Fréttablaðið - 14.02.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —3 8 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 1 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0
Ódýrasti rafbíllinn
260 km drægni
Nýr e-up!
Verð frá
2.990.000 kr
Varðskipið Þór kom til Reykjavíkur á miðvikudag og lagðist að bryggju við Miðbakka en ekki Faxagarð eins og
venja er vegna framkvæmda þar að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. Varð-
skipin hafi aðsetur á Miðbakka fram á vor. Þór fór áleiðis til Vestfjarða klukkan þrjú eftir hádegi í gær. Áhöfnin
á Tý verður svo til taks í Reykjavík vegna óveðursins ef á þarf að halda að sögn Ásgeirs. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
VEÐUR Rauðar veðurviðvaranir eru
í gildi fyrir hádegi í dag frá Horna-
firði í austri til Snæfellsness í vestri
vegna ofsaveðurs sem ganga á yfir
landið.
„Veðrið verður verst á sunnan-
verðu landinu milli klukkan sjö
og ellefu. Eftir hádegi færist það
svo norður yfir,“ sagði Birgir Örn
Höskuldsson, veðurfræðingur á
Veðurstofu Íslands, í gærkvöldi.
Að sögn Birgis má búast við
að vindstyrkurinn verði á bilinu
28 til 35 metrar á sekúndu milli
klukkan sex og ellefu. Allra verst
verði veðrið á Suðausturlandi því
þar fylgi mikil úrkoma. Þar geti
orðið mjög mikil hríð fyrir hádegi
samfara vindinum.
„Þetta er ofsaveður og fárviðri,“
sagði veðurfræðingurinn.
Draga fer úr vindi sunnan til á
landinu upp úr hádegi en að sama
skapi fer þá að bæta mjög mikið í
vind fyrir norðan. Þar má, að sögn
Birgis, líka búast við snjókomu á
sumum svæðum. Vindstyrkurinn
verði minni fyrir norðan. „En það
verður samt alveg bálhvasst,“ sagði
hann.
Almannavarnir lýstu í gær yfir
óvissustigi vegna veðurspárinnar
og skólahald leggst víða alfarið
af. Ýmsir vinnustaðir hafa einnig
ákveðið að starfsfólk þurfi ekki að
mæta til vinnu.
Allt f lug liggur niðri og búast má
við lokunum á þjóðvegum. – gar, aá
Þjóðin býr sig
undir fárviðri
víða um land
Gríðarlegt hvassviðri átti að skella á landinu nú
í nótt og snemma dags samkvæmt veðurspám.
Almannavarnir lýstu yfir óvissustigi og búist var
við miklum truflunum á samgöngum. Er öllu flugi
aflýst. Sama gildir um skólahald víða um land.
Víðtækar lokanir
n Samgöngur Allt innanlands-
og millilandaflug liggur niðri
og búist er við víðtækum
lokunum á þjóðvegum lands-
ins til hádegis í dag og jafnvel
fram eftir degi. Nánari upp-
lýsingar eru á vef Vegagerðar-
innar. Akstur Strætó liggur
niðri en nánari upplýsingar
verða gefnar á vef Strætó
milli klukkan 10 og 11.
n Skólahald Skólahald í leik- og
grunnskólum liggur niðri um
allt suðvestanvert landið og
á Norðvesturlandi. Skóla-
byggingum verður þó víða
haldið opnum til að tryggja
að yngstu börn starfsmanna
í neyðarþjónustu fái lág-
marksþjónustu. Ekki er þó
talið líklegt að veður trufli
skólahald á Akureyri að því er
fram kemur á vef bæjarins en
fólk þó beðið að fylgjast vel
með heimasíðum skólanna
og bæjarins.
n Aðrir skólar Kennsla í Há-
skóla Íslands og í Háskól-
anum í Reykjavík liggur niðri
en engin samræmd ákvörðun
hefur verið tekin um lokun
framhaldsskóla. Bent er á
heimasíður skólanna.
n Þjónusta Neyðarskýli fyrir
heimilislaust fólk verða opin
í allan dag en skerðing verður
á þjónustu heimahjúkrunar í
Reykjavík. Allir bókaðir tímar
hjá heilsugæslustöðvum á
höfuðborgarsvæðinu falla
niður, takmarkaðar opn-
anir verða á líkamsræktar-
stöðvum og sundlaugar á
höfuðborgarsvæðinu verða
opnaðar í fyrsta lagi klukkan
15. Þá liggur starfsemi Pósts-
ins niðri á þeim svæðum þar
sem rauð viðvörun er í gildi.
Takmörkuð starfsemi er hjá
dómstólum suðvestanlands
og hafa dómarar frestað
þinghaldi vegna veðurs.
Veðrið verður verst
á sunnanverðu
landinu milli klukkan sjö
og ellefu.
Birgir Örn Höskuldsson, veður-
fræðingur á Veðurstofu Íslands
Neyðarskýli fyrir
heimilislaust fólk verða
opin í allan dag.