Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.10.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.10.2019, Blaðsíða 10
Tveggja mánaða sjálfskipað listamannafríhjá Bjarneyju, kölluð Baddý, breyttistsnarlega þegar fimm litlir hvolpar fengu hjá henni heimili í borginni Chania á eyjunni Krít. Baddý, sem er grafískur hönnuður og jóga- og núvitundarkennari, hugðist breyta til og sinna listinni á þessari fallegu grísku eyju. Blaðamaður sló á þráðinn til að heyra þessa hugljúfu en jafnframt óvenjulegu hundasögu. Dýrahjálp á Krít Það fer ekki allt eins og planað en það segir Baddý vera það skemmtilega við lífið. „Upphaflegi tilgangur ferðarinnar var að fara til Krítar og einbeita mér að hönnuninni,“ segir Baddý sem hafði hugsað sér að að eyða tveimur mánuðum í sköpun. Hún leigði sér íbúð í Chania sem hún segir vera afar menn- ingarlega og fallega borg. „Mig langaði að taka mér smá frí frá jógakennslu, skipta um um- hverfi, hitta nýtt fólk og fá nýjar og ferskar hugmyndir í listinni. Svo elska ég að læra ný tungumál þannig að ég fór beint í grískunám þegar ég kom út. Ég þekkti engan hér,“ segir hún og hlær. „Plönin fóru svo aðeins að breytast. Ég hef alltaf verið dýravinur og heima var ég að vinna sem sjálfboðaliði í Kattholti um hríð en ég er mikil kattakona og ættleiddi kött frá Kattholti í fyrra. Ég fór að skoða hvernig aðstæður væru á Krít varðandi dýrin og las mér til og kom mér í samband við fólk sem vinnur við dýra- hjálp hér. Ég komst fljótt í samband við þýska konu sem heitir Silke, en hún hefur unnið í dýravernd hér í þrjátíu ár. Þetta er mjög póli- tískt mál hér, en stjórnvöld á Grikklandi leggja lítið til dýrahjálpar. Ferðamenn sem koma til Krítar, og Grikklands almennt, enda oft á að eyða öllu fríinu sínu í að hjálpa dýrum. Sér- staklega fólk frá Norðurlöndum, en því finnst ástandið ekki ásættanlegt og endar það oft á að taka dýr inn til sín á hótelherbergin,“ segir hún. Baddý segir mikið um heimilislaus dýr á Krít sem ráfa um göturnar. „Það er enn dálítið gamaldags hugsun hér hvað varðar dýr; hvaða tilgang þau hafa og hvernig á að koma fram við þau.“ Fundust við hraðbraut Þegar Baddý hafði verið í viku á Krít var hún stödd með Silke þegar síminn hringir. „Það kom símtal frá yndislegu túristapari, Nuki og Yiad, sem höfðu fundið fimm hvolpa. Þeir höfðu verið skildir eftir við hraðbraut og parið tók þá inn á hótelherbergið sitt. Svo þurftu þau að fara heim og hringdu því í Silke. Hvolparnir voru þá um fimm vikna gamlir og alls ekki illa haldnir,“ segir hún. „Líklega hafa þeir bara verið einn dag á götunni. En það er algengt að fólk losi sig við dýr á þennan hátt en hér eru dýrin ekki gelt og því verður offjölgun.“ Nú voru góð ráð dýr og ákvað Baddý að taka hvolpana heim til sín. „Það var þá sem öll mín plön breyttust,“ segir hún og skellihlær. „Þá tók við að ormahreinsa þá og byrja að ala þá upp. Ég þurfti að lesa mér til um hvern- ig á að ala upp hunda,“ segir Baddý sem aldrei áður hafði átt hund, hvað þá fimm. „Þeir eru labrador-blendingar og rosalega sætir. Þrír hvítir og tveir svartir og hver með sinn karakter.“ Baddý segist hafa verið heppin að leigusal- inn tók vel í að fimm hundar flyttu inn. „Ég var með laust herbergi sem þeir fengu, og svo hófst gamanið,“ segir hún og hlær. Ferðu út að labba með fimm hunda í bandi? „Nei, ég fer út með einn í einu. Stundum tvo og tvo. Það tekur ágætis tíma. Þeir eru bara nýfarnir að fara út og fara ekki langt,“ segir Baddý sem átt hefur hundana síðan 1. júlí. „Þeir eru búnir að tífaldast í stærð síðan ég fékk þá.“ Langar að halda þeim öllum Baddý segir uppeldið ganga vel. „Þessir hundar eru klárir, ljúfir og góðir. Þetta er rosa mikil vinna og mikill kostnaður en það gefur mér ofsalega mikið. Ég er í raun ánægð að ég vissi ekki út í hvað ég væri að fara, það er hversu mikil vinna þetta væri. Ég er mikið að lesa bækur og skoða kennsluvídeó en þetta eru allt leiðbeiningar hvernig á að ala upp einn hund. Það er dálítið annað þegar þú ert með fimm. Þeir læra alveg svakalega fljótt en þetta krefst gífurlegrar þolinmæði. Ég hef alveg frá byrjun gefið mér tíma til að verja tíma með hverjum og einum. Þá myndar maður tengsl og þá gengur allt betur. Svo bara spila ég þetta eftir hendinni; ef það er satt sem margir segja, þá er þetta eins og að vera með fimm lítil börn,“ segir hún og hlær. „Ég þarf bara að passa að halda geðheils- unni.