Morgunblaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 10
SVIÐSLJÓS Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Á þessum fundi munum við fjalla um helstu áskoranir til framtíðar, lofts- lagsmálin og hvernig hægt sé að nýta þekkingu, hugvit og nýsköpun í þágu þeirra,“ segir Logi Einarsson, for- maður Samfylkingarinnar, í samtali við Morgunblaðið. Vísar hann í máli sínu til þess að nk. laugardag verður flokksstjórnar- fundur Samfylkingarinnar haldinn í Austurbæ í Reykjavík. Fundurinn er opinn öllum flokksfélögum og stuðn- ingsmönnum, en Logi hvetur jafn- framt alla þá sem áhuga hafa á lofts- lagsmálum til að sækja fundinn. Að lokinni setningu mun Anette L. Bickford, kanadískur sérfræðingur í loftslagsréttlæti, ræða nýjar hug- myndir í hnattrænu samhengi. Í máli sínu mun hún m.a. koma inn á hvern- ig hægt sé að ráðast í aðgerðir á sviði loftslagsmála sem tryggja jöfnuð. „Hún mun fjalla um þau atriði sem horfa þarf til og hvernig hægt sé að ráðast í aðgerðir sem tryggja munu jöfnuð. Þetta atriði skiptir gríðarlega miklu máli, en aðgerðir mega alls ekki bitna á veikustu hópunum,“ seg- ir Logi og bætir við að kjörnir fulltrú- ar sveitarstjórna muni einnig sækja fundinn og flytja þar ávörp. „Eins og menn vita skipta sveitar- félög miklu máli þegar kemur að framkvæmd aðgerða. Og það vill nú svo vel til að Samfylkingin er sérstak- lega sterk í stóru sveitarfélögunum og í raun sveitarfélögum víða um land. Við munum því gefa þessum fulltrúum mikið pláss,“ segir hann, en þess má geta að Dagur B. Eggerts- son borgarstjóri mun taka þátt í pall- borði um aðgerðir í umhverfismálum á fundinum. Umbótaöflin sameinist Þótt umhverfis- og loftslagsmál verði áberandi á flokksstjórnarfund- inum segir Logi stöðu stjórnmála einnig verða til umræðu. „Ég verð með greiningu á stöðu stjórnmála á Íslandi eins og hún blas- ir við mér. Mun ég þá meðal annars ræða nauðsyn þess að umbótaöflin myndi ríkisstjórn eftir næstu kosn- ingar. Það má vafalaust búast við ein- hverri umræðu í tengslum við það,“ segir hann, en líftími núverandi ríkis- stjórnar Íslands er nú hálfnaður. Spurður hvort loftslagsmál komi til með að fléttast inn í alla anga stjórn- mála svarar Logi: „Það má e.t.v. líkja þeim við jafnréttismál í þeim skilningi að nú erum við farin að vinna kynjaða fjárlagagerð – það sama gildir um loftslagsmálin. Afleiðingar alls sem við gerum munu endurspeglast í „sót- spori“. Við leggjum þó áherslu á að ekki verði gripið til „panikaðgerða“. Við þurfum að draga rækilega úr los- un en líka horfa á hvaða möguleika við höfum með nýrri þekkingu og tækni til að byggja betri framtíð.“ Morgunblaðið/Hari Loftslagsmál Fulltrúar sveitarstjórna og sérfræðingar eru á meðal þeirra sem ávarpa munu gesti fundarins. Áskoranir framtíðar og lofts- lagsmál á fundi Samfylkingar  Logi Einarsson segir nauðsynlegt að umbótaöflin myndi næstu ríkisstjórn 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019 Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, segist nú þegar finna fyr- ir „miklum áhuga“ á komandi flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar. Þá segir hann mikilvægt að hugsa stórt og þora að koma með róttæk- ar hugmyndir í þágu umhverfismála og náttúruverndar. „Við sjáum tækifæri. En til þess þarf að tefla fram djörfum og hug- vitssamlegum lausnum í stað þess að leggjast í vörn. Þá er einnig mikilvægt að tileinka