Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.10.2019, Side 32
SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 2019
Þrátt fyrir að söngvarinn og gítarleikarinn James Het-
field hafi ritað sig inn í áfengismeðferð undir lok síðasta
mánaðar sitja gömlu rokktröllin í Metallica ekki auðum
höndum og fyrir helgina var kunngjört að málmbandið
síunga yrði aðalnúmerið á fimm vinsælum rokkhátíðum í
Bandaríkjunum á næsta ári. Um er að ræða Epicenter í
Charlotte, Norður-Karólínu, Welcome To Rockville í
Daytona Beach, Flórída, Sonic Temple Art + Music
Festival í Columbus, Ohio, Louder Than Life í Lou-
isville, Kentucky og Aftershock í Sacramento, Kali-
forníu. Fjórmenningarnir láta sér ekki nægja að spila
einu sinni á hverri hátíð, heldur munu troða upp í tví-
gang, á föstudagskvöldi og sunnudagskvöldi, og verður
efnisskráin ekki sú sama bæði kvöldin.
„Þetta verður stuð og áskorun en við þrífumst á rugli
eins og þessu,“ sagði Lars Ulrich trommuleikari á blaða-
mannafundi í höfuðstöðvum Metallica í San Rafael, Kali-
forníu. Spurður út í lagalistann sagði hann of snemmt að
ljóstra honum upp en menn væru allt eins líklegir til að
dusta rykið af efni sem ekki hefur heyrst lengi.
James Hetfield verð-
ur vonandi kominn í
toppform fyrir hátíð-
irnar á næsta ári.
AFP
Í öndvegi á fimm hátíðum
Metallica verður aðalnúmerið á hvorki fleiri né færri en fimm rokkhátíðum í
Bandaríkjunum á næsta ári og mun leika í tvígang á hverri fyrir sig.
„Marilyn Monroe hefur verið mjög umdeild kona,
ekki sízt eftir að hún giftist bandaríska rithöfund-
inum Arthur Miller. Ýmsir hafa viljað halda því
fram, að hún sé einungis lítilsverður og heimskur
kvenmaður, sem leggi metnað sinn í að láta birta
af sér sem flestar myndir – misjafnlega mikið
klæddri, en aðrir eru aftur á móti þeirrar skoð-
unar, að margt gott sé um hana að segja – og hún
sé í rauninni ekki sú, sem hún virðist vera.“
Þessar áleitnu vangaveltur birtust í þættinum
„Utan úr heimi“ í Morgunblaðinu 11. október
1956.
„Það er ef til vill að bera í bakkafullan lækinn, að
gera Marilyn Monroe að umtalsefni hér, því að
hennar hefur verið mikið getið í íslenzkum blöð-
um,“ var haldið áfram. „Það er þó ekki að ástæðu-
lausu, að hennar er getið hér, því að fyrir skömmu
birtist viðtal við hana í danska blaðinu „Mandens
blad“ – og bera svör hennar þar þess vitni, að hér
er alls ekki um að ræða manngerð þá, er við
ímyndum okkur að einkenni Hollywood.“
Ekki er rými til að birta svörin í þessum dálki en
áhugasömum er bent á timarit.is.
GAMLA FRÉTTIN
Ekki allt sem sýnist?
Kvikmyndastjörnunnar vinsælu Marilyn Monroe
hafði mikið verið getið í íslenskum blöðum árið
1956. Var hún ekki sú sem hún virtist vera?
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Agnar Þórðarson
rithöfundur
Hlynur Hallsson
myndlistarmaður og safnstjóri
Guðmundur G. Þórarinsson
verkfræðingur
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
LOLLY
SVE FNSÓF I
Lolly er fáanlegur í
ljós- og dökkgráu
slitsterku áklæði.
Vönduð 18 cm þykk
heilsudýna í stærðinni
140 x 200 cm.
ÁT TU VON Á NÆTURGES TUM?
Svefnsófi er frábær lausn fyrir þá sem þurfa að gera
mikið úr litlu plássi. Hugmyndafræðin er ofureinföld;
sófi á daginn — rúm á nóttunni.
Hjá okkur færðu virkilega vandaða ítalska svefnsófa.
202.425 kr. AFMÆLISTILBOÐ
Fullt verð: 269.900 kr.
AFMÆLISAFSLÁTTUR
25%
GILDIR TIL 12. OKTÓBER
VERÖLD HVÍLDAR
BETRA BAK – LEGGUR GRUNN AÐ GÓÐUM DEGI
SERTA ROYALITY
Aukahlutur á
mynd: Höfuðgafl.
213.540 kr.
AFMÆLISTILBOÐ
Fullt verð: 284.720 kr.
VERÐDÆMI 25% AFSLÁTTUR
heilsurúm, 160 x 200 cm
dýna, comforbotn og fætur
Í Royality dýnunum frá Serta eru aðeins bestu fáanlegu hráefnin,
s.s. bómull og silki. Tvöfalt gormakerfi sem tryggir hámarks
stuðning við neðra bak og minni þrýsting á axla- og mjaðma-
svæði. Serta Royality er ein okkar allra vinsælasta dýna og fæst í
stærðunum: 160 x 200 / 180 x 200 / 180 x 210 / 192 x 203 cm.