Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.10.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.10.2019, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.10. 2019 LÍFSSTÍLL Hvað heillar þig við tísku? Svo margt. Þú getur verið hvaða karakter sem er og klætt þig nákvæm- lega eins og þú vilt, það má allt. Vanalega sér maður líka fólk í tískubrans- anum fara vel út fyrir þægindarammann, sem mér finnst svo útrúlega flott. Það er algjör óþarfi að fylgja þessu venjulega samfélagsmunstri. Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó við fatakaup? Algjörlega, ég kaupi mér ekki flíkur nema ég viti að ég eigi eftir að nota þær mikið. Ég hugsa virkilega út í flíkina sem ég er að kaupa mér. Það eru þrjú skref sem ég nota alltaf: Hversu mikið notagildi er í flíkinni, hvernig eru gæðin og svo tek ég krumputestið mitt á flíkina. Þá semsagt krumpa ég bút af flíkinni saman þrisvar sinn- um í röð og ef efnið er hrikalega krumpað eftir þá kaupi ég ekki flíkina. Þó svo að ég dýrki hana veit ég að ég á ekki eftir að nota hana því ég er rosalega lítið fyrir krumpaðar flíkur. Áttu þér uppáhaldsflík? Já, ég á alveg nokkrar en það sem stendur upp úr er sett sem ég keypti af henni Anitu Hirlekar. Hún er ein af mínum uppáhaldshönnuðum hérna á Íslandi og mér finnst hönnun hennar einstök, abstrakt og mjög listræn. Ertu með einhver ráð fyrir fólk sem vill tolla í tísk- unni í vetur? Lykillinn að því að setja saman flotta samsetningu um hávetur að mínu mati er til dæmis að eiga gott undirlag til að vera í undir töff peysum og svo flottri kápu yfir. Þetta er spurning um að klæðast nokkrum lögum frekar en vera í stóru vetrarkápunni. Svo er gott að eiga góða skó með smáhæl úr þykku og góðu leðri. Áttu þér einhverja tískufyrir- mynd? Ég dýrka hana Önnu Wintour endalaust. Hún er svo mikil ofurkona. Ég hef fylgst með henni í mörg ár og verð æ heillaðri af henni. Svo finnst mér John Galliano algjör meistari. Hann hugsar mikið út fyrir boxið í sinni hönnun og mér finnst alltaf gaman að fylgjast með honum. Hver hafa verið bestu kaupin þín? Marc Jacobs-veski sem ég keypti í KronKron fyrir átta árum virkar enn mjög vel, er tímalaust og hentar við öll tilefni. Einnig er ég nýlega búin að fá mér klikkað sett, bómullarpeysu og -buxur, frá INKLAW sem ég hef ekki farið úr síðan ég fékk mér það. Hverju er mest af í fataskápnum? Jökkum og kápum. Svo á ég endalaust af bolum og gallabuxum. Hver er þín uppáhaldsárstíð varðandi tísku og hvers vegna? Haustið. Ég er ekkert mikil sumarmanneskja, elska að sjá hausttískuna því þar er fólk að byrja að „layer-a“ eða klæðast nokkrum lögum af fatnaði. Hvað er nauðsynlegt í snyrtitöskuna? Ég er alltaf með sér-kit tilbúð ef ég skyldi fara eitt- hvað út. Í því er góður hyljari frá Fenty Beauty það er góð þekja í þeim sem endist mjög vel; sólarpúður frá Guerlain í litnum Lingerie 05 Dark Beige og Prep + Prime Transparent finishing powder sem er gott að nota ef ég byrja að glansa yfir kvöldið. Þá dúmpa ég litlu í einu yfir T-svæðið. Þetta ætti allt að geta bjargað manni til að gefa smá upplyftingu yfir daginn eða kvöldið. Hvaða tískutímaritum, bloggum eða áhrifavöldum fylgist þú með? Ég er rosalega lítið fyrir að fylgjast með áhrifavöldum en ég fylgist mjög mikið með tískuhúsum, förðunarmerkjum, stílistum og förðunarfræðingum. Ég kaupi líka tímaritin Vogue og ELLE inn á milli til að fá innblástur fyrir tökur. Sigrún segir haustið sína uppáhalds árstíð þegar kemur að tísku. Ljósmynd/Birta Rán Björgvinsdóttir Allt má þegar tíska er annars vegar Sigrún Ásta Jörgensen er sjálfstætt starfandi stílisti, förðunarfræðingur og búningahönnuður. Sigrún er ávallt flott til fara enda með gríðarlegan áhuga á tísku. Sunnudagsblað Morgunblaðsins fékk Sigrúnu Ástu til að segja frá stílnum sínum og deila með lesendum nokkrum skotheldum tískuráðum fyrir veturinn. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Bómullarpeysa og -buxur frá INKLAW. Leðurskór frá danska hönnunarhúsinu Billibi. Anita Hirlekar er einn af uppáhalds- hönnuðum Sig- rúnar á Íslandi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.