“ Baddý segir parið sem fann hvolpana hafa nefnt þá eftir fallegum grískum stöðum eða borgum og heita þeir Kissi, Balos, Chania, Kala og Funi. „Þeir lærðu nöfnin sína alveg á fyrstu vikunum. Ég kalla þá The Fabulous Five,“ segir Baddý. Varstu búin að ákveða í byrjun hvað þú ætl- aðir að gera við þá? „Það hafa komið dagar sem ég hugsa alvar- lega um að halda þeim öllum. En það er önnur saga,“ segir hún og hlær. „En fyrst var ég bara að hugsa um að bjarga þeim og svo að finna góðar fjölskyldur. Svo ákvað ég að ég vildi ekki að þeir yrðu áfram á Grikklandi því það er að mörgu leyti ekki góður staður fyrir dýr. Ég hef fengið mikinn stuðning í þessu verkefni frá vinum og vandamönnum heima, og nokkrir vinir eru áhugasamir um að taka að sér einn,“ segir Baddý sem hyggst koma með þá heim til Íslands. Stífar reglur á Íslandi Það er ekki létt verk að koma fimm hundum frá Krít til Íslands en Baddý er staðráðin í að láta það verða að veruleika. „Ein aðalástæðan fyrir því að ég vilji flytja þá alla heim er sú að þeir eru mjög samrýndir og mér finnst gott að vita af þeim á sama stað og á góðum heimilum. Þá eru þeir alla vega í sama landi og eiga möguleika á að hittast og ég get heimsótt þá,“ segir hún. „Þeir verða að vera orðnir sjö mánaða gaml- ir til að mega að koma inn í landið og verð ég því að bíða. Ég stefni á flytja þá heim fyrir jól,“ segir hún. „Ég fór að kynna mér ferlið að koma dýr- unum heim. Fólki er gert allt of erfitt fyrir að framkvæma það,“ segir Baddý. „Það eru óþarflega stífar reglur á Íslandi miðað við annars staðar í Evrópu. Í Bretlandi voru reglurnar einna strangastar og þar þurftu dýr að vera sex mánuði í einangrun, en reglunum var breytt í Evrópu 2004, og allt ferlið einfaldað. Það er kominn tími á að gera það sama heima. Það er í skoðun að stytta tím- ann í einangrun niður í tvær vikur fyrir hunda sem myndi breyta heilmiklu bæði fyrir fólk og dýr, en á Íslandi þurfa hundar að vera í ein- angrun í einn mánuð,“ segir Baddý. Milljónir heimilislausra dýra Kostnaður við að flytja hundana fimm til Ís- lands mun koma til með að vera tæpar tvær milljónir. Inni í þeirri tölu er ferðakostnaður, sérstök búr, einangrun, öll umsóknargjöld og sprautur. „Ég er að setja af stað söfnun á Karolina Fund og þar mun fólk geta valið um að gefa ýmsar upphæðir. Í staðinn fær fólk listaverk en ég er með listamenn sem ætla að gefa vinn- una sína. Svo mun ég leggja til jógakort á lægra verði en þau kosta,“ segir Baddý, en þess má geta að hún rekur Reykjavík Yoga. „Svo er þetta hluti af stærra verkefni sem ég og samferðamaður minn, José Vasquéz, höfum gengið lengi með í maganum. Það heitir Be the change. Það verður stökkpallur fyrir fólk sem vill láta gott af sér leiða í gegnum alls kyns góðgerðarmál. Þetta hvolpaverkefni á að vera innblástur fyrir komandi verkefni og erum við að hanna alls kyns vörur, eins og töskur og bolla, með áletruninni Be the change. Fólk fær því alls kyns fallega hluti í staðinn fyrir sín framlög,“ segir hún. „Svo erum við að setja í loftið vefsíðu þar sem fólk getur skoðað hvolpana. Þá getur fólk lesið um hvern og einn hvolp og mögulega finnst einhver sem vill taka einn að sér,“ segir Baddý og bendir á að fólk getur nálgast allar upplýsingar um verkefnið og hvolpana á www.brightsite.is/be-the-change og styrkt verkefnið á Karolina Fund undir: The Fabulo- us Five to Iceland. Ertu búin að gera upp við þig hvaða hvolp þú ætlar að eiga? „Já, ég er búin að velja hana Kissi. Svo sjáum við bara hvernig henni semur við Lynx, köttinn minn,“ segir Baddý og er greinilegt að erfitt var að velja á milli hvolpanna. „Það eru milljónir dýra um allan heim sem þurfa heimili og ég veit að það er margt gott fólk heima á Íslandi sem myndi gjarna ætt- leiða dýr sem hefur verið yfirgefið. En þegar reglurnar um að flytja dýr heim eru svona strangar heftir það fólk í því að hjálpa þessum dýrum.“ Við förum að slá botninn í símtalið yfir hafið en blaðamaður spyr að lokum hvort hún nái að vinna eitthvað í listinni, orðin „fimmbura- mamma“. Hún hlær. „Ég vinn þegar þeir sofa.“ Bjargaði fimm hvolpum á Krít Lífið tók sannarlega óvænta stefnu hjá Bjarneyju Hinriks- dóttur en hún er nú stödd á Krít með fimm hvolpa. Kissi, Balos, Chania, Kala og Funi hafa fangað hjarta hennar en hún hyggst koma þeim öllum heim til Íslands fyrir jól. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Bjarney Friðriksdóttir fór til Krítar í listamannafrí en endaði á að bjarga fimm hvolpum. Hún vill koma þeim til Íslands fyrir jól. Ljósmynd/José Vásquez ’Ég hef alveg frá byrjun gefiðmér tíma til að verja tíma meðhverjum og einum. Þá myndarmaður tengsl og þá gengur allt betur. Svo bara spila ég þetta eftir hendinni; ef það er satt sem marg- ir segja, þá er þetta eins og að vera með fimm lítil börn. Það er fátt sætara en hvolpar. Baddý stóðst ekki mátið og tók að sér þennan og systkini hans. Ljósmynd/José Vásquez VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.10. 2019

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.