Morgunblaðið - 18.10.2019, Síða 31
DÆGRADVÖL 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019
B Æ J A R L I N D 1 4 - 1 6 2 0 1 K Ó P AV O G U R S Í M I 5 5 3 7 1 0 0 L I N A N . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
urðardóttir ljósmóðir og börn þeirra
eru Bjarki Freyr, Viktor Breki og
Sunneva Björk; Svava Björk, f. 1989,
hárgreiðslukona og flugfreyja, sam-
býlismaður: Hrannar Guðmundsson
sölumaður og dóttir þeirra er Emma
Björk; Lena Dögg, f. 2001, fram-
haldsskólanemi; 2) Hrafnkell Björns-
son, f. 7.10. 1969, giftur Sigurlínu
Garðarsdóttur, f.1974, íþróttakenn-
ara, þau eru búsett á Selfossi. Börn
þeirra eru Alexander, f. 2001, fram-
haldsskólanemi, og Díana, f. 2008; 3)
Áslaug Björnsdóttir, f. 21.11. 1974,
hjúkrunarfræðingur, gift Gunnari
Svan Einarssyni, f. 1972, þyrluflug-
manni og véltæknifræðingi, þau eru
búsett í Ölfusi. Börn þeirra eru
Kristín Lára, f. 1998, háskólanemi,
Kolbrún Rósa, f. 2003, framhalds-
skólanemi og Tómas Örn, f. 2010.
Systkini Björns eru Kristinn Jón,
f. 5.8. 1941, fyrrverandi skólastjóri á
Eiðum, búsettur í Garðabæ; Ásgeir
Jónas, f. 17.12. 1943, leigubílstjóri í
Reykjavík; Loftveig Kristín, f. 27.6.
1947, vann á leikskóla, búsett í
Reykjavík; Gestur f. 15.5. 1952, vél-
stjóri, búsettur í Reykjavík; Friðrik,
f. 16.1 1959, bifreiðarstjóri, búsettur
á Selfossi.
Foreldrar Björns voru hjónin
Kristján Eysteinsson, f. 29.7. 1910, d.
16.2. 1967, verkamaður í Reykjavík,
síðar bóndi á Hjarðarbóli í Ölfusi, og
Halldóra Þórðardóttir, f. 10.6. 1918
d. 21.1. 1994, húsmóðir í Reykjavík
og á Hjarðarbóli í Ölfusi. Seinni mað-
ur Halldóru var Ólafur Guðmunds-
son, bóndi í Stóra-Saurbæ í Ölfusi.
Björn Kristjánsson
Halldóra Jóhanna Loftsdóttir
húsfreyja og ljósmóðir, f. á
Hallsstöðum á Fellsströnd
Guðmundur Helgason
bóndi og búfræðingur á
Brúarfossi í Hraunhr. og Ytri-
Knarrartungu í Breiðuvíkurhr.
Loftveig Kristín Guðmundsdóttir
húsfreyja í Eskiholti í Borgarfi rði,
síðar í Meltungu í Kópavogi
Halldóra Þórðardóttir
húsfreyja í Reykjavík og á Hjarðarbóli
Þórður Oddsson
bóndi í Eskiholti í Stafholtstungum
Guðfi nna Þóra Þórðardóttir
húsfreyja í Eskiholti
Oddur Jónsson
bóndi í Eskiholti
Kristín Eysteinsdóttir húsfreyja í Snóksdal
Rósa Þórðardóttir vann í miðasölu í Nýja bíói
Svanborg Oddsdóttir húsfreyja í
Grafarkoti í Stafholtstungum
Oddur Magnússon
verkamaður á Akranesi
Magnús Oddsson
fv. ferðamálastjóri
Loftveig Kristín
Kristjánsdóttir vann
á leikskóla
Halldóra
Björnsdóttir
leikkona
Ásgeir Jónas
Kristjánsson
leigubílstjóri í Rvík
Linda
Ásgeirsdóttir
leikkona
Dagbjört Jóhannesdóttir
húsfreyja og ljósmóðir, f. í
Blönduhlíð í Hörðudal
Oddur Sólmundsson
bóndi á Giljalandi í Haukadal
Jóhanna Oddsdóttir
húsfreyja á Breiðabólstað á Skógar-
strönd
Björn Finnsson bóndi á Tungu í Hörðudal
Eysteinn Finnsson
bóndi á Breiðabólstað á Skógarströnd
Guðbjörg Gísladóttir
húsfreyja á Skallhóli
Finnur Einarsson
bóndi á Skallhóli í Miðdölum
Úr frændgarði Björns Kristjánssonar
Kristján Eysteinsson
verkamaður í Reykjavík og
bóndi á Hjarðarbóli í Ölfusi
„VIÐ FYLGJUMST LÍKA MEÐ GANGI MÁLA
Á MÖRKUÐUM Á NIÐURLEIÐ.”
