Morgunblaðið - 07.10.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.10.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2019 60 ára Svavar er Blönduósingur en býr í Hnífsdal. Hann er með skipstjórnar- og vél- stjórnarpróf og er stýri- maður á Fríðu Dagmar í Bolungarvík. Maki: Sigríður Inga Elí- asdóttir, f. 1963, vinnur á Hjúkrunarheimili Bolungarvíkur og er sjúkraliðanemi. Börn: Pétur Geir, f. 1981, Linda Rut, f. 1989. Stjúpbörn eru Ingibjörg Heba, f. 1982, Björn Elías, f. 1984, Salóme, f. 1989. Fósturdóttir er Eygló Inga, f. 1998. Barna- börn eru 14 og eitt barnabarnabarn. Foreldrar: Ævar Rögnvaldsson, f. 1938, d. 2009, trésmíðameistari, og Elín Sólveig Grímsdóttir, f. 1938, fv. kaupmaður, búsett í Reykjavík. Svavar Geir Ævarsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Eigirðu erfitt með að gera upp hug þinn getur reynst gagnlegt að leita ráða hjá öðrum. Byrjaðu á að skrifa lista og for- gangsraðaðu á hann. 20. apríl - 20. maí  Naut Þér hættir til að nota leggja mál þitt fram með þeim hætti að fólk á erfitt með að átta sig á því, hvað þú ert að fara. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Fólk þarfnast þeirrar hjálpar sem þú getur veitt og er til í að borga vel fyrir. Þér er það mikið í mun að hafa betur í rök- ræðum í dag. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að laga ýmislegt í starfs- háttum þínum og umfram allt þarftu að muna að æfingin skapar meistarann. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Lánið virðist leika við þig þessa dag- ana og þér er svo sem óhætt að njóta þess meðan á því stendur. Ekki reyna að draga mat annarra í efa. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert ákveðinn í að fá aðra til að gera eitthvað í vinnunni. Taktu fyrsta skrefið og leggðu allt annað til hliðar á meðan. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur öðlast djúpan skilning á því sem skiptir sköpum fyrir þig. Láttu það ekki fara í taugarnar á þér þótt samstarfs- mennirnir reyni á þolinmæði þína í dag. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vertu auðmjúkur því það þurfa allir að leggja sitt af mörkum til að halda frið innan fjölskyldunnar. Nýttu þér krafta annarra til þess að leggja lokahönd á það sem óklárað er. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gættu þess að gera ekki svo stífar kröfur til þinna nánustu að þær kunni að ganga af sambandinu dauðu 22. des. - 19. janúar Steingeit Óvænt tækifæri berst þér upp í hendurnar og þér er fyrir bestu að nýta þér það til hins ýtrasta. Þegar þú stendur frammi fyrir vali skaltu ekki velja það sem er auðveldast. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Takturinn í lífi þínu verður hraðari á næstunni og á næstu vikum get- ur þú átt von á meira annríki en venjulega. 19. feb. - 20. mars Fiskar Allt virðist leika í höndunum á þér og þú nýtur aðdáunar annarra. Góð sam- skipti þýða ekki bara réttu orðin á réttum tíma, heldur líka réttu orðin eftir það. og virta fyrirtæki sem hún var. Við- skiptasambönd HEKLU voru víða; Bretland, Bandaríkin, Þýskaland, Japan og Suður-Kórea voru okkar helstu samstarfsaðilar. Fyrirtækin sem við áttum í viðskiptum við voru leiðandi í heiminum; hvert á sínu sviði þannig að áskoranirnar voru margar. Okkur tókst að nýta okkur styrkleika þessara fyrirtækja og segja má að HEKLAN hafi verið alþjóðlegur suðupottur lifandi viðskipta.