Morgunblaðið - 07.10.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.10.2019, Blaðsíða 24
EM 2020 Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í fótbolta kemur saman í dag til undirbúnings fyrir leikinn við heimsmeistara Frakka á föstudag og við Andorra næsta mánudag. Þetta eru tveir af fjórum síðustu leikjum Íslands í undankeppninni, og á liðið í harðri baráttu við Frakkland og Tyrkland um sæti á EM, en óhætt er að segja að íslenska liðið hafi orðið fyrir áfalli um helgina. Komið hefur í ljós að landsliðs- fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson sleit liðband í ökkla þegar hann var tæklaður niður með fólskulegum hætti í leik með Al Arabi í Katar á föstudagskvöld. Ekki er ljóst hve lengi Aron verður frá keppni en það verður að teljast afar ósennilegt að hann komi meira við sögu í undan- keppninni, sem lýkur með leikjum Íslands við Tyrkland og Moldóvu um miðjan næsta mánuð. Hörður Björgvin Magnússon get- ur sömuleiðis ekki tekið þátt í næstu landsleikjum vegna ökklameiðsla, en hann meiddist í Evrópuleik með CSKA Moskvu síðastliðinn fimmtu- dag. Hörður var reyndar í leik- mannahópi CSKA í gær þegar liðið mætti Rostov í slag Íslendingaliða í rússnesku úrvalsdeildinni en sat all- an tímann á bekknum. Arnór Sig- urðsson var hins vegar í byrjunarliði CSKA. Í kjölfarið dró Hörður sig svo úr landsliðshópnum. Ragnar Sigurðsson tók óvænt ekki heldur þátt í téðum leik í gær, 3:1-sigri Rostov á CSKA. Í yfirlýs- ingu frá Rostov sagði að Ragnar og liðsfélagi hans, hinn finnski Roman Eremenko, hefðu veikst og því ekki getað tekið þátt. Ekki hafði í gærkvöld verið kall- aður inn maður í stað Harðar eða Arons, en Erik Hamrén valdi 25 manna landsliðshóp og er því enn með 23 leikmenn til taks eins og leyfilegt er í hverjum leik. Fréttir af öðrum lykilmönnum landsliðsins um helgina voru betri. Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson léku báðir fram í seinni hálfleik í 1:0-sigri Burnley á Everton í ensku úrvalsdeildinni. Rúnar Már Sigurjónsson lagði upp mark Astana og lék allan leikinn í 1:1-jafntefli við Ordabasy í Kasak- stan. Kolbeinn Sigþórsson lék nán- ast allan leikinn í 2:0-sigri AIK á Örebro í Svíþjóð, og Jón Daði Böðv- arsson lék síðustu 10 mínúturnar í 2:1-sigri Millwall á Leeds. Alfreð Finnbogason kom hins vegar ekkert við sögu í 5:1-tapi Augsburg gegn Mönchengladbach í þýsku 1. deild- inni, eftir að hafa verið í byrjunarlið- inu í þrjá leiki þar á undan í kjölfar þess að hafa jafnað sig af meiðslum. Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með Oostende í 3:1-tapi gegn Waas- land-Beveren í Belgíu og Hjörtur Hermannsson lék 90 mínútur með Bröndby og fagnaði 3:1-sigri á FC Köbenhavn í stórleik í Danmörku. Tveir meiddir og einn veikur  Fyrirliðinn úr leik í undankeppni EM Morgunblaðið/Eggert Fyrirliðinn Stórt skarð er fyrir skildi með fjarveru Arons Einars Gunnarssonar, sem missir af næstu landsleikjum Íslands vegna meðsla. 24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2019 Undankeppni EM U19 kvenna Leikið í Reykjavík: Ísland – Kasakstan .................................. 7:0 Birta Georgsdóttir 5., Ída Marín Her- mannsdóttir 9., 69., Eva Rut Ásþórsdóttir 54., Karen María Sigurgeirsdóttir 60., Sveindís Jane Jónsdóttir 61., Katla María Þórðardóttir 74. Spánn – Grikkland ................................... 5:0  Spánn 6, Ísland 6, Grikkland 0, Kasak- stan 0. Undankeppni EM kvenna Þýskaland – Úkraína ............................... 8:0 Norður-Makedónía – Serbía ................... 0:6 Frakkland Dijon – Strasbourg .................................. 1:0  Rúnar Alex Rúnarsson var á vara- mannabekk Dijon. Belgía Waasland-Beveren – Oostende.............. 3:1  Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn fyr- ir Oostende. Kasakstan Ordabasy Shymkent – Astana ............... 1:1  Rúnar Már Sigurjónsson lék allan leik- inn fyrir Astana og lagði upp mark. Búlgaría Ludogorets – Levski Sofia ..................... 2:0  Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn í vörn Levski Sofia. Danmörk Bröndby – FC Köbenhavn ...................... 