Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.10.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.10.2019, Blaðsíða 19
13.10. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 mannastaður. Í dag er íbúatalan hins vegar núll. Á 19. öld var Two Guns þekktur áningarstaður áður en farið var yfir Djöflagil, Canyon Diablo, fyrst á hestvögnum, síðar á bifreið- um. Seinna komu aðrar samgöngu- leiðir til og Two Guns tók að glata að- dráttarafli sínu. Frægastur er bærinn þó líklega fyrir Apache- dauðahellinn, The Apache Death Cave, þar sem 42 Apache-indíánar mættu örlögum sínum árið 1878 eftir grimmilegt uppgjör við fjandmenn sína, Navajo-ættbálkinn. Eftir næturgistingu við Miklagljúf- ur, Grand Canyon, sem einnig kostar lítinn krók út frá 66 en er þess virði, tekur eyðimörkin í Arizona við og Svörtufjöll eða Black Mountains. Hit- inn er 40 gráður, sólskinið miskunn- arlaust. Eftir að því er virðist enda- lausan akstur um hlykkjótta fjallvegi á 40 kílómetra hraða kemur gull- námubærinn Oatman í ljós, íbúafjöldi 90. Tíminn hefur nánast staðið kyrr í Oatman, pósthúsið er það sama og það var árið 1890 og að ganga niður aðalgötu þessa fámenna bæjar er eins og að stíga 130 ár aftur í tímann. Á tíunda degi frá því Chicago var kvödd stóðum við undir skiltinu sem markar endalok Route 66 í vesturátt á bryggjunni í Santa Monica í Kali- forníu. Tíu dagar er stuttur tími til að aka Route 66, auðveldlega má taka mánuð í þessa leið, dvelja víðar og skoða meira. Oft er talað um 14 daga sem eins konar miðgildi og spurt hvort ferðalangar ætli sér að aka 66 á lengri eða skemmri tíma en það. Fer eftir smekk og ferðaeðli hvers og eins, en hvað sem því líður er óhætt að mæla með þeirri upplifun að aka The Historic Route 66 einu sinni á ævinni eða svo. Við hittum nokkra sem höfðu fetað þessa slóð töluvert oftar en það. Þeim, sem þyrstir í frekari sögur af förinni, skal bent á Ferðavef mbl.is þar sem ítarlegri útgáfa í þremur þátt- um hefur göngu sína á mánudag. Ljósmyndir/Atli Steinn Guðmundsson Safn til sögu 66 Í smábænum Elk í Vestur-Oklahoma er að finna safn til heiðurs Route 66, The National Route 66 Museum. Gestum býðst þar að ganga gegnum svæði sem hvert og eitt stendur fyrir eitt þeirra átta ríkja Bandaríkjanna sem leiðin liggur um. Hluti safnsins er helgaður samgöngum á ýmsum tímum og er fjöldi gamalla bifreiða hluti safnkosts- ins auk vélhjóla og ævafornrar slökkviliðsbifreiðar. Einn af séra Guðmundarkyninu Ekki þótti stætt á öðru en að velja hæfilega baldinn fola í svo verðugt verkefni sem akstur Route 66 er óneitanlega. Þennan rúmlega 300 hestafla Ford Mustang sóttum við á Logan-flugvöllinn í Boston og skiluðum rúmum þremur vikum og 7.382 kílómetrum síðar á flugvöllinn í San Francisco. Alex, afgreiðslumaður Alamo- bílaleigunnar Boston-megin, baðst fyrst afsökunar á þeirri misritun að ætlunin væri að skila bifreiðinni í San Francisco en var fljótt sannfærður um að sá væri helber ásetningur viðskiptavina hans. Til minningar um 168 fórnarlömb Á því sem var grunnflötur Alfred P. Murrah-bygging- arinnar í Oklahoma má nú heimsækja minnismerkið The Field of Empty Chairs sem lætur fáa ósnortna, einn stóll úr bronsi og gleri fyrir hvert fórnarlamb McVeigh, með ígröfnu nafni hins eða hinnar látnu, og stillt upp í raðir miðað við á hvaða hæð viðkomandi sat. Einnig eru stólarnir staðsettir eftir því hvernig höggbylgja áburðarsprengjunnar skall á byggingunni og eru því flestir stólarnir saman komnir næst þeim stað þar sem bíllinn stóð, þar sem flestir létust. Nítján börn urðu fórnarlömb þessa grimmilega ódæðis, þar af þrjú ófædd í móðurkviði. Við loftsteinsgíginn í Arizona, Meteor Crater Nat- ural Landmark, um 60 kílómetra austur af Flagstaff. Gígur þessi myndaðist við árekstur fyrir um 50.000 ár- um og býður upp á stórbrotna útsýn, vel þess virði að taka stuttan útúrdúr frá þjóðvegi 40. Greinarhöfundar leggja í hann frá Malibu í Kaliforníu daginn eftir að akstri Route 66 lauk í Santa Monica og að loknum endurnærandi svefni í Malibu. Þaðan var ekið sem leið lá norður California State Route 1, öðru nafni Pacific Coast Highway, til San Francisco, en það er önnur saga.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.