Morgunblaðið - 14.10.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2019
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
fyrir veturinn og
tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 - Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, nóg pláss og allir
velkomnir - Hreyfisalurinn opinn milli kl.9:30-11:30, líkamsræktartæki,
teygjur og lóð - Kraftur í KR, rútan fer frá Vesturgötu kl.10:10, Granda-
vegi 47 kl.10:15 og Aflagranda kl.10:20, frábær kennari, kostar ekkert
og allir velkomnir - Félagsvist kl.13:00 - Útskurður kl.13:00 opið
námskeið með leiðbeinanda - Kaffi kl.14:30-15:20 -
Boðinn Boccia kl. 10:30. Gönguhópur kl. 10:30. Bingó kl. 13:00.
Myndlist kl. 13:00. Vatnsleikfimi kl. 14:30. Spjallhópur kl. 15:00.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaaffi,spjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8:50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-12. Ganga kl. 10.
Byrjendanámskeið í Línudansi kl. 10. Hádegismatur kl. 11:30. Myndlis-
tarnámskeið kl. 12:30. Handavinnuhornið kl. 13. Foreldrastund kl. 13.
Félagsvist kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14:30. Komdu að púsla með okkur í
Borðstofunni. Allir velkomnir óháð aldri.
Nánari upplýsingar í síma 411-2790
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8:30. Hjúkrunarfræðingur
kl. 10. Núvitund kl. 10:30. Silkimálun kl. 12:30. Göngutúr um hverfið
kl. 13:00. Handaband kl. 13. Bridge kl. 13:00. Skák kl. 14:00.
Handavinnuhópur hittist kl. 15:30. Bókabíllinn á svæðinu kl. 13:10-
13:30. Á morgun kl. 15:00 verður Lilja Sigurðardóttir rithöfundur með
upplestur og bókaspjall á Vitatorgi. Verið öll hjartanlega velkomin.
Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bridge í Jónshúsi
kl. 13:00. Vatnsleikf. Sjál kl.7:10/7:50/15:15. Kvennaleikf Sjál. kl. 9:30.
Kvennaleikf Ásg. kl.11:00. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11:00. Zumba salur
Ísafold. kl. 16:15
Gerðuberg Opin Handavinnustofan kl 08:30-16:00. Útskurður
m/leiðb. kl. 09:00-16:00. Qigong 10:00-11:00 Leikfimi Helgu Ben
11:00-11:30. Kóræfing kl. 13:00-15:00. Allir velkomnir.
Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9.30 Postulínsmálun, kl. 10.50
Jóga, kl. 13.15 Canasta-spil, kl. 16.30 Kóræfing Söngvina, kl. 19.00
Skapandi skrif.
Gullsmára Postulínshópur kl.9.00. Jóga kl. 9.30 og 17.00. Handav-
inna og Bridge kl.13.00, Félagsvist kl. 20. Þriðjudagur:
Myndlistarhópur kl.9.00 Boccia kl. 9.30. Málm-og silfursmíði. Canasta.
Trésmíði kl 13.00. Leshópur kl. 20.00 fyrsta þriðjudag hvers mánaðar.
Miðvikudagur: Myndlist kl 9.30. Postulínsmálun. Kvennabridge.
Silfursmíði kl. 13.00. Línudans fyrir lengra komna kl 16.00
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin Handavinna kl. 9 - 12:30. Jóga kl. 10:00-11:00. Sögustund
kl.12:30-14:00. Olíumálun kl. 14:00-18:00 (án leiðbeinanda)
Hraunsel Ganga alla daga í Kaplakrika kl 8.00-12.00, Myndmennt kl
9.00, Ganga í Haukahúsi kl.10.00, Gaflarakórinn kl 11.00
Félagsvist kl 13.00
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 9, ganga kl 10 frá Grafarvogskir-
kju og Borgum, dans í Borgum kl. 11 í dag allir velkomnir í dans-
gleðina. Prjónað til góðs og gefið til líknarmála í listasmiðju Korpúlfa í
Borgum kl 13 í dag og félagsvist kl. 13:00 í Borgum. Tréútskurður í
umsjón Gylfa kl 13 í dag á Korpúlfsstöðum og kóræfing Korpu-
systkina kl. 16:00 í Borgum, fleiri hjartanlega velkomnir í hópinn.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, morgunleikfimi kl.9.45, opin
listasmiðja kl. 9-16, upplestur kl.11, trésmiðja kl.13-16,
Gönguhópurinn kl.13.30, bíó í betri stofunni kl.15.30.Uppl í s.4112760.
