Morgunblaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019
✝ Elín PálfríðurAlexanders-
dóttir fæddist í
Grindavík 30.
ágúst 1932. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suð-
urnesja 30. sept-
ember 2019.
Hún var dóttir
hjónanna Alexand-
ers Georgs Sig-
urðssonar, f. í Páls-
bæ í Seltjarnarneshreppi 16.
september 1893, d. 17. maí
1942, og Margrétar Eiríksdótt-
ur, f. í Grindavík 31. janúar
1903, d. 27. október 1986. Bróð-
ir Elínar var Eiríkur, f. 1936, d.
2008. Maki Hildur Júlíusdóttir,
f. 1941, sammæðra var Guð-
brandur Eiríksson, f. 1926, d.
2018, maki Hrefna Guðmunds-
dóttir, f. 1936, d. 2010.
Elín giftist 25. desember
1956 Edvard Júlíussyni, f. 1933.
Foreldrar hans voru Júlíus
Halldórsson, f. í Brekkukoti í
Svarfaðardal 1911, d. 1983, og
Kristín Sigmarsdóttir, f. á
Hrafnkelsstöðum í N-Múlasýslu
vík. Þar kynntist hún eigin-
manni sínum sem kom sem sjó-
maður á vertíð til Grindavíkur.
Þau hófu búskap 1957 og
bjuggu lengst af á Mánagötu 13,
en síðustu árin bjuggu þau að
Skipastíg 3.
Á árinu 1965 stofnuðu þau
hjónin, ásamt tvennum öðrum
hjónum, Hópsnes sem í fyrstu
gerði út einn fiskibát, en varð
síðar stórt útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtæki í Grindavík.
Elín starfaði við fyrirtækið frá
upphafi við almenn skrifstofu-
störf, fyrst á Mánagötunni en
þegar félagið eignaðist húsnæði
að Verbraut 3 fluttist skrifstof-
an þangað. Þar starfaði Elín í
fjölda mörg ár.
Elín var í áratugi félagi í
Slysavarnafélaginu Þórkötlu,
þar sem hún var ein af stofn-
félögum, og einnig virkur félagi
í Kvenfélagi Grindavíkur. Hún
gegndi ýmsum trúnaðarstöfum
fyrir félögin á langri starfsævi
og var hún gerð að heiðurs-
félaga í báðum félögunum fyrir
störf sín í þeirra þágu. Hún
söng einnig í kirkjukór Grinda-
víkurkirkju í hartnær 30 ár og
var lengi gjaldkeri safn-
aðarnefndar kirkjunnar.
Útför Elínar fer fram frá
Grindavíkurkirkju í dag, 18.
október 2019, og hefst athöfnin
klukkan 14.
1916, d. 1997. Börn
Elínar og Edvards
eru: 1) Alexander
Georg, f. 1957,
maki Þuríður Dóra
Ingvarsdóttir. Börn
þeirra eru fjögur
og barnabörn orðin
10. 2) Kristín Þór-
ey, f. 1959, maki
Ottó Hafliðason.
Samtals eignuðust
þau sjö börn og
barnabörn þeirra eru orðin 12.
3) Sigmar Júlíus, f. 1961, maki
Linda Oddsdóttir, f. 1961. Börn
þeirra eru fjögur og barnabörn-
in eru orðin níu.
Elín ólst upp í Grindavík og
bjó þar alla ævi. Hún hlaut hefð-
bundna skólagöngu í barna-
skóla og eina framhalds-
menntun hennar var nám í einn
vetur í Húsmæðraskólanum á
Ísafirði. Hugur hennar stefndi
til frekara náms en aðstæður
buðu ekki upp á slíkt á þeim ár-
um. Fyrsta starf hennar eftir að
hún komst á fullorðinsár var af-
greiðslustarf í Einarsbúð sem
þá var eina verslunin í Grinda-
Elsku mamma. Mikið var
erfitt að fá andlátsfregnina
þína þar sem við Ottó vorum
svo langt í burtu; að sigla á
Kyrrahafinu að flækjast alla
leið til Ástralíu þar sem ég er
núna að skrifa þessi orð. Þér
hefði fundist þetta óþarfa flakk
og allt of langur tími - heill
mánuður.
