Morgunblaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019 árabil. Þá voru þau með tvíburana litla og við með Þorstein Frey ári yngri. Nýtt tímabil hófst í lífi Birgis og Sonju þegar þau festu kaup á íbúð í Dunedin í Flórída. Þar nutu þau að dvelja, enda yndislegur staður. Við Steini heimsóttum þau nokkr- um sinnum og eigum dásamlegar minningar þaðan. Ekki má svo gleyma síðustu ferðinni sem við fórum saman til Frakklands að heimsækja Björgu Jónu og Má í „Eplahúsið“ í Normandí. En nú er öllum ferðalögum lok- ið og komið að kveðjustund, elsku Sonja mín. Við Steini, Maggi og Helga kveðjum þig með þökk fyrir ára- tuga vináttu um leið og við vottum Birgi og fjölskyldu ykkar innilega samúð okkar. Esther Ólafsdóttir. Sumt fólk hefur eitthvað sérstakt við sig sem virkar þannig að það heillar þig. Slíkt fólk, þú tekur eftir því hvar sem það fer. (Jóhann G. Jóhannsson) Mér finnst þetta erindi eiga svo vel við um hana Sonju Backman vinkonu mína. Hún hafði einstak- lega fallega framkomu og góða nærveru. Okkar fyrstu kynni voru fyrir tæpum 20 árum er hún kom inn á hárgreiðslustofuna mína í Skipholtinu til að kaupa sér hár- vörur. Það tókst strax með okkur alveg sérstakt samband, eins og við hefðum þekkst alla tíð. Sonja, ásamt dóttur sinni Lilju Dögg, var tíður gestur á stofunni og áttum við þar margar góðar samveru- stundir þar sem mikið var talað og hlegið. Við Sonja áttum gott trún- aðarsamband og fundum aldrei fyrir aldursmuninum sem var á okkur. Þegar við kynntumst var eftirlifandi eiginmaður hennar, Birgir Ísleifur Gunnarsson, seðla- bankastjóri og þurfti hún því oft hárgreiðslu fyrir veislur og við- burði tengd starfi hans. Þá skemmtum við okkur í vangavelt- um um fataval og stíl sem var okk- ur sameiginlegt áhugamál ásamt matargerð, innanhússhönnun og bókmenntum. Þegar leið að því að þau hjónin myndu hætta að vinna varð Sonju tíðrætt um hvað þau ættu að taka sér fyrir hendur. Þá var það svo að ég vissi af íbúð til leigu á Flórída sem væri alveg kjörin fyrir þau til að vera í, slaka á og njóta, sem þau og gerðu. Voru þau svo heilluð af verunni þarna að þau festu kaup á íbúð á þessum stað. Íbúðin á Flórída var þeirra annað heimili í áratug og undu þau sér þar oft með fjölskyldu og vin- um. Sonja rifjaði oft upp hvað ör- lögin væru merkileg; að ég hefði einmitt á þessum tímamótum vit- að af þessari íbúð og látið hana vita af því. Svo var það fyrir tveim- ur árum að það hittist svo gleði- lega á að ég og Þorsteinn maður- inn minn vorum á sama tíma og Sonja, Birgir og Lilja Dögg á Te- nerife. Nutum við samvista með þeim, fórum nokkrum sinnum saman út að borða og er óhætt að segja að gleðin hafi verið þar við völd. Þetta eru mér nú ómetanleg- ar minningar. Það var líka ánægjulegt að vera gestur í átt- ræðisafmæli hennar í fyrra og sér- legu dömuboði á heimili þeirra hjóna í janúar sl. Þar hafði hún ásamt dætrum sínum sett upp sýningu á kjólum sem hún hafði klæðst þegar hún var með Birgi í hans embættisstörfum. Þessi sýn- ing var svo skemmtilega uppsett þar sem kjólarnir voru á gínum ásamt því að bæði hún, dætur hennar og barnabörn sýndu kjól- ana. Með hverjum kjól fylgdi svo einnig frásögn af þeim viðburði sem þau hjónin voru á hverju sinni. Þarna kom berlega í ljós hvað Sonja