Morgunblaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bann sem lagt var við notkun stangaméla með tunguboga í keppni hér á landi hefur borið góðan árang- ur. Alvarlegum þrýstingsáverkum á kjálkabeini hesta hefur fækkað mjög. Hins vegar hefur tíðni vægra þrýstingsáverka aukist aftur, eftir að allir áverkar minnkuðu mjög eftir bannið. Þess vegna er heildartíðni þrýstingsáverka ennþá mikil. „Bannið við notkun stangaméla með tunguboga virkar mjög vel, eig- inlega betur en lesa má úr súlurit- inu. Allra alvarlegustu áverkarnir, mikil beinhimnubólga og sár á kjálkabeini, eru horfnir. Engu hrossi hefur verið vísað úr gæðingakeppni eða tölti af þessum ástæðum frá því bannið var sett,“ segir Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossa- sjúkdóma. Árveknin hefur minnkað Bann við tungubogamélunum var sett á í kjölfar þess að Sigríður birti niðurstöður rannsóknar frá lands- móti 2012. Þá hafði yfir helmingur hesta í úrslitum einstakra greina al- varlega áverka á kjálkabeini þar sem notkun stangaméla með tungu- boga reyndist afgerandi áhættuþátt- ur. Greinilegt er að bannið hefur haft áhrif og hestamenn einnig vandað sig sérstaklega því allir áverkar í munni minnkuðu stórlega á lands- mótinu 2014. Síðan hefur tíðni væg- ari áverka aftur aukist. Sigríður seg- ist ekki hafa aðra skýringu en þá að knapar hafi skipt yfir í hringamél og séu ekki eins mikið á tánum við reið- mennskuna. Sigríður segir að þessir áverkar séu ekki bráðadýravelferðarmál, eins og hinir alvarlegu áverkar. Ekki sé ástæða til að hætta mótshaldi. Hún segist hafa birt samantekt sína nú til þess að vekja umræðu um þetta mál meðal hestamanna, helst án upphrópana, og hvetja hesta- menn og mótshaldara til að nýta sér upplýsingarnar til að gera keppn- isgreinar hestvænni. Hún segist engar töfralausnir hafa í því efni en huga mætti að því að draga niður einkunnir fyrir reiðmennsku. Aftur tekur hún fram að það sé ekki auð- velt fyrir dómara að sjá hvenær of langt er gengið. Alþjóðasamband um íslenska hestinn bannar ekki stangamél með tunguboga í keppnum hjá sér og virðast þessir alvarlegu áverkar ekki vera skráðir á Heimsleikum íslenska hestsins. Segist Sigríður vita til þess að áverkar á kjálkabeini verði þar, eins og var hér, enda geti hesturinn ekki notað tunguna til að lyfta mél- unum frá kjálkabeini. Hins vegar sé auðvelt að líta fram hjá þessum áverkum því leita þurfi sérstaklega eftir þeim og á réttum tíma. Bann við tilteknum beislisbúnaði virkar  Alvarlegustu áverkarnir horfnir en þeim vægari fjölgar Morgunblaðið/Eggert Rangárbakkar Hestamenn virðast hafa vandað reiðmennskuna sérstaklega á landsmótinu 2014. Þá snardró úr öllum áverkum í munni keppnishrossa. Þróun áverka í munni keppnishesta 2012-2018 Tíðni áverka eftir bann við notkun stangaméla með tunguboga* M yn d : C o lo u rb ox Hlutfallsleg tíðni áverka (%) 2012 2014 2016 2018 Alvarlegir þrýstingsáverkar á kjálkabeini 15 4 1 4 Vægir þrýstingsáverkar, oft- ast í munvikum og kinnum 45 28 40 48 Tíðni áverka alls (%) 60 32 41 52 *Á Landsmóti hesta- manna (gæðingakeppni og tölt) 2012-2018. Heimild: mast.is 60% 40% 20% 0% 2012 2014 2016 2018 Alvarlegir áverkar