Morgunblaðið - 14.10.2019, Page 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2019
maður og sannur Íslendingur.
Hann kom til dyranna nákvæm-
lega eins og hann var klæddur og
tjáði skoðanir sínar umbúðalaust.
Hann hafði ríka réttlætiskennd
og var samur við háa sem lága og
frá honum stafaði mikil innri
hlýja. Kjarkur og orka geislaði af
honum, hvar sem hann fór. Líf og
störf Þrúðmars tengdust með af-
gerandi hætti landbúnaði og ekki
síður landgræðslu og landvörn-
um. Það hefur löngum verið gæfa
Landgræðslunnar að hafa í þjón-
ustu sinni ósérhlífna og trúa
starfsmenn. Þar hefur verið að
verki sú framvarðasveit sem
ótrauð axlaði erfiði og baráttu við
óblíð náttúruöfl og lagði grunn að
betra og fegurra Íslandi. Í þess-
um hópi var Þrúðmar meðal
hinna fremstu. Það var mikil
gæfa fyrir landgræðslustarfið í
A-Skaftafellssýslu þegar Þrúð-
mar var ráðinn landgræðsluvörð-
ur árið 1986. Hann leiddi m.a.
landgræðslustarfið á Skógeyjar-
svæðinu í Hornafirði og átti
stærstan þátt í umfangsmiklu
landgræðsluátaki. Það hvessti
stundum í samskiptum Hornfirð-
inga um þetta þrekvirki, en Þrúð-
mar stóð keikur í stafni og leiddi
allan ágreining til lykta, eins og
sönnum leiðtoga sæmir. Þar sem
áður var stórt sandsvæði er nú
víða gróskumikið votlendi og eitt
glæsilegasta landgræðslusvæði
landsins.
Þrúðmar lét sig landbrot af
völdum fallvatna miklu varða og
stjórnaði byggingu tuga kíló-
metra langra varnargarða við
nær öll fallvötn í sýslunni. Í skjóli
þeirra greri landið. Landgræðsl-
an átti sannarlega öflugan liðs-
mann í Þrúðmari sem með dugn-
aði sínum og þekkingu leysti úr
vandamálum og verkefnum.
Vinnuafköst hans voru með ólík-
indum mikil og störf hans ein-
kenndust af framsýni, jákvæðni
og vinnugleði. Hann var sannur
landgræðslumaður.
Að leiðarlokum er mér efst í
huga þakklæti fyrir áralanga vin-
áttu og heilladrjúgt samstarf og
samskipti sem aldrei bar skugga
á. Þrúðmar var einn minnisstæð-
asti persónuleiki sem ég hef
kynnst. Mér var heiður að fá að
starfa með honum og eiga við
hann samskipti um áratugaskeið.
Öll voru þau á einn veg; hann var
traustur félagi og vinur, hreinn
og beinn.
Hólmfríður, fjölskyldur, ætt-
ingjar og vinir kveðja nú mikil-
hæfan mann. Ég bið þeim Guðs
blessunar og votta þeim mína
dýpstu samúð. Megi almættið,
sem leiðir okkur og alla þá er
hjarta þitt sló fyrir, leiða þig í sól-
ina, kæri vinur.
Sveinn Runólfsson, fyrrver-
andi landgræðslustjóri.
Haustið er komið, roða slær á
kjarri vaxnar hlíðarnar og loftið
angar af lyng- og birkiilmi. Í for-
sælu ber ferska og kalda goluna
að vitunum, eins og jökullinn sé
að minna á tilvist sína og á að
brátt festi vetur konungur hald á
því sem honum ber. Sólin yljar þó
enn þar sem hennar nýtur við og
fullkomnar fallegan dag á fjöllum.
Þeir voru ófáir dagar af þessu
tagi sem ég naut samvista við
Þrúðmar. Hann ók mér oft ásamt
öðrum smölum þegar farið var
inn í Núpa eða Efstafell og kom
akandi á móti þegar komið var
með féð fram í Geitafell. Það var
alltaf léttir að horfa ofan af Geita-
fellsbjörgum og sjá sólina glampa
á dökkgræna Terranóinn eða
birtuna af bílljósunum ef gangan
hafði dregist á langinn. Þá vissi
maður að nú þyrfti bara að koma
fénu þangað og þá væri streðinu
lokið. Þrúðmar var nefnilega ein-
stakur ökumaður og þrátt fyrir að
hann væri kominn á níræðisaldur
vafðist það ekki fyrir honum að
halda utan um fjárhópinn. Auð-
vitað kom fyrir að það þurfti að
gefa í, stundum losaði bíllinn hjól
og jafnvel þau öll! En hann var
svo yfirvegaður að eðlisfari og
laginn að aldrei upplifði ég að
hann hefði ekki fulla stjórn á að-
stæðum. Þrúðmar var hestamað-
ur, átti góð hross og hafði gaman
af því að rækta þau. Hann lagði
upp úr því að nálgast ætti hrossin
á þeirra forsendum því viðbrögð
þeirra við áreiti væru fyrirsjáan-
leg. Enda hafa Miðfellshrossin
ákveðna lund og ekki stendur á
viðbrögðunum ef farið er illa að
þeim. Nú í vor heimsótti Þrúðmar
mig og tilkynnti mér að hann ætl-
aði að gefa mér mertrippi með því
skilyrði að það yrði tamið. Hann
tjáði mér að hann væri að hætta
að rækta hross en vildi sjá til þess
að eitthvað yrði úr trippinu. Enga
greiðslu vildi hann fyrir en nokkr-
um dögum síðar hringdi ég í
Þrúðmar og spurði hvort hann
vildi ekki í staðinn koma með
meri undir graðhest sem við
Ragnheiður höfðum til umráða.
