Morgunblaðið - 18.10.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 18.10.2019, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019 ✝ Sonja Backmanfæddist í Reykjavík 26. ágúst 1938. Hún lést á Líknardeild Land- spítalans 5. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ingimar Karls- son og Alda Carl- son. Sonja ólst upp á barnmörgu heimili hjá föðurömmu sinni og afa, Jónínu Salvöru Helgadóttur og Ernst Backman, við Háaleitisveg 23, Reykjavík. Eftirlifandi uppeldissystkini hennar eru Ingibjörg Helga Backman, f. 1930 og Valgeir Backman, f. 1931. Sonja átti fimm hálfsystkini í Bandaríkj- unum og einn hálfbróður hér á landi, Gunnar Ingimarsson, f. 1947. Sonja giftist eftirlifandi eig- inmanni sínum Birgi Ísleifi Gunnarssyni, fyrrverandi seðla- bankastjóra, 6. október 1956. Þórarinn Úlfsson Grönvold, f. 1993. 3) Lilja Dögg Birgisdóttir, starfar hjá Ás styrktarfélagi, f. 1970. 4) Ingunn Mjöll Birgisdóttir, verkefnisstjóri hjá Menntasviði Kópavogsbæjar, f. 1970, gift Viktori Gunnari Edvardssyni, söluráðgjafa hjá Sensa. Dætur: Björg Sóley Kolbeinsdóttir, f. 1997; Edda Lilja Viktorsdóttir, f. 2004 og Katla Guðrún Viktors- dóttir, f. 2009. Barnabarnabörn Sonju og Birgis eru alls sjö. Sonja vann við skrifstofustörf lengst af sínum starfsferli, fyrst á Lögfræðistofu Páls S. Pálsson- ar og síðan á skrifstofu Sjálf- stæðisflokksins. Hún vann einnig nokkur ár á lögfræðiskrifstofu eiginmanns síns. Hjá Skóla Ísaks Jónssonar vann hún sem skrif- stofustjóri í tæpan aldarfjórðung fram til ársins 2005. Sonja var um árabil virk í starfi Sjálfstæð- isflokksins og sat hún meðal annars í stjórn Hvatar. Útför hennar fer fram í Hall- grímskirkju í dag, 18. október 2019, og hefst athöfnin kl. 15. Börn þeirra eru: 1) Björg Jóna, námsstjóri hjá Listaháskóla Ís- lands, f. 1957, gift Má Vilhjálmssyni, rektor Menntaskól- ans við Sund. Dæt- ur Bjargar eru Sonja Bjarnadóttir, f. 1982 og Ingibjörg Jóhanna Bjarna- dóttir, f. 1985. Dæt- ur Más eru Vaka Másdóttir, f. 1983 og Harpa Másdóttir Fen- ger, f. 1988, gift Sigurði Lúðvík Stefánssyni. 2) Gunnar Jóhann, lögmaður, f. 1960, giftur Sveinbjörgu Jóns- dóttur, grafískum hönnuði. Börn Gunnars eru Birgir Ísleifur Gunnarsson, f. 1980, giftur Ernu Bergmann; Unnur Elísabet Gunnarsdóttir, f. 1984, í sambúð með Þorgils Helgasyni; Katrín Björk Gunnarsdóttir, f. 1994 og Gunnar Freyr Gunnarsson, f. 2002. Sonur Sveinbjargar er Jón Til mömmu. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. Hafðu gát á hjarta mínu halt mér fast í spori þínu, að ég fari aldrei frá þér, alltaf, Jesús, vertu hjá mér. Um þig alltaf sál mín syngi sérhvern dag, þó eitthvað þyngi. Gef ég verði góða barnið, geisli þinn á kalda hjarnið. (Ásmundur Eiríksson) Hvíl í friði. Þínar tvíburadætur, Lilja Dögg og Ingunn Mjöll. Upp er runninn einn fegursti dagur sumarsins. Leiðin liggur austur á Þingvöll með manninum sem nýgenginn er inn í líf mitt. Þingvallavatn blikar bláma í allri sinni dýrð og fuglar eru í óðaönn að undirbúa lífsverkið. Blátt hlið birtist í vegkantinum. Það er inn- keyrslan að sumarbústað í Svína- hlíðinni. Við keyrum niður stutta malarbrekku. Í skógarrjóðrinu lúrir fallegur bústaður. Ég er að hitta tilvonandi tengdaforeldra mína í fyrsta sinn. Við stígum