Ég náði sem betur fer að
kveðja þig og eiga með þér dýr-
mætar stundir í veikindum þín-
um sem voru erfið en sem bet-
ur fer ekki löng. Þú varst
hraust og dugleg, hugsaðir um
heimilið og ykkur pabba alveg
þangað til þú veiktist síðasta
sumar.
Ég sakna þess að geta ekki
hringt í þig eða þú í mig. Sagt
þér fréttir eins og við vorum
vanar að gera. Þig var farið að
dreyma ömmu – mömmu þína –
nokkuð oft. Þér fannst það
merkilegt því þig hafði aldrei
dreymt hana áður. Hún var
greinilega að bíða eftir þér.
Ég kveð þig mamma mín og
þakka fyrir allt. Allan stuðning-
inn við mig og krakkana mína
þegar við áttum erfitt. Veit
ekki hvernig við hefðum komist
í gegnum þann tíma án ykkur
pabba.
Þín dóttir,
Kristín.
Það er undarleg tilfinning að
kveðja í dag móður okkar sem
hefur verið stór hluti af lífi
okkar alla ævi og ávallt verið til
staðar fyrir okkur. Þessi til-
finning er bæði söknuður og á
sama tíma þakklæti fyrir fórn-
fýsi og þrotlausa vinnu sem
snerist að miklu leyti um að
búa okkur gott líf.
Móðir okkar var ein af þess-
um sterku konum sinnar kyn-
slóðar sem tókust á við áskor-
anir daglegs lífs af festu. Hún
var vinnusöm og var yfirleitt
fyrst á fætur og sá til þess að
allir fengju morgunmat áður en
haldið var til vinnu eða í skóla.
Hún hafði ávallt heitan mat í
hádeginu og á kvöldin. Faðir
okkar var sjómaður og því lenti
á henni stór hluti af rekstri
heimilisins sem hún sinnti af
röggsemi ásamt því að ala upp
þrjú börn sem sennilega hefðu
verið greind ofvirk, a.m.k. við
bræðurnir, ef slík greining
hefði verið í boði á þeim árum.
Samhliða rekstri heimilis og
barnauppeldi vann hún í fjölda
ára öll almenn skrifstofustörf
fyrir útgerðarfyrirtækið sem
foreldrar okkar áttu í félagi við
tvenn önnur hjón.
Mamma var alla tíð kirkju-
rækin og söng í kirkjukór
Grindavíkurkirkju í áratugi og
hafði af því mikla ánægju. Þeg-
ar barnabörnin komu til sög-
unnar fór hún reglulega með
þau í sunnudagaskólann.
Á uppvaxtarárum okkar
hvatti móðir okkar til þess að
við stunduðum allt nám af sam-
viskusemi og hún lagði mikla
áherslu á að við færum í fram-
haldsnám.
Hún hafði alla tíð orð á því
að henni hefði fundist hún fara
mikils á mis að hafa ekki haft
tækifæri til náms. Eina fram-
haldsmenntun hennar var nám
í einn vetur við Húsmæðraskól-
ann á Ísafirði. Við nutum þó
þess náms ríkulega þar sem
hún var góður kokkur sem
tókst að útbúa fjölbreyttan og
góðan mat úr nánast öllu hrá-
efni.
Mamma var heimakær og
leið yfirleitt best heima. Eftir
að fjölskyldan eignaðist bíl var
þó oft farið í útilegur um helg-
ar. Í þessum ferðum var víða
farið um land og margar upp-
götvanir gerðar. Vinsælast var
þó að fara í tjaldútilegu á
Laugarvatn. Í fyrsta sinn sem
mömmu og pabba var boðið í
hálendisferð í Landmannalaug-
ar tók mamma ekki í mál að
fara, en þegar hún hafði verið
upplýst um að leiðin væri að-
eins margar litlar brekkur og
ekkert að óttast lét hún til leið-
ast. Eftir þetta fóru mamma og
pabbi í fjölmargar hestaferðir
m allt land. Í þeim ferðum ók
mamma jafnan stórum jeppa
með svefnhúsi á pallinum um
allar trissur eins og ekkert
væri.
Margar ferðir voru farnar,
bæði innanlands og erlendis og
er þá helst að minnast síðustu
ferðarinnar sem við fórum fyrir
um ári börn og tengdabörn með
mömmu og pabba á sólarströnd
þar sem við áttum ánægjulegar
stundir saman.
Eftir að við stofnuðum fjöl-
skyldur og eignuðumst börn
var hún þeim góð amma. Það
voru ófáar lopapeysurnar,
sokkarnir eða vettlingarnir sem
hún prjónaði á þau. Hún hafði
mjög gaman af heimsóknum
þeirra og ávallt tilbúin að leyfa
þeim að gista ef eftir því var
leitað.
Elsku mamma, kærar þakkir
fyrir allt sem þú gerðir fyrir
okkur á þinni ævi. Þú varst
okkur góð fyrirmynd og frá þér
fengum við dýrmætt veganesti
út í lífið.
Alexander og Sigmar.
Elsku amma mín þá er kom-
ið að kveðjustund, stund sem
ég hef kviðið fyrir í langan tíma
en allt tekur víst enda. Tilhugs-
unin um að fá aldrei að hitta
þig aftur, tala við þig, faðma
þig og ræða við þig um daginn
og veginn er skrýtin.
Ég er þakklát fyrir okkar
samband og allar okkar góðu
stundir saman sem blessunar-
lega voru mjög margar. Þú
fékkst að fylgja mér í gegnum
líf mitt og verið til staðar á öll-
um þeim stóru stundum sem ég
hef átt, þú hefur alltaf verið
stór partur af mér.
Þó að þú hafir oft fussað og
sveiað yfir þeim ákvörðunum
sem ég tók þá varstu alltaf á
endanum ánægð með þær og
sagðir mér oft hversu stolt þú
værir af mér. Þú varst til að
mynda ekkert alveg sátt með
að ég ætti kærasta svona ung,
bara 18 ára.
Þú lést mig heyra það fyrst
en það tók ekki langan tíma til
að sannfæra þig og þú sættist á
að hann væri partur af fjöl-
skyldunni og urðuð þið góðir
félagar. Þegar við fórum að
huga að brúðkaupi þá sagði ég
strax að ég vildi gifta mig með-
an amma mín lifði því ég vildi
að þú sæir mig ganga inn
kirkjugólfið og taka stolt þátt í
þessum stóra degi með mér. Ég
fékk ósk mína uppfyllta og
þarna varstu allan tímann með
mér og partur af þessu augna-
bliki sem mér þykir ævinlega
vænt um.
Síðustu árin vantaði þig
stundum eitthvað að gera og ég
sá um að þér leiddist ekki. Ég
fékk þig í heimsókn til mín til
að brjóta saman þvottinn því
þér þótti það svo gaman og svo
tókstu alltaf sokkana með þér
heim og sast yfir sjónvarpinu
og paraðir þá saman fyrir mig.
Þú komst og passaðir krakkana
fyrir mig meðan ég skrapp í
smá stund og þær stundir
gerðu mikið fyrir þig. Þú varst
mikil barnakona og þér þótti
alltaf vænt um börnin þín,
barnabörnin og barnabarna-
börnin. Þínar dyr voru alltaf
opnar og þú tilbúin að gera allt
fyrir okkur. Ég er svo heppin
að börnin mín hafi fengið að
kynnast þér.
Ungu árin þín voru ekki auð-
veld en alltaf stóðstu bein í
baki allt fram á síðasta dag og
það finnst mér aðdáunarvert.