„ÉG ÞARF EKKI VIÐBÓTARTRYGGINGU. ÉG
KEM OG SKILA ÞESSU EF ÞAÐ BILAR.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að tryggja þeim
örugga skemmtun.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞEF
ÞEF
ÞEF LEPJ
LEPJ
LEPJ
LEPJ
RURR … GOTT STÖFF,
EKKI SATT?
HEPPNI EDDI, HEFURÐU
HEYRT ÞAÐ AÐ EITT EPLI Á
DAG FORÐI MÖNNUM FRÁ
LÆKNISHEIMSÓKNUM?
NEI, EN ÉG ER
ÞAKKLÁTUR FYRIR
UPPLÝSINGARNAR!
SJÁLFUR ER ÉG MEÐ OFNÆMI
FYRIR JARÐARBERJUM!
Hundur veit húsbóndans vilja“stendur þar. Og nú er það
helst í fréttum, að hjá Tollgæslunni
hafi hundar verið sérþjálfaðir til
þess að finna peninga. Bjarni Sig-
tryggsson yrkir á Boðnarmiði:
Þótt vakni snemma vantar gull í mund
og víða þjaka blankheit hverja stund.
En kannski í bráð
er klókt það ráð
og kjarabót að hafa svona hund.
Sigurlín Hermannsdóttir yrkir í
tilefni af því að Arion banki sendir
frá sér afkomuviðvörun og Frétta-
blaðið segir frá því að erfðabreytt-
ar bankarottur séu á leið til lands-
ins.
Í bönkum er víða brotinn pottur
um björgun á rekstri þingað
og erfðabreyttar bankarottur
bráðlega koma hingað.
Nýlega kom fram í fréttum að
fjórðungur íbúa Skútustaðahrepps
væri útlendingar, – Magnús Hall-
dórsson yrkir:
Ástand þetta virðist vont,
og veruleikinn þýðir,
að þá gæti minnkað mont,
sem Mývetninga prýðir.
Friðrik Dagur Arnarson svarar:
Það er öllum ósköp hollt
við erlent fólk sér blanda.
En montið er að mestu stolt
og mun í litlum vanda.
Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson
er stoltur langafi og yrkir:
Afkomandi ljósið leit,
lítil fögur hnáta.
Yndislegra ekkert veit,
af því vil ég státa.
„Svona fer ellin með mann“, seg-
ir Ármann Þorgrímsson:
Með aldrinum víst orðinn meyr
ekkert vit því kemst á blað,
bitlausum þó beiti geir
bregður engum neitt við það.
Sólarlagið er fallegt fyrir norð-
an, – Ármann yrkir:
Sést við hafsbrún sólarglóð,
sveipar þoka fjallaskörð.
Kveldar að og kyrrðin hljóð
kyssir gamla Eyjafjörð.
Magnús Halldórsson stundar
morgunleikfimi og tekur hana al-
varlega:
Loftið þarf að leika’um il,
létt með tánum róta.
því sem næst og þar um bil.
þverhönd milli fóta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af hundum, afkomuvið-
vörun og bankarottum