hafði upplifað marga merka viðburði á sinni ævi sem í mínum eyrum voru eins og ævin- týri líkastir. Er óhætt að segja að þau hjónin hafi alla tíð verið glæsi- legir fulltrúar íslensku þjóðarinn- ar. Já glæsileg og falleg var hún Sonja mín, bæði að innan sem ut- an. Það er mikill söknuður í hjarta mínu en líka mikið þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast henni. Votta ég Birgi Ísleifi og fjölskyldu mína dýpstu samúð. Hvíl í friði kæra vinkona. Hrefna G. Magnúsdóttir. Fyrir nær þremur áratugum auglýsti Skóli Ísaks Jónssonar eftir skrifstofustjóra til starfa við skólann. Nokkur hópur fólks sótti um, en strax vakti sérstaka at- hygli broshýr kona sem þar að auki var hin stórglæsilega borgar- stjórafrú Reykvíkinga, Sonja Backman. Fullur undrunar spurði skólastjóri hvort hún héldi að þetta starf hentaði hennar per- sónu. Augu hennar leiftruðu og hún svaraði um hæl: Já, og mig langar að fá þetta starf! Skóla- stjórinn fræddi hana um innihald starfsins: Þetta getur orðið miklu meira en skrifstofustarf. Þú getur þurft að vera sem móðir allra þessara barna þegar þörf er á! Ég kann það, svaraði hún og geislandi bros fylgdi orðum hennar. Hún fékk auðvitað stöðuna og það varð skólanum til gæfu. Hún var hlý, kærleiksrík, hógvær, áreiðanleg og jákvæð. Hún töfraði ekki að- eins okkur starfsfólkið, heldur öll börnin og ekki síst foreldrana sem einnig nutu þess láns okkar að hafa þessa einstöku konu í okkar röðum. Hún varð vinkona okkar allra, gladdist og hló með okkur og eftir að kennarafélag SÍJ var stofnað mætti hún einna best af okkur á mánaðarlega fundi ýmist á kaffihúsi eða í heimahúsi eftir at- vikum. Þar var rætt um allt milli himins og jarðar og alltaf var glatt á hjalla, sannkallaðir fagnaðar- fundir. Fyrir fáum vikum upplýsti Sonja, róleg og æðrulaus, að hún hefði greinst með alvarlegan sjúk- dóm og þyrfti í aðgerð. Minnugar þess hve lengi hún var búin að um- faðma og hjúkra elskuðum eigin- manni sínum, lífshættulega veik- um, um langa hríð, setti okkur hljóðar. Enn mætti hin trygg- lynda vinkona á fund, sagðist ekki vilja missa af neinni stund með okkur. Síðast sagði hún okkur að hún hefði upplifað dásamlega stund með fjölskyldunni þegar hún átti stórafmæli síðast. Birgir, svo veikur sem hann var, stóð óstuddur og hélt ræðu blaðalaust, konu sinni til heiðurs, rakti þar alla þeirra sögu saman frá því að þau hittust fyrst og fram á þann dag. Var þetta hin fegursta ást- arsaga sem Sonja tekur með sér í síðustu ferðina, og vonandi er huggun fyrir manninn hennar að hafa getað gefið henni þessa gjöf í nesti. Svo kom fréttin, Sonja var komin á líknardeild og lést þar eft- ir stutta legu. Um leið og við kveðjum þessa einstöku vinkonu og þökkum henni allar samveru- stundir hugsum við hlýtt til Birgis og fjölskyldunnar allrar. Þessa kveðju sendum við í nafni allra kennara sem störfuðu með henni við skólann. Herdís og Anton. Í dag þegar ég minnist Sonju Backman leitar hugurinn til baka. Leiðir okkar lágu saman fyrir margt löngu, þar sem eiginmenn okkar voru góðir vinir og störfuðu mikið fyrir Sjálfstæðisflokkinn, sátu m.a. saman í borgarstjórn í mörg ár. Á þeim árum hittumst við oft við margvísleg tækifæri og urðum góðar vinkonur. Sonja var sérlega glæsilega kona, kát