Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.10.2019, Blaðsíða 2
Um hvað fjallar Gósenlandið?
Hún fjallar um íslenska matarhefð og matarsögu. Titillinn Gósenlandið
kemur frá því að ég spurði í opnum hópi á fésbók hvað væri besta
nafnið yfir allsnægtahornið og út kom þetta nafn. Það á við Ísland þar
sem við höfum verið nokkuð glúrin við að lifa af á þessu landi þrátt fyrir
kulda.
Hvers vegna heimildarmynd um matarsögu Íslendinga?
Ég gerði mynd um bátasögu á Norðurlöndum og svo um íslensku
búningana og mér finnst gaman að gera þrennu. Ég tók eftir því að
enginn hafði gert kvikmynd um þetta efni. Þetta er mikið á döfinni
núna, aðallega vegna breytinga. Ég reyni að spanna alla söguna og
hafa yfirsýn.
Hverjir koma fram í myndinni?
Ég var óskaplega heppin. Mér var vísað á konu sem hafði alist upp við
hlóðir, sem hét Elín Methúsalemsdóttir en hún lést í sumar. Hún sætt-
ist á, með smá eftirgangsmunum frá mér, að veita viðtal sem tók tvo
daga. Hún ætlaði nú aldrei aftur að Bustarfelli, þar sem hún ólst upp og
var burstabær, en samt kom hún að eigin frumkvæði. Elín og fjölskylda
hennar eru kjarni myndarinnar en út frá hennar frásögn fór ég um allt
land og talaði við fólk sem vann við framleiðslu og framreiðslu matar og
eldamennsku. Til að veita aðeins meiri yfirsýn er líka talað við fræðimenn.
Ég held að þessi mynd tali til margra sem búa á þessu landi.
Er eitthvað annað á döfinni hjá þér?
Já, mig langar að búa til kvikmynd um skógrækt, skógeyðingu, landnýtingu,
landeyðingu, söguna, landið og íbúa þess. Það er mikil yfirsýn í þessu. Að vissu
leyti er þetta framhald og ég er aftur þar að hugsa um hvernig við búum í
þessu landi. Það er mjög gaman að búa til heimildarmyndir vegna þess að
maður tekur á einhverju þema og einhverju efni og reynir að fara svolítið djúpt
þó maður hafi þessa yfirsýn.
ÁSDÍS THORODDSEN
SITUR FYRIR SVÖRUM
Glúrin við
að lifa af
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.10. 2019
Langar þig í ný gleraugu!
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Framundan er langur og strangur vetur hjá stærsta sértrúarsöfnuðiþjóðarinnar – áhangendum hins fornfræga enska knattspyrnufélagsLiverpool. Ekki svo að skilja að liðið þeirra sé svo slakt að þeir þurfi að
skammast sín fyrir það. Það leikur þvert á móti við hvurn sinn fingur, eins og
kýrnar forðum, og þurfti ekki nema átta umferðir til að ná átta stiga forskoti
á toppi úrvalsdeildarinnar. Og fátt getur komið í veg fyrir að Liverpool verði
enskur meistari næsta vor; í fyrsta skipti í þrjátíu ár. Nei, Þuríður, þetta er
ekki innsláttarvilla. Það eru þrjátíu ár frá því að Alan Hansen reif Englands-
bikarinn upp seinastur Liverpoolmanna.
En bíddu nú hægur, lagsi? Hvers vegna verður veturinn þá svona langur
og strangur ef Liverpool ber ægishjálm yfir aðrar sparksveitir þar syðra? Jú,
einmitt þess vegna. Púlarar, eins og
söfnuðurinn kallar sig, munu horfa
örvæntingarfullir yfir öxlina á sér í
allan vetur og fram á vor í stöðugum
ótta um að eitthvert annað lið elti þá
upp. Hálsrígstöflur munu að
óbreyttu seljast eins og heitar
lummur á næstu mánuðum. Þegar
ég segi eitthvert annað lið þá meina
ég auðvitað Manchester City. Önnur
lið eru þess ekki umkomin að eyði-
leggja samkvæmið fyrir Púlurunum.
Og býsna langt frá því raunar.
Frá sjónarhóli Púlarans eru átta
stig bara eins og halinn á nautinu,
þegar borða á það í heilu lagi. Ég
veit ekki um neinn Púlara (og þekki
ég þá fjölmarga og þykir vænt um
þá flesta) sem kemur til með að verða í rónni fyrr en munurinn á Liverpool
og City verður orðinn a.m.k. 25 stig. Þangað til mun hjartað slá á sexföldum
hraða með tilheyrandi meltingartruflunum. Ekki bætir úr skák að City er
réttnefnt ólíkindatól; villir á sér heimildir og þykist ekkert geta núna en er
alveg eins líklegt til að skipta í túrbógírinn á hverri stundu eins og á síðustu
leiktíð – og skilja Liverpool eftir. Þannig að treystið mér, látið ykkur ekki
dreyma um að spyrja Púlarana ykkar á komandi vikum hvort þetta sé ekki
örugglega komið! Reyndi það við utanríkisráðherra þjóðarinnar (einn harð-
asta Púlara landsins, kæmi ekki á óvart að hann svæfi í Liverpool-nátt-
fötum), þegar ég átti fund með honum fyrir um ári þegar keimlík staða var
uppi í deildinni. Hann hvessti augun á mig eins og ég hefði verið að stofna til
milliríkjadeilu og mælti af fullum þunga: „Ekki reyna þetta!“
Það er sem ég segi, framundan er langur og strangur vetur hjá stærsta
sértrúarsöfnuði þjóðarinnar.
Púl framundan
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’ Ég veit ekki um neinnPúlara (og þekki ég þáfjölmarga og þykir væntum þá flesta) sem kemur
til með að verða í rónni
fyrr en munurinn á
Liverpool og City verður
orðinn a.m.k. 25 stig.
Matthildur Björk
Guðmundsdóttir
Það er svo margt, eiginlega allt.
SPURNING
DAGSINS
Hverju
slærð þú
helst á
frest?
Ragnar Ingi Aðalsteinsson
Stundum kemur fyrir að skokkið fer
á frest þegar mikið er að gera.
Guðný Arndal
Ég fresta jólagjöfunum.
Hjalti Jón Þórðarson
Ætli það sé ekki að taka til.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ásdís Thoroddsen er leikstjóri nýrrar heimildamyndar um mataröflun, matseld og matar-
sögu Íslendinga, sem frumsýnd verður 18. október í Bíó Paradís og kallast Gósenlandið.