Morgunblaðið - 07.10.2019, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2019
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
SANGSIN gæðavara frá Kóreu
BREMSU
VÖRUR
í flestar gerðir bíla
7. október 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.25 123.83 123.54
Sterlingspund 152.04 152.78 152.41
Kanadadalur 92.42 92.96 92.69
Dönsk króna 18.123 18.229 18.176
Norsk króna 13.523 13.603 13.563
Sænsk króna 12.517 12.591 12.554
Svissn. franki 123.99 124.69 124.34
Japanskt jen 1.1543 1.1611 1.1577
SDR 168.4 169.4 168.9
Evra 135.32 136.08 135.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 164.9463
Hrávöruverð
Gull 1509.5 ($/únsa)
Ál 1696.5 ($/tonn) LME
Hráolía 57.69 ($/fatið) Brent
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Öryggisógnir og fyrirmælasvik eru að verða
áberandi vandamál í daglegum rekstri fyrir-
tækja og sífellt flóknari viðureignar. Tölvu-
þrjótar hafa í auknum mæli beint sjónum sín-
um að Íslandi. Þeir beita útsmognum aðferðum
sem erfitt getur verið að sjá í gegnum og geta
haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir fjárhag og
ímynd fyrirtækja. Allir
þurfa að vera á tánum.
Til að fjalla um öryggis-
mál þessi hafa Reiknistofa
bankanna (RB) og Syndis
boðað til ráðstefnu á Grand
hóteli miðvikudaginn 9.
október. Þar verður boðið
upp á röð áhugaverðra
fyrirlestra um öryggismál.
Fyrirlesararnir eru allir al-
þjóðlegir sérfræðingar í
netöryggismálum og með
áratuga reynslu og þekkingu á því sem er að
gerast á þeim vettvangi og viðbrögðum við net-
árásum af öllu tagi. Eru þeir m.a. frá CSIS
Security Group, Duo Security og Google.
„Ráðstefnan er samstarfsverkefni RB og
Syndis sem er eitt öflugasta netöryggisfyrir-
tækið á Íslandi. Með ráðstefnunni viljum
stuðla að enn frekari umræðu um öryggismál
og einnig mikilvægi þess að búa sig undir það
versta, þ.e. að verða fyrir barðinu á óprúttnum
aðilum sem tekst að ógna öryggi fyrirtækja og
einstaklinga með netárásum, innbrotum eða
netsvikum,“ segir Ragnhildur Geirsdóttir, for-
stjóri RB.
Krónan viss vörn
„Netglæpir þekkja engin landamæri og því
eru íslensk fyrirtæki í jafnmikilli hættu og er-
lend fyrirtæki hvað varðar öryggisógnun í
formi tölvuglæpa, árása eða innbrota. Það má
þó vera að einhver vörn felist í íslensku krón-
unni. Það sama á við um einstaklinga; Íslend-
ingar geta verið skotspónn netsvikara á sama
hátt og gerist erlendis. Á Íslandi hefur verið
mikil umræða síðustu misseri um svokallaða
„CFO fraud“-glæpi, en nokkur fyrirtæki hafa
tapað miklum upphæðum vegna þannig glæpa
nýverið,“ segir Ragnhildur.
„Netárásir geta haft alvarleg áhrif á virkni
fjármálainnviða en alvarlegar og endurteknar
netárásir eru ekki einungis taldar geta ógnað
fjármálastöðugleika heldur jafnvel þjóðar-
öryggi,“ bætir Ragnhildur við. Þess má geta að
Atlantshafsbandalagið skilgreinir nú net-
öryggi sem fjórðu vídd sameiginlegra varna.
Samstarfsvettvangur
Ragnhildur segir að öryggið verði aldrei
100%. Með markvissri vinnu megi þó draga úr
líkum á því að verða fyrir alvarlegu tjóni af
völdum tölvuárása. Hún segir mikilvægt að
gæta að tæknilegum vörnum gegn tölvu-
árásum. Mikilvægt sé að fræða einstaklinga og
starfsfólk fyrirtækja því það sé algengt að
óprúttnir aðilar reyni að blekkja starfsfólk til
að ná aðgengi að kerfum og gögnum. Mannlegi
þátturinn sé oft veikasti hlekkurinn þegar
kemur að öryggismálum. Þó að tæknilegar
varnir séu góðar sé ekki á allra færi að lesa úr
þeim upplýsingum sem tækin og tólin upplýsa,
það sé oft kostnaðarsamt og ekki á allra færi.
Einnig sé nauðsynlegt að gera prófanir, hafa
uppfærslur á búnaði í lagi og hafa aðgerðar-
áætlun ef eitthvað komi fyrir.
„Samstarf er lykilatriði í baráttu gegn net-
glæpum. Samstarf aðila eins og fjármála-
fyrirtækja, samstarf atvinnugreina, samstarf
við innlenda og erlenda sérfræðinga á sviði
öryggismála. Í undirbúningi er að frumkvæði
Seðlabankans samstarfsvettvangur um
rekstraröryggi fjármálakerfisins, sem á að
vinna sameiginlega að eflingu öryggismála á
fjármálamarkaði og viðbragða við þeim. Einn-
ig er mikilvægt að huga að viðbrögðum við ör-
yggisatvikum, þ.e. að vera með neyðaráætlanir
til að bregðast við atvikum. Atvik eru vissulega
víðtækari en netárásir, s.s. bilanir, mannleg
mistök og áhrif margs konar utanaðkomandi
atvika,“ segir Ragnhildur.
