Morgunblaðið - 18.10.2019, Page 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019
VINNINGASKRÁ
24. útdráttur 17. október 2019
890 11011 19341 29049 39680 52501 63021 71114
909 11416 19347 29061 40271 52586 63057 71294
1227 11553 19508 29116 41199 52709 63611 71428
1626 12101 19612 29211 41373 52952 63878 71698
1709 12371 19904 29504 41713 53036 64315 71997
2133 12445 20003 30111 42057 53425 64456 72659
2137 12813 21066 30622 42529 53591 64479 72707
2263 12839 21107 30635 43155 53980 65365 73105
2809 13158 21525 31189 43468 54053 65379 73623
2918 13276 21528 31630 43758 54189 65473 73773
3136 13288 21560 31640 44259 54457 65489 74201
4090 13383 21626 32013 44337 54720 65490 74682
4142 13534 21654 32091 45315 54808 66413 75101
4505 13841 21662 32103 46126 55505 66876 75136
4525 14122 21740 32498 46745 55880 66966 75208
5720 14386 21835 32999 46847 55974 67433 75270
5880 14658 22229 33184 47063 56011 67457 75348
6721 14782 22493 33202 47414 56260 67846 75594
6737 15247 22850 33785 47802 56430 68024 75623
6751 15325 22863 33794 48400 56775 68223 75989
6849 15416 22983 33868 48983 57301 68496 76232
6963 15482 23065 33937 49195 57367 68586 76526
7010 15989 23087 34619 49384 57405 68899 76775
7367 16545 23394 34790 49387 57578 68939 76822
7579 17517 23506 34864 49488 58079 69123 76951
7610 17521 23772 35148 50043 58133 69411 77172
8354 17609 23816 35324 50069 58221 69591 77605
8401 17655 24225 35805 50088 59370 69658 78132
8510 17712 25225 36212 50249 60041 70093 78984
8969 17816 25302 36546 50669 61052 70179 79147
9670 17871 25599 36712 50703 61225 70425 79229
9704 18789 25956 36990 51012 61280 70558
9894 18890 26423 37641 51042 61431 70643
10221 19052 27931 38712 51495 61831 70702
10329 19186 28578 38864 51624 61967 70928
10388 19218 28644 38934 51681 62388 70929
10522 19295 28707 39426 51807 62992 70984
356 12727 21422 29339 45347 55337 66741 74352
426 13670 21800 31203 47163 55692 67628 75217
1640 13977 22518 31403 47211 55989 68012 75224
2280 15363 23061 32196 49509 56369 68688 76194
3222 15492 25454 35926 50661 56427 69408 76283
3447 15706 25612 38372 50795 56892 69436 76476
6625 16899 25849 40292 50906 58362 70028 79017
7049 17272 27050 41431 51718 61144 70047 79562
9535 18606 27127 41512 52178 64017 70496 79720
9761 19515 27189 41574 52940 64509 72081
10828 19523 27764 42726 53116 64665 72860
11403 20537 28315 44616 53155 64897 73262
12257 21132 29199 44671 54262 65792 74126
Næstu útdrættir fara fram 24. & 31. okt 2019
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
7820 8143 15613 19155 77909
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
4188 26496 36483 49473 57444 73196
12960 27351 38514 50310 57747 73655
20366 33558 48403 53005 66020 73751
23319 36222 48996 53024 67821 76335
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
2 3 6 8 2
Sýningin Gerir lífið skemmtilegra verður opnuð í
Galleríi Vest, Hagamel 67, kl. 17 í dag. Að tengjast
listsköpun hefur gert lífið skemmtilegra, að mati
hjónanna Þóreyjar Eyþórsdóttur og Kristjáns
Baldurssonar sem reka galleríið og þaðan er titill-
inn kominn. Á sýningunni má sjá verk eftir 27
listamenn, innlenda og erlenda og eru þau öll í
eigu hjónanna sem hafa keypt þau á sl. 50 árum.
Sýningin verður opin kl. 15-18 fram til 1. nóvem-
ber en lokað er á mánudögum og þriðjudögum.
Gerir lífið skemmtilegra
Verk á sýningunni.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Leikritið Stórskáldið eftir Björn Leó Brynjarsson verð-
ur frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld kl.
20. Björn Leó var leikskáld Borgarleikhússins leikárið
2017-18 og er verkið afrakstur þeirrar vinnu hans.
Leikstjóri uppfærslunnar er Pétur Ármannsson og
leikarar í verkinu eru þrír, þau Unnur Ösp Stefánsdóttir,
Jóhann Sigurðarson og Hilmar Guðjónsson.
„Þetta er í grunninn klassískt fjöl-
skyldudrama sem er útfært á svolítið
nútímalegan og skemmtilegan hátt,“
segir Björn Leó, beðinn um að segja
frá verkinu. „Þetta fjallar um nóbels-
verðlaunahafa í bókmenntum sem er
búinn að vera í felum í Amazon-
regnskóginum í nokkurn tíma. Dóttir
hans er heimildarmyndagerðarkona
og er þangað komin með unnusta sín-
um sem er kvikmyndatökumaður.