Seltjarnarnes Gler neðri hæð Félagsheimilisins kl,. 9.00 og 13.00.
Leir Skólabraut kl. 9.00. Billjard Sekinu kl. 10.00. Krossgátur og kaffi í
króknum kl. 10.30. Jóga með Öldu í salnum á Skólabraut kl. 11.00.
Handavinna Skólabraut kl. 13.00. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl.
18.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á
könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er
frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er
félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30
– 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Stangarhylur 4, ZUMBA Gold byrjendur kl. 9.20 -ZUMBA Gold
framhald kl. 10.30 -STERK OG LIÐUG leikfimi fyrir dömur og herra kl.
11.30 umsjón Tanya. Enska kl. 13.00 -leiðbeinandi Margrét Sölvadóttir.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
✝ SvanfríðurClausen fædd-
ist í Reykjavík 16.
júní 1964. Hún lést
á kvenlækn-
ingadeild 21A,
Landspítalanum
við Hringbraut, 7.
október 2019. For-
eldrar hennar voru
Axel Clausen verzl-
unarmaður, f.
25.11. 1930, d. 10.7.
1998 og Halldóra Svava Clau-
sen, f. 11.5. 1930, d.31.7. 2007.
Systkini Svanfríðar eru Axel,
Kristrún Þóra, Svava Viktoría
og Jenni Guðjón. Uppeldissystir
Svanfríðar er Halldóra.
Sonur Svanfríðar er Axel
Ingi Kristinsson, f. 24.8. 1994,
sambýliskona hans er Álfheiður
María Ívarsdóttir, f. 12.5. 1995.
Svanfríður ólst upp í
Hraunbæ í Árbæjarhverfi og
gekk í Árbæjarskóla þar sem
hún lauk grunnskólaprófi. Hún
flutti með foreldrum sínum í
Seljahverfi í Breiðholti og
stundaði nám við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti þar sem
hún útskrifaðist
sem stúdent af
tungumálabraut
1986. Svanfríður
flutti árið 1997
með syni sínum Ax-
el Inga í Stranda-
sel 7, árið 2003
fluttu þau í Tungu-
sel 10 og bjó hún
þar til æviloka.
Svanfríður starf-
aði hjá Símanum
sem fulltrúi í skráningum hjá
símaskrá frá 1999 til 2008. Hún
hóf síðan störf hjá SP-
Fjármögnun árið 2008 þar sem
hún starfaði til 2012 þegar
fyrirtækið sameinaðist Lands-
bankanum og starfaði hún í
bankanum sem þjónustufulltrúi
og fjármálaráðgjafi í þjón-
ustuveri. Árið 2015 lauk hún
námi sem vottaður fjármála-
ráðgjafi við Háskólann í
Reykjavík sem nýttist henni í
starfi sínu.
Svanfríður verður jarðsungin
frá Seljakirkju í dag, 14. októ-
ber 2019, og hefst athöfnin
klukkan 13.
Mamma mín þú varst mér allt-
af svo góð og traust. Þú gafst
mér allan heiminn og rúmlega
það, ég hefði ekki getað beðið um
betri mömmu. Fyrir þig er ég
óendanlega þakklátur og þann
tíma sem við fengum saman þó
að hann hafi verið allt of stuttur.