Hún bætir við að ný lög um öryggi net- og
upplýsingakerfa mikilvægra innviða muni taka
gildi 1. sept 2020. Segir Ragnhildur að með
þeim verði Netöryggissveit Íslands (CERT-
ÍS) lykilviðbragðsaðili vegna netárása. Margt
sé enn óljóst en þó sé ljóst að með lögunum sé
verið að kalla eftir betri viðbrögðum og upplýs-
ingagjöf þegar atvik eigi sér stað.
„Það er von RB að þessi ráðstefna verði til
þess að opna augu þátttakenda enn frekar fyrir
þeirri alvarlegu öryggisógnun sem netglæpir
eru, að samstarf milli fyrirtækja í hverri at-
vinnugrein séu lykill að öruggum rekstri tölvu-
kerfa og almenn fræðsla og umræður þurfi
alltaf að vera í gangi og aldrei megi slaka á al-
mennum öryggiskröfum. Og síðast en ekki síst
er mikilvægt að við höfum í huga að öryggis-
mál snúast um samstarf en er ekki sam-
keppnismál,“ segir Ragnhildur. Ljóst má vera
að þessi mál eru í brennidepli því uppselt varð
á ráðstefnuna á aðeins nokkrum dögum.
Netglæpir flókin starfsemi
Meðal fyrirlesara er Daninn Peter Kruse,
forstöðumaður CSIS eCrime Unit hjá CSIS
Security Group A/S í Kaupmannahöfn. Í sam-
tali við Morgunblaðið sagði hann að netheima-
glæpir hefðu þróast og væru orðnir að flóknum
viðskiptum með þjónustusamningum, upp-
færslum og stuðningsgjörðum. Aldrei hefði
verið eins auðvelt að vera netheimaglæpon
eins og nú og glæpir sem þjónustustarfsemi
væru orðnir stórfellt vandamál fyrir hagkerfi
heimsins.
„Tölvuárásir eru orðnar svæsnari og skað-
legri. Við erum ekki einungis að sjá bratta
aukningu flókinna ránforrita heldur einnig
beinskeytt áhlaup. Árásarmennirnir skiptast á
aðgangi að stórum netum í þeim tilgangi að
auka á arðheimtu sína. Sem dæmi um slíkar
árásir má nefna Norsk Hydro og fleiri alþjóð-
leg stórfyrirtæki. Samhliða árásunum er aukin
sviksemi með tölvupósti,“ segir Kruse.
Spurður hvort hættan á netárásum sé varan-
leg segir hann:
„Stafræn árás getur valdið meiri háttar
röskun og beinlínis stöðvað þjónustustarfsemi
fyrirtækja. Í árás geta glatast hugverk og fjár-
munir og vörumerki skaðast. Tapið af árásinni
gæti ekki einungis snúist um gríðarlegar fjár-
hæðir heldur getur hún einnig bitnað á gengi
hlutabréfa fyrirtækis og orðstír þess.“
Eru einhverjar lausnir
til á vanda þessum?
„Ég mun í fyrirlestri mínum koma inn á við-
bótaraðgerðir og tæknilegar varnir gegn
margbrotnum tölvuárásum. Þá mun ég fjalla
um nokkrar árásir sem átt hafa sér stað síðasta
árið og varpa ljósi á hvað fór þar úrskeiðis.
Ekkert nettengt fyrirtæki er algjörlega óhult.
En meðal helstu vopna til að tryggja óraskaða
starfsemi fyrirtækja er að þætta netkerfin nið-
ur og stilla búnað svo hann verði öruggari,
auka á meðvitund notenda og taka upp viðeig-
andi afritunaraðferðir,“ segir Peter Kruse.
Tölvuárásir eru orðnar svæsnari
Netglæpir þekkja engin landamæri og því eru íslensk fyrirtæki í jafnmikilli hættu og erlend fyrirtæki
Ragnhildur
Geirsdóttir
Antti Rinne, forsætisráðherra
Finnlands, sem fer með forystu í
Evrópusambandinu (ESB), segist
hafa tjáð Boris Johnson í síma-
samtali í fyrradag að nauðsynlegt
væri að finna lausn á brexit-
deilunni í síðasta lagi um næstu
helgi.
Írski forsætisráðherrann Leo
Varadkar segist telja samninga
mögulega en nýjar tillögur Johnson
til lausnar deilunni gangi þó ekki
nógu langt. Krisjanis Karins, for-
sætisráðherra Lettlands, sagði í
gær að nýtt samkomulag virtist
langt undan en „tvímælalaust“
mögulegt.
Boris Johnson sagði í gær stuðn-
ing við nýjar tillögur hans í þinginu
fara vaxandi.
Hvatti hann ESB
til málamiðlunar.
Nýtt samkomu-
lag um útgöngu
Breta úr ESB
færi eftir samn-
ingsvilja ESB.
Stephen Barclay,
sem fer með
brexit-málin í
stjórn Johnson,
eggjaði ESB lögeggjan í gær að
setja aukinn kraft í viðræðurnar.
Hefst ný samningslota í dag og
verður reynt að ná nýju sam-
komulagi í tíma fyrir leiðtogafund
ESB 17. október.
agas@mbl.is
Antti
Rinne
Gefur Brexit viku
Allt um
sjávarútveg