Morgunblaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 8. O K T Ó B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  245. tölublað  107. árgangur  ÁHORFENDUR GETI BÆÐI HLEG- IÐ OG GRÁTIÐ ÆSIR Á VILLIGÖTUM HÖNNUN RUTAR KÁRA ELDIST VEL GOÐHEIMAR 37 FASTEIGNIR 24 SÍÐURSTÓRSKÁLDIÐ FRUMSÝNT 36 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is HS Orka hefur náð að minnka þörf sína á kaupum á toppafli á álagstím- um við dýru verði og gert sölu fyrir- tækisins sjálfbærari með því að kaupa raforku af smávirkjunum. Hefur fyrirtækið á örfáum árum safnað í kringum sig 13 smávirkjun- um af ýmsum stærðum um allt land og þrjár virkjanir til viðbótar bætast í hópinn á næsta ári. Þær 13 smávirkjanir sem HS Orka er í viðskiptum við eru með tæplega 24 megavött í uppsettu afli og framleiða um 147 gígavattstundir á ári. Að auki eru þrjár virkjanir í byggingu sem teknar verða í notkun nú í janúar og síðar á því ári. Þá verður uppsett afl smávirkjana sem fyrirtækið er í viðskiptum við 42 MW og framleiðslan 247 GWst á ári. Þetta er svipuð framleiðsla og 4. stærsti orkuframleiðandi landsins er með og meira uppsett afl. Kom þetta fram í erindi Friðriks Friðrikssonar, framkvæmdastjóra framleiðslu og sölu hjá HS Orku, á fundi sem Orkustofnun hélt í gær um uppbyggingu smávirkjana á Íslandi. Fram kom í máli Friðriks að sam- skiptin við eigendur og rekstraraðila smávirkjana hefðu gengið afar vel enda reynt að haga samningum og rekstri þannig að allir hafi hag af samstarfinu. Gerðir eru orkusamn- ingar til 7 til 15 ára sem eigendur geta farið með í banka til að fá fjár- mögnun fyrir framkvæmdirnar. Áhugi um allt land Aukinn áhugi er hjá orkufyrir- tækjum og landeigendum að byggja upp smávirkjanir og er fjöldi verk- efna í þróun um allt land. Endur- speglast það í miklum áhuga á fundi Orkustofnunar. Fram kom í máli Rein Husebø, fulltrúa samtaka smávirkjana í Nor- egi, að hluti árlegrar ráðstefnu sam- takanna sem haldin verður í Stav- angri á næsta ári verður helgaður þróun smávirkjana á Íslandi. »4 HS Orka fær umtalsverða orku frá smávirkjunum  Verður komin í samstarf við 16 smávirkjanir á næsta ári Morgunblaðið/Golli Kostur Verið er að mæla rennsli og rannsaka virkjanakosti um allt land. Úlfarsfell er mjög vinsælt fjall á höfuðborgarsvæðinu. Þar er hægt að velja um ýmsar gönguleiðir sem liggja upp á fellið. Af fellinu er mjög gott útsýni yfir höfuðborgarsvæðið. Gangan á Úlfarsfell tekur um eina og hálfa klukkustund fyrir fólk í þokkalegu formi og vel þjálfaðir eru enn fljótari en það. Hæsti tindurinn, Stórihnúkur, er á austanverðu fjallinu og er hann 295 metra hár. Sumar leiðirnar liggja um skógi vaxin svæði eins og svæðið við Hamrahlíð þar sem Skógræktarfélag Mosfellsbæjar hefur ræktað skóg. Morgunblaðið/Eggert Úlfarsfell er kjörið til útivistar „Við höfum farið mjög vandlega yfir þetta mál og eigum ekki endilega von á að það verði mikil skammtíma- áhrif af því ef Ísland lendir á gráum lista FAFT,“ sagði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Hann segir að Seðlabankinn hafi farið yfir viðbún- aðaráætlanir sínar til að vera viðbú- inn komi til þess að Ísland lendi á listanum og það valdi einhverjum skammtímaáhrifum. Borgun og Valitor hafa hvort í sínu lagi látið helstu samstarfsaðila sína erlendis vita að mögulega lendi Ísland á gráum lista FAFT. „Við höfum verið í sambandi við helstu erlenda samstarfsaðila okkar, kortasamtök og banka, og höfum út- skýrt stöðuna. Við trúum því að þessir aðilar muni taka á málunum af skynsemi,“ sagði Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitors. Hann segir að ís- lensku fjármálafyrirtækin hafi unnið ötullega að því árum saman að byggja upp varnir gegn peninga- þvætti. „Það skiptir kortafyrirtækin miklu máli að hafa þessa hluti í góðu lagi,“ sagði Viðar. „Til skemmri tíma litið vonum við að þetta hafi lítil sem engin áhrif,“ sagði Sæmundur Sæmundsson, for- stjóri Borgunar. Hann segir að þau hafi getað sagt viðskiptabönkum sín- um að þau atriði sem út af standi hér hafi ekkert með íslenska fjármála- kerfið að gera, hvorki banka, færslu- hirða, kortaútgefendur né kerfin sjálf. Sæmundur segir að það verði slæmt fyrir orðspor Íslands lendi það á gráa listanum. „Ég hef mestar áhyggjur af nýjum og minni aðilum sem þurfa að koma sér upp banka- samskiptum erlendis. Til „skemmri tíma“ er þetta kannski minna mál fyrir okkur sem höfum átt áratuga samskipti við erlenda banka.“ »8 Skammtímaáhrif talin ólíkleg  Óvissa um áhrif af veru á gráum lista

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.