Vægir áverkar Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug átta ferðir á miðvikudag með rusl úr friðlandinu í Búðahrauni og úr Beru- vík í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli frá strandlengju og upp á veg. Alls flutti þyrlan um tvö tonn af rusli í þessum ferðum. Um er að ræða fjörurusl sem hef- ur verið safnað saman og mun þjóð- garðurinn láta flytja ruslið í endur- vinnslu í Ólafsvík. Verkefnið gekk vel að sögn þjóðgarðsvarðar, Jóns Björnssonar. Fram kemur á vef Umhverfis- stofnunar að frumkvæði að hreins- uninni kemur frá Sigurði Vigfússyni sem býr á Bjarnarfossi, skammt frá friðlandinu í Búðahrauni. Meginkostur þess að nota þyrlu til sorphreinsunar við verkefni eins og þessi er að umrædd svæði eru erfið yfirferðar og víða óaðgengileg. Haft er eftir Jóni þjóðgarðsverði að áfram verði unnið að því að hreinsa rusl úr fjörum þjóðgarðsins og nálægra friðlanda. Þyrlan flutti tvö tonn af rusli á brott  Nýtist við svæði sem eru erfið yfirferðar Morgunblaðið/Árni Sæberg Gæslan Þyrla Gæslunnar kom að góðum notum við flutning á rusli. Kiwanishreyfingin fagnaði því á um- dæmisþingi í Hafnarfirði nýverið að búið er að taka á móti nærri 65 þús- und reiðhjólahjálmum frá Eimskip á undanförnum 15 árum. Af því tilefni tóku fulltrúar Eimskips á móti þakk- argjöf frá Kiwanis, þar sem búið var að festa hjálm við áletraðan stein úr stuðlabergi frá Hofsósi. Aðalsteinn Maríusson, múrara- meistari og steinsmiður, hannaði steininn og Þröstur Magnússon hjá fyrirtækinu Myndun á Sauðárkróki sá um áletrunina. Er steinninn var unninn höfðu 60 þúsund hjálmar verið gefnir en sú tala hækkaði svo í nærri 65 þúsund síðastliðið vor. Eitt aðalverkefni Kiwanishreyf- ingarinnar á Íslandi hefur verið að gefa öryggishjálma á börn er byrja í fyrsta bekk grunnskóla ár hvert. Verkefnið byrjaði á Akureyri árið 1991 er Kiwanisklúbburinn Kald- bakur fór að gefa börnum á Akur- eyri hjálma. Ári síðar tóku Kiwanis- klúbburinn Drangey á Sauðárkróki og Ós á Höfn að gera slíkt hið sama. Fleiri klúbbar fóru síðan að gefa hjálma en það var árið 2004 að þetta var gert að landsverkefni Kiwanis- hreyfingarinnar og þá var gengið til samstarfs við Eimskipafélag Íslands um að styrkja verkefnið með hjálmagjöfum. „Samningur sá var mikið heilla- spor og stendur enn og á Eimskipa- félagið miklar þakkir skildar fyrir þann hug og elju er þau leggja í að bæta öryggi barna í leik og starfi,“ segir Ólafur Jónsson, formaður hjálmanefndar Kiwanis. Hreyfingin hefur um árabil til- einkað sér kjörorðið „Hjálpum börn- um heimsins“ og hefur Kiwanis á Ís- landi einsett sér að vinna eftir því kjörorði, að sögn Ólafs. Ljósmyndir/Kiwanis Kiwanis Sæunn Sunna Samúelsdóttir frá Eimskip, Ólafur Jónsson, formað- ur hjálmanefndar Kiwanis, Guðmundur Viðarsson, starfsmannastjóri Vöru- hótels Eimskips, og Eyþór Kr. Einarsson, umdæmisstjóri Kiwanis. 65 þúsund hjálmar gefnir á 15 árum Þakkargjöf Stuðlabergssteinn frá Hofsósi með hjálmi frá fyrstu árum samstarfs Kiwanis og Eimskips.  Eimskip fékk þakklætisvott frá Kiwanismönnum Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16 ÍTÖLSK HÖNNUN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.