út úr bílnum og í mér blundar bæði kvíði og eftirvænting. Kvíðinn hverfur fljótt því á móti mér tekur sterkur og hlýr faðmur þeirra hjóna. Ég finn strax að þetta eru engin venjuleg hjón. Að baki öllu því fal- lega í bústaðnum liggur samtaka- máttur Sonju og Birgis. Hver hlutur á sinn stað og natni og næmi á fegurð einkennir umhverf- ið. Sonju er umhugað að Fjallarós- in sem stendur í brekkunni fyrir neðan bústaðinn fái notið sólar svo hún geti skartað sínu fegursta. Henni er umhugað um hvernig er lagt á borð, um hvað er rætt og að það sem um er rætt skipti máli. Tónlist og bækur skipa þar stóran sess. Fram stígur Lilja Dögg feimin og heilsar. Fjölskyldan hef- ur eignast sinn stað í hjartanu á mér. Nú hefur bláa hliðinu verið hall- að að baki Sonju. Eftir stöndum við með fangið fullt af minningum. Elsku Sonja, ég mun gæta að Fjallarósinni. Takk fyrir allt. Þín tengdadóttir, Sveinbjörg. Sveinbjörg Jónsdóttir. Fyrir nokkru síðan átti ég eng- an veginn von á því að það lægi fyrir mér nú á haustdögum að skrifa minningarorð um hana Sonju en það er nú staðan engu að síður. Sonja var tengdamóðir mín en þó fyrst og síðast vinur minn og stórkostleg kona sem mér þótti óskaplega vænt um. Þegar ég kynntist Björgu og kom inn í fjöl- skylduna fyrir margt löngu tók hún mér með kurteisi og skemmti- legri varúð. En það er erfitt að lýsa Sonju svo vel sé. Hún var glæsileg kona, klár og skemmti- leg, sælkeri og snilldarkokkur. Fjölskyldan var henni allt og fátt fannst henni betra en að vera sam- an með sínu fólki og okkur Björgu þóttu stundirnar með þeim ein- stakar. Ég er afskaplega þakklátur fyrir allan þann tíma sem við átt- um saman og minningarnar ylja. Ég er þakklátur fyrir hið hvers- dagslega og að fá að vera þátttak- andi í lífi Sonju. Ég minnist ótal gæðastunda með Sonju og Birgi á Fjölnisveginum og á ferðalögum okkar. Þar má nefna óteljandi ferðir í sumarbústaðinn þeirra við Þingvallavatn, ferð allrar fjöl- skyldunnar til Ítalíu í tilefni átt- ræðisafmælis Birgis Ísleifs og heimsóknir Sonju og Birgis í Eplahúsið okkar í Normandí. Þá var fátt notalegra en að heim- sækja þau í athvarfið þeirra í Du- nedin í Flórída. Einnig er mér of- arlega í huga dásamleg ferð okkar Bjargar með þeim til Danmerkur. Þar gengum við um gamlar slóðir í Kaupmannahöfn þar sem þau sögðu okkur margar skemmtileg- ar sögur af fyrri ferðum þeirra þangað. Það var aðdáunarvert að fylgj- ast með því hversu vel hún hugs- aði um Lilju Dögg, dóttur sína. Hún var stöðugt að leita leiða til að styrkja hana og efla í lífí sínu. Sonja lagði áherslu á það að Lilja Dögg fengi að fylgja henni í gegn- um veikindi sín og það var sér- staklega fallegt var að sjá Lilju Dögg styðja við mömmu sína síð- ustu vikurnar. Hlýja og væntumþykja ein- kenndi Sonju og það voru forrétt- indi að fá að vera samferða henni um stund. Hvíl í friði. Már Vilhjálmsson. Elsku amma mín. Orð fá ekki lýst hversu sárt það er að þurfa að kveðja þig. Fallegri og betri ömmu var ekki hægt að hugsa sér. Hjartað í mér er svo brostið, en á sama tíma er ég svo þakklát fyrir að hafa fengið að vera ömmustelp- an þín. Við áttum dýrmætt sam- band og þú kenndir mér svo margt. Þú varst miklu meira en amma mín, þú varst mín besta vin- kona, svo sterk og