Hann sagðist ætla að hugsa mál-
ið. Eftir 5 mínútur hringdi hann
aftur, þáði boðið og sagðist koma
með þá bleiku undir hestinn. Þeg-
ar hesturinn kom á svæðið hafði
ég samband við Þrúðmar og
bauðst til að aðstoða hann við að
flytja merina. Hann taldi það
óþarfa og spurði hvort ég yrði
ekki heima við á eftir og því jánk-
aði ég. Tæplega hálftíma síðar
var Þrúðmar, 92 ára gamall mað-
urinn, mættur í hlaðið með þá
bleiku. Á þeim tíma hafði hann
sett kerruna aftan í bílinn, náð
merinni í stóðinu, sett hana á
kerruna og keyrt frá Miðfelli í
Akurnes sem eru tæpir 13 km á
Nissan Terrano, geri aðrir betur.
Áræðnin var slík að honum uxu
ekki svona smáverkefni í augum.
Það er af mikilli virðingu sem ég
kveð vin minn Þrúðmar í Miðfelli.
Hvíldu í friði.
Sveinn Rúnar Ragnarsson.
Veistu ef þú vin átt
þann er þú vel trúir
og vilt þú af honum gott geta.
Geði skaltu við þann blanda
og gjöfum skipta,
fara að finna oft.
(Úr Hávamálum)
Nú þegar við kveðjum Þrúð-
mar Sigurðsson er rétt að minn-
ast hans og þakka honum sam-
fylgdina og þá velvild, vináttu og
væntumþykju sem honum veittist
svo auðvelt að sýna án margra
orða. Ég vona að hann hafi fundið
að vináttan var endurgoldin og að
virðing mín fyrir honum var
ómæld.
Það er nú þannig að á lífsleið-
inni kynnumst við fjölda fólks og
stundum rekumst við á einstak-
linga sem virðast vera meiri og
stærri persónuleikar en aðrir
samferðamenn okkar. Þrúðmar
var slíkur og í raun þarf ekki að
hafa mörg orð um mannkosti
hans fyrir þá sem hann þekktu,
viska hans, velvild og góðvild lét
okkur sem fengum að njóta ekki
ósnortin.
Þegar ég flutti til Hornafjarðar
lá leið mín í Miðfell þar sem ég
hitti hjónin Þrúðmar og Hólm-
fríði og strax við fyrstu viðkynn-
ingu var ég búin að eignast aðra
fjölskyldu fjarri heimahögum
mínum. Vinátta þeirra Þrúðmars
og Fríðu og velvild hafa fylgt mér
eftir að ég flutti frá Hornafirði og
alltaf verið jafn sterk og sönn þótt
fjarlægð í tíma og rúmi væri
nokkur.
Þau hjón hafa átt saman far-
sæla leið í gegnum lífið, samhent
og samstiga, ættartré þeirra vax-
ið ríkulega og ávextirnir gjörvu-
legir. Lífsförunaut og stóru ást-
inni hans Þrúðmars, henni Fríðu,
votta ég samúð mína, börnum,
barnabörnum og barnabarna-
börnum sendi ég mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Farðu í friði góði vinur.
Björg Erlingsdóttir.
✝ Elsa LáraSvavarsdóttir
fæddist 10. maí ár-
ið 1934 á Akureyri.
Hún lést 27. sept-
ember 2019 á
Sjúkrahúsinu á
Akureyri. Hún var
dóttir hjónanna
Bjargar Benedikts-
dóttur og Svavars
Jóhannssonar.
Hálfsystkini Elsu
samfeðra, Hreinn, Ragna og
Sverrir, eru látin.