Ég mun sakna þín svo sárt en
það er mér þó huggun að þú fáir
núna að hvíla þig í friði eftir
hetjulega baráttu við illvígt
krabbamein þar sem þú barðist
áfram til síðasta dags.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þinn sonur,
Axel Ingi.
Elsku systir, mágkona og
frænka.
Í dag kveðjum við þig með ást,
söknuði og trega, en þú varðst að
láta undan þessum illvíga sjúk-
dómi sem greip þig heljartökum.
Hin ótrúlega barátta þín og
æðruleysi var okkur öllum
hvatning og von um betri daga
og bjarta framtíð.
En það er ekki okkar að
ákveða.
Við horfumst í augu við örlög
okkar með þeirri trú að yfir okk-
ur sé vakað og allt hafi tilgang.
Elsku Axel Ingi og Heiða,
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur, megi framtíð ykkar og
ófædda barnsins ykkar vara
kærleiksrík og björt.
Hvers vegna er leiknum lokið
Ég leita og finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði )
Axel, Kristbjörg og Karen.
Elsku Dandý systir.
Mikið sakna ég þín og mikið
þykir mér ósanngjarnt að þú
sért farin frá okkur ástvinum
þínum, þú sem varst á besta
aldri til að njóta lífsins með þín-
um yndislega einkasyni Axel og
Heiðu sem eiga von á barni fljót-
lega.
En mig langar bara að þakka
fyrir að fá að hafa átt þig sem
systur því að þú varst mjög
vönduð og yndisleg manneskja
sem var tillitssöm, góðhjörtuð
og hlý og allir sem þekktu þig
elskuðu þig. Blessuð sé minning
þín elsku systir.
Þinn bróðir,
Jenni Guðjón Clausen.
Ég á ennþá erfitt með að trúa
því að elsku besta Dandý mín sé
farin frá okkur. Við áttum ein-
staklega náið samband allt frá
því að ég fæddist og hefur hún
fylgt mér í gegnum lífið og alltaf
verið til staðar. Við eyddum nán-
ast öllum jólum saman, páskum,
afmælum ...Ég á mjög erfitt
með að hugsa mér allt þetta án
hennar. Eftir situr stórt tóma-
rúm sem mun svíða lengi en ég
ætla að gera mitt besta til þess
að fylla það með hlýlegum hugs-
unum til hennar og öllum fallegu
minningunum okkar.
Ég held að allir sem þekktu
Dandý séu sammála því að hún
var alveg einstaklega góð mann-
eskja. Sterk og ákveðin, skipu-
lögð og snyrtileg, full af gæsku
og góðmennsku. Hún var líka
einstök móðir en sambandið á
milli hennar og elsku Adda var
einstakt enda var ekkert í heim-
inum sem hún elskaði meira en
strákinn sinn. Missirinn er mik-
ill og sorgin er ólýsanleg.
Ég er svo óendanlega þakklát
að hafa fengið að vera með henni
síðustu dagana. Dandý var al-
gjör nagli og hún sýndi enn einu
sinni hversu ótrúlega miklum
styrk hún bjó yfir þessa síðustu
daga. Þetta var það erfiðasta
sem ég hef gert en á sama tíma
alveg ómetanlegt.
Ég gleðst yfir því að hún hef-
ur nú fengið hvíld.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
(Höf. ók.)
Elsku Dandý. Takk fyrir að
vera þú. Takk fyrir að elska mig
eins og þú gerðir. Takk fyrir
allt. Ég elska þig. Hef alltaf gert
og mun alltaf gera.
Þín Birta.
Elsku Dandý frænka, við
elskum þig svo mikið og söknum
þín. Þú varst best.
Adam Ingi og Jóhann Axel.
Alveg frá því við fæddumst
hefur elsku Dandý frænka verið
hluti af lífi okkar allra. Svo hlý,
góð, yndisleg og alltaf stutt í
brosið. Það fór ekki mikið fyrir
Dandý en hún var með einstak-
lega góða og hlýja nærveru og
alltaf gaman að spjalla við hana
um lífið og tilveruna.