flott fyrirmynd, stórglæsileg alltaf, með hlýja faðminn alltaf opinn, brosið og óendanlega mikla ást. Þú sagðir einhvern tímann að það ætti ekki að geyma góðu orðin fyrir minn- ingargreinar og við vorum dugleg- ar að tala fallega saman. Þú varst alltaf áhugasöm um allt sem ég var að fást við hverju sinni og við gátum rætt allt milli himins og jarðar. Þú hafðir ákveðnar skoð- anir á flestu enda sterkur per- sónuleiki en umhyggja var alltaf fremst í stafni og gleðin og hlát- urinn sennilega þín aðalsmerki. Þú varst engri lík. Við dáðumst öll að því hvað þú varst sterk og dugleg í gegnum þessi stuttu og grimmu veikindi elsku fallega amma mín og alltaf náðir þú að hlæja í gegnum þetta. Ég var svo heppin að fá að fylgja þér síðustu stundirnar sem þú varst með okkur og þær stundir eru mér ómetanlegar. Þú vissir að þú værir að fara og hélst fast í mig. Á sama tíma náðir þú að sýna þinn yndislega húmor og bros og ótrúlegan styrk og yfirvegun. Ég á svo margar yndislegar minningar sem ylja mér í söknuð- inum eftir þér elsku amma mín. Þú varst svo stór hluti af lífinu mínu. Það var alltaf gott og hlýtt að vera í kringum þig og þú gerðir allar stundir svo fallegar og huggulegar. Þvílík forréttindi fyr- ir okkur frændsystkinin að hafa ömmu Sonju á skrifstofunni í Ís- aksskóla. Við fengum þó engan af- slátt í agamálum og kurteisi og aðrir nemendur nutu líka góðs af hlýjum faðmi ömmu Sonju. Fjöln- isvegurinn er eitt stórt ævintýri minninga sem munu alltaf lifa með mér. Það var dásamlegt dekur að fá að gista hjá ömmu og afa og ég man svo vel hvernig þú söngst mig í svefn. Huggulegar stundir í bú- staðnum við Þingvallavatn þar sem þú áttir hraunsúkkulaði fyrir okkur og djassinn hljómaði úr græjunum hjá afa. Jólaboðin á Fjölnisvegi á jóladag voru svo mikilvægur hluti af hátíðahöldum okkar allra, fordrykkur klukkan 18 og svo sungin jólalög við undir- leik afa á píanóinu. Allt svo skipu- lagt, hátíðlegt og fallegt. Okkur leiddist ekki heldur að fara saman að kaupa föt og pæla saman í þeim málefnum. Elsku Karítas og Markús eru líka svo heppin að hafa fengið að vera langömmu- börnin þín og eiga dýrmætar minningar um þig. Familia Fjölnis, eins og við köll- uðum okkur eftir Ítalíuferðina ógleymanlegu, mun lifa áfram sterk saman eins og þú lagðir mikla áherslu á. Þú munt lifa áfram í okkur öllum og við munum halda minningunni um þig ljóslif- andi elsku amma mín. Nú höldum við utan um afa í þessari miklu sorg og pössum hann vel. Þið afi voruð mögnuð saman og hélduð alltaf svo vel utan um okkur öll. Ástarsagan ykkar er fallegt æv- intýri og þið svo samrýnd fram á hinstu stund. Ég mun alltaf elska þig amma og ég mun alltaf sakna þín. Þín Sonja. Á fögrum sólskinsdegi síðasta sumar hittumst við Sonja mág- kona mín úti í garðinum sem um- lykur húsið okkar og skartaði hann sínu fegursta þennan dag. Garðurinn var henni svo kær og ófáum stundum hefur hún varið þar, bæði til að njóta sem og að leggja rækt við hann. Henni fannst mikilvægt að hafa hann sem fallegastan, blómum skrýdd- an og vel hirtan, jafnvel þótt þrek- ið til að vinna sjálf í honum hefði minnkað á síðustu árum. Þennan dag sagði hún mér að hún hefði greinst með krabba- mein, en hún var full bjartsýni og sagðist ætla að vinna bug á