Morgunblaðið - 14.10.2019, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 14.10.2019, Qupperneq 1
Dorgveiði í höfnum hefur löngum verið áhugamál barna og unglinga. Aftur komust veiðar í höfnum í tísku þegar fólki af erlendum uppruna fjölgaði hér á landi. Tækin urðu jafnframt öflugri, fínar stangir og fjölbreytt úrval agna. Mennirnir sem reyndu fyrir sér með stangirnar við gamla vitann í Reykjavík- urhöfn telja greinilega að þar sé enn veiðivon. Veiðar stundaðar í mörgum höfnum landsins Morgunblaðið/Árni Sæberg Dorgveiðimenn telja veiðivon í Reykjavíkurhöfn M Á N U D A G U R 1 4. O K T Ó B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  241. tölublað  107. árgangur  BARÁTTA Í FULLKOMINNI ÓREIÐU PLÖNTUFÆÐI STÖÐVAR HJARTASJÚKDÓMA FISKUR ER UNDIRSTAÐAN Í GRUNDARFIRÐI RÁÐSTEFNA UM VEGAN 11BJÖRG BÆJARSTJÓRI 6 DÓMUR UM THUNBERG 28 A ct av is 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is  Útlit var fyrir að hægrisinnaði stjórnarflokkurinn Lög og réttlæti (PiS) færi með sigur af hólmi í þing- kosningum í Póllandi samkvæmt útgönguspám sem birtar voru eftir að kjörstöðum var lokað í gær- kvöldi. Spárnar bentu til að flokkurinn fengi 43,6% greiddra atkvæða og 239 sæti á þingi. Gangi þær eftir eykur flokkurinn við meirihluta sinn á þinginu. »13 Stjórnarflokkurinn eflir meirihlutann  Á fyrstu níu mánuðum þessa árs hafa 95 manns greinst með lekanda hér á landi, þar af 85 karlar. Það eru fleiri tilfelli en undanfarin ár að því er segir í Farsóttafréttum Emb- ættis landlæknis. Dregið hefur úr aukningu sára- sóttar yfir sumarmánuði ársins, en 28 greindust með sjúkdóminn frá ársbyrjun, 25 karlar og 3 konur. »2 95 karlar með lek- anda á þessu ári Landlæknir Hvatt er til aðgátar í kynlífi. Flestar framanákeyrslurnar verða við góðar aðstæður en það er talið styðja þá tilgátu að ökumenn leyfi sér mögulega glæfralegri aksturs- hegðun þegar aðstæður eru góðar. Jafnframt eru meiri líkur á að um- ferð sé meiri á þeim tíma en það eyk- ur líkur á árekstrum. Þetta er meðal niðurstaðna í meistaraprófsritgerð Rakelar Töru Þórarinsdóttur við verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar sýna að fram- anákeyrslum bíla sem koma hvor á móti öðrum fjölgaði á milli áranna 2014 og 2018 og einnig alvarlega slösuðum. Rakel tekur þó fram að aukningin sé ekki jafn mikil þegar litið er til fjölgunar bíla og fólks í umferðinni, bæði innlendra og er- lendra ferðamanna. Töluvert um vanskráningu Í ljós kom við rannsókn Rakelar að töluvert er um vanskráningu í gagnasafninu sem hún fékk afnot af. Það geti skekkt niðurstöður athug- unar sem þessarar. Með bættri og ít- arlegri skráningu væri hægt að ná fram skýrari mynd af aðstæðum og orsökum framanákeyrslna sem gæti nýst við ákvarðanir um vegafram- kvæmdir, bætt umferðaröryggi og stefnumótun í framtíðinni. »10 Framanákeyrslum fjölgar Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Árekstur Iðulega verða alvarleg slys þegar bílar keyra saman.  Nákvæmari slysaskráning myndi nýtast við stefnumótun Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Álagsmeiðsli og einkenni ofþjálf- unarheilkennis meðal barna og unglinga sem stunda íþróttir eru algengari en ásættanlegt er. Þetta er á meðal ályktana sem Nadia Margrét Jamchi sjúkraþjálfari leggur fram í nýrri meistararit- gerð sinni. „Með frekari leiðbeiningum og fræðsluefni fyrir foreldra, þjálfara, íþróttaiðkendur og þá sem koma að íþróttaiðkun barna er vonandi hægt að minnka tíðni ofþjálfunar þætt og í samræmi við aldur og þroska.“ Nadia rýndi einnig í rannsóknir þar sem vísbendingar um tengingu milli ofþjálfunar eða álagsmeiðsla og kulnunar komu fram. Álagsmeiðsli barna of algeng  Ný rannsókn sýnir að einkenni ofþjálfunarheilkennis meðal barna eru of tíð  Sjúkraþjálfari vonar að hægt sé að nýta upplýsingarnar til að draga úr ofþjálfun og bera kennsl á þróun álags- meiðsla fyrr í ferli,“ segir Nadia í samtali við Morgunblaðið, sem segir að mögulega verði börn of snemma fyrir utanaðkomandi pressu um að einblína einungis á eina íþrótt. „Í raun er æskilegt að áherslan í þjálfun barna sé fjöl- MOfþjálfun barna … »11

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.