Morgunblaðið - 07.10.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.10.2019, Blaðsíða 26
Í KÓRNUM OG MOSFELLSBÆ Ívar Benediktsson iben@mbl.is Nýliðar HK eru enn án stiga eftir fimm umferðir í Olís-deild karla í handknattleik. Og eins og liðið lék á móti KA í Kórnum í gær getur biðin eftir stigum orðið lengri. Þrátt fyrir kæruleysi síðustu mínúturnar fór KA með sanngjarnan fjögurra marka sigur af hólmi, 28:24. KA er þar með um miðja deild með fjögur stig og getur bærilega við unað. Lengst af stóð ekki steinn yfir steini í liði HK, hvorki í vörn né sókn. Alltof mikið var um einföld mistök, s.s. slakar sendingar og rangar ákvarðanir, sem færðu KA- liðinu boltann hvað eftir annað. KA- menn gengu á lagið; voru með tveggja til fjögurra marka forskot, m.a. 16:12 að loknum fyrri hálfleik. Leikmenn KA voru klaufar að gera ekki út um leikinn á fyrri hluta síðari hálfleiks. Í stað þess greip þá kæruleysi sem öflugra lið en HK hefði nýtt sér til að snúa taflinu við. Pétur Árni Haukssson var markahæstur hjá HK með sex mörk. Ásmundur Atlason var næst- ur með fjögur. Davíð Svansson varði 11 skot í markinu og Stefán Huldar Stefánsson sjö.Tarik Kasumovic skoraði átta sinnum fyrir KA-liðið. Áki Egilsnes var næstur með sex mörk. Jovan Kukobat varði 13 skot í marki KA og Svavar Ingi Sig- mundsson eitt vítakast. Raunir Valsmanna halda áfram Hornamaðurinn Guðmundur Árni Ólafsson reyndist hetja Aftureld- ingar þegar hann skoraði sigurmark liðsins í viðureign við Val á Varmá síðdegis á laugardaginn, lokatölur 26:25. Guðmundur Árni skoraði sig- urmarkið á síðustu sekúndu leiksins og jók þar með enn á vonbrigði Valsliðsins sem tapaði öðrum leikn- um í röð á elleftu stundu. Sem fyrr sitja Valsmenn á meðal liða í neðri hluta deildarinnar en Mosfellingar eru í hópi þeirra efstu með átta stig. Ekki aðeins gengur Valsliðinu illa að vinna leiki heldur einnig að ná heilsteyptum leik. Á Varmá á laug- ardaginn lék liðið illa í fyrri hálfleik. Leikmenn gerðu sig sig seka um fjölda einfaldra mistaka í sókninni. Fyrir vikið máttu þeir heita stál- heppnir að vera aðeins einu marki undir að loknum fyrri hálfleik, 13:12. Valsliðið hresstist í síðari hálfleik og náði um skeið forskoti. Það rann hins vegar fljótt út í sandinn og Mosfellingar jöfnuðu metin. Síðustu tíu mínútur leiksins voru hnífjafnar og æsispennandi. Þeim lauk með sigurmarki Guðmundar Árna. Varnarleikur beggja liða var ágætur og leikurinn í heild góð skemmtun. Áðurnefndur Guð- mundur Árni var markahæstur Aft- ureldingarmanna með átta mörk. Sveinn José Rivera, Tumi Steinn Rúnarsson og Þorsteinn Gauti Hjálmarsson skoruðu fjögur mörk hver. Anton Rúnarsson og Magnús Óli Magnússon skoruðu sjö mörk hvor fyrir Valsliðið og voru marka- hæstir. Arnór Freyr Stefánsson varði 12 skot í marki Aftureldingar og Daníel Freyr Andrésson níu í marki Vals. Miklu munaði að hann náði sér ekki á strik. Bætti það ekki úr skák fyrir Hlíðarendapilta. Erfiðleikar hjá HK-ingum og Valsmönnum  KA reis upp úr vonbrigðum síðustu umferðar  Naumur sigur á Varmá Morgunblaðið/Eggert Sterkur Áki Egilsnes sækir að marki HK-inga í Kópavogi í gær. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2019 HANDBOLTI Olísdeild karla Afturelding – Valur .............................. 26:25 HK – KA................................................ 24:28 Staðan: ÍR 4 4 0 0 128:106 8 ÍBV 4 4 0 0 107:94 8 Haukar 4 4 0 0 101:89 8 Afturelding 5 4 0 1 133:122 8 Selfoss 4 2 1 1 116:117 5 KA 5 2 0 3 137:136 4 FH 4 2 0 2 103:102 4 Valur 5 1 1 3 120:120 3 Fjölnir 4 1 1 2 102:114 3 Stjarnan 4 0 1 3 90:107 1 Fram 4 0 0 4 82:96 0 HK 5 0 0 5 123:139 0 Grill 66 deild karla Stjarnan U – Víkingur ......................... 17:25 Olísdeild kvenna Afturelding – Fram.............................. 15:27 Haukar – Valur..................................... 18:33 ÍBV – Stjarnan ..................................... 