Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.10.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.10.2019, Blaðsíða 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.10. 2019 Niðurstaða er vonandi að fástí hin skelfilegu Guð-mundar- og Geirfinnsmál þótt enn sé ekki ljóst hverjar lyktir verða. Það er komið undir Alþingi, sem fer með löggjafar- og fjárveit- ingavald, en í hendur þess er nú komið þingmál frá hendi forsætis- ráðherra. Einnig er sú leið opin að dómstólar kveði upp endanlegan dóm um skaðabætur. Hver hefur verið gangurinn í þessu máli? Árum saman var það látið danka og öllum tilraunum til endur- upptöku hafnað. Á árinu 2011 var hins vegar ákveðið af hálfu fram- kvæmdavaldsins að láta fara fram athugun á málinu og skyldi sjónum beint sérstaklega að framgöngu ákæruvaldsins og lögreglu. Með öðrum orðum, rannsókn skyldi fara fram á rannsókninni. Niðurstaða þeirrar ítarlegu vinnu sem í var ráðist var afdráttarlaus. Fram komnar játningar voru taldar óáreiðanlegar, knúnar fram með harðræði og ofbeldi. Næsta skref var að breyta lög- um, styrkja heimildir til endur- upptöku allra þessara mála og tryggja réttindi aðstandenda þann- ig að unnt væri að taka málin fyrir að nýju í Hæstarétti. Að þessu af- loknu hófst endurupptökunefnd handa og komst að þeirri nið- urstöðu að einmitt þetta bæri að gera. Þótti mér vera rangt af nefndinni að undanskilja einn ein- stakling að þessu leyti þar sem þar var einnig um að ræða harðræði og þvingaðan og af þeim sökum falsk- an framburð. Málið fór fyrir Hæstarétt, sem komst að sömu niðurstöðu og end- urupptökunefnd og starfshópur inn- anríkisráðuneytisins um að játn- ingar hefðu verið ómarktækar og því hvorki neinar forsendur fyrir hinni löngu einangrunarvist, sem í sjálfu sér var mannréttindabrot, né áralangri fangelsisvist. Þegar sýknudómur Hæstaréttar lá fyrir hófst næsti áfangi, þ.e. að komast að raun um hvernig ríkið gæti bætt fyrir þau mannréttinda- brot sem framin voru, án þess þó að það verði nokkru sinni hægt að fullu. Skipuð var nefnd sem ætlað var að reyna að ná sáttum við alla aðila sem hlut áttu að máli, þ.m.t. aðstandendur hinna sakfelldu, og í kjölfar þess yrði frumvarp lagt fram á Alþingi sem byggði á nið- urstöðum þessarar tilraunar. Um þetta var víðtæk sátt. Sem kunnugt er náðust hins vegar ekki ásætt- anlegar niðurstöður. Skipaður ríkislögmaður í málinu, sem greinilega taldi stefna í að mál- ið færi fyrir dóm, hófst nú handa við að skrifa greinargerð því til undirbúnings. Þar kvað við herská- an tón. Við svo búið ákvað forsætisráð- herra að koma málinu til Alþingis en með öðrum áherslum en þeim sem var að finna í stríðsskjali skip- aðs ríkislögmanns. Í þingmáli for- sætisráðherra er kveðið á um ábyrgð ríkisins og bótaskyldu. Í framvindu þessa máls hefur all- ar götur frá því að lagt var upp í þessa vegferð legið ákveðinn þráður sem mér hefur þótt Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra augljóslega hafa viljað halda vel um svo að sanngjörn niðurstaða mætti nást. Í þeim anda var talað fyrir þingmál- inu á Alþingi. En nú byrjar ballið. Þingmenn sem vilja geta gagnrýnt án ábyrgð- ar fyllast skelfingu við að fá málið í sínar hendur, segja óeðlilegt að ræða það í þingsal. Gott og vel. Til stóð að ræða það í þingnefnd en þingmönnum er vitaskuld í sjálfs- vald sett hvað þeir segja í þingsal. Sumir telja að málið hefði átt að fara beint til dómstóla og láta dóm- ara kveða upp úr um niðurstöðu. Sú leið er opin og fær og ekki af nein- um tekin. Einnig getur þingið tekið ákvörðun um breytingar á bóta- greiðslum. Ef engin verður niður- staða Alþingis – önnur en að lög- festa bótaskylduna sem þingið hlýtur að gera – eða niðurstaða Al- þingis er talin óásættanleg er ein- boðið að fá dómsúrlausn. Eftir stendur í mínum huga þessi spurning: Eftir að málið fór í þann farveg sem viðtæk sátt var um, þ.e. að reyna að ljúka því með sáttar- gjörð við alla viðkomandi aðila, sem síðan ekki gekk eftir, hvað gat Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra þá annað gert en nákvæm- lega það sem hún gerði, nefnilega að leita eftir afstöðu Alþingis til málsins og fá skýr svör? Svari hver fyrir sig. Rökrétt viðbrögð Katrínar Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’Við svo búið ákvaðforsætisráðherra aðkoma málinu til Alþingisen með öðrum áherslum en þeim sem var að finna í stríðsskjali skipaðs ríkislögmanns. Í þing- máli forsætisráðherra er kveðið á um ábyrgð rík- isins og bótaskyldu. Árni Sæberg Kristin Sigfríður Garðarsdóttir Ólöf Erla Bjarnadóttir Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Obergljót Veislan á heima í Hörpu Rými sem henta fyrir hverskyns tilefni Nánar á harpa.is/veislur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.