því og sigrast á meininu. Því miður fór það á annan veg og hún varð að lúta í lægra haldi núna í byrjun október. Við Sonja höfum búið í sama húsi í rúm 63 ár, allt síðan hún gift- ist Birgi bróður mínum. Þar höf- um við deilt gleði- og sorgarstund- um og öllu þar á milli eins og gerist og gengur. Þar ólum við upp okkar börn í sannkölluðu fjölskylduhúsi og vegna tengslanna varð sam- gangurinn mikill og börnin náin. Síðastliðin tvö ár hafa verið Sonju erfið vegna veikinda Birgis, en hún stóð sem klettur við hlið hans og studdi hann með ráðum og dáð eins og hún hafði gert alla þeirra hjúskapartíð. Sonja var glæsileg kona og smekkleg eins og heimili þeirra bar vott um og bróðir minn er gæfusamur að hafa átt hana sem lífsförunaut. Ég er þakklát fyrir kynnin og þau góðu áhrif sem samveran við hana höfðu á fjöl- skyldu mína. Við Guðlaugur biðjum Guð að blessa bróður minn, börnin þeirra Sonju og fjölskyldur þeirra á þess- um erfiðu tímum. Við sendum okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Lilja Jóhanna. Elsku amma mín. Það er svo margt sem mig langar að segja. Svo ótrúlega margar minningar sem koma upp í hugann. Það fyrsta sem ég sé fyrir mér þegar ég hugsa til þín er fallega einlæga brosið þitt. Hjá þér var líka alltaf best að vera. Þegar ég var lítil stelpa skipulagði ég dagana mína út frá strætóferðum til þín og afa – hvort sem það var að koma til ykkar í kaffi eða einfaldlega til þess að spjalla eða spila við þig. Við gátum hlegið endalaust að klaufaskap þínum í spilum. Ég kenndi þér kleppara og þú varðst svo æst í leiknum að ég tapaði meira að segja stundum fyrir þér einfald- lega vegna þess hve mikið við hlógum. Mér fannst ótrúlega gaman þegar þú sagðir mér sögur, sér- staklega þegar þú sagðir mér frá ýmsu úr æsku þinni. Uppáhalds- sagan mín er sagan um litlu kett- lingana þína. Ég gat hlustað á þá sögu endalaust og bað þig að segja mér hana aftur og aftur þar sem við kúrðum saman í rúminu þínu. Við gátum spjallað í marga klukkutíma alveg þangað til við sofnuðum. Elsku amma, þú varst svo miklu meira en amma mín. Þú varst alltaf fyrsta manneskjan sem ég leitaði til, sama hvað bját- aði á. Ég leitaði óspart til þín í Ísaks- skóla þegar þú starfaðir þar sem skrifstofustjóri. Mér fannst æðis- legt að hafa ömmu mína í skólan- um. Þú varst nú samt ekkert mjög ánægð með mig þegar ég sagði kennaranum að ég þyrfti að fá að skreppa á klósettið í kennslu- stundum, en læddist í staðinn til þín og faldi mig undir borðinu þínu. Þú varst alltaf tilbúin með faðminn þinn og hikaðir ekki við að kyssa mig og knúsa. Okkur fannst svo merkilegt hversu sterk tenging var á milli okkar. Þú fannst alltaf á þér ef mér leið illa, meira að segja án þess að tala við mig. Stundum þegar þú hringdir leið ekki á löngu áður en ég hafði sagt þér allt sem mér lá á hjarta. „Ég fann það á mér,“ sagðir þú alltaf. Seinustu dagana þína uppi á líknardeild sagðir þú við mig að þú hefðir alltaf fundið á þér þegar ég væri að koma til þín. Ég mun aldrei gleyma síðustu orðum þínum til mín. Þú straukst á mér vangann, ég lagðist hjá þér og þú sagðir mér hversu mikið þú elskaðir mig – litlu stelpuna sem þér þótti vænst um í öllum heim- inum. Ég er ótrúlega þakklát fyrir þessa stund, elsku amma. Þú