Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.10.2019, Side 8
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.10. 2019
Niðurstaða er vonandi að fástí hin skelfilegu Guð-mundar- og Geirfinnsmál
þótt enn sé ekki ljóst hverjar lyktir
verða. Það er komið undir Alþingi,
sem fer með löggjafar- og fjárveit-
ingavald, en í hendur þess er nú
komið þingmál frá hendi forsætis-
ráðherra. Einnig er sú leið opin að
dómstólar kveði upp endanlegan
dóm um skaðabætur.
Hver hefur verið gangurinn í
þessu máli?
Árum saman var það látið danka
og öllum tilraunum til endur-
upptöku hafnað. Á árinu 2011 var
hins vegar ákveðið af hálfu fram-
kvæmdavaldsins að láta fara fram
athugun á málinu og skyldi sjónum
beint sérstaklega að framgöngu
ákæruvaldsins og lögreglu. Með
öðrum orðum, rannsókn skyldi fara
fram á rannsókninni.
Niðurstaða þeirrar ítarlegu vinnu
sem í var ráðist var afdráttarlaus.
Fram komnar játningar voru taldar
óáreiðanlegar, knúnar fram með
harðræði og ofbeldi.
Næsta skref var að breyta lög-
um, styrkja heimildir til endur-
upptöku allra þessara mála og
tryggja réttindi aðstandenda þann-
ig að unnt væri að taka málin fyrir
að nýju í Hæstarétti. Að þessu af-
loknu hófst endurupptökunefnd
handa og komst að þeirri nið-
urstöðu að einmitt þetta bæri að
gera. Þótti mér vera rangt af
nefndinni að undanskilja einn ein-
stakling að þessu leyti þar sem þar
var einnig um að ræða harðræði og
þvingaðan og af þeim sökum falsk-
an framburð.
Málið fór fyrir Hæstarétt, sem
komst að sömu niðurstöðu og end-
urupptökunefnd og starfshópur inn-
anríkisráðuneytisins um að játn-
ingar hefðu verið ómarktækar og
því hvorki neinar forsendur fyrir
hinni löngu einangrunarvist, sem í
sjálfu sér var mannréttindabrot, né
áralangri fangelsisvist.
Þegar sýknudómur Hæstaréttar
lá fyrir hófst næsti áfangi, þ.e. að
komast að raun um hvernig ríkið
gæti bætt fyrir þau mannréttinda-
brot sem framin voru, án þess þó að
það verði nokkru sinni hægt að
fullu. Skipuð var nefnd sem ætlað
var að reyna að ná sáttum við alla
aðila sem hlut áttu að máli, þ.m.t.
aðstandendur hinna sakfelldu, og í
kjölfar þess yrði frumvarp lagt
fram á Alþingi sem byggði á nið-
urstöðum þessarar tilraunar. Um
þetta var víðtæk sátt. Sem kunnugt
er náðust hins vegar ekki ásætt-
anlegar niðurstöður.
Skipaður ríkislögmaður í málinu,
sem greinilega taldi stefna í að mál-
ið færi fyrir dóm, hófst nú handa
við að skrifa greinargerð því til
undirbúnings. Þar kvað við herská-
an tón.
Við svo búið ákvað forsætisráð-
herra að koma málinu til Alþingis
en með öðrum áherslum en þeim
sem var að finna í stríðsskjali skip-
aðs ríkislögmanns. Í þingmáli for-
sætisráðherra er kveðið á um
ábyrgð ríkisins og bótaskyldu.
Í framvindu þessa máls hefur all-
ar götur frá því að lagt var upp í
þessa vegferð legið ákveðinn þráður
sem mér hefur þótt Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra augljóslega
hafa viljað halda vel um svo að
sanngjörn niðurstaða mætti nást. Í
þeim anda var talað fyrir þingmál-
inu á Alþingi.
En nú byrjar ballið. Þingmenn
sem vilja geta gagnrýnt án ábyrgð-
ar fyllast skelfingu við að fá málið í
sínar hendur, segja óeðlilegt að
ræða það í þingsal. Gott og vel. Til
stóð að ræða það í þingnefnd en
þingmönnum er vitaskuld í sjálfs-
vald sett hvað þeir segja í þingsal.
Sumir telja að málið hefði átt að
fara beint til dómstóla og láta dóm-
ara kveða upp úr um niðurstöðu. Sú
leið er opin og fær og ekki af nein-
um tekin. Einnig getur þingið tekið
ákvörðun um breytingar á bóta-
greiðslum. Ef engin verður niður-
staða Alþingis – önnur en að lög-
festa bótaskylduna sem þingið
hlýtur að gera – eða niðurstaða Al-
þingis er talin óásættanleg er ein-
boðið að fá dómsúrlausn.
Eftir stendur í mínum huga þessi
spurning: Eftir að málið fór í þann
farveg sem viðtæk sátt var um, þ.e.
að reyna að ljúka því með sáttar-
gjörð við alla viðkomandi aðila, sem
síðan ekki gekk eftir, hvað gat
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra þá annað gert en nákvæm-
lega það sem hún gerði, nefnilega
að leita eftir afstöðu Alþingis til
málsins og fá skýr svör?
Svari hver fyrir sig.
Rökrétt viðbrögð Katrínar
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur
Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
’Við svo búið ákvaðforsætisráðherra aðkoma málinu til Alþingisen með öðrum áherslum
en þeim sem var að finna
í stríðsskjali skipaðs
ríkislögmanns. Í þing-
máli forsætisráðherra er
kveðið á um ábyrgð rík-
isins og bótaskyldu.
Árni Sæberg
Kristin Sigfríður Garðarsdóttir
Ólöf Erla Bjarnadóttir
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Obergljót
Veislan
á heima
í Hörpu
Rými sem henta fyrir hverskyns tilefni
Nánar á harpa.is/veislur