Við erum svo líkar á margan
hátt og síðustu árin hef ég séð
það betur og betur hversu líkar
við erum.
Oft þegar ég kom í heimsókn
til þín fórum við í gegnum
skápana þína og þú sýndir mér
kjólana og skartgripina og allt
fína dótið sem þú áttir: bolla-
stellin, kertastjakana og silfur-
búnaðinn. Mér þótti alltaf gam-
an að koma og fá að skoða allt
dótið þitt því báðar erum við
mjög glysgjarnar og smekkleg-
ar og fékk ég oft að heyra frá
mömmu að ég hefði þetta frá
þér.
Ég mun ávallt sakna þín og
þú átt alltaf stóran stað í hjarta
mínu. Mér þótti rosalega vænt
um þig og ég veit að þú ert á
góðum og sársaukalausum stað
núna með bræðrum þínum og
munu þeir passa þig eins vel og
afi hefur gert. Við munum
passa vel uppá afa fyrir þig.
Hvíldu í friði elsku amma mín.
Við kveðjum þig kæra amma
með kinnar votar af tárum
á ást þinni enginn vafi
til okkar, við gæfu þá bárum.
Horfin er hönd þín sem leiddi
á hamingju og gleðifundum,
ástúð er sorgunum eyddi
athvarf á reynslustundum.
Margt er í minninga heimi
mun þar ljósið þitt skína,
englar hjá guði þig geymi
við geymum svo minningu þína.
Lilja Ósk Sigmarsdóttir.
Elsku amma hefur kvatt
þennan heim. Amma var ein-
staklega glæsileg og ljúf kona.
Ég var svo lánsöm að fá að
eyða miklum tíma með henni og
afa sem barn.
Afi og amma í Grindó, eins
og þau voru alltaf kölluð,
bjuggu á Mánagötunni í fallegu
húsi og þangað var dásamlegt
að koma.
Mér leið alltaf svo vel þar,
líkt og ég væri stödd í töfra-
heimi. Teppalögðu tröppurnar,
sem urðu mikilvægur partur af
leik okkar, leikföngin sem við
sáum hvergi annars staðar og
bárum ómælda virðingu fyrir,
þvottahúsið sem var spennandi
og dularfullt en þó var örugg-
ara fyrir lítið hjarta að hafa
ömmu með.
Ég man hvað mér fannst
heillandi að skoða snyrtiborðið
hennar, allt í röð og reglu og
ávallt smekklegt. Ég minnist
göngutúra með ömmu í fallegu
umhverfi Grindavíkur. Ég
minnist ferða í kirkjuna, kór-
söngs, Hópsness, kvikmynda-
sýninga í félagsheimilinu og allt
þótti mér þetta jafn heillandi.
Táta, hundur afa og ömmu,
var í miklu uppáhaldi. Ég held
að það sé ekki til ljósmynd af
mér í heimsókn hjá þeim án
þess að Táta hafi verið með.
Við vorum óaðskiljanlegar,
bæði í Grindavík og í bústaðn-
um í Grímsnesinu. Jólaboðin
eru mér líka minnisstæð og
glösin góðu sem ég átti vægast
sagt í erfiðleikum með.
Það voru vissar hefðir sem
mynduðust hjá afa og ömmu.
Ein þeirra tengdist aðfanga-
degi, þá mátti opna einn pakka
fyrir mat, pakkann frá afa og
ömmu í Grindó. Þessa hefð
þótti mér svo vænt um að þeg-
ar ég fór sjálf að halda jól með
mínum dætrum þá fengu þær
að opna einn pakka fyrir mat.
Pakkann frá langafa og lang-
ömmu í Grindó.
Fyrir ekki svo löngu síðan
kíkti ég með stelpurnar í heim-
sókn til afa og ömmu í vetr-
arfríi og amma tók upp púslu-
spil og sýndi stelpunum. Þetta
voru sömu púsluspil sem ég lék
með með sem barn og það sá
ekki á þeim. Æskuminningarn-
ar streymdu fram.
