Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.10.2019, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.10. 2019
LÍFSSTÍLL
Muna að kynna sig, það eru ekki
allir með númerin okkar vistuð
undir nafni. Setjum ekki fólk í
vandræðalega stöðu með því að
segja: Veistu ekki hver þetta er?
Þekkirðu mig ekki?
Tökum hljóðið af þegar þannig
stendur á. Ennþá heyrast símar
gjalla við jarðarfarir, á tónleikum
eða í leikhúsi. Það á ekki að ger-
ast. Skiljum símann eftir heima
eða í bílnum þegar við getum
alls ekki svarað.
Látum ekki símana trufla dagleg
störf, kynlífið, matartíma og fjöl-
skyldusamveru.
Bjóðumst til að taka skilaboð ef
við svörum í síma annarra.
Upptökur og myndatökur á tón-
leikum eða öðrum samkomum
geta verið hvimleiðar fyrir aðra
gesti. Ljósið truflar líka þegar
fólk er að kíkja í símana. Stund-
um má bara njóta augnabliksins!
Fæstir geta gert vel tvennt í
einu. Látum því vera að vinna
húsverkin, vera í tölvunni, keyra
bílinn eða annað á meðan við
spjöllum í síma.
Kjams og óæskileg hljóð heyr-
ast vel á „hinum endanum“.
Sleppum því að borða eða
drekka þegar við erum í sím-
anum. Auðvitað eru á þessu
undantekningar; góður kaffisopi
yfir símaspjalli.
Forðumst að segja í miðju sím-
tali: „Ó! það er einhver að
hringja í mig, verð að hætta!“
Svolítið eins og viðmælandinn
sé lítt spennandi. Það má alltaf
hringja til baka.
Utan heimilis og bíls er ágætt að
sleppa því að hafa kveikt á hátal-
aranum í símanum.
Á veitingastöðum tökum við
hljóðið af og höfum símann í vas-
anum eða töskunni. Aldrei á
borðinu. Höldum myndatökum
og netfærslum í lágmarki. Ef við
eigum von á mikilvægu símtali,
tilkynnum við það þegar sest er
til borðs, höfum símann á titr-
ara, biðjumst afsökunar þegar
hann hringir og göngum afsíðis.
Tölum aldrei í síma við matar-
borð.
Viðskiptafundir sími aldrei sjáan-
legur. Best er að taka hljóðið af
áður en komið er á staðinn og
hafa símann í vasanum eða tösk-
unni.
Í opnum vinnurýmum tökum
hljóðið af.
Heilsum fallega og kveðjum fal-
lega. Þó að fólk í kvikmyndum
kveðji ekki þá er það ekki til eft-
irbreytni.
Þrífum símana reglulega með
sótthreinsandi efni.
Símakurteisi
Símakurteisi tekur stöðugum breytingum, það sem var viðeigandi um
síðustu aldamót er orðið breytt. Flestir símar nútímans eru miklu meira
en símar, myndavélar og tölvur sem fara vel í hendi. Það er þó eitt sem
ekki breytist og gott er að minna sig á: Við látum vera að hringja eftir
klukkan tíu á kvöldin og fyrir klukkan níu að morgni – nema mikið liggi
við.
Stundum stendur þannig á að við getum ekki svarað og fáum einhvern
annan til að svara. Þá þarf viðkomandi að segja strax að hann sé að
svara fyrir eiganda símans; Halló! þetta er hjá Herdísi Völu! Þetta á líka
við þegar börn svara í síma fullorðinna. Á árum áður, áður en síma-
númer, nafn og mynd af viðkomandi birtist, þótti fallegt að svara með
nafni; Halló! Þetta er Bjarni Skúli! Þetta á ekki eins við í nútímanum þar
sem við sjáum oftast á skjánum hver er að hringja.
Hvað skal gera?
Albert Eiríksson
albert.eiriksson@gmail.com
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Hringdu í mig – viltu hringja í mig? Ann-
ars er eitthvað fallegt þegar maður er í
spjalli á netinu og fær skilaboðin: Get ég
hringt í þig? Öðru máli gegnir um það
þegar einhver sendir sms eða skilaboð á
netinu: HRINGDU Í MIG! eða VILTU
HRINGJA Í MIG? Það er nú ekkert sér-
staklega fallegt. Ef við þurfum að ná í
einhvern þá hringjum við sjálf. Það
stendur auðvitað misvel á hjá fólki og
stundum eru aðstæður þannig að ekki
er hægt að svara. Þá hringir viðkomandi
til baka þegar betur stendur á.
Sleppum: VILTU HRINGJA Í MIG? og
líka HRINGDU Í MIG!
Nokkrir símapunktar
AFP
Svansvottuð
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Leiðandi í litum
Almött veggmálning*
Dýpri litir – dásamleg áferð
*Litur: Krickelin Dimblå