Þau ætla að gera heimildarmynd um
rithöfundinn sem dóttirin hefur ekki
séð frá því hann yfirgaf hana og móður hennar þegar
hún var unglingur. Hún er bæði komin þangað til að gera
heimildarmynd og komast til botns í því hvað gerðist í
fortíðinni og komast að sannleikanum.“
Leitin að sannleikanum
Björn Leó segir verkið því fjalla um leitina að sann-
leikanum og líka miðlun. „Hann er rithöfundur og hún
kvikmyndagerðarkona og þessir miðlar flækjast svolítið
fyrir í atburðarásinni og minni persónanna líka,“ útskýr-
ir leikskáldið. Spurður á hvaða tíma verkið eigi sér stað
segir Björn Leó það í raun opið þótt um nútímaverk sé
að ræða.
En hvers vegna nóbelsskáld? Er höfundur að vísa í
Halldór Laxness á einhvern hátt?
„Þegar ég var að skrifa þetta var Halldór Laxness
aldrei fyrirmynd en af því það er bara eitt nóbelsskáld á
Íslandi myndar maður þá tengingu ósjálfrátt. Í mínum
huga er þetta bara rithöfundur sem hefur náð ofboðslega
langt. En þeir eiga kannski margt sameiginlegt, eins og
kannski allir listamenn eða höfundar sem hafa sett fram-
ann í forgang,“ svarar Björn Leó og ítrekar að nóbels-
skáldið í verkinu, Benedikt, sé ekki Halldór.
Gamandrama
– Af lýsingunni að dæma gæti þetta bæði verið gaman-
verk og drama. Hvort er það?
„Hvort tveggja. Þetta er gamandrama og ég vonast til
þess að áhorfendur bæði hlæi og gráti.“
– Af hverju gerist þetta í Amazon-regnskóginum?
„Þetta er svolítið heimur Tinna eða Svals og Vals.
Verkið fjallar um sögur, narratívu og tilbúning, sviðsetn-
ingu og sögusviðið endurspeglar það. Þetta er svolítið
tilbúinn Amazon-heimur og eins langt frá Íslandi og ég
gat hugsað mér. Því varð Amazon fyrir valinu,“ segir
Björn Leó. Leikmynd Ilmar Stefánsdóttur sé fyrir vikið
dálítið plastleg og vísi í að verkið eigi sér stað í skáld-
sagnaheimi.
Lífið í grunninn kaótískt
– Á vef Borgarleikhússins er varpað fram spurningum
sem virka heimspekilegar á mann, spurningum um hvað
sé sannleikur og hvort hægt sé að vita það og miðla hon-
um. Ertu að vinna með einhverjar heimspekikenningar í
verkinu?
„Nei, þetta snýst meira um stórar spurningar sem við
erum að fást við núna á póstmódernískum tímum þar
sem verið er að vefengja sannleikann. Við sjáum þetta
skýrt í allri umræðu um falsfréttir og heimildarmyndir
eru að ganga í gegnum endurskoðun. Útgangspunktur
margra þeirra er að engin niðurstaða fæst í lok myndar.
Sannleikurinn er svolítið á reiki,“ svarar Björn Leó.
Um þetta fjalli verkið meðal annars og að fólk noti
skáldskap til að skilja lífið, hvort heldur er bókmenntir
eða heimildarmyndir, einhvers konar frásagnarform.
Þessi frásagnarform miða að því að fá einhverja glóru í
lífið sem er í grunninn kaótískt.
Gamlir félagar
Björn Leó hefur fylgst með æfingum og segir þær
ganga vel. Leikstjórinn, Pétur, hefur verið með honum í
sköpunarferlinu, sem leikskáldið segir bæði dýrmætt og
sérstakt. „Við erum gamlir félagar, vorum saman í
Listaháskólanum og það er algjör lúxus í rauninni að
leikskáld og leikstjóri fái að vinna svona náið saman,“
segir Björn Leó. Þeir Pétur hafi m.a. þróað verkið áfram
með leikarana þrjá í huga.
Pétur hefur sýnt eitt verk áður í atvinnuleikhúsi,
Frama í Tjarnarbíói árið 2015. Hann er spurður hvernig
honum líði nú, nokkrum dögum fyrir frumsýningu, en
viðtalið fór fram þriðjudaginn 15. október. „Ég er rosa-
lega spenntur og þakklátur fyrir hvað ferlið hefur gengið
vel, þetta er góður hópur sem vinnur vel saman. Nú er
bara eftirvænting.“
Miðlar og minni
Dóttir nóbelsskálds gerir heimildarmynd í Amazon-
regnskóginum „Í grunninn klassískt fjölskyldudrama“
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Stórskáld Jóhann Sigurðarson í hlutverki skáldsins.
Björn Leó
Brynjarsson
Silja Hauksdóttir frumsýndi nýjustu kvikmynd sína,
Agnesi Joy, í Háskólabíói í fyrrakvöld. Myndin er gam-
andrama og segir af Rannveigu sem upplifir kulnun í
starfi og einkalífi og á auk þess í stöðugum útistöðum
við dóttur sína, hina uppreisnargjörnu Agnesi. Nýr ná-
granni, leikarinn Hreinn, hefur þau áhrif á fjölskyld-
una að hún neyðist til að endurmeta hlutina og horfast í
augu við glænýjar áskoranir. Á myndinni má sjá Silju
lengst til hægri með nokkrum af leikurum myndar-
innar og aðstandendum.
Morgunblaðið/Hari
Agnes Joy frumsýnd í Háskólabíói