Elsku amma, takk fyrir alla
umhyggjuna og hamingjuna
sem þú veittir mér sem ungri
stúlku og síðar dætrum mínum.
Ég mun varðveita þessar dýr-
mætu minningar með hlýju í
hjarta um ókomna tíð.
Harpa.
Elín Pálfríður
Alexandersdóttir
✝ Ásgerður Ósk-arsdóttir Laur-
itsen fæddist á Ísa-
firði 6. nóvember
1939. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Ísafold í Garðabæ 8.
október 2019.
Ásgerður var
kjördóttir Óskars
Þórarinssonar, f.
1911, d. 1992, og
Kristjönu Helga-
dóttur, f. 1902, d. 1964. Uppeld-
isbróðir Ásgerðar var Haukur
Helgason, f. 1934, d. 2001. Móðir
Ásgerðar var Steinunn Her-
mannsdóttir, f. 1917, d. 1996.
Steinunn giftist Gunnlaugi
Þorbjarnarsyni, f. 1913, d. 1993.
Börn þeirra og hálfsystkini Ás-
gerðar eru Ágústa Sigurborg, f.
1950, og Þór, f. 1946.
Ásgerður giftist hinn 29. des-
ember 1970 Árna Þórðarsyni, f.
22. júlí 1938, d. 21. febrúar 1988.
Foreldrar hans voru Þórður Ing-
þórsson, f. 1904, d. 1995, og Guð-
rún Jónsdóttir, f. 1906, d. 1998.
Dætur Ásgerðar og Árna eru Ár-
ný Björk, f. 8. maí 1967, og Guð-
rún, f. 17. ágúst 1979. Fyrir átti
Ásgerður Kristjönu Ægisdóttur,
f. 2. september 1957, faðir henn-
ar var Ægir Ólafsson, f. 11. des-
ember 1938, d. 14. febrúar 1989.
Árni átti dótturina Lindu Björk,
f. 7. mars 1968,
móðir hennar var
Guðbjörg Ólafs-
dóttir, f. 17. júní
1941, d. 4. nóv-
ember 2006. Árný
er gift Hilmari G.
Gunnarssyni, f. 28.
ágúst 1963, dætur
þeirra eru Ásgerð-
ur Ósk, f. 20. mars
1993, í sambúð með
Sindra Snæ Alfreðs-
syni, og Steinunn Ýr, f. 28. júlí
1995, fyrir átti Hilmar Lindu
Björk, f. 16. júlí 1993, gift Davíð
Lúther Sigurðarsyni, barnabörn-
in eru Hilmar Lúther, Ragnhild-
ur Birta, Árný Sif og Harpa Sól-
ey. Guðrún er gift Ásgeiri Þór
Ásgeirssyni, f. 15. júní 1969, dæt-
ur þeirra eru Þórhildur Elín, f.
28. maí 2004, og Vigdís Lóa, f. 27.
apríl 2008. Fyrir átti Ásgeir Val-
gerði Ýri, f. 3. desember 1995.
Dætur Kristjönu eru Sandra
Theres Lundahl, f. 19. júní 1985,
og Emeli Catarina Lundahl, f. 24.
febrúar 1988, búsettar í Svíþjóð.
Dætur Lindu Bjarkar eru Unnur
Sóley Lindudóttir, f. 29. nóvem-
ber 1994, og Kolbrá Lindudóttir,
f. 10. maí 2004.
Ásgerður verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju í dag, 18.
október 2019, og hefst athöfnin
klukkan 13.
Látin er kær systir, mág-
kona, frænka, Ásgerður Óskars
Lauritsen.
Ásgerður var fædd á Ísafirði
og ólst þar upp hjá heiðurs-
hjónunum Óskari Þórarinssyni
og Kristjönu Helgadóttur
ásamt fósturbróður sínum
Hauki Helgasyni til 20 ára ald-
urs er hún flutti til Reykjavík-
ur.
Óskar, Kristjana og Haukur
eru látin. Blessuð sé minning
þeirra.
