Morgunblaðið - 18.10.2019, Page 22

Morgunblaðið - 18.10.2019, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019 ✝ Halldóra Krist-ín Magnús- dóttir fæddist í Reykjavík 25. júní 1957. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans 10. október 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Guðrún Lovísa Guðmundsdóttir frá Króki, Ása- hreppi, Rangárvallasýslu, f. 28. ágúst 1915, d. 4. janúar 2007, og Magnús Kristinn Magnússon frá Vestmannaeyjum, f. 19. október 1906, d. 10. október 1985. Bræður hennar voru Gunnar Friðrik, f. 7. mars 1941, d. 13. febrúar 2016, og Óli Jóhann Kristinn, f. 16. febrúar 1948, d. 3. maí 2000. Halldóra giftist Hákoni Mar Guðmundssyni, f. 12. júlí 1956. Þau skildu. Dætur þeirra Hall- dóru og Hákonar eru: 1) Berg- lind, f. 25. ágúst 1979. Eig- inmaður hennar er Einar Viðar hófu sambúð í Reykjavík en fluttu austur á Hvolsvöll árið 1980. Þar starfaði Halldóra fyrst við Barnaskóla Vestur- Landeyja. Hún hóf störf við Hvolsskóla árið 1985. Hún tók við skólastjórastöðu Hvolsskóla árið 1990 og þegar Hvolsskóli sameinaðist Gagnfræðaskól- anum á Hvolsvelli varð hún aðstoðarskólastjóri Hvolsskóla. Halldóra og Unnar Þór hófu sambúð árið 1999. Veturinn 2010-2011 var hún aðstoðarskólastjóri Akurskóla í Innri-Njarðvík og þau Unnar Þór fluttu búferlum á Suðurnes- in. Árið eftir tók hún við skóla- stjórastöðu Grunnskóla Grinda- víkur og gegndi því starfi til ársins 2017 þegar hún ákvað að fara á eftirlaun. Eftir starfslok Halldóru fluttu þau Unnar Þór á Borg- arholtsbrautina í Kópavogi. Halldóra var alla tíð virkur þátttakandi í félags-, menning- ar- og íþróttastarfi. Halldóra og Unnar Þór komu sér upp öðrum samastað í Mórudal á Barðaströnd þar sem þau eyddu mörgum stundum saman. Útför Halldóru fer fram frá Háteigskirkju í dag, 18. október 2019, og hefst athöfnin kl. 13. Viðarsson, f. 25. janúar 1981. Börn þeirra eru Hákon Kári, Védís Ösp og Embla Bríet. 2) Kristrún, f. 5. apríl 1986. Sambýlis- maður hennar er Jökull Másson, f. 19. desember 1988. Dóttir þeirra er Salka Diljá. Sam- býlismaður Hall- dóru er Unnar Þór Böðvarsson, f. 1. nóvember 1945. Börn Unn- ars Þórs eru: 1) Böðvar Þór, f. 2. apríl 1977. 2) Guðrún, f. 7. febrúar 1979. 3) Jónas, f. 7. febrúar 1979. Kona hans er Sól- veig Jónsdóttir, f. 15. mars 1980. Börn þeirra eru Ragn- heiður, Ari Vilberg og Sigrún. Halldóra ólst upp í Hlíðunum í Reykjavík. Hún var mikill Valsari og spilaði handbolta með Val. Hún gekk í Mennta- skólann við Hamrahlíð og fór svo í kennaranám við Kenn- araháskóla Íslands. Þau Hákon Halldóra mín, ég sé mig knú- inn til að setja niður á blað inni- legt þakklæti fyrir þau tuttugu ár sem við deildum lífi okkar. Gagnkvæm ást myndaðist milli okkar. Það var nálægt þeim tíma sem við ákváðum að helga líf okkar hvort öðru að þú greind- ist með krabbamein. Veikindi þín voru krefjandi verkefni fyrir okkur. Þú tókst á við verkefnið af þeim krafti, þrautseigju og æðruleysi sem þér var svo ríku- lega í blóð borið og hafðir sigur að sinni. Við tóku mörg yndisleg ár hjá okkur, hvort heldur var á Hvolsvelli, Mórudal, Reykja- nesbæ eða Grindavík, en gott var að eiga heima