og skemmtileg og dugleg í öllu því sem hún tók sér fyrir hendur. Ég fylgdist með annasömu lífi Sonju á þeim árum og vissi hvað hún hafði mikið að gera með fjög- ur börn og þurfti einnig að aðstoða Birgi Ísleif við mörg skyldustörf. Það var aðdáunarvert hvað hún gat sinnt þessu öllu vel. Árin liðu og við héldum alltaf góðu sambandi og hittumst við mörg tækifæri og vorum í vina- hópi með eiginmönnum okkar. Þegar við hittumst síðast ræddum við um gamla daga og vináttuna og ákváðum að láta ekki langan tíma líða til næsta fundar. Það dróst að vísu því miður, m.a. vegna margvíslegra veikinda í fjölskyld- um okkar beggja. Við Ólafur eigum margar góðar minningar frá ótal ánægjulegum samverustundum með Sonju og Birgi Ísleifi og frábæru samstarfi. Hugurinn dvelur hjá vini okkar Birgi Ísleifi og elskulegum börn- um þeirra hjóna, sem hafa stutt foreldra sína í þeirra erfiðu veik- indum undanfarið. Við Ólafur sendum þeim öllum innilegar sam- úðarkveðjur og minnumst Sonju með hlýju og söknuði. Jóhanna J. Thors. Sonja Backman var geislandi kona. Þegar við kveðjum hana nú þá minnist ég hlýjunnar, brossins og glettninnar. Ég minnist líka konu sem hafði skoðanir á mönn- um og málefnum sem hún setti fram af festu og með málefnaleg- um hætti. Og stundum var hún ekkert að skafa af því. Það var bæði gaman og gefandi að tala við hana. Við vorum báðar „giftar“ inn í Seðlabanka Íslands, ef svo má að orði komast, þegar við kynntumst fyrir um 30 árum. Hún var gift seðlabankastjóranum, ég for- stöðumanni á hagfræðisviði, sem síðar varð aðalhagfræðingur bankans. Samverustundir okkar á þessum tíma voru margvíslegar. Þær eru margar minningarnar sem upp í hugann koma en ég læt eina stutta sögu nægja hér sem lýsir Sonju svo vel. Eitt sinn var kvöldverður með bankastjórn, bankaráði og helstu embættis- mönnum bankans ásamt mökum. Einnig var boðið fyrrverandi seðlabankastjórum og bankaráðs- formönnum og þeirra mökum. Þrjár aldraðar ekkjur fyrrverandi seðlabankastjóra og formanna voru í boðinu. Eftir kvöldverðinn hnippti Sonja í mig með glettnis- svip í augum og sagði að ég yrði að koma og sitja hjá þeim og henni. Þær segðu ekki mikið og einn bankaráðsmaður héldi yfir þeim hálfgerða einræðu. Auðvitað gerði ég það og náð- um við Sonja að gera samtalið við þann mælska bankaráðsmann meira marghliða og höfðum gam- an af. Ég minnist líka kvöldstund- ar á heimili þeirra hjóna á Sjafn- argötu þar sem Birgir djassaði svo einstaklega vel á píanóið og Sonja naut sín. En ég þekkti hana líka sem skrifstofustjóra Ísaksskóla þar sem dætur okkar Más stigu sín fyrstu skref á grunnskólabraut. Þar hélt Sonja um þræðina af festu og samviskusemi. Það duld- ist engum. Og til hennar var alltaf gott að leita. Fyrstu árin eftir að við Már komum heim frá Basel og hann tók við embætti seðlabankastjóra áttum við góðar stundir með þeim hjónum við ýmis tækifæri. Alltaf fundum við fyrir hlýju og vináttu. Síðustu árin hafa veikindi því mið- ur orðið til að fækka þeim sam- verustundum. Það var því einstak- lega ánægjulegt að sjá Sonju hressa og káta í 80 ára afmæli- veislu Ágústu Johnson í mars á þessu ári. En lífið er hverfult og nú hefur hún kvatt. Elsku Birgir. Megi góður guð gefa þér styrk í sorg þinni. Við Már sendum þér og fjölskyldu