Morgunblaðið - 18.10.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019
Styrmir Gunnarsson bendir á að„um þessar mundir séu þrír
aðilar að framkvæma kannanir á
fylgi flokka, þ.e.
Gallup, MMR og
Zenter-rann-
sóknir.
Niðurstaðatveggja
hinna síðarnefndu
er mjög svipuð,
tölur Gallup hafa
verið ívið hagstæðari fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn.
En niðurstaða allra þriggja ergersamlega óviðunandi fyrir
þennan 90 ára gamla flokk. For-
ystusveit flokksins hefur aug-
ljóslega tilhneigingu til að taka
þessar niðurstöður ekki alvarlega.
Það geta orðið örlagarík mistök.Verði niðurstaða kosninga á
svipuðum nótum mun þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins fækka enn og
líkur á endurheimtum meirihluta
Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn
Reykjavíkur nánast engar.
Það verður að bregðast við þess-ari stöðu og fyrstu viðbrögðin
eiga augljóslega að vera ítarleg
könnun á því hvað veldur því að
flokkurinn hefur misst svo mjög
traust kjósenda. Í ljósi slíkrar ít-
arlegrar könnunar fer bezt á því
að ræða svo málið fyrir opnum
tjöldum.
Valhöll verður að taka þetta málalvarlega.“
Þetta er sjálfsagt rétt ábending.En hitt er líka vitað að kann-
anir eru hverflyndar eins kvensan
fræga. Og svo er kannski brýnna
að viðurkenna vandann en að velta
honum fyrir sér.
Styrmir
Gunnarsson
Vandi að ræða
vanda án vandræða
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Hvorug tveggja Bombardier-flugvéla
sem Air Iceland Connect ákvað að
selja á liðnu sumri hefur enn selst, að
sögn Árna Gunnarssonar fram-
kvæmdastjóra. Önnur flugvélin er af
gerðinni Dash 8-200 og hin af gerð-
inni Dash 8-400.
„Það eru þreifingar hér og þar en
hvergi komið 100%,“ sagði Árni um
sölu vélanna.
Félagið á nú sex Bombardier-
flugvélar en búið er að laga manna-
hald að því að gera út fjórar flugvélar,
að sögn Árna. „Við erum búin að vera
að því síðan í sumar. Þótt þessar vél-
ar hafi verið í rekstri þá hafa þær
ekki verið í fullri notkun. Við höfum
almennt verið að laga reksturinn að
breyttum markaðsaðstæðum,“ sagði
Árni.
Endurnýjun flugflotans
Flugfélag Íslands, síðar Air Ice-
land Connect, tók á móti fyrstu
Bombardier Q-400 flugvél sinni 24.
febrúar 2016. Þær geta borið allt að
76 farþega. Félagið hafði þá notað
tvær minni Q-200 vélar í um áratug.
Koma Q-400 vélarinnar þótti marka
tímamót því með henni hófst form-
lega endurnýjun á flugvélaflota fé-
lagsins. Nýju flugvélarnar leystu
Fokker-flugvélarnar af hólmi en þær
höfðu þjónað félaginu mjög lengi.
Hvorug Bombardier-vélanna seld
Air Iceland Connect er með tvær
Bombardier-skrúfuþotur á söluskrá
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Bombardier Q 400 Vélarnar eru
hljóðlátar og afkastamiklar.
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Gerið verðsamanburð
30%
afsláttur
af öllum vörum
Við eigum
AFMÆLI
Guðni Einarsson
Þór Steinarsson
Þórunn Kristjánsdóttir
Erla María Markúsdóttir
Líklegt þykir að greint verði frá
ákvörðun FAFT í dag um hvort Ís-
land lendir á gráa listanum yfir lönd
sem ekki hafa gripið til fullnægjandi
aðgerða gegn peningaþvætti og fjár-
mögnun hryðjuverka.
„Lendi Ísland á gráa listanum get-
ur það mögulega gerst í einhverjum
tilvikum að það verði tafir á
greiðslum. Ef þetta fer á versta veg
trúum við því að samstarfsaðilar
okkar taki á þessu af skynsemi,“
sagði Viðar Þorkelsson, forstjóri
Valitors. „Ég trúi því að stjórnvöld
séu búin að ganga það langt í þessu
og að sú vinna sem eftir er taki ekki
langan tíma. Þannig að ef við lendum
á listanum þá verðum við ekki lengi á
honum.“
Sæmundur Sæmundsson, for-
stjóri Borgunar, segir að lendi Ís-
land á gráa listanum og verði þar til
lengri tíma þá geti það haft meiri
áhrif. Það geti valdið öllum íslensk-
um aðilum erfiðleikum þurfi þeir að
stofna til nýrra viðskipta erlendis og
slíkt geti orðið bæði flóknara og tek-
ið lengri tíma. Hann kveðst vona að
lendi Ísland á listanum þá verði það
ekki til langframa.
„Við eigum ekkert heima á þess-
um gráa lista,“ sagði Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-,
iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í
óundirbúnum fyrirspurnartíma á Al-
þingi í gær. Hanna Katrín Friðriks-
son alþingismaður spurði hvers
vegna aðgerðir stjórnvalda í málinu
væru ekki nægjanlegar því nú líti út
fyrir að Ísland geti lent á gráum
lista. Ágallarnir sem FAFT nefndi
voru 51 og sagði Þórdís að svo sé litið
á að búið sé að bæta úr þeim.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra segir að ekki sé
talið að það muni hafa veruleg áhrif
lendi Ísland á gráa listanum, hvorki
á stöðugleika né almenning. „Það er
þó þannig að það hafa fá lönd sem
standa jafnvel og við lent á svona
lista. Fordæmin eru ekki fyrir
hendi,“ sagði Áslaug.
Hún sagði að íslensk stjórnvöld
hefðu unnið að því hörðum höndum
að bregðast við athugasemdum
FAFT. Síðasta atriðið er innleiðing á
nýju kerfi hjá lögreglunni.
Lendir Ísland á
gráa listanum?
Ákvörðun FAFT líklega tekin í dag