17:25 Staðan: Fram 3 3 0 0 97:61 6 Valur 3 3 0 0 92:59 6 Stjarnan 3 3 0 0 76:62 6 KA/Þór 3 1 0 2 78:89 2 ÍBV 3 1 0 2 49:70 2 HK 3 1 0 2 75:80 2 Haukar 3 0 0 3 63:85 0 Afturelding 3 0 0 3 46:70 0 Grill 66 deild kvenna HK U – ÍR............................................. 21:27 ÍBV U – Stjarnan U ............................. 27:26 FH – Víkingur ...................................... 35:23 Þýskaland RN Löwen – Wetzlar........................... 29:26  Alexander Petersson skoraði 3 mörk fyr- ir Löwen. Kristján Andrésson þjálfar liðið. Lemgo – Kiel ........................................ 27:30  Bjarki Már Elísson skoraði 13 mörk fyr- ir Lemgo.  Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki á meðal markaskorara Kiel. Bergischer – Minden........................... 26:23  Arnór Þór Gunnarsson skoraði 5 mörk fyrir Bergischer og Ragnar Jóhannsson 1. Balingen – Erlangen........................... 30:32  Oddur Gretarsson skoraði 1 mark fyrir Balingen.  Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen. Ludwigshafen – Stuttgart.................. 23:27  Elvar Ásgeirsson skoraði 2 mörk fyrir Stuttgart. Nordhorn – Leipzig............................. 33:30  Geir Sveinsson þjálfar Nordhorn.  Viggó Kristjánsson var ekki á meðal markaskorara Leipzig. Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit: Bad Wildungen – Leverkusen ........... 21:25  Hildigunnur Einarsdóttir var ekki á meðal markaskorara Leverkusen. Zwickau – Neckarsulmer................... 39:45  Birna Berg Haraldsdóttir var ekki í leik- mannahópi Neckarsulmer. Á ÁSVÖLLUM Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Íslandsmeistarar Vals eru með fullt hús stiga í öðru sæti úrvalsdeildar kvenna í handknattleik, Olís- deildarinnar, eftir fimmtán marka sigur gegn Haukum á Ásvöllum í Hafnarfirði í þriðju umferð deild- arinnar á laugardaginn. Leiknum lauk með 33:18-sigri Vals en staðan í hálfleik var 16:8, Valskonum í vil. Valskonur svo gott sem kláruðu leikinn á fyrstu tíu mínútum leiks- ins. Þær spiluðu mjög fasta en jafn- framt góða vörn á Hauka og slógu Hafnfirðinga þannig út af laginu. Valsarar skoruðu hvert markið á fætur öðru úr hraðaupphlaupum og þar fór Ragnhildur Edda Þórð- ardóttir fremst í flokki. Valskonur slökuðu aðeins á um miðjan fyrri hálfleikinn en í hvert skipti sem Haukar gerðu sig líklega til þess að koma sér inn í leikinn gáfu Vals- arar aftur í og munurinn á liðunum í lokin var síst of stór. Hafnfirðingar vilja væntanlega gleyma þessum leik sem allra fyrst enda leit liðið vandræðalega illa út. Varnarleikurinn var enginn og sóknarleikurinn eins slæmur og hann gerist. Leikmenn liðsins voru mikið að reyna erfið skot fyrir utan og í þau fáu skipti sem þau rötuðu á markið fóru þau beint á Írisi Björk Símonardóttur í marki Valskvenna. Guðrún Erla Bjarnadóttir og mark- maðurinn Saga Sif Gísladóttir voru einu leikmenn Hauka sem geta ver- ið nokkuð sáttar með sitt. Aðrir leikmenn ættu í raun að skammast sín fyrir frammistöðuna. Valskonur eru með gjörbreytt lið frá því í fyrra en þrátt fyrir það er sami kraftur í varnarleik liðsins og í fyrra, sem er óþægileg tilhugsun fyrir önnur lið í deildinni. Haukar líta í einu orði sagt hræðilega út og liðið, sem ætlaði sér úrslitakeppn- ina fyrir mót, þarf að girða sig í brók ef það ætlar ekki að vera í fall- baráttu í vetur. Stjarnan vann í Eyjum Eins og Valur eru Stjarnan og Fram með fullt hús stiga. Stjarnan vann ÍBV af öryggi í Vestmanna- eyjum, 25:17, þar sem Klaudia Po- waga varði 20 skot í marki Stjörn- unnar. Valur hefur unnið þrjá risasigra en liðið lagði Aftureld- ingu í Mosfellsbæ, 27:15, eftir að hafa verið 13:7 yfir í hálfleik. Morgunblaðið/Eggert Öflug Lovísa Thompson skoraði sex mörk gegn Haukum. Valsarar lögðu arfaslaka Hauka  Sterkur varnarleikur lykillinn að sigri á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play SÆKTU APPIÐ Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Þú pantar bíl1 3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn. 2 fylgist með bílnum í appinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.