þinni okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Sonju Backmann. Elsa S. Þorkelsdóttir. Ó já, þau hafa verið mjörg hlát- ursköstin á Fjölnisveginum. Það var haustið ’83 sem við Ingunn kynntumst og ég varð heimalning- ur hjá þeim Sonju, Birgi og tvíbb- unum. Ef ég hugsa til baka finn ég lyktina, hlýjuna, tónlistina og húmorinn sem umvafði heimilið. Að læðast inn á föstudagskvöldi þar sem Birgir var að setja plötu á fóninn, Sonja með svuntuna og púrtvínsglas að matbúa eitthvað gott handa sínum, sú hugsun ylj- ar. Þau kunnu að búa til stemn- ingu, hann rólegur, hún með glampa í augum, kertaljós og djass. Við Ingunn bara að spá í líf- ið og Lilja Dögg hjá okkur, við gátum leitað ráða og Sonja gat oft hlegið að okkur og með. Við Ing- unn vorum oft að læra þegar Sonja kom heim úr vinnu. Fór hún þá oft út að ganga og sagði mér að það væri best fyrir sál og líkama, með árunum hef ég orðið henni sammála. Gaggóárin liðu og menntó tók við með ýmsum uppá- komum hjá okkur stelpunum. En svo kom að því að við þroskuðumst aðeins meira, við Ingunn vorum ekki lengur frjálsar heldur jurtir sem eignuðumst börn, og einn daginn voru þær mæðgur Sonja og Lilja Dögg mættar til mín í hárgreiðslu, mikið þótti mér vænt um að hitta þær reglulega. Þá tók- um við Sonja aftur upp þráðinn; hún hvíslaði einhverju að mér, glampi kom í augun og við hlóg- um. Við ræddum líka alvöru lífs- ins, ég leitaði ráða hjá henni og hún hjá mér, við vorum sammála um að réttindi fólks ættu að vera hin sömu. Við ræddum framtíð Lilju, Sonja gaf ekkert eftir í bar- áttu sinni fyrir að Lilja Dögg fengi sambærilega þjónustu og önnur börn. Þegar ég ræddi það við hana síðar þegar Lilja var komin á sam- býli fann ég friðinn í hjarta Sonju, hún var sátt. Þau hjónin hafa alla tíð hugsað vel um hópinn sinn, sem er einstaklega samheldinn. Það er mikil gæfa að vera ástfang- in yfir sex áratugi, maður skynjaði ástina sem ríkti á milli þeirra hjóna og virðinguna. Svo voru það kjólarnir hennar Sonju, það var ekki slæmt fyrir Birgi í öllum hans embættum að hafa trausta, glæsi- lega og skemmtilega konu sér við hlið. Sonja bar af í glæsileika og þykir mér leitt að hafa ekki komist í síðasta boðið sem hún bauð mér í þegar skellt var í kjólasýningu og búblur. Mig langar að þakka þeim hjónum fyrir hlýjuna sem þau hafa ávallt sýnt mér, hann hæglát- ur, hún kímin, hugsunin um þau á Fjölnisveginum vermir hjarta mitt og ég veit að allar fallegu minningarnar munu verma brost- in hjörtu Birgis og fjölskyldu. Hugur minn er hjá ykkur elsku vinir. Góða ferð elsku Sonja, þín Erla Guðrún Estragon. Í dag kveðjum við Sonju, glæsi- lega og fallega konu sem við kynntumst á unglingsárunum í gegnum dóttur hennar Ingunni Mjöll. Hjónin á Fjölnisveginum hafa átt sinn þátt í lífi okkar, enda stóð hlýlegt heimili þeirra okkur alltaf opið. Sonja varð strax vinkona okkar og fylgdist með okkur af áhuga og umhyggju. Hún hafði einstaklega gaman af félagsskapn- um okkar, Kryddjurtum, sem stofnaður var á Fjölnisveginum fyrir einmitt 30 árum eða haustið 1989 og hafði Sonja alltaf jafn gam- an af því að rifja upp hvernig heim- ilið var skreytt við það tækifæri. Hlýhugur hennar í okkar garð sýndi sig svo vel þegar við Krydd- jurtirnar áttum 20 ára vináttu- afmæli. Við