Morgunblaðið - 07.10.2019, Blaðsíða 32
Málfundaröðin
Samtal við leik-
hús hefur göngu
sína í dag í Ver-
öld – húsi Vigdís-
ar, kl. 17. Í henni
koma saman
fræðimenn og
leikhúsfólk og
ræða uppsetningar á leikverkum
sem eru í sýningu hjá leikhúsunum.
Fyrsta samtalið verður um nýja sýn-
ingu Þjóðleikhússins á Ör (eða
Maðurinn er eina dýrið sem grætur)
eftir Auði Övu Ólafsdóttur. Auður
Aðalsteinsdóttir bókmenntafræð-
ingur mun fjalla um verkið og verð-
ur í pallborði með Ólafi Agli Egils-
syni leikstjóra, höfundinum Auði
Övu og Baldri Trausta Hreinssyni
leikara. Gréta Kristín Ómarsdóttir
dramatúrg stýrir umræðunum.
Samtal við leikhús
MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 280. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Ísland verður án fyrirliðans Arons
Einars Gunnarssonar sem og Harð-
ar Björgvins Magnússonar þegar
liðið mætir heimsmeisturum
Frakka á föstudaginn á Laugardals-
velli, í undankeppni EM í fótbolta.
Þá er lykilmaður úr vörn liðsins
veikur og lék því ekki með félagsliði
sínu í gær. Íslenski landsliðshópur-
inn kemur saman í dag. »24
Tveir úr leik vegna
meiðsla og einn veikur
ÍÞRÓTTIR MENNING
Manchester United hefur ekki átt
sjö dagana sæla á þessari leiktíð í
ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og
er liðið í 12. sæti eftir 1:0-tap gegn
Newcastle í gær. Rauðu djöflarnir
eru aðeins tveimur stigum fyrir of-
an fallsæti og hafa ekki byrjað leik-
tíð verr í þrjá áratugi.
Liverpool er hins
vegar í frábærum
málum á toppi
deildarinnar, enn
með fullt hús
stiga og aukið
forskot eftir
að Manchest-
er City tapaði
óvænt gegn
Wolves á
heimavelli í
gær. »25
Man. Utd ekki byrjað
verr í þrjá áratugi
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Djasstríóið Hot Eskimos verður
með tónleika á Björtuloftum í
Hörpu á miðvikudagskvöld og verð-
ur skemmtunin, sem nefnist Af-
mælisbörn, sérstök að því leyti að
aðeins verða leikin lög eftir eða
tengd fólki sem fæddist 9. október.
Tríóið skipa Karl Olgeirsson
píanóleikari, Jón Rafnsson kontra-
bassaleikari og Kristinn Snær Agn-
arsson trommuleikari. Jón segir að
þeir hafi sótt um að vera með í
haustdagskrá Jazzklúbbsins Múlans
og verið úthlutað fyrrnefndu kvöldi.
„Þá hafði Kalli Olgeirs orð á því að
margir tónlistarmenn ættu afmæli
9. október, með John Lennon
fremstan í flokki, og varpaði fram
þessari hugmynd að spila bara tón-
list eftir afmælisbörn þessa dags,“
segir Jón. „Við tókum hann á orðinu
enda er ekkert heilagt hjá okkur.“
Í lok ágúst lék tríóið í sumar-
djasstónleikaröð Salarins í Kópa-
vogi og kom víða við í poppi, rokki
og pönki. Jón segir nýstárlegar út-
setningar til marks um víðsýni
tríósins. „Við erum alltaf opnir fyrir
öllu og sennilega hafa aldrei áður
verið haldnir tónleikar eins og Af-
mælisbörn, og þeir verða bara í
þetta eina skipti, því varla verður
hægt að bjóða upp á sömu tónleika
að ári.“
John Lennon í fyrirrúmi
Lög eftir John Lennon verða í
forgangi en auk þess flytur tríóið
lög eftir eða tengd PJ Harvey,
Kenny Garrett, Bebo Valdés, Rod
Temperton, Camille Saint-Saëns,
Serge Gainsbourg, Abdullah Ibra-
him, Steve McQueen og Lee Whil-
ey. „Við erum með mörg lög í hatt-
inum og helsti vandinn verður að
velja,“ segir Jón um tónleikana, sem
hefjast klukkan 21.
Hot Eskimos var stofnað 2010.
Jón segir að þá hafi verið ákveðið að
það myndi fyrst og fremst leika
rokk, pönk og popp í djassútsetn-
ingum. „Við spiluðum nokkur lög,
sem okkur fannst koma vel út, og
fórum því í stúdíó og tókum þau
upp.“ Afraksturinn var platan
Songs from the Top of the World
sem kom út 2011. „Hún er ein af
söluhæstu íslensku instrumental-
plötunum,“ segir hann og bætir við
að hún sé væntanleg á vínylplötu.
Önnur plata, We Ride Polar
Bears, kom út 2015. Jón segir að
Örn Clausen hafi sagt í viðtali fyrir
keppni á Ólympíuleikum um miðja
síðustu öld að Íslendingar færu um
á ísbjörnum og notuðu þá til þess að
draga vagna. „Í tilvitnuðum texta er
haft eftir honum á ensku að „Ice-
landers are special because they
ride polar bears and use them to
pull our wagons“. Okkur þótti þetta
flott setning og nefndum plötuna
eftir orðum hans, en þess ber að
geta að við höfum ekki beint verið
þekktir fyrir þátttöku eða áhuga á
íþróttum. Hins vegar erum við
sennilega eina íslenska sænskumæl-
andi tríóið í heiminum og höfum því
ákveðna sérstöðu en þess ber að
geta að við höfum allir búið í Svíþjóð
um lengri eða skemmri tíma.“
Hot Eskimos Tónlistarmennirnir frá vinstri: Karl Olgeirsson, Jón Rafnsson og Kristinn Snær Agnarsson.
Afmælisbörn dagsins
í sviðsljósinu í Hörpu
Djasstríóið Hot Eskimos með sérstaka tónleika 9. október