Ísafjörður var henni ætíð
hugleikinn og mannlífið þar, því
þar átti hún sterkar rætur.
Á unglingsárunum vann Ás-
gerður við sundlaug Ísafjarðar,
enda góð sundkona sem og við
hin ýmsu störf á Ísafirði með
hefðbundnu skólanámi.
Ásgerður vann mestan sinn
starfsaldur hjá Landssímanum,
var afar farsæll og traustur
starfskraftur, fyrir utan að
vinna í Brauðbæ um tíma eftir
að hún flutti til Reykjavíkur.
Það var ljúft og gaman að
umgangast Ásgerði, ávallt létt í
lund og bauð af sér afar góðan
þokka. Hún var myndarleg
húsmóðir, heimilið smekklegt
og ávallt fágað út úr dyrum.
Veisluborð í boði í hvert skipti
sem komið var í heimsókn og
spjallið ávallt létt og skemmti-
legt. Traustari og heiðarlegri
konu höfum við vart kynnst,
einnig móður hennar Steinunni
Hermannsdóttur og fósturföð-
ur, Gunnlaugi Þorbjarnarsyni
sem bæði eru látin. Blessuð sé
minning þeirra heiðurshjóna.
Árið 1970 giftist Ásgerður
Árna Þórðarsyni og áttu þau
saman dæturnar Árnýju Björk
og Guðrúnu, fyrir átti Ásgerð-
ur, Kristjönu Ægisdóttur, einn-
ig átti Árni dótturina Lindu
Björk.
Allt kraftmiklar athafnakon-
ur og eiga þær átta mannvæn-
legar dætur og eru barna-
barnabörn Ásgerðar tvö.
Ásgerður var afar stolt af
stelpunum sínum og fjölskyld-
um þeirra, bar hag og framtíð
þeirra allra mjög fyrir brjósti
sem og annarra fjölskyldumeð-
lima.
Árni og Ægir létust báðir um
aldur fram. Blessuð sé minning
þeirra heiðursmanna.
Þessi áföll höfðu óneitanlega
áhrif á heilsu Ásgerðar þótt
hún bæri það ekki á torg.
Ásgerður fór í sérstaka
lungnaaðgerð á sínum tíma,
eina þá fyrstu sem gerð var hér
á landi og þar sem aðgerðin
tókst vel flýtti það fyrir að slík-
ar aðgerðir yrðu framvegis
gerðar hér á landi.
Um Ásgerði væri hægt að
skrifa langa minningargrein
þ.e. um skemmtilega og trausta
samferðakonu, léttleika og
spaugsemi hennar o.fl., en þær
línur bíða betri tíma.
Það er alltaf sárt að kveðja
kæra ættingja og samferðafólk.
Við munum eiga eftir að
sakna hvella og innilega hlát-
ursins hjá Ásgerði, sem ekki
var sjaldgæft að heyra þegar
spjallið barst að skondnum at-
burðum, minningar sem við
munum geyma og vernda um
ókomna tíð.
Jafnframt hugljúfar þakkir
fyrir að prjóna öll dúkkufötin,
ógleymanlegu bíó- og Tívolíf-
erðirnar og margt fleira sem
gert var á skemmtilegum dög-
um.
Allt kærar minningar sem
Gústa þakkar Ásgerði fyrir og
aðrar yndislegar samveru-
stundir.
Megi Guð venda Ásgerði og
minningu hennar með þökk fyr-
ir allt og allt.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Innilegar samúðarkveðjur til
dætra, fjölskyldna og vina Ás-
gerðar.
Guð gefi þeim ljós og styrk
til framtíðar.
Ágústa, Ómar, Tómas,
Eva og Dharma.
Ásgerður
Óskarsdóttir
Sálm. 16.1-2
biblian.is
Varðveit mig, Guð,
því að hjá þér leita
ég hælis. Ég segi
við Drottin: „Þú ert
Drottinn minn, ég
á engin gæði nema
þig.”