varst kletturinn okkar allra og svo ótrú- lega sterk í þessum grimmu veik- indum. Þú munt alltaf vera í hjarta mínu, elsku amma mín. Uppá- haldsmanneskjan mín í öllum heiminum og besta vinkona. Hvíldu í friði elsku amma – ég finn það á mér að þú vakir yfir mér. Ástarkveðjur. Þín Björg Sóley. Í dag kveð ég fyrrverandi tengdamóður mína, Sonju Back- man. Ég lagði mig alltaf fram við að kalla Sonju frú Sonju. Mér hefur ávallt fundist það tilheyra þessari glæsilegu og góðu konu. Virðuleiki og útgeislun heilluðu alla sem kynntust henni. Seinna meir reyndist frú Sonja dóttur minni Björgu Sóleyju yndisleg amma. Margar stundirnar sem Björg átti á Fjölnisveginum og uppi í bústað með afa og ömmu verða henni ávallt dýrmætar. Ég er þakklátur frú Sonju og Birgi fyrir þeirra yndislegu ástúð og elsku í garð dóttur minnar. Ég upplifði sam- band Bjargar við ömmu sína sem mjög sérstakt og náið. Margoft dvaldi Björg á Fjölnisveginum við prófundirbúning og lestur. Mér leið vel þegar ég vissi af henni þar hjá afa og ömmu, enda einstakur andi og elska á þessu góða heimili. Þegar móðir mín féll frá var Björg aðeins tveggja ára gömul og var eins og frú Sonja yrði enn meira til staðar fyrir Björgu sem amma og tók jafnvel að sér ömmu- hlutverkið fyrir þær báðar. Mér eru minnisstæð fyrstu kynni mín af Frú Sonju fyrir um 30 árum. Ég fylgdi Ingunni til matarboðs á Fjölnisveg 15 og búið var að leggja á borð með mjög miklum glæsibrag. Er ég settist við borðið horfði ég á öll hnífapör- in og hugsaði með mér: hvar á ég að byrja og hvernig virkar þetta eiginlega? Frú Sonja hefur væntanlega séð í mér óöryggið, stóð bak við mig og hvíslaði í eyra mér: bara byrja yst, Kolbeinn minn, og vinna þig svo inn á við. Ró kom á hugann er ég leit á frú Sonju og þá veitti hlýja brosið hennar þessum tví- tuga púka að vestan öryggi og traust. Ég minnist frú Sonju sem yndislegrar konu með auðmjúku þakklæti fyrir allt sem hún hefur gert fyrir mig og mína. Ég votta Birgi Ísleifi, Björgu Jónu, Gunnari Jóhanni, Ingunni Mjöll, Lilju Dögg, Björgu Sóleyju, hinum barnabörnunum, mökum og barnabarnabörnum mína inni- legustu samúð. Guð gefi ykkur styrk á erfiðum tímum. Kolbeinn Már Guðjónsson. Það var erfitt að fá þær fréttir í byrjun síðasta sumars að Sonja hefði veikst alvarlega. Við trúðum því alltaf að hún myndi ná sér og því var það sárt að sjá henni hraka og fá þær fréttir að hún hefði and- ast hinn 5. október. Sonja hefur alla tíð verið stór og mikilvægur hluti af lífi okkar systkinanna, enda bjó hún í húsinu þar sem við ólumst upp og stofnaði þar eigin fjölskyldu með Birgi, móðurbróð- ur okkar. Fjölnisvegurinn var sannkallað ættaróðal á æskuárum okkar þar sem þau systkinin bjuggu ásamt ömmu okkar Jórunni. Samskiptin urðu því mikil og tengslin náin, þar sem börn og barnabörn Sonju og Birgis urðu vinir okkar og leik- félagar. Sem börn og unglingar vorum við því tíðir gestir á heimili þeirra eða sumarbústaðnum við Þingvallavatn og vörðum þar oft löngum stundum við ýmsa leiki sem krökkum og unglingum dett- ur í hug eða hlustuðum á tónlist sem var stór þáttur í lífi þeirra hjóna. Við fundum ávallt fyrir væntumþykju af hálfu Sonju og það var alltaf gott að koma upp á miðhæð. Frá henni streymdi hlýja og hún hafði einstaklega