Morgunblaðið - 07.10.2019, Síða 25

Morgunblaðið - 07.10.2019, Síða 25
ENGLAND Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Vandræði Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu halda áfram en í gær tapaði liðið 1:0 gegn Newcastle á St. James Park. Heimamenn rifu sig upp úr fallsæti með sigrinum en sigurmarkið skor- aði táningurinn Matthew Longstaff með glæsilegu skoti utan teigs í sín- um fyrsta byrjunarliðsleik í deild- inni. Það hefur lítið gengið hjá læri- sveinum Steves Bruce í haust og kom því sigurinn gegn United á góð- um tíma en þetta var í fyrsta sinn, í 21 tilraun, sem Bruce tókst að stýra liði til sigurs gegn Manchester- félaginu sem hann eitt sinn spilaði með sem leikmaður. Versta byrjun United í 30 ár Rauðu djöflarnir hafa ekki átt sjö dagana sæla en þeir sitja í 12. sæti deildarinnar, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti. Versta byrjun liðsins í 30 ár. United er áfram án mikil- vægra leikmanna á borð við Paul Pogba og Anthony Martial en von- arstjarnan Marcus Rashford virðist vera að bogna undan álaginu sem fylgir því að vera aðalmaðurinn í lið- inu. Hann hefur nú aðeins skorað eitt mark í síðustu sjö leikjum og virðist ekki bera vel þá ábyrgð að leiða sóknarleikinn. Hann var ansi ein- mana uppi á toppi í gær og fær vissu- lega úr litlu að moða frá liðsfélögum sínum en sömuleiðis er hann vesæld- arlegur með boltann og ekki líklegur til afreka. Er hann nógu góður til að vera aðalmaðurinn hjá Manchester United? Kannski ekki, en hann er þó langt frá því að vera versti leikmaður liðsins. Brasilíski miðjumaðurinn Fred fær þá nafnbót en sá átti enn einn afleita daginn í gær. Honum tókst ekki að senda boltann fram völlinn í nær 90 mínútur og átti þar að auki eina marktilraun sem ógnaði saklausum áhorfendum í efstu röð fyrir aftan markið. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að United borgaði yfir 50 milljónir punda fyrir kauða. Liverpool óstöðvandi en City hikstar Liverpool vann sinn 17. deildarleik í röð þegar vítaspyrna James Mil- ners tryggði 2:1-sigur á Leicester í uppbótartíma á Anfield á laugardag- inn. Liðið frá Bítlaborginni er enn með fullt hús stiga og nú með átta stiga forystu á toppi deildarinnar. Það virðist hreinlega ekkert geta stöðvað Jürgen Klopp og hans menn sem eltast við fyrsta Englandsmeist- aratitil félagsins í 30 ár. Því á meðan Liverpool leikur á als oddi er gengi ríkjandi meistaranna orðið ansi slitrótt. Manchester City fékk skell á heimavelli í gær gegn Wolves, 2:0, og eru sveinar Peps Guardiola nú búnir að tapa tveimur leikjum á tímabilinu. Ungt og efnilegt lið Chelsea virðist vera að finna taktinn eftir erfiða byrjun en liðið vann Southampton í gær, 4:1, og er nú búið að vinna þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum. Þá marði Arsenal sigur á Bournemouth og virðast þetta vera liðin tvö sem munu enda í hinum tveimur meist- aradeildarsætunum. Man. United í frjálsu falli  Táningur tryggði sigur í frumraun  Englandsmeistararnir í basli AFP Frumraun Hinn 19 ára gamli Matthew Longstaff fær knús frá Steve Bruce eftir sigurmark gegn Man. Utd í fyrsta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni. ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2019 England Burnley – Everton ................................... 1:0  Jóhann Berg Guðmundsson var í liði Burnley fram á 84. mínútu.  Gylfi Þór Sigurðsson var í liði Everton fram á 59. mínútu. Brighton – Tottenham ............................. 3:0 Liverpool – Leicester............................... 2:1 Norwich – Aston Villa .............................. 1:5 Watford – Sheffield United ..................... 0:0 West Ham – Crystal Palace .................... 1:2 Arsenal – Bournemouth .......................... 1:0 Manchester City – Wolves ...................... 0:2 Southampton – Chelsea ........................... 1:4 Newcastle – Manchester United ............ 