3:1  Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn fyrir Bröndby. Randers – AGF......................................... 2:0  Jón Dagur Þorsteinsson kom inn á hjá AGF á 73. mínútu. Silkeborg – Midtjylland .......................... 1:2  Mikael Anderson var í liði Midtjylland fram á 71. mínútu. Svíþjóð AIK – Örebro............................................ 2:0  Kolbeinn Sigþórsson var í liði AIK fram á 89. mínútu. Malmö – Gautaborg................................. 1:0  Arnór Ingvi Traustason lék allan leikinn fyrir Malmö. Noregur Stabæk – Viking ...................................... 0:0  Samúel Kári Friðjónsson lék allan leik- inn fyrir Viking. Axel ÓskarAndrésson er frá keppni vegna meiðsla. KNATTSPYRNA HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Austurberg: ÍR – Stjarnan.................. 19.30 1. deild karla, Grill 66-deildin: Kaplakriki: FH U – Valur U .................... 20 Í KVÖLD! Uwe Gensheimer og Hans Óttar Lindberg verða að sætta sig við að vera ekki markahæstir í þýsku 1. deildinni í handbolta því Bjarki Már Elísson trónir á toppnum með 64 mörk í átta fyrstu leikjum sínum fyr- ir Lemgo. Hann skoraði 13 mörk úr 13 skotum í gær en það dugði skammt í 27:30-tapi gegn Kiel, og er Lemgo með þrjú stig í fallbaráttu. Hannover er á toppnum með 14 stig og Rhein-Neckar Löwen næst með 12, eftir 29:26-sigur á Wetzlar þar sem Alexander Petersson skor- aði þrjú mörk. Sjá úrslit á síðu 26. Bjarki skorað flest mörk allra Ljósmynd/tbv-lemgo-lippe.de Markavél Bjarki Már Elísson hefur raðað inn mörkum í haust. Martin Hermannsson átti mjög góð- an leik með Alba Berlín sem vann torsóttan útisigur á Bamberg, 78:74, í þýsku 1. deildinni í körfu- bolta í gær. Bamberg var yfir fyrir lokaleik- hlutann, 61:55, en Martin kom Alba Berlín fljótlega yfir með tveimur þristum í röð, 67:66. Hann tók einn- ig af skarið í lokasókn sinna manna í leiknum þegar hann skoraði síð- ustu stig leiksins, fimm sekúndum fyrir leikslok. Martin skoraði alls 17 stig í leiknum, tók 4 fráköst og gaf 4 stoðsendingar. Martin öflugur í naumum sigri Ljósmynd/albaberlin.de Einbeittur Martin Hermannsson er lykilmaður í liði Alba Berlín. Línur eru farnar að skýrast í þjálfaramálum fyrir næsta sumar í íslensku knattspyrnunni. Óskar Hrafn Þorvalds- son var ráðinn þjálfari karlaliðs Breiðabliks og skrifaði undir fjögurra ára samning. Hann kemur til félagsins frá Gróttu sem hann stýrði úr 2. deild upp í úrvalsdeild á aðeins tveimur árum. „Það var erfið ákvörðun að yfir- gefa Gróttuliðið sem ég hef myndað sterk tengsl við,“ sagði Óskar í viðtali sem sjá má í heild sinni á mbl.is. Andri Hjörvar Albertsson var ráðinn þjálfari kvenna- liðs Þórs/KA næstu þrjú árin. Hann tekur við af Halldóri Jóni Sigurðssyni sem gerði Þór/KA að Íslandsmeist- urum árið 2017. Andri Hjörvar var aðstoðarþjálfari Halldórs öll þrjú ár hans og var yfirþjálfari yngri flokka Þórs. Srdjan Tufegdzic, Túfa, er hættur sem þjálfari karlaliðs Grindavíkur. Grindavík féll úr efstu deild í sumar og komust félagið og þjálfarinn að samkomulagi um að slíta samstarfinu. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins verður Guðmundur Hreiðarsson, áður markvarðaþjálfari landsliðsins, næsti markvarðaþjálfari Vals. Hrært í þjálfarasúpunni Óskar Hrafn Þorvaldsson Bandaríkin eiga langbesta frjálsíþróttalandslið heims eins og þau sýndu á HM í Doha sem lauk í gær. Banda- ríkin unnu þrjár greinar á lokadeginum og þar með alls 14 heimsmeistaratitla. Við það bætast 11 silfur og fjögur brons, svo verðlaunin voru samtals 29. Það er mesti fjöldi sem Bandaríkin hafa fengið á einu heimsmeist- aramóti, og jafnmikill fjöldi gullverðlauna og á HM 2005 og 2007 en þá var reyndar ekki keppt í 4x400 metra blönduðu boðhlaupi eins og í ár. Tveggja barna móðirin Nia Ali tryggði Bandaríkj- unum gull í 100 metra grindahlaupi í gær og bandarísku sveitirnar unnu einnig bæði 4x400 metra boðhlaupin. Óhætt er að segja að engin þjóð sé með tærnar þar sem Bandaríkin hafa hælana en Kenía vann til næstflestra gullverðlauna í Doha, eða fimm, auk tvennra silfurverðlauna og fernra bronsverðlauna. Jamaíka fékk þrjú gull, fimm silfur og fjögur brons, og Kína þrjú gull, þrjú silfur og þrjú brons. Bandaríkin í sérflokki á HM Nia Ali Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.