þægilega nærveru. Minningarnar hrannast upp og við skynjum þá gæfu að hafa fengið að alast upp í þessu nána fjölskylduumhverfi. Samskiptin minnkuðu eftir að við fluttum að heiman en samt náðum við að halda þeim áfram á hátíðum og viðburðum í fjölskyld- unni. Þær stundir voru ávallt gleðilegar og gefandi. Sonja var glæsileg og skemmtileg kona sem gaman var að umgangast og átti auðvelt með að koma viðstöddum í gott skap með sögum og smitandi hlátri. Á seinni árum tók hún svo tæknina í sína þjónustu og skráði sig á Facebook, sem gaf okkur aukin tækifæri á gefandi sam- skiptum við hana. Við erum þakklát fyrir að hafa kynnst henni á þennan hátt og minningin um hana lifir með okk- ur um ókomna tíð. Við biðjum Guð að blessa Birgi, Björgu Jónu, Gunnar Jóhann, Ingunni Mjöll, Lilju Dögg og fjöl- skyldur þeirra. Við sendum þeim öllum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Stefán, Jórunn Sjöfn og Halla Sif. Með sorg í hjarta rita ég þessi minningarorð. Síðustu vikurnar í lífi Sonju, vinkonu minnar, voru með ólíkind- um erfiðar. Hún greindist með krabbamein í júnímánuði – fór í skurðaðgerð síðast í júlí, síðan í geislameðferð en eftir það var hún fárveik. Síðustu viku lífs síns dvaldi hún á líknardeild Landspít- alans, þar sem Birgir hennar hafði dvalið um tíma. Sú samvera var þeim báðum mikils virði. Þó náði Sonja ekki að lifa 63. brúðkaups- afmæli þeirra hjóna, sem búið var að undirbúa, en hún sofnaði dag- inn áður. Sonja, sem var alltaf hress og hafði verið Birgi stoð og stytta í hans mikilvægu störfum í þágu lands og þjóðar og ekki síst í hans alvarlegu veikindum síðustu árin, er nú öll. Ég sakna vinkonu minn- ar en geymi ótal minningar um samveru okkar um áratuga skeið. Kynni okkar hófust er við vor- um báðar ungar og ástfangnar upp fyrir haus. Báðar byrjaðar að vinna. Strákarnir okkar voru bekkjar- bræður í MR, en í bekknum var einnig Magnús V. Ármann (Maggi) og mynduðu þeir vinahóp, ásamt okkur Sonju og Helgu hans Magga. Sú vinátta hefur haldist stöðug allt okkar æviskeið, en nú hefur myndast skarð í hópinn. Við Sonja gengum báðar í hjónaband fyrir tvítugt og byrjuð- um báðar strax að búa, þótt húsa- kynnin væru í upphafi þröng. Við vorum ung og ástfangin. Í hug mér koma nokkrar ljóð- línur, sem mér finnst eiga við hér. Þær urðu til á árum tilhugalífs og rómantíkur: Þau voru tvær sálir sem leituðu lífsins logandi af hita og þrá. En forlögin höfðu fastákveðið hvað fyrir þeim báðum lá. Þau áttu að elskast og aldrei að skilja ekkert gat hindrað það. Svo átti dauðinn að lífinu loknu að láta þau fylgjast að. Þegar Sonja og Birgir eignuð- ust sitt fyrsta barn, hana Björgu Jónu, kom strax í ljós hvað Sonja var mikil mamma. Þessa eigin- leika nutu börnin hennar, tengda- börnin og fjölskyldan öll alla tíð. Aðdáunarverð var umhyggja hennar fyrir Lilju Dögg, sem þurfti sérstakrar umönnunar við og þeim hjónum tókst að koma í öruggt skjól. Við nutum lífsins saman. Fórum í ferðir í sumarbústaði og veiði. Fastir liðir vinatengsla okkar voru t.d. fjölskylduboðin hjá Birgi og Sonju á jóladag og boðin hjá okkur á nýársdag. Ógleymanlegar eru mér allar sumarleyfisferðirnar sem við fórum með þeim utan um Sonja Backman

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.