það tækifæri kom hún okkur á óvart með heimboði þar sem hún bauð upp á freyðivín og snittur og fagnaði þannig með okk- ur þessum skemmtilegu tímamót- um klúbbsins, sem einmitt varð til í stofunni hjá henni. Það var yndislegt að koma heim til Sonju í kjólaboð í byrjun árs og fá að upplifa hluta af hennar lífs- ferli í gegnum kjólasýninguna sem hún ásamt dætrum sínum hafði sett upp á heimilinu. Þar sýndu þær kjóla sem hún hafði klæðst við ýmis opinber tilefni á lífsleiðinni. Það geislaði af Sonju þennan dag og sýningin sýndi hversu glæsileg og smekkleg kona Sonja var. Hugur okkar er hjá Ingunni vinkonu okkar, systkinum hennar, Birgi og fjölskyldunni allri á þess- um erfiðu tímum. Við vottum þeim öllum innilega samúð. Þínar jurtir; Birgitta, Erla, Marta og Rósa. ✝ Sigríður Jóns-dóttir fæddist á Fagurhólsmýri í Öræfum 21.8. 1936. Hún lést á Vífils- stöðum 27.9. 2019. Hún var dóttir hjónanna Guðnýjar Aradóttur, 2.7. 1891, d. 15.11. 1976 og Jóns Jónssonar, f. 8.2. 1886, d. 4.3. 1976, búsett á Fag- urhólsmýri í Öræfum. Systkini hennar eru: Ari Jónsson, d. 2000, Guðrún Jónsdóttir, d. 2015), Guðjón Jónsson, d. 2013, Jóhanna Þuríður Jónsdóttir, Sigþrúður Jónsdóttir, d. 1999, Sigurgeir Jónsson, d. 2015, Gústaf Albert Jónsson, d. 1954. Sigríður giftist Sigurjóni Jónssyni, f. 8.1. 1932, d. 2.7. 2017, frá Hofi í Öræfum, þann 17. maí 1959. Börn þeirra eru: 1. Ágúst, f. 29.9. 1959, giftur Sesselju Hrönn Jensdóttur. Börn þeirra eru Sigurjón og Unnur. Fyrir átti Sesselja einn son, Gísla Þór. 2. Helga Jónína, f. 13.9. 1960, gift Hafsteini Má Ársælssyni. Börn þeirra eru Hugrún Lind og Birkir Örn. Fyrir átti Hafsteinn eina dóttur, Hrafn- hildi Laufeyju, sambýliskona henn- ar er Stella Guð- jónsdóttir. Börn þeirra eru Bergrún og Bjartmar Húni. 3. Guðný Sigurjóns- dóttir, f. 19.7. 1965, sambýlismaður hennar er Svavar M. Sigurjónsson. Börn þeirra eru Örvar og Rakel. Sigríður ólst upp á Fagur- hólsmýri í Öræfum. Hún stund- aði nám við barnaskóla sveit- arinnar á Hofi. Hún fór í vist til Reykjavíkur og síðar í Hús- mæðraskóla Reykjavíkur. Sigríður og Sigurjón bjuggu fyrstu búskaparárin á Malarási í Öræfum. Árið 1962 fluttist fjöl- skyldan til Reykjavíkur. Þau bjuggu fyrst í Sörlaskjóli en síð- ar fluttust þau á Laugarnesveg þar sem þau bjuggu lengst af. Sigríður vann til margra ára sem aðstoðarmaður tannlæknis á tannlæknastofu Lofts Ólafs- sonar. Útför Sigríðar fer fram frá Áskirkju í dag, 18. október 2019, og hefst kl. 13. Elsku Sigga frænka mín er sofnuð í síðasta sinn. Sigga, systir hans pabba og mágkona mömmu, hefur alla mína ævi verið ein þeirra sem mynduðu öryggisnetið mitt, hér fyrir sunnan. Samband þeirra systkinanna var einstakt – pabba og Siggu, mömmu og Sigurjóns, alveg eins og samband máganna og mágkvennanna. Á uppvaxtarár- um mínum átti ég stöku sinnum kost á því að koma í heimsókn til frændsystkina minna í Reykjavík. Fyrst í ferðum með mömmu og pabba, en seinna ein eða með fleirum. Þá var gist í góðu yfirlæti hjá Siggu og Sigurjóni, sem hikuðu ekki við að draga fram dýnur og svefnpoka handa hópnum ef þess þurfti. Heim- sókn á Laugarnesveg 106 var til dæmis mikilvægur hluti af skólaferðalögum úr Nesjaskóla, hittum þá Ágúst, Helgu Jónínu og Guðnýju líka. Þau systkinin voru öll „í sveit“ hjá mömmu og pabba í Neðribænum á Fagur- hólsmýri og urðu þannig hluti af fjölskyldunni, eins og systk- ini. Eftir því sem árin líða kann maður betur að meta þessi mik- ilvægu tengsl og afkomendurn- ir eru líka farnir að skynja mik- ilvægi þeirra. Þegar ég hóf nám í Verslunarskóla Íslands fékk ég fyrst herbergi hjá annarri föðursystur minni, Þuríði, sem bjó með fjölskyldu sinni í Langagerði 16. Sigga, Þuríður og Nunna systir þeirra tóku all- ar virkan þátt í starfi Söng- félags Skaftfellinga og leiðir mínar lágu þangað með þeim. Þær voru líka allar virkar í Ferðafélaginu Breiðumörk, þar sem voru haldnar kvöldvökur og farið í lengri og skemmri ferðalög. Dagleg umgengni var minni við Diddu, Ara og Guðjón, systkini pabba sem bjuggu líka í Reykjavík, en tengsl við þau voru samt líka sterk. Sigga var létt og skemmtileg og mér fannst hún alltaf vera í góðu skapi. Hún átti líka góðan hóp vin- kvenna og ég minnist þess reyndar, að við frænkur höfum brosað í kampinn þegar Sigga kvaddi okkur með því að hún ætlaði að hitta „stelpurnar“, vinkonur sínar í saumaklúbbn- um. Þær voru 30 árum eldri en við og því ekki „stelpur“ í skiln- ingi okkar, sem vorum táningar þá! En nú erum við, sem vorum táningar þá, löngu komnar fram úr Siggu og sauma- klúbbsvinkonum hennar og hittum enn „stelpurnar“ í okkar hópi. Þær eru margar, minning- arnar sem tengjast Siggu og fjölskyldunni hennar. Ég beið hjá þeim síðustu vikurnar fram að fæðingu Evu, því þá eins og nú þótti heldur langt frá Öræf- unum í öryggi heilbrigðisstofn- ana. Þar fór auðvitað vel um mig og ég naut lífsins við að prjóna heimferðarsett og fleira, sem þurfti að vera tilbúið þegar barnið kæmi í heiminn. Sigur- jón og Sigga voru okkur líka betri en engin eftir að barnið var fætt, þegar að því kom að hjálpa okkur Sigrúnu systur við að koma upp heimili á Bræðra- borgarstígnum. „Margs er að minnast, margs er að sakna“ eins og segir í ljóðinu eftir Valdimar Briem. Ég leyfi mér að njóta þess að sakna og ylja mér við minning- arnar. Með ástarkveðju til Ágústs, Helgu Jónínu, Guðnýjar, fjöl- skyldna þeirra og frændfólksins alls. Jónína Sigurgeirsdóttir. Sigga föðursystir er dáin. Hugurinn reikar til baka í Laugarnesið, heim til Siggu og Sigurjóns, og minningarnar streyma fram. Glaðlegur hlátur, hlýja, umhyggja og góð nær- vera einkenndu þetta heimili og hana Siggu frænku okkar. Við systkinin vorum alltaf velkomin í Laugarnesið og á mennta- skólaárunum nutum við þess iðulega að koma við eftir skóla og þiggja hressingu, bæði í formi veitinga og skemmtilegra samræðna. Þarna var lagður grunnur að væntumþykjunni sem entist alla ævina. Sigga hafði góða kímnigáfu og það var alltaf gaman að tala við hana um mál- efni líðandi stundar. Við frænd- systkinin höfðum gaman af söng og tónlist almennt, þegar við komum saman þá var oft stutt í tónlistina. Sigga tók stundum undir, enda heyrðum við sagt að hún hefði sungið mikið í gegnum tíðina ásamt fleiri Öræfingum. Vonandi eru þau Sigurjón nú bæði á góðum stað þar sem þau fá notið áhugamála sinna. Við sendum Ágústi, Helgu Jónínu, Guðnýju og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Helgi Sigurgeirsson og Sigrún Sigurgeirsdóttir. Sigríður Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.