Eftir gagnfræðapróf frá
Gagnfræðaskóla Akureyrar
var Elsa í húsmæðraskóla í
Reykjavík áður en hún settist í
Kennaraskóla Íslands þaðan
sem hún útskrifaðist með kenn-
arapróf. Hún var lengst af
handavinnukennari við Odd-
eyrarskóla á Akur-
eyri.
Eftirlifandi eig-
inmaður Elsu er
Hannes Stein-
grímsson frá
Grenivík en þau
gengu í hjónaband
12. júní 1965. Þau
bjuggu á Akureyri
allan sinn hjúskap.
Synir Elsu og
Hannesar eru: 1)
Svavar, kona hans var Sigur-
laug Adolfsdóttir, en þau slitu
samvistum. Börn þeirra eru
Sara, Adolf og Ísak. 2) Stein-
grímur, kvæntur Erlu El-
ísabetu Sigurðardóttur. Dóttir
þeirra er Guðrún Margrét.
Útför Elsu fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag, 14. októ-
ber 2019, klukkan 13.30.
Fallin er frá eðalkona og góð
vinkona, hún Elsa. Þegar við fjöl-
skyldan fluttum til Akureyrar ár-
ið 2001 var það mikið happ að fá
Hannes og Elsu sem nágranna.
Þau reyndust okkur mjög vel og
má segja að þau hafi verið „afi og
amma“ dætra okkar á Akureyri.
Þegar Svana Björg, sem var 2ja
ára, kom heim af leikskólanum
var það fastur liður að banka á
eldhúsgluggann hjá þeim og fela
sig á bak við ruslatunnugeymsl-
una. Þennan leik léku þau saman
í nokkur ár, eða þangað til við
fluttum aftur til Reykjavíkur.
Svana Björg fékk mikla matarást
á Elsu og kom hún oft hlaupandi
inn og sagði „má ég borða hjá
Hannesi og Elsu, það er hvítur
fiskur hjá þeim“. Elsa fylgdist vel
með vettlingastöðunni á heimili
okkar og sendi ef vantaði eftir að
við vorum flutt. Það myndaðist
djúp og góð vinátta á milli okkar
og var mikill söknuður á báða
bóga þegar við fluttum til baka.
Elsku Hannes, innilegar sam-
úðarkveðjur til þín og fjölskyld-
unnar.
Hulda, Birgir, Anna
María og Svana Björg.
Elsa Lára
Svavarsdóttir
✝ Ragna Frið-riksdóttir
fæddist 13. janúar
1924 á Gamla-
Hrauni á Eyrar-
bakka. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Grund 6.
október 2019.
Foreldrar
hennar voru hjón-
in Friðrik Sig-
urðsson, útvegs-
bóndi á Gamla-Hrauni á
Eyrarbakka, f. 11.2. 1876 í
Hafliðakoti, Hraunshverfi, d.
204. 1953, og Sesselja Sól-
veig Ásmundsdóttir, hús-
freyja á Gamla-Hrauni, f.
18.02. 1887 í Eyvindartungu,
Laugardalshreppi, d. 3.9.
1944. Systkini Rögnu: Ingi-
björg Ásta, f. 1910, d. 1910,
Sigurður, f. 1912, d. 1981,
Jóhann, f. 1913, d. 1942,
Friðrik, f. 1915, d. 1977,
Davíð, f. 1917, d. 1973, Guð-
mundur Ragnar, f. 1918, d.
1920, Margrét, f. 1920, d.
2019, Guðmundur, f. 1922, d.
1998, Guðleif, f. 1925, d.
2019, Pétur, f. 1928, d. 2010.
Árið 1942 giftist Ragna
Ágústi Ingvarssyni, bifvéla-
virkja frá Eyrarbakka, f.
28.9. 1921, d. 28.11. 1990.
Foreldrar hans
voru Ingvar
Loftsson, skip-
stjóri frá Eyrar-
bakka, f. 29.2.
1892, d. 22.4.
1988 og kona
hans, Stefanía
Ingvarsdóttir frá
Eyrarbakka, f.
25.10. 1898, d.
16.2. 1923.
Synir Rögnu
og Ágústs eru: Jóhann,
Garðar, Ingvar og Loftur.
Jóhann var kvæntur Ingunni
Kristjánsdóttur og eiga þau
tvo syni. Fyrir átti Jóhann
eina dóttur. Barnabörn Jó-
hanns eru 5 og barna-
barnabörn 10. Jóhann lést
25.5. 2019. Garðar kvæntist
Ástu Guðrúnu Guðbrands-
dóttur og eiga þau tvö börn,
8 barnabörn og 2 barna-
barnabörn. Ásta lést 21.4.
2018. Ingvar er kvæntur
Ástríði Svövu Magnúsdóttur
og eiga þau þrjú börn og 9
barnabörn. Loftur er kvænt-
ur Unni Pétursdóttur og
eiga þau þrjú börn og þrjú
barnabörn.