1:0 Staðan: Liverpool 8 8 0 0 20:6 24 Manch.City 8 5 1 2 27:9 16 Arsenal 8 4 3 1 13:11 15 Leicester 8 4 2 2 14:7 14 Chelsea 8 4 2 2 18:14 14 Crystal Palace 8 4 2 2 8:8 14 Burnley 8 3 3 2 11:9 12 West Ham 8 3 3 2 11:11 12 Tottenham 8 3 2 3 14:12 11 Bournemouth 8 3 2 3 13:13 11 Wolves 8 2 4 2 11:11 10 Manch.Utd 8 2 3 3 9:8 9 Sheffield Utd 8 2 3 3 7:7 9 Brighton 8 2 3 3 8:10 9 Aston Villa 8 2 2 4 13:12 8 Newcastle 8 2 2 4 5:13 8 Southampton 8 2 1 5 8:15 7 Everton 8 2 1 5 6:13 7 Norwich 8 2 0 6 10:21 6 Watford 8 0 3 5 4:20 3 B-deild: Millwall – Leeds....................................... 2:1  Jón Daði Böðvarsson kom inn á hjá Mill- wall á 80. mínútu. Þýskaland Mönchengladbach – Augsburg.............. 5:1  Alfreð Finnbogason var á varamanna- bekk Augsburg. B-deild: Sandhausen – Aue ................................... 2:2  Rúrik Gíslason var á varamannabekk Sandhausen. Rússland CSKA Moskva – Rostov .......................... 1:3  Arnór Sigurðsson var í liði CSKA fram á 67. mínútu en Hörður Björgvin Magnússon var á bekknum.  Ragnar Sigurðsson og Björn Bergmann Sigurðarson voru ekki með Rostov. Rubin Kazan – Tambov........................... 2:1  Viðar Örn Kjartansson var í liði Rubin Kazan fram á 90. mínútu. Krasnodar – Spartak Moskva ................ 2:1  Jón Guðni Fjóluson var á varamanna- bekk Krasnodar. Grikkland Larissa – AEK Aþena.............................. 0:0  Ögmundur Kristinsson varði mark Lar- issa allan leikinn. Asteras Triopolis – PAOK...................... 1:2  Sverrir Ingi Ingason var á varamanna- bekk PAOK. KNATTSPYRNA Spænska 1. deildin í fótbolta er byrjuð að taka á sig mynd eftir leiki helgarinnar. Stórliðin Real en Atlético Madríd er í þriðja sæti. Real fór upp í toppsætið með 4:2- sigri á spútnikliði Granada á heimavelli. Real er með 18 stig. Barcelona fór upp um 16 stig og í annað sætið með 4:0-stórsigri á Sevilla. Tveir leikmenn Barcelona fengu rautt í leiknum en það kom ekki að sök. Atlético Madríd er í þriðja sæti með 15 stig eftir markalaust jafntefli við Real Val- ladolid á útivelli. Stórliðin á Spáni komin á sinn stað AFP Mark Lionel Messi innsiglaði 4:0- sigur Barcelona í gær á 78. mínútu. Hugo Lloris, fyrirliði og markvörð- ur franska landsliðsins í fótbolta, leikur ekki með liðinu gegn Íslandi í undankeppni EM eftir að hafa far- ið úr olnbogalið í leik með Totten- ham um helgina. Mike Maignan úr Lille var kallaður inn í hans stað en Steve Mandanda úr Marseille eða Alphonse Areola úr Real Madrid tekur stöðu Lloris í markinu gegn Íslandi. Kylian Mbappé og Lucas Hern- andez léku ekki með félagsliðum sínum um helgina, vegna meiðsla, og gætu misst af landsleiknum. Án fyrirliðans og einnig Mbappés? AFP Meiddur Hugo Lloris meiddist í tapi Tottenham gegn Brighton. Ísland mun næsta vor leika í milli- riðli um sæti á EM U19-kvenna í fót- bolta eftir stórsigur á Kasakstan í Árbænum um helgina, 7:0. Áður hafði Ísland unnið Grikkland 6:0 og er því öruggt um að fylgja Spáni upp úr undanriðlinum, sem allur er leikinn hér á landi, en Spánn hefur einnig unnið báða sína leiki. Spánn og Ísland mætast á morg- un á Hlíðarenda í leik um efsta sæti riðilsins, og þar dugar Spáni jafn- tefli. Leikurinn er þýðingarmikill upp á röðun í styrkleikaflokka áður en dregið verður í milliriðla 22. nóvember. Úr hverjum milliriðli kemst svo eitt lið áfram í loka- keppnina í Georgíu næsta sumar. Ída Marín Hermannsdóttir úr Fylki skoraði tvö mörk gegn Kasak- stan en þær Birta Georgsdóttir, Eva Rut Ásþórsdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir, Sveindís Jane Jónsdóttir og Katla María Þórð- ardóttir eitt mark hver. Ísland komst í 2:0 á fyrstu 10 mínútum leiksins og skoraði svo fimm mörk í seinni hálfleik. sindris@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Markasúpa Ída Marín Hermannsdóttir, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Birta Georgsdóttir fagna einu af sjö mörkum Íslands gegn Kasakstan. Flugu áfram og leika við Spán um 1. sæti Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 5-8 manneskjur 19.500 kr. 1-4 manneskjur 15.500 kr. Verð aðra leið:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.