Morgunblaðið - 18.10.2019, Síða 13

Morgunblaðið - 18.10.2019, Síða 13
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, náði nýju brexit-sam- komulagi við leiðtoga Evrópusam- bandsins í gær en mikil óvissa er um hvort neðri deild breska þingsins samþykki hann í atkvæðagreiðslu sem fer fram á morgun. Johnson og Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB, skýrðu frá nýja samningnum nokkr- um klukkustundum áður en tveggja daga fundur leiðtoga ESB-ríkjanna hófst í gær. Juncker sagði að þar sem nýr samningur hefði náðst væri ekki þörf á að fresta útgöngu Bret- lands úr ESB sem á að taka gildi 31. október. Hafni breska þingið samn- ingnum á Johnson að óska eftir því að útgöngunni verði frestað um þrjá mánuði og leiðtogar ESB-ríkjanna þyrftu þá að samþykkja frestunina. Umdeildu ákvæði breytt Samþykki breska þingið samning- inn er hann mikill sigur fyrir John- son sem hafði ítrekað fengið þau skilaboð frá leiðtogum ESB að ekki kæmi til greina að gera nýjan samn- ing um útgönguna og verða við kröfu forsætisráðherrans um að fella niður umdeilt ákvæði í brexit-samningi Theresu May um írsku landamærin. Ákvæðið fól í sér að Norður-Írland yrði í tollabandalagi ESB þar til samið yrði um annað. Nýi samning- urinn er að mestu samhljóða fyrri samningnum, sem breska þingið hafnaði þrisvar, að öðru leyti en því að ákvæðinu umdeilda var breytt. Samkvæmt nýja samningnum á allt Bretland að ganga úr tollabanda- lagi ESB og landið getur því gert viðskiptasamninga við önnur ríki. Norður-Írland verður áfram laga- lega hluti af breska tollsvæðinu en á að lúta tollareglum Evrópusam- bandsins. Ekki verður tekið upp eftirlit á landamærum Írlands og Norður-Írlands heldur verður komið á tollalandamærum milli Norður-Ír- lands og eyjunnar Stóra-Bretlands. Vörur sem koma frá öðrum hlutum Bretlands verða tollskoðaðar á komustöðunum á Norður-Írlandi. Ekki verður þó sjálfkrafa skylt að greiða tolla af þeim öllum því að samningurinn kveður á um að Bret- ar og Evrópusambandið stofni sam- eiginlega nefnd sem á að ákveða hvaða vörur séu líklegar til að fara frá Norður-Írlandi til Írlands og eigi að vera tollskyldar. Lagður verður tollur á þær vörur þegar þær koma til Norður-Írlands en hann verður endurgreiddur ef þær fara ekki til Írlands. Bretar eiga að annast toll- gæsluna en ESB hefur rétt til að hafa eftirlit með henni. Reglur Evrópusambandsins um matvæli, iðnvarning og virðisauka- skatt á vörur eiga að gilda á Norður- Írlandi. Ef þing Norður-Írlands hafnar ákvæðum samningsins eiga þau að falla úr gildi tveimur árum síðar. Vill nýtt þjóðaratkvæði Norðurírski flokkurinn DUP, sem hefur stutt stjórn Íhaldsflokksins, kvaðst ekki geta stutt nýja samning- inn. Flokkurinn telur samninginn geta skaðað efnahag N-Írlands og er andvígur því að aðrar reglur gildi þar en í öðrum hlutum Bretlands. Leiðtogar Verkamannaflokksins, Skoska þjóðarflokksins og Frjáls- lyndra demókrata gagnrýndu einnig samninginn. Jeremy Corbyn, leið- togi Verkamannaflokksins, sagði að nýi samningurinn væri verri en sá fyrri og sagði að eina leiðin til að leiða brexit-deiluna til lykta væri að efna til nýrrar þjóðaratkvæða- greiðslu um útgönguna. Hugsanlegt er að tillaga um nýtt þjóðaratkvæði verði lögð fram í neðri deild þingsins á morgun en óljóst er hvort hún nýt- ur nógu mikils stuðnings þar. Fjölgar uppreisnarmönnunum? Talið er að mjög tvísýnt sé um af- drif samningsins á breska þinginu. Greiði þingmenn DUP atkvæði gegn honum gætu uppreisnarmenn í Verkamannaflokknum ráðið úrslit- um. Fimm þingmenn flokksins greiddu atkvæði með brexit-samn- ingi May en talið er að nýi samning- urinn geti fengið meiri stuðning í flokknum. Fyrr í mánuðinum undir- rituðu 19 þingmenn flokksins bréf þar sem leiðtogar ESB voru hvattir til að gera nýjan samning við John- son og ef þeir greiða allir atkvæði með honum er líklegt að hann verði samþykktur, að sögn fréttaskýranda The Telegraph í gær. Johnson kvaðst vera mjög vongóður um að samningurinn fengi nægan stuðning á þinginu. Tvísýnt um afdrif nýja samningsins  Boris Johnson kveðst vera vongóður um að breska þingið samþykki brexit-samning við Evrópusam- bandið  DUP hafnar samningnum  Uppreisnarmenn í Verkamannaflokknum gætu ráðið úrslitum AFP Mikill sigur fyrir Johnson? Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, Jean-Claude Juncker, forseti fram- kvæmdastjórnar ESB, og Michel Barnier, samningamaður ESB, kynna nýjan brexit-samning í Brussel. Boris Johnson lagði fram nýjar tillögur að lausn á deilunni um írsku landamærin Samningaviðræðurnar um brexit Heimild: Fréttastofa AFP 31 Útgöngudagurinn Viðræður hófust að nýju milli ESB og Breta en tillögum Johnsons var hafnað 1718 Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB, og Johnson tilkynntu nýjan brexit-samning 19 Þing Bretlands greiðir atkvæði um samninginn 11 Leiðtogar ESB-ríkjanna sam- þykktu viðræður um mála- miðlunina OKTÓBER 4 Framkvæmdastjórn ESB sagði að tillögurnar gætu ekki verið grundvöllur að brexit-samningi 72 Leiðtogafundur ESB 10 Johnson og Leo Varadkar, forsætisráðherra Írlands, boðuðu málamiðlun í deilunni um landamærin FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019 DUP, Lýðræðislegi sambands- flokkurinn, er aðeins með tíu sæti af 650 í neðri deild breska þingsins en gæti ráðið úrslitum í atkvæðagreiðslu á morgun um nýjan brexit-samning bresku stjórnarinnar við Evrópusam- bandið. Ríkisstjórn Íhaldsflokksins hefur þurft að reiða sig á stuðn- ing þingmanna DUP frá kosn- ingunum árið 2017 þegar hann missti meirihluta sinn á þinginu. Til að tryggja sér stuðning DUP samþykkti stjórn- in að auka fjárframlögin til Norður-Írlands um milljarð punda, jafnvirði rúmra 160 milljarða króna. Presturinn Ian Paisley stofn- aði DUP árið 1971 og flokkurinn er íhaldssamur í efnahags- og samfélagsmálum. Hann hefur verið þekktur fyrir beinskeyttan málflutning og stífni í samn- ingaviðræðum. Síðustu fjögur árin hefur DUP verið undir forystu Arlene Fost- er, sem er 49 ára og hefur átt sæti á þingi Norður-Írlands frá 2003. Hún fór ekki varhluta af átökum lýðveldissinna og sam- bandssinna á Norður-Írlandi þegar hún var barn því að faðir hennar var lögreglumaður og særðist alvarlega þegar reynt var að ráða hann af dögum í árás sem gerð var að næturlagi á heimili hans. Hún lifði af sprengjuárás Írska lýðveldis- hersins (IRA) á skólabíl þegar hún var unglingur en stúlka sem sat nálægt henni særðist alvar- lega. Smár en áhrifamikill ATKVÆÐI DUP VEGA ÞUNGT Leiðtogi Arlene Foster fer fyrir DUP. Stjórnvöld í Tyrklandi hafa sam- þykkt að gera hlé í fimm daga á árás- um á yfirráðasvæði Kúrda í norðan- verðu Sýrlandi og ætla að stöðva hernaðinn alveg ef Kúrdar sam- þykkja að senda herlið sitt af öryggissvæði sem Tyrkir ætla að koma á sunnan við landamærin að Tyrklandi. Mike Pence, varaforseti Banda- ríkjanna, skýrði frá þessu eftir fund hans með Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands, í Ankara. Pence sagði að Bandaríkjastjórn myndi af- nema refsiaðgerðir sínar gegn tyrk- neskum embættismönnum og ráðu- neytum ef Tyrkir stöðvuðu hernaðinn alveg. Gert er ráð fyrir því að öryggis- svæðið nái um 32 kílómetra suður fyrir landamæri Tyrklands. Pence sagði að Bandaríkjamenn myndu vinna með Kúrdum til að greiða fyrir því að brottflutningur herliðs þeirra af svæðinu gengi vel fyrir sig. Herlið Kúrda í Sýrlandi kvaðst vera tilbúið að gera hlé á árásum sínum. Tyrkir gera hlé á árásum í fimm daga  Hætta hernaði ef Kúrdar fara af öryggissvæði AFP Árásum hætt? Mike Pence, vara- forseti Bandaríkjanna, í Ankara. Skattskrár vegna álagningar 2018 (tekjur ársins 2017) og virðisaukaskattskrár vegna tekjuársins 2017 verða lagðar fram 18. október 2019 Skrárnar, sem sýna álagða skatta og gjöld á gjaldendur í hverju sveitarfélagi, eru lagðar fram á viðkomandi starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum dagana 18. október til og með 1. nóvember 2019. Framlagning skattskráa er samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003 og 46. gr. laga nr. 50/1988. 18. október 2019

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.