Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.02.2020, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 14.02.2020, Qupperneq 6
Kínversk yfirvöld hafa lokað þeim borgum sem verst hafa orðið úti. Þar búa um 60 milljónir manna. Bloomberg á kosningafundi vestra Michael Bloomberg, kaupsýslumaður, milljarðamæringur og fyrrverandi borgarstjóri New York-borgar, er einn frambjóðenda í vali Demókrata- flokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Hann kemur seint inn í forvalsbaráttuna, en hefur sagst ætla að verja allt að milljarði Banda- ríkjadala af eigin fé í kosningabaráttuna, í auglýsingaherferðir í sjónvarpi og á samfélagsmiðlum á borð við Instagram og Facebook. NORDICPHOTOS/AFP ALÞJÓÐAMÁL Evrópusambandið hefur sett Cayman-eyjar á svartan lista yfir erlend skattaskjól. Fyrir á listanum eru til að mynda Óman, Fídjíeyjar og Vanúatú. Þetta er í fyrsta skipti sem yfirráðasvæði Bretlands hefur verið sett á þennan lista yfir skattaundanskot. Sendiherrar ESB-ríkjanna 27 tóku á miðvikudag ákvörðun um að bæta Cayman-eyjum á lista yfir níu ríki sem talin eru ósamvinnuþýð vegna skattaundanskota. Athygli vekur að aðgerðin kemur til nokkrum vikum eftir útgöngu Breta úr sambandinu. Talið er að ákvörðunin verði stað- fest í næstu viku. Cayman-eyjar og Bresku Jóm- frúaeyjar, sem eru breskt yfirráða- svæði, hafa verið á „gráum lista“ ESB um skattaundanskot. Yfirvöld aflandseyjanna hafa ekki brugðist við kvörtunum ESB. Cayman-eyjar fari því nú á „svartan lista“. ESB setti fyrst fram ríkjalista yfir skattaskjól árið 2017 í baráttu sinni fyrir auknu gagnsæi, gegn skatta- undanskotum og ósanngjarnri samkeppni. Aflandsríkin bjóða þjónustu til að vernda félög og fyrirtæki ann- arra ríkja fyrir afskiptum yfir- valda. Lönd á „svarta listanum“. eiga í erfiðleikum með að fá aðgang að fjármögnunaráætlunum ESB og evrópskum fyrirtækjum sem stunda viðskipti í þessum ríkjum er gert erfitt fyrir. Í tengslum við útgöngu Breta úr sambandinu hefur verið lögð áhersla á að Bretland hlíti sömu leikreglum um skattaviðmið og beitingu sameiginlegra reglna til baráttu gegn skattsvikum. – ds Cayman-eyjar á svartan lista ESB yfir skattaskjólÍTALÍA Efri deild ítalska þingsins hefur svipt Matteo Salvini friðhelgi. Salvini, sem er fyrrverandi innanrík- isráðherra Ítalíu og leiðtogi Norður- bandalagsins, verður leiddur fyrir rétt vegna ásakana um að hafa beitt ólöglegum aðgerðum gegn flótta- fólki og hælisleitendum í fyrra. Sem innanríkisráðherra mein- aði hann í fyrra 131 f lóttamanni landgöngu á Sikiley og lét þá hír- ast um borð í varðskipi við slæmar aðstæður í viku. Salvini vildi þrýsta á Evrópusambandsríki að taka við fólkinu. Salvini gæti átt yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi. Réttarhöldin gætu skapað honum, sem hægriöfga- manni, sterkan pólitískan vettvang enda hefur hann sagst vera „stoltur“ af þessum verkum sínum. – ds Matteo Salvini sviptur friðhelgi HEILBRIGÐISMÁL Mobile World Congress, stærstu snjallsímamessu Evrópu, hefur verið af lýst. Mess- una átti að halda í þessum mán- uði í Barcelona á Spáni en henni var af lýst í kjölfar þess að mörg stærstu fyrirtækin sem ætluðu að taka þátt, á borð við Deutsche Tele- kom, Nokia, Amazon og Vodafone, af boðuðu sig. Skýringarinnar er að leita í ótta manna við útbreiðslu kórónaveirunnar Covid-19. Snjallsímamessan hefur verið haldin árlega í Barcelona. Hún er einkum sótt af tækjaframleið- endum og f lutningsaðilum síma og fjölmiðla. Þar hefur verið kynnt allt það nýjasta í síma- og fjarskipta- tækni í heiminum. Í fyrra sóttu á þriðja þúsund fyrirtæki og meira en 100.000 gestir messuna, þar af allt að 6.000 frá Kína. Þetta þykir mikið áfall fyrir ferða- þjónustuna í Barcelona. Áætlað er að messan hafi skilað árlega um 70 milljörðum króna inn í hagkerfi borgarinnar og skapað um 14.000 tímabundin störf. – ds Hætt við símamessu EGYPTALAND Íbúafjöldi Egypta- lands fór yfir 100 milljónir í vikunni samkvæmt upplýsingum frá hag- stofu landsins. Íbúafjöldinn í landinu hefur þre- faldast frá árinu 1960 meðal ann- ars vegna umbóta í heilsugæslu og landbúnaði. Daglega fjölgar Egypt- um um 5.000 manns. Egyptaland er fjölmennasta ríki Austurlanda nær. Landið hefur verið að reyna að takast á við aukna fæðingartíðni. Sameinuðu þjóðirn- ar segja um 62 prósent landsmanna yngri en 29 ára. Forseti landsins, El-Sissi, hefur ítrekað talað fyrir Egypta um hætt- una við offjölgun og lýst henni sem „meðal stærstu ógn sem Egyptaland stendur frammi fyrir“. Ríkisstjórnin hefur hleypt af stokkunum metnaðarfullri fjöl- skylduáætlun sem kallast „tvö eru nóg“ til að vinna gegn hefðarhyggju og djúpstæðum menningarhefðum, þar sem getnaðarvarnir eru af skornum skammti og litið er á börn sem vinnuafl og ákveðna tryggingu fyrir þá sem eldri eru. – ds Egyptar orðnir 100 milljónir Cayman-eyjar eru notaðar til skattaundanskota. NORDICPHOTOS/GETTY Milljónir búa í höfuðborginni Kaíró. HEILBRIGÐISMÁL Kínversk yfirvöld tilkynntu í gær um mikla aukningu dauðsfalla og sýkinga af völdum kórónaveirunnar sem nýlega var nefnd Covid-19. Bjartsýnin, sem hafði gætt um að hægt hefði á fjölgun sýkingartilfella í Hubei-héraði þar sem veiran á upp- tök sín, reyndist mjög skammvinn. Heilbrigðisyfirvöld í Hubei-hér- aði eru farin að taka saman og birta upplýsingar um þau tilfelli sem eru greind klínískt, en ekki eingöngu þau sem eru greind með prófum. Með þessu hafa verið greind mun f leiri tilfelli og það hækkað opin- berar tölur yfir sýkta. Kínverskur almenningur hefur víða gagnrýnt embættismenn fyrir að hafa ekki brugðist nægilega hratt og afgerandi við útbreiðslu hins nýja víruss. Í upphafi fullvissuðu yfