Morgunblaðið - 18.10.2019, Side 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019
NÝ SENDING
SMÁRALIND –KRINGLAN
Pronto matarstell frá Kahla
Espresso bolli 8 cl verð frá 1.290,-
Cappucchino bolli 25 cl verð frá 1.490,-
Macchiato bolli verð frá 1.390,-
Tekrús 40 cl verð frá 1.990,-
Smjörkúpull verð frá 5.290,-
Rjómakanna 25 cl verð frá 2.490
Diskur 20,5 cm verð frá 1.890,-
Diskur 26 cm verð frá 2.490,-
Súpudiskur 22 cm verð frá 1.990,-
Skál 14 cm verð frá 1.990,-
NÝR LITUR
LAVENDER
60 ára Halla ólst upp á
Öngulsstöðum I í Eyja-
fjarðarsveit hjá afa sín-
um og ömmu. Hún býr
á Akureyri og hefur
unnið við skrifstofu-
störf.
Maki: Jón Ágúst Aðal-
steinsson, f. 1956, húsvörður í Mennta-
skólanum á Akureyri.
Börn: Andri Sveinn, f. 1981, Þóra Guð-
rún, f. 1985, og Sigurlína Guðný, f. 1991.
Barnabörnin eru María Katrín, Elvar
Ágúst, og Eva Berglind Andrabörn, og
Ylfa Árelía og Árný Erika Þórubörn.
Foreldrar: Sigursveinn Magnússon, f.
1937, d. 2005, plötu- og ketilsmiður og
vann á Slippstöðinni á Akureyri, og Guð-
rún Kristinsdóttir, f. 1928, d. 2016, verka-
kona á Akureyri.
Halla Sveinsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er svo auðvelt að taka eigin
skoðanir fram yfir annarra en stundum
hafa nú aðrir eitthvað til síns máls ef vel er
að gáð. Hleyptu skynseminni að og teldu
upp að tíu þegar sýður á þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú er ekki gott að taka mikilvægar
ákvarðanir. Sestu frekar niður með mak-
anum og farið yfir alla óvissuþætti og takið
svo ákvörðun.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú verður í góðu skapi í dag
vegna góðra frétta sem þú færð. Fólk lað-
ast að þér og nú er rétti tíminn til að nota
persónutöfrana til að mjaka málum áfram.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert óvenju diplómatísk/ur og
nærfærin/n í dag. Mundu að sjaldan veldur
einn þá tveir deila. Allt það góða í lífinu er
oft ókeypis.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur skilað góðu verki og átt alveg
skilið að njóta góðra stunda af því tilefni.
Byrjaðu í dag að skipuleggja næsta frí.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú munt sennilega hitta áhugaverð-
an einstakling í dag. Sláðu öðrum gull-
hamra og taktu eftir hvað það gerir fyrir
fólk.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hinn fullkomni maki lætur á sér standa
en þú ert umkringd/ur fólki sem þú getur
treyst fyrir lífi þínu. Hnýttu lausa enda.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Mundu að virða skoðanir ann-
arra þótt þær komi ekki alveg heim og
saman við það sem þér finnst. Rómantísk
sambönd einkennast af ákafa og eru jafnvel
dálítið yfirdrifin.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Trúðu nánum vini fyrir innstu
draumum þínum og þrám, viðbrögðin gætu
komið þér á óvart. Hversu vel gengur þér í
listinni að lifa?
22. des. - 19. janúar
Steingeit Einhver vill hjálpa þér og líka
gera þig að stærri hluta af lífi sínu. Ein-
beittu þér að aðalatriðunum. Þér finnst þú
hafa unnið í vinalottóinu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ef þú virkar ekki sannfærandi
getur þú varla ætlast til að aðrir trúi á mál-
stað þinn. Njóttu dagsins á allan hátt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er orðið tímabært að þú hafir
samband við vini þína þótt þeir hafi látið
vera að hafa samband við þig.
B
jörn Kristjánsson er
fæddur 18. október
1939 í Meltungu við
Breiðholtsveg í Kópa-
vogi. Hann ólst upp hjá
foreldrum sínum í Skeifunni í Kópa-
vogi og Skipasundi 47 í Reykjavík.
Það hús byggði Kristján faðir
Björns.
Björn gekk í Lauganesskóla og
lauk skólagöngu sinni í Austurbæj-
arskóla. Björn var í sumardvöl í
Snóksdal hjá föðursystur sinni Krist-
ínu í mörg sumur og undi sér þar ein-
staklega vel. „Það voru mínar dýr-
legustu stundir ævinnar og þar varð
ég að manni, en ég hafði engan tíma
til að ganga í skóla.“
Árið 1951 fengu foreldrar Björns
úthlutað 42 hekturum í Nýbýla-
hverfi í Ölfusi, Björn var þar tvö
sumur við uppbyggingu og flutti
með foreldrum sínum að Hjarðar-
bóli í Ölfusi 1953. Björn fékk út-
hlutað Efstalandi árið 1959. „Ég
byrjaði að byggja þar hlöðu og fjós
þar sem ég ætlaði að verða bóndi en
vegna ofnæmis varð aldrei af þeim
búskap.“
Björn keypti fyrsta vörubílinn í
febrúar 1965 og var vörubílstjóri í 30
ár. Hann var fyrstur í félagi vörubíl-
stjóra Mjölnis að fá tveggja hásinga
bíl og tengivagn. Hann keyrði fisk úr
Þorlákshöfn og var upphafsmaður að
því að keyra möl úr Bolöldum. Einn-
ig var hann upphafsmaður að því að
Ölfusvörubílstjórar fengu námurnar
á leigu. Björn sá einnig um akstur
með sláturfé hjá Sláturfélagi Suður-
lands í mörg ár og snjómokstur á
Hellisheiði og í nærliggjandi sveitum
í nokkur ár. Hann hætti rekstri á
vörubíl 1995. „En ég hef alltaf átt
vörubíl til að hafa á planinu til að
grípa í.“
Jafnframt vörubílaakstri fór Björn
að breyta fjósi í veitingastað 1984.
„Ég kom einu sinni til Spánar í grísa-
veislu og datt í hug að hafa grísa-
veislu hér heima og tók helminginn
af fjósinu undir það. Svo lá beint við
að halda þessu áfram.“ Fjósið og
hlaðan urðu tilbúin með öllum leyfum
árið 1989. Veitingastaðurinn Básinn
hóf rekstur og Björn byggði síðan
Ingólfsskála 1997. Mikill jarðskjálfti
varð 29.5. 2008 og urðu miklar
skemmdir á veitingastaðnum. „Við
byggðum bara upp staðinn aftur en
það tók eitt og hálft ár.“ Samfelldur
veitingarekstur hefur verið á staðn-
um frá 1989 ef undan er skilið þetta
eina og hálfa ár en árið 2015 tóku son-
ur hans Gunnar og tengdadóttir við
rekstrinum.
Árið 2010 lét Björn bora eftir heitu
vatni en ekki voru taldar miklar líkur
á að árangur yrði af því ævintýri.
„Þeir sögðu að þetta væri kalt svæði
en ég gerði þetta að gamni mínu. Bor-
að var niður 1.185 metra en 31. ágúst
um hádegi sást gufa frá borholunni og
það var mikil og óvænt gleði. Þeir
segja að það fari 40 sekúndulítrar af
60 gráða heitu vatni á mínútu í gegn.
Ég veit ekki hvað er til í því en þetta
dugar okkur og miklu meira en það.“
Í febrúar 2011 var heita vatnið tengt
við húsin.
Eftir að flestir sem byggðu fyrstir í
landnámi ríkisins í Ölfusi voru fallnir
frá var Björn eini lifandi frumbygg-
inn sem bjó enn á jörð sinni í land-
námi ríkisins. „Ég er sem sagt eini
núlifandi landnámsmaðurinn.
Það hefur verið lítill tími fyrir
áhugamál,“ segir Björn aðspurður.
„En ég gef mér tíma til að fara í sund
alla virka morgna. Einnig finnst mér
mjög gaman að dansa.“
Fjölskylda
Eiginkona Björns er Sigríður
Svava Gunnarsdóttir, f. 12.4. 1942,
fyrrverandi bankastarfsmaður og
vann við veitingarekstur þeirra
hjóna. Foreldrar hennar voru hjónin
Gunnar Jóhannesson, f. 7.6. 1904, d.
14.2. 1965, prestur í Stóra-Núps-
prestakalli, og Áslaug Gunnlaugs-
dóttir, f. 2.8. 1900, d. 25.8. 1980, kenn-
ari. Þau voru búsett á Skarði í
Gnúpverjahreppi. Björn og Svava
gengu í hjónaband 13.7. 1963 í Stóra-
Núpskirkju. Faðir brúðarinnar, séra
Gunnar, gaf þau saman.
Börn Björns og Svövu eru 1) Gunn-
ar Björnsson, f. 28.1. 1963, rekur veit-
ingastaðinn Ingólfsskála, giftur
Kristínu Hauksdóttur, f. 1963, bók-
ara, þau eru búsett í Garðabæ. Börn
þeirra eru Andri Már, f. 1982, hag-
fræðingur, eiginkona: Erla Björk Sig-
Björn Kristjánsson, fyrrverandi vörubílstjóri og veitingamaður – 80 ára
Í Ingólfsskála Björn, Svana og fjölskylda um jólin 2018.
Eini núlifandi landnámsmaðurinn
Veitingamaðurinn
Björn í fullum skrúða.
40 ára Hjördís er
Skagamaður, fædd og
uppalin á Akranesi.
Hún er ferðamála-
fræðingur að mennt
frá Háskólanum á Hól-
um og er verkefna-
stjóri á velferðarsviði
Akraneskaupstaðar. Hjördís er formaður
kirkjunefndar Akraneskirkju.
Maki: Guðjón Hólm Gunnarsson, f. 1976,
þjónustufulltrúi á verkstæðismóttöku BL.
Börn: Daníel, f. 2009, Kristófer, f. 2013,
og Garðar, f. 2015. Stjúpsonur er Friðjón
Ingi, f. 2006.
Foreldrar: Garðar Norðdahl, f. 1955,
deildarstjóri stærðfræðideildar Fjöl-
brautaskóla Vesturlands, og Ingibjörg
Jóna Gestsdóttir, f. 1957, þjóðfræðingur.
Þau eru búsett á Akranesi.
Hjördís Garðarsdóttir
Til hamingju með daginn
Akranes Hrafndís Þóra Arnarsdóttir
fæddist 11. desember 2018 kl. 18.47 á
Akranesi. Hún vó 3.778 g og var 52,5
cm löng. Foreldrar Hrafndísar eru
Harpa Lind Gylfadóttir og Arnar
Harðarson.
Nýr borgari