Útför hennar fer fram frá
Digraneskirkju í dag, 14.
október 2019, klukkan 11.
Það er ákaflega sorglegt að
kveðja en á sama tíma er gott
að vita að þú sért komin á þann
stað sem þú hafðir lengi beðið
eftir að komast á. Þegar við
hugsum til baka þá koma upp
ótal góðar minningar. Stuttu
hléin í skólanum sem urðu að
tveggja tíma lögn á bláa sóf-
anum hjá þér, pólitísku samræð-
urnar sem við reyndum að setja
okkur inn í og ekki má gleyma
ættfræðinni sem þú þuldir
stanslaust upp og erfitt var að
fylgja.
Þú varst mikill matgæðingur
og var alltaf hægt að treyst á að
fá góðan mat þegar við komum
til þín. Lambahryggurinn sem
þú varst oft með á sunnudögum
er okkur ofarlega í huga og
brúnuðu karftöflurnar sem eng-
inn gat leikið eftir. Þrátt fyrir
háan aldur skipti umhverfið þig
alltaf máli, valdir lífrænt hráefni
framar öðru og flokkaðir rusl
fram á síðustu stundu. Það var
aðdáunarvert að fylgjast með
hvernig þú varst alltaf með putt-
ann á púlsinum og vissir upp á
hár hvað var nýjast í fréttum.
Það var skrítin tilfinning að
keyra fram hjá Sléttuveginum
og sjá þar flaggað í hálfa stöng
fyrir þig. Þú veltir því lengi fyr-
ir þér hvenær röðin kæmi að
þér en við vorum alltaf fljót að
breyta um umræðuefni.
Elsku amma, þú sem varst
alltaf svo fín og fáguð. Þú
kenndir okkur svo margt sem
við munum aldrei gleyma og
varst alltaf skýr og samkvæm
sjálfri þér. Við erum svo þakklát
að hafa fengið að eiga síðustu
stundirnar með þér og munum
ávallt muna þegar við kvödd-
umst öll saman í síðasta sinn.
„Við spáum í það ...“
Þín
Gústi, Guðbjörg
og Pétur Haukur.
Ragna
Friðriksdóttir
Sumarið er á
brott með lit sinn
og ljóma. Elsku
fallegi „litli“ bróðir minn Óli
Sævar er látinn eftir baráttu
við grimman og erfiðan sjúk-
dóm, langt fyrir aldur fram að-
eins 67 ára. Margs er að minn-
ast sem ekki verður rakið hér.
Þín verður sárt saknað, Óli
minn. Við færum Heiðu og
börnunum okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Minning um
góðan dreng lifir í hjörtum okk-
ar allra.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum,
lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Óli Sævar
Jóhannesson
✝ Óli Sævar Jó-hannesson
fæddist 6. desem-
ber 1951. Hann lést
20. september
2019.
Útför Óla fór
fram 30. september
2019.
Drottinn minn faðir
lífsins ljós
lát náð þína skína svo
blíða.
Minn styrkur þú ert
mín lífsins rós
tak burt minn myrka
kvíða.
Þú vekur hann með
sól að morgni.
Faðir minn láttu lífs-
ins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Þin systir,
Sigrún.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
ÁSTBJARTS SÆMUNDSSONAR,
Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Höfða,
Akranesi,
áður Álfhólsvegi 85, Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalar- og hjúkrunarheimilisins
Höfða.
Pétur Ástbjartsson Hrafnhildur Hjartardóttir
Ástríður Ástbjartsdóttir Jón Þór Hallsson
Bjarni Valur Ástbjartsson Nongnart Lue-U-Kosakul
Gylfi Ástbjartsson Hafdís Helga Ólafsdóttir
Hjalti Ástbjartsson Bryndís Emilsdóttir
barnabörn og langafabörn
Faðir okkar, afi og langafi,
ÞORVALDUR JÓSEFSSON,
Valdi í Sveinatungu,
Skúlagötu 14, Borgarnesi,
lést á Dvalarheimilinu Brákarhlíð
sunnudaginn 6. október.
Jarðsungið verður frá Borgarneskirkju miðvikudaginn 16.
október klukkan 14.
Þórdís Margrét Þorvaldsd. Blængur Alfreðsson
Jósef Valgarð Þorvaldsson Gunnþórunn Ingólfsdóttir
Guðlaug Örlaugsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, bróðir, tengdafaðir og
afi,
ÓLAFUR JÓHANNSSON
sjómaður,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans 9.
október. Útförin fer fram frá Digraneskirkju
16. október klukkan 11.
Hilmar Þór Ólafsson
Hrefna Líf Ólafsdóttir Sigurður Jóhannsson
Alexsandra Ólafsdóttir Jóna María Jóhannsdóttir
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinar