stigum verði líklega aldrei skipt út fyrir neitt annað. Snjallsímarnir eru að rústa okkur en á einum stað er þeim líkt við naflastrenginn. Þegar mað- ur leggur símann frá sér á kvöldin og sofnar lengist í strengnum. Síðan þegar kveikt er á bláum skjá snjallsímans um leið og maður vakn- ar eftir slæman svefn (líklega út af öllu síma- glápinu rétt fyrir háttinn) er talað um að tengja naflastrenginn. Þá fáum við okkar tengingu. „En ég velti fyrir mér, miðað við hversu mikið símar eru að rústa lífi okkar, hvort það væri kannski sanngjarnara, fyrir alla aðila, ef þeir gengju hreinna til verks og dræpu okkur bara,“ skrifar Bergur. Það væri kannski heiðarlegra ef skjárinn splundraðist framan í fimmtugasta hvern notanda sem bograr yfir símanum um miðjar nætur að lesa skoðanir einhvers annars á málefni sem manni er alveg sama um. „Í stað þess að sökkva fólki hægt í sjálfshatur og þunglyndi myndu símar bara klára dæmið skyndilega og drepa eigendur sína endrum og eins, til að halda öllum á tánum.“ Bergur fer um víðan völl í bókinni og það væri ekki sanngjarnt fyrir alla væntanlega les- endur að útlista frekar hvað hann skrifar um. Eins og Bergur Ebbi gerir í sinni bók býst ég við að ég verði líka að láta niðurstöður mínar fylgja hér aftast, þó ekki topp-tíu eins og hann gerir. Bókin er skemmtileg, heimspekileg, fyndin og á köflum hálf-ógnvekjandi. Þá er ég ekki að segja að allt í einu muni símarnir taka af okkar völdin og drepa makann eða eitthvert þannig rugl heldur frekar hvað margir, þar á meðal ég líklega, virðast sokknir ofan í samfélagsmiðla og allt það sem engu máli skiptir þar. Hvað skiptir þá máli? Bergur Ebbi ætti að íhuga að skrifa næst bók um „hvað skiptir máli í lífinu“ eða eitt- hvað svoleiðis. Flestir hefðu gott af því að líta upp af skján- um og lesa þessa bók. Það er kannski ágætt fyr- ir þá sem lesa lítið að byrja á bók þar sem mikið er fjallað um samfélagsmiðla og snjallsíma. Hún er ekki það löng en flestir ættu að geta litið upp úr „heita rifrildi dagsins“ á samfélagsmiðlunum í nokkrar klukkustundir og lesið bókina. Hvað skiptir þá máli? Morgunblaðið/Eggert Gott Flestir hefðu gott af því að líta upp af skjánum og lesa bók Bergs Ebba, að mati rýnis. Vangaveltur Skjáskot bbbbn eftir Berg Ebba Benediktsson. Mál og menning, 2019. Kilja, 200 bls. JÓHANN ÓLAFSSON BÆKUR » SinfóníuhljómsveitÍslands tók í liðinni viku á móti sex þúsund grunnskólanemendum á sex tónleikum í Eld- borg Hörpu. Á tónleik- unum var nemendum boðið í tímaflakk um tónheima tónlistarsög- unnar. Skólatón- leikarnir eru hluti af metnaðarfullu fræðslu- stafi hljómsveitarinnar en ár hvert heldur hún fjölmarga tónleika þar sem nemendum allt frá leikskólaaldri til fram- haldsskólanema er boðið að hlusta á vand- aða dagskrá í tali og tónum. Sex þúsund nemendur á skólatónleikum Sinfóníunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Tónn Um tónsprotann hélt Michelle Merill, en kynnar voru Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Guðmundur Felixson. Eftirvænting Á síðasta starfsári tók Sinfóníuhljómsveit Íslands á móti ríflega 15.000 skólabörnum í Eldborg Hörpu og kynnti þeim töfra tónlistar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.