Dandý var yngsta systir
mömmu okkar og var alltaf mik-
ið tengd heimilinu okkar enda
voru þær mamma mjög nánar
og mikið saman. Þegar við vor-
um lítil hittum við Dandý
frænku alltaf hjá ömmu og afa
og eftir að við urðum eldri var
hún alltaf hluti af fjölskyldunni
okkar og fagnaði öllum tíma-
mótum með okkur. Fylgdi okk-
ur á stórum stundum í lífi okkar
og barnanna okkar. Fyrir það
erum við þakklát.
Dandý var einstaklega góð
mamma, Addi litli var auga-
steinninn hennar frá fyrstu
stundu og hún var svo stolt af
honum. Samband þeirra mæðg-
ina var afskaplega náið og fal-
legt.
Það er ósanngjarnt að þurfa
að kveðja einhvern á besta aldri.
Lífið er ekki alltaf sanngjarnt
en við, líkt og allir þeir sem
þekktu Dandý, yljum okkur við
allar góðu minningarnar sem
hún skilur eftir sig. Dandý var
nefnilega þannig gerð að allir
sem hana þekktu hugsa til
hennar hlýlega með þakklæti í
hjarta því hún var góð í gegn.
Takk fyrir samfylgdina, elsku
frænka.
Elsku Addi okkar og Heiða,
megi allur heimsins kærleikur
umvefja ykkur í sorginni.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir
(Hannes Pétursson)
Alfreð, Gunnar Axel,
Gestur og Viktoría.
Elsku hjartans Dandý mín,
það er svo óraunverulegt að þú
sért farin frá okkur, ég á svo
erfitt með að sjá fyrir mér fram-
tíðina án þín, við höfum alltaf
verið svo nánar. Síðan við
kvöddumst í hinsta sinn á Land-
spítalanum eru dagarnir búnir
að vera erfiðir og sorgin mikil.
Það streyma fram hlýjar og
góðar minningar um allt sem við
höfum brallað saman í gegnum
tíðina, ég var svo heppin að fá að
alast upp með þér hjá ömmu og
afa og hefði ekki viljað hafa það
neitt öðruvísi og er óendanlega
þakklát fyrir þig, þú varst mér
bæði systir og besta vinkona,
við höfum grátið saman á erf-
iðum stundum og glaðst á sam-
an á góðum stundum. Þú hefur
alltaf staðið sem klettur við hlið
mér og dætrum mínum og fyrir
það er ég óendanlega þakklát.
Þú skilur eftir þig yndislegan
son sem syrgir þig sárt og miss-
ir hans er mikill. Hann er hepp-
inn með Heiðu sína sem stendur
þétt við hlið hans á þessum erf-
iðu tímum. Ég mun gera mitt
besta til að vera til staðar fyrir
þau og fjölskyldu þeirra og
halda minningunni um þig lif-
andi.
Þú barðist hetjulega við
þennan erfiða sjúkdóm fram á
síðustu stundu og gafst aldrei
upp, þú kvartaðir aldrei og tókst
á við sjúkdóminn með einstöku
æðruleysi sem er fáum gefið.
Elsku Dandý mín, ég mun
sakna þín svo óendanlega sárt
en hugga mig við að þú hefur nú
fengið frið og frelsi frá þessum
illvíga sjúkdómi og því sem hon-
um fylgdi. Takk fyrir allt sem
þú varst mér og gafst mér. Ég
elska þig.
Þín
Halldóra (Doris).
Kær samstarfskona okkar,
Svanfríður Clausen, er fallin
frá, fyrir aldur fram. Við minn-
umst hennar með mikilli hlýju.
Svanfríður var mikill dugn-
aðarforkur með hlýlegt viðmót,
lítið eitt hlédræg og lét verkin
tala. Brosið og húmorinn var
aldrei langt undan og alltaf var
hún tilbúin að taka þátt í þeim
verkefnum og viðburðum sem
til féllu.