sér ekki kyrrstöðu, eins og mér finnst einkenna núverandi ríkissjórn,“ segir Logi og vísar þar til ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri-grænna, sem mynduð er af Vinstri- grænum, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki. Mælist stjórnin með tæplega 51% fylgi. Spurður hvort hann telji almenning hafa mikinn áhuga á umhverfis- málum kveður Logi já við. „Áhuginn er alltumlykjandi, en hann tengist líka öllu sem við gerum. Unga fólkið hefur áhyggjur af framtíðinni og þeir sem eldri eru hafa áhyggjur af sínum afkomendum.“ Djarfar hugmyndir mikilvægar ÁHUGI Á LOFTSLAGSMÁLUM SAGÐUR ALLTUMLYKJANDI Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík- isráðherra setti í gær afmælishátíð í tilefni af því að 20 ár eru liðin frá formlegri opnun norrænu sendi- ráðsbygginganna í Berlín. Allir utanríkisráðherrar Norður- landa sóttu hátíðardagskrá og þar sem Ísland fer nú með formennsku í norrænu samstarfi kom það í hlut Guðlaugs Þórs að setja hana. Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýska- lands, afhenti við þetta tækifæri gjöf þýskra stjórnvalda til Norður- landanna, fuglakirsuberjatré sem var gróðursett á lóð sendiráðanna vestan við koparband sendiráðs- bygginganna. Á fundi utanríkisráðherra Norð- urlanda og aðstoðarutanríkis- ráðherra Þýskalands bar hæst hernað Tyrklands í Sýrlandi og ör- yggis- og varnarsamstarf Evrópu og Bandaríkjanna. Að fundi sínum loknum efndu ráðherrarnir til stutts fréttamannafundar. Í dag verður efnt til málþings í norræna sendiráðinu um „bláa hag- kerfið“ svonefnda. 20 ár frá opnun nor- ræna sendiráðshússins Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið Berlín Utanríkisráðherra Þýskalands, Heiko Maas, lengst til hægri, afhenti norrænum starfsfélögum sínum kirsuberjatré að gjöf við sendiráðið. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Knoll International Barcelona Hönnun: Ludwig Mies van der Rohe, Lilly Reich Lárus Elíasson hefur verið ráð- inn fast- eignastjóri Hörpu. Hann er með meistara- gráðu í stjórnun fyrirtækja (MBA) auk meistara- gráðu í vélaverk- fræði og hefur lengst af starfað sem stjórnandi í orkugeiranum, bæði innanlands og utan, við sölu, hönnun, smíði og gangsetningu virkjana. Auk þess hefur Lárus fengist við margvísleg verkefni á sviði rekstrar og stjórn- unar, úttekt og eftirlit með flug- völlum auk kennslu í verkefna- stjórnun og rekstri fyrirtækja við HÍ, að því er fram kemur í tilkynn- ingu. Lárus ráðinn fast- eignastjóri Hörpu Lárus Elíasson Mælaborð sem ætlað er að tryggja betri yfirsýn yfir velferð barna á Ís- landi hlaut í gær alþjóðleg verðlaun UNICEF (Child Friendly Cities Ini- tiative Inspire Awards) fyrir fram- úrskarandi lausnir og nýsköpun í nærumhverfi barna. Verðlaunin voru afhent í Köln í Þýskalandi þar sem stór ráðstefna um innleiðingu barnasáttmálans í sveitarfélögum er haldin. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, tók við verð- laununum í Köln. Mælaborðið hefur verið þróað af Kópavogsbæ í samvinnu við félags- málaráðuneytið og UNICEF á Ís- landi. Samstarfssamningur þess efnis var undirritaður í júní síðast- liðnum og er hluti af heildarend- urskoðun á þjónustu við börn og ungmenni sem stjórnvöld standa fyrir. Verðlaun Fulltrúar Íslands á ráðstefnu Unicef í Köln voru ánægðir í gærdag. Hlutu alþjóðleg verðlaun Unicef

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.