“ Ásamt störfum sínum í HEKLU var Sigfús tímabundið formaður Bíl- greinasambandsins og stjórnar- formaður í Vífilfelli. „Satt best að segja lá minn metnaður í HEKLU og vinnunni með mínu fólki, þar voru mínar ær og kýr. Ég hafði ekki mikla þörf fyrir að taka að mér önnur störf eða láta ljós mitt skína annars staðar; ég var Sigfús í HEKLU, eins og pabbi og mjög sáttur við það. Ferðalög hafa mér þótt skemmti- leg og nú er ég loksins farinn að stunda líkamsrækt. Ég hef nú ekki alveg sagt skilið við viðskiptalífið en ég hef mjög sveigjanlegan vinnutíma og það hentar mér vel. Viðskipti hafa alltaf heillað mig og það gera þau enn. Í dag, þegar ég lít til baka, sé ég hversu mikillar gæfu ég hef verið að- njótandi. Lífið hefur leikið við mig og fyrir það er ég þakklátur. Barnalánið leikur við mig og í mars á næsta ári og við það breyttist lífið mikið. Pabbi hafði verið mín stoð og stytta og ég hafði hlakkað til samstarfs við hann þegar ég kæmi heim. Úr því varð ekki og ég ákvað að hætta í HEKLU. Ég sótti um starf hjá ÍSAL og fékk það. Þar vann ég í þrjú ár og segi oft að þar hafi ég tekið meistaranámið mitt. Í ÍSAL var frábært að vinna og þar kynnist ég bara góðu fólki og ein- um minna besta vina kynntist ég þar. Eftir þessi ár vildi mamma að ég kæmi til starfa í fjölskyldufyrirtæk- inu og auðvitað hlýðir maður mömmu sinni! HEKLAN sem alltaf hafði átt hug minn og hjarta varð minn starfs- vettvangur eftir það. HEKLA var fjölskyldufyrirtæki og þar vann ein- stakt starfsfólk sem gerði HEKLUNA að því framúrskarandi S igfús Ragnar Sigfússon er fæddur 7. október 1944 á Víðimel 66 í Reykjavík. „Æskan leið við leik og áhyggjuleysi. Nóg af skemmtilegum leikfélögum og heim- ilið eins og hálfgert félagsheimili. Sveitungar og ættingjar foreldra minna komu mjög gjarnan til Reykjavíkur að leita sér lækninga og fleira og þá var alltaf opið hús á Víði- melnum. Auk þessa mátti mamma ekkert aumt sjá. Hún lét gott af sér leiða á svo margan hátt og nutu fang- ar og margir sem illa voru staddir góðmennsku hennar. Vegna starfa pabba þurftu þau oft að fara til út- landa og þá var manni komið í fóstur m.a. til Döggu systur mömmu í Vest- mannaeyjum og til föðursystra minna. Þessa tíma minnist ég oft og með miklu þakklæti. Pabbi og mamma ætluðust til að við systkinin menntuðum okkur og lagði pabbi mikla áherslu á tungu- málin. Sjálfur hafði hann kynnst því hversu mikilvæg kunnátta í erlend- um tungumálum var og hann ætlaði ekki að láta skort á tungumálakunn- áttu hamla okkur börnunum. Ég var því sendur snemma til Danmerkur og Englands að læra þessi tungumál. Mig minnir að ég hafi verið 10 ára Danmerkursumarið og ég var nú ekki sérlega þakklátur fyrir þessa ráðagerð þá, en þetta var lærdóms- ríkt og gott þegar upp var staðið. Eftir skyldunám reyndi ég tvisvar að komast inn í Verslunarskólann. Ég var nú aldrei neinn afreksmaður í námi og féll í bæði skiptin. Pabbi neit- aði mér um að troða mér inn í skólann í gegnum klíku en hann kom mér, í gegnum sín sambönd erlendis, í strákamenntaskóla í Sviss.