Hún var fróðleiksfús og
ávallt tilbúin að deila með sér
nýrri vitneskju eða nýjungum
sem komu sér vel fyrir heildina.
Hennar þægilega nærvera og
hlýja viðmót gerði það að verk-
um að það var gott að leita til
hennar eftir aðstoð og enginn
byrjandi á vinnustaðnum var
svikinn af handleiðslu hennar.
Gott dæmi um dugnað og
þrautseigju Svanfríðar er þegar
hún, fyrir nokkrum árum, klár-
aði krefjandi nám samhliða
veikindum. Þetta voru verkefni
sem hún ætlaði sér að klára,
sem og hún gerði.
Gaman er að minnast matar-
og kaffitíma þegar mikið var
spjallað og hlegið, þar var Svan-
fríður öflug með heklunálina
svo úr urðu listaverkin eftir
hana eins og á færibandi.
Stoltið í lífi Svanfríðar var
Axel sonur hennar, og hafði hún
gaman af því að deila með okk-
ur ýmsum gleðistundum í lífi
þeirra.
Axel og öðrum fjölskyldu-
meðlimum Svanfríðar vottum
við okkar innilegustu samúð á
þessum erfiðu tímum.
Minning um yndislega konu
og samstarfsfélaga mun ávallt
lifa með okkur.
Fyrir hönd starfsfólks þjón-
ustuvers Landsbankans,
Guðrún Magnúsdóttir.
Það haustaði snögglega þetta
árið þegar við samstarfsfélagar
Svanfríðar Clausen fengum
fregnir af því að hún hefði látist
eftir stutt en erfið veikindi.
Sorgin hvílir þungt á okkur
þegar við hugsum til okkar
góðu samstarfskonu.
Það var við sameiningu SP
Fjármögnunar haustið 2011
sem Svanfríður hóf störf í
Landsbankanum og fylgdi eftir
krefjandi verkefnum tengdum
bílafjármögnun. Hún hóf störf í
þjónustuveri bankans skömmu
síðar. Þar komu styrkleikar
hennar strax í ljós þegar hún
leiðbeindi og aðstoðaði sam-
starfsfólk sitt af mikilli alúð
þegar stór verkefni voru færð
inn í deildina. Hún bjó yfir mik-
illi sérfræðikunnáttu og var
einkar lagin við að koma henni
áfram til okkar hinna. Það var
sama af hvaða toga fyrirspurn-
irnar voru, hún gaf öllum tíma
sinn og sinnti krefjandi verk-
efnum af alúð og þolinmæði.
Svanfríður lauk námi í vottun
fjármálaráðgjafa árið 2015 og
hóf í kjölfarið störf í útibúunum
í Vesturbæ og Borgartúni. Þar
sýndi hún hversu góð hún var
að takast á við nýjar áskoranir
og tileinka sér nýja þekkingu
um leið og hún gat miðlað af
viskubrunni sínum, bæði til við-
skiptavina og ekki síður sam-
starfsfélaganna. Leið Svanfríð-
ar lá að lokum aftur í
þjónustuverið sumarið 2017 þar
sem hún starfaði þegar hún
veiktist alvarlega.
Það er mikill missir að Svan-
fríði. Hún var frábær sam-
starfsfélagi, góð vinkona og
forkur til vinnu. Hún hafði ein-
lægan áhuga á því að læra nýja
hluti, setja sig í spor viðskipta-
vina og umfram allt að taka þátt
þeim miklu breytingum sem
orðið hafa í bankastarfsemi
undanfarin ár. Þar kom jafnað-
argeð og dugnaður hennar
hennar sér vel, sérstaklega þeg-
ar gustaði um.
Syni Svanfríðar, Axel, öðrum
ástvinum og aðstandendum
sendi ég mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Kristín Rut Einarsdóttir,
forstöðumaður þjónustu-
vers Landsbankans.
Svanfríður Clausen