í Kópavogi síðustu mánuðina sem við áttum saman. En sorgin var aldrei langt undan. Á þessum árum misstir þú báða bræður þína úr krabbameini, þá Óla og Gunnar, ásamt því að krabbamein var alltaf öðru hvoru að gera vart við sig hjá skyldfólkinu. Þú reyndir alltaf að vera til staðar fyrir fólkið þitt ef á þurfti að halda. Það var sama hvað var. Þú lagðir þig alla fram um að sinna barnabörn- unum í þeirra áhugamálum og lagðir mikið á þig að mæta á viðburði þar sem þau voru þátt- takendur. Fyrir um tveimur árum gerði meinvætturinn krabbamein svo vart við sig aftur hjá þér og þú greindist með ólæknanlegt krabbamein í brisi. Morguninn eftir þessi tíðindi þar sem við sitjum við eldhúsborðið í Fornu- vör í Grindavík segir þú: „Ég lifi ekki nema einu sinni og ætla á þetta námskeið.“ Þarna var um að ræða kæli- og öndunar- námskeið á vegum Primal. Þú skráðir þig á námskeiðið og daginn eftir varstu farin að baða þig í Elliðaánum ásamt fleira fólki og nema nýja önd- unartækni sem kennd er við Wim Hof. Þremur dögum eftir að þú byrjaðir að stunda köld böð og gera öndunaræfingar kvölds og morgna fannstu ekki fyrir verkjum vegna meinsins og þurftir ekki á verkjalyfjum að halda í fulla 16 mánuði. Á tímabili vorum við farin að halda að við myndum vinna þessa glímu en svo lánsöm vor- um við nú ekki. Það er ekki ofsagt að á dánarstundinni varst þú umvaf- in ást og umhyggju. Það voru sterkir straumar í gangi sem báðu þess að þú fengir að vera með okkur áfram. Dætur þínar tvær, þær Krist- rún og Berglind, sátu hvor sín- um megin við höfðagaflinn á rúmi þínu. Gáfu þér allt sem þær gátu og áttu mjög erfitt. Ég var hægra megin við rúmið og hélt í hönd þína. Við fundum hvort annað og reyndum að senda hvort öðru kraft. Enn finn ég greinilega fyrir kraft- inum sem fór á milli okkar. Þú opnaðir hægra augað til hálfs og starðir á mig. Þessu augna- tilliti mun ég seint eða aldrei gleyma en í því sá ég og fann mikla ást streyma til mín. Þú vildir ekki gefast upp en gerðir þér grein fyrir að lengra yrði ekki haldið. Þú starðir á mig og í augum þínum voru fólgin skilaboð frá þér til mín. „Þó svo ég þurfi að gefast upp, elsku Unnar minn, mátt þú ekki gef- ast upp líka.“ Þú lokaðir auganu og dauðastríðið var á enda. Á dánarbeðinum hvíldi svip- mikil og stórbrotin kona með bjart andlit og í svipnum var enga uppgjöf að sjá. Megi þér líða sem best, elsku Halldóra mín. Unnar Þór Böðvarsson. Orð fá því ekki lýst hversu ósanngjarnt það er að fá ekki að hafa þig lengur hjá okkur. Ennþá erfiðara er að lýsa því hversu þakklát ég er fyrir að fá að vera dóttir þín. Betri fyr- irmynd er ekki hægt að hugsa sér. Ég er svo óendanlega þakk- lát fyrir að þú hafir fengið að fylgjast með mér taka mín fyrstu skref í móðurhlutverkinu og mun aldrei gleyma því þegar ég kvaddi þig eitt af síðustu kvöldunum uppi á spítala til þess að fara heim að svæfa litlu Sölku Diljá. Ég hvíslaði að þér að þú værir besta mamma í heimi og þú flissaðir bara og sagðir: „Jahá væna mín, þú veist að þú getur þá aldrei orðið nema næstbest.“ Eitt er víst, ég mun allt mitt líf reyna að vera jafn góð mamma og þú. Þú kenndir mér svo ótal margt. Þú kenndir mér til að mynda að gefast aldrei upp, að fylgja ætíð draumum mínum og að það mikilvægasta í lífinu væri að njóta dagsins í dag. Þú tókst á við öll verkefni, hvort sem þau voru stór eða smá, með svo miklu æðruleysi og jákvæðni. Meira að segja þetta grimma krabbamein sem tók þig frá okkur var með þín- um orðum „bara verkefni“ sem þurfti að takast á við og aðal- verkefnið var að njóta hvers dags. Ég vona svo sannarlega að ég finni þennan sama styrk til þess að takast á við lífið án þín, elsku mamma mín. Því í dag kveð ég ekki bara heimsins bestu mömmu heldur einnig bestu vinkonu mína. Elsku mamma, ég veit ég er litla viðkvæma blómið þitt en þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af mér, því ég er dótt- ir þín og held nú út í lífið með öll þau góðu ráð sem þú hefur gefið mér. Ég elska þig alla leið til tunglsins og til baka. Þín Kristrún. Það er erfitt að kveðja eina af mínum bestu konum, hana elsku ömmu Dóru eins og hún var kölluð á mínu heimili. Dóra var kletturinn í fjölskyldunni og ein af mínum helstu fyrirmyndum. Hún var mín ofurhetja, sú sem gat allt. Sterkari en allt og reisn hennar í erfiðum aðstæðum ótrúleg. Hún var höfuð fjöl- skyldunnar, fræddi okkur hin og það var ómetanlegt að geta leitað til hennar með hvað sem var eða ef maður þurfti að eiga hreinskilið samtal þar sem allt var lagt á borðið. Hún var alltaf boðin og búin, tilbúin að hjálpa manni með vandamálin og erf- iðar tilfinningar. Það var alltaf hægt að treysta á djúp, hrein- skilin og góð samtöl sem létu manni líða betur. Minningarnar eru ótal marg- ar, þegar við fjölskyldan heim- sóttum þau á Hvolsvöll, í Grindavík eða í Kópavoginn þar sem umræðurnar sem maður varð vitni að voru alltaf svo merkilegar í minningunni. Alltaf þótti mér fullorðna fólkið í þeim aðstæðum geta leyst öll heimsins vandamál. Maður þurfti ekki að óttast að vera ósammála heldur voru hlutirnir bara ræddir og sam- ræðurnar alltaf skemmtilegar. Dóra hélt mér oftar en ekki niðri á jörðinni þegar það þurfti. Mér þótti tengingin okk- ar alltaf svo sterk og fáir sem ég naut eins mikið að hafa í kringum mig. Við gengum í gegnum erfiðleika sem höfðu áhrif á okkur báðar og alla fjöl- skylduna en mér þykir fátt erf- iðara en að vita að ég þurfi að ganga í gegnum lífið án hennar. Þú skilar til okkar fallegum og skemmtilegum minningum. En þú skilur líka eftir þig dæt- ur þínar og barnabörnin sem gefa okkur líka svo mikið og þau eru svo sannarlega heppin að hafa átt þig að. Elsku Dóra, þín verður svo sárt saknað af mér og fjölskyldu minni en ég veit að þú ert á góðum stað með afa Gunna og fjölskyldunni. Minningin þín lifir. Þín Kristín Ósk. Elsku amma. Við eigum eftir að sakna þess að hafa þig ekki á fótboltaleikjunum okkar, þú varst okkar helsti stuðnings- maður. Það var skemmtilegt að upplifa að fara með þér á fót- boltaleik í Liverpool. Við eigum eftir að sakna heimsóknanna til þín og afa. Þú hugsaðir alltaf svo vel um okkur. Ferðirnar vestur í Mórudal eru nokkuð sem við gleymum aldrei. Það var svo gaman að búa til völundarhúsið í lúpínun- um. Við munum halda því áfram með afa. Við munum aldrei gleyma öllum sundferðunum, gönguferðunum í Tumastaða- skógi og samverustundum okk- ar á jólunum. Sofðu rótt, elsku amma. Við munum aldrei gleyma þér. Hákon Kári, Védís Ösp og Embla Bríet. Okkar kæra Halldóra er fall- in frá langt fyrir aldur fram og hennar verður sárt saknað. Hún var einstök, réttsýn, rökföst og hjálpsöm á alla lund. Hún stóð sem klettur við hlið pabba í rúma tvo áratugi og aldrei bar skugga á þeirra sam- band, alltaf virðing og vinátta. Það var ómetanlegt að finna fyrir því öryggi sem sambandi þeirra gaf. Hún alltaf til staðar fyrir hann og hann fyrir hana. Hún reyndist okkur systkinum fyrirmynd á öllum sviðum. Með sinni stóísku ró var hún alltaf tilbúin að gefa góð ráð. Það hef- ur ekki alltaf verið auðvelt fyrir konu með slíkt jafnaðarskap og hún hafði að umgangast storma- saman systkinahópinn. Það var gaman að heimsækja þau í Mórudal þar sem kátínan ríkti og maturinn af bestu gerð. Þar var spjallað um alla heima og geima, sungið og eldur kveiktur fyrir utan bústaðinn. Er fólk gekk til náða sat Hall- dóra eftir úti með garðkönnuna yfir glóðunum svo ekki kviknaði í skógarrjóðrinu eða húsinu. Það var alltaf hægt að treysta á Halldóru. Hún lagði mikla áherslu á að „ná öllum saman“ að minnsta kosti einu sinni á ári og þá var nú heldur betur hlúð að mat- seldinni af natni og alúð. Karakterstyrkur Halldóru kom best fram þegar hún tókst á við veikindi sín síðasta árið. Svo mikil var yfirvegun hennar og æðruleysi að hún fékk okkur jafnvel til að gleyma hversu veik hún var í raun. Við minnumst Halldóru með hlýhug og gleði í hjarta og gleymum ekki brosinu hennar sem veitti öllum styrk, styrk til að takast nú á við lífið án henn- ar. Böðvar Þór, Jónas og Guðrún (Gunna). Elsku Dóra. Söknuðurinn er sár enda varstu tekin alltof fljótt frá okkur. Skarðið sem þú skilur eftir í fjölskyldunni verð- ur seint fyllt. Það verður erfitt að feta í fótspor þín. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Elsku Dóra, takk fyrir allt. Þinn frændi, Magnús G. Trausta og góða vinkona mín til 54 ára þurfti að lúta í lægra haldi fyrir krabbanum. Söknuð- ur fyllir hjartað um leið og fal- legar og góðar minningar hrúg- ast inn. Við hittumst í Hlíðaskóla í 2. A og vorum saman í barnakór. Ég kom langt að og þurfti að bíða milli tíma t.d. ef leikfimi var klukkan 10 og skólinn klukkan 13 en þá var ekkert annað í boði en að bíða úti í hvernig veðri sem var. Dóra bauð mér svo heim í risið í Blönduhlíð 25 og við urðum óað- skiljanlegar eftir það ásamt Viddý sem bjó ská á móti. Það var yndislegt að koma inn á þetta heimili þar sem mamma Lóa lét mann alveg heyra það ef henni líkaði ekki eitthvað en um leið svo góð, allt- af var matur og kökur á borðum og svo Maggi pabbi Dóru sem var alltaf til í að spjalla og fá að fylgjast með hvað við vorum að bralla og Óli bróðir alltaf tilbú- inn í að skutlast með okkur hvert sem var. Við vorum alltaf syngjandi og til samans kunnum við m.a. fullt af alls kyns baráttu- og úti- legulögum. Dóra kom stundum heim til mín og þar var gamall gítar sem mamma átti og svo var mágkona hennar alltaf með gítar. Við lögðum okkur fram um að krafla okkur í gegnum nokkur gítargrip og eftir það voru allir vegir færir. já, það var oft fjör. Við vorum líka í mörg ár í þjóðdönsunum og tókum þátt í sýningum þar og vorum bara nokkuð efnilegar. Svo var það handboltinn, þar blómstraði Dóra heldur betur og við vorum Valsarar út í gegn. Það sýndi sig fljótt hversu mikil keppn- ismanneskja hún var og auðvit- að spilaði hún með landsliðinu, það var gaman að fylgjast með henni þar sem annars staðar. Svo liðu árin við leik og störf og við eignuðumst okkar eigin fjölskyldu og börn og síðustu árin barnabörnin yndislegu. Dóra flutti austur og við hitt- umst sjaldnar en á sumrin hitt- umst við og fórum oft i útilegur saman. Dóra fékk okkur síðan til að flytja austur á Hvolsvöll og þar áttum við góð ár saman í gegn- um súrt og sætt og þar gafst gott tækifæri fyrir börnin okkar að hittast. Dóra var alltaf góður vinur í raun og við áttum mörg sam- tölin í gleði og sorg. Ég er óskaplega þakklát fyrir okkar vinskap, hvernig hann hélst í öll þessi ár, við vorum alltaf hrein- skilnar hvor við aðra og alls ekki alltaf sammála enda er það engin forsenda fyrir góðri og heilsteyptri vináttu. Þegar við vinkonurnar urðum 60 ára ákváðum við að nú væri kominn tími á að njóta saman með Viddý vinkonu okkar sem flutti til Gautaborgar um tví- tugt. Við áttum yndislegan tíma í Kaupmannahöfn og stefndum á Berlín árið eftir en þá var Dóra orðin veik og við frest- uðum ferðinni og stefndum á Stokkhólm núna þar sem bjart- ur tími virtist vera fram undan hjá Dóru. Fljótt skipast veður í lofti. Viddý kom og við náðum dýrmætri og fallegri stund sam- an áður en Dóra kvaddi. Við Jenni og fjölskylda send- um innilegar samúðarkveðjur til allrar fjölskyldunnar, hún var stór því Dóra umvafði alla og lét sig varða um velgengni og gæfu allra í kringum sig . Nú er hún sameinuð foreldrum og bræðrum. Við vorum rík að eiga Dóru, þessa hjartahlýju, metnaðar- fullu keppnismanneskju, að. Auður Fr. Halldórsdóttir. Hjartans besta Halldóra. Mig langar að þakka öll sporin okk- ar saman um óbyggðirnar – Síldarmannagöturnar, Prest- Halldóra Kristín Magnúsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN LOFTSDÓTTIR, Vestri-Hellum, Gaulverjabæjarhreppi, lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Selfossi fimmtudaginn 10. október. Útför hennar fer fram frá Gaulverjabæjarkirkju föstudaginn 25. október klukkan 14. Andrés Pálmarsson Helga Pálmarsdóttir Eyjólfur Pálmarsson Svanhildur Karlsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri EGILL MÁR GUÐMUNDSSON arkitekt, sem lést fimmtudaginn 10. október, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju 25. október klukkan 13. Vigdís Magnúsdóttir Tanja Vigdisdottir Arnar Óskar Egilsson Bianca Tiantian Zhang Páll Skírnir Magnússon Guðmundur Logi Arnarsson Við sendum innilegar þakkir öllum þeim sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju vegna andláts okkar yndislegu dóttur og systur, BIRTU HRUNDAR INGADÓTTUR. Áslaug María Gunnarsdóttir Sigurður Ingi Sigurðsson Iða Brá Ingadóttir Ann Sigurðsson Harpa Lind Ingadóttir Hrólfur Sigurðsson Nora Sigurðsson Einar Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.