“ Sigfús útskrifaðist úr svissneskum menntaskóla eftir þriggja ára nám. Eftir menntaskóla var stefnan tekin til Bandaríkjanna og útskrifaðist hann sem viðskiptafræðingur frá The Univeristy of Wisconcin í Madison. Seinna meir sótti Sigfús sér viðbót- armenntun í Stanford University í Kaliforníu. „Þegar ég kom heim frá námi sum- arið 1967 byrjaði ég í HEKLU. Þetta sama haust varð pabbi bráðkvaddur mun bætast við eitt barnabarn og eitt langafabarn. Ég nýt lífsins með kon- unni minni sem er minn besti vinur. Hún er og hefur verið mín stoð og stytta í stóru og smáu. Hér áður fyrr var hún skólastjóri og hún sagði nú stundum við mig að það væri auð- veldara að stjórna heilum skóla en mér! Hvernig sem það nú er þá höf- um við verið samstiga og glaðst yfir lífinu. Hundurinn okkar, hann Kasper, laðar svo fram allt það besta í okkur.“ Sigfús ætlar að fagna 75 ára af- mælinu með fjölskyldunni um næstu helgi „Á laugardaginn ætlum við í leikhús með yngri deildina og á sunnudaginn erum við búin að bjóða öllum börnunum okkar og fjöl- skyldum þeirra, samtals 44, í afmæliskvöldverð. Skemmtileg helgi er því framundan hjá okkur.“ Fjölskylda Eiginkona Sigfúsar er María Sol- veig Héðinsdóttir, f. 27.7. 1958. For- eldrar hennar voru hjónin Héðinn Emilsson, f. 22.2. 1933, d. 1.3. 2006, og Ingibjörg Olga Hjaltadóttir, f. 10.3. 1934, d. 2.2..1996. Fyrri eiginkona Sigfúsar er Guðrún Norberg, f. 14.4. 1942. Börnin eru 1) Aðalsteinn G. Nor- berg, f. 6.10. 1961, maki: Elín Anna Ísaksdóttir; 2) Sigfús Bjarni Sigfús- son f. 5.12. 1968, maki: Unnur Páls- dóttir. Börn Unnar eru Páll Ingi Kvaran og Erla Hlíf Kvaran, dætur Erlu Hlífar eru Sigrún Lára og Unn- ur Ágústa. Börn Sigfúsar og Unnar eru Sigfús Ragnar, maki: Mardís Bjartmarz og dóttir Sigfúsar Ragn- ars er Skyler Hekla; og Gunnar Sveinn Sigfússon; 3) Margrét Ása Sigfúsdóttir f. 1.11. 1971, maki: Özur Lárusson og dætur þeirra eru Guð- rún, maki: Úlfar Finnsson; og Ragn- heiður Özurardóttir, unnusti: Helgi Már Vilbergsson; 4) Rannveig Sig- fúsdóttir, f. 27.10. 1975, maki: Magn- ús Árnason, sonur Rannveigar er Stefán Ragnar Sandholt, sonur Magnúsar er Árni Snær og dóttir Rannveigar og Magnúsar er Björg Margrét. 5) Guðrún Helga Sigfús- dóttir, f. 4.7. 1980, maki: Rögnvaldur Guðni Jóhannsson, synir Helgu eru Sigfús R. Sigfússon, fyrrverandi forstjóri HEKLU – 75 ára Í garðinum heima Sigfús og María ásamt broti af barnabörnunum. Sigfús í HEKLU, eins og pabbi Hjónin Sigfús og María. 40 ára Kristinn er Breiðhyltingur en býr í Kópavogi. Hann er viðskiptastjóri hjá Coca Cola á Íslandi og sér um skyndibita- og bíómarkaðinn. Hann er í meistara- flokksráði ÍR í handbolta. Maki: Laufey Árnadóttir, f. 1980, sérfræðingur í fjárstýringu hjá Sím- anum. Börn: Hrefna Rán, f. 2004, Sturla, f. 2013, og Rúrik, f. 2015. Foreldrar: Hörður Kristinsson, f. 1952, bókari hjá Sláturfélagi Suðurlands, og Rut María Jóhannesdóttir, f. 1956, vinn- ur hjá Íslenskri erfðagreiningu. Þau eru búsett í Kópavogi. Kristinn Harðarson Til hamingju með daginn Góð heyrn glæðir samskipti ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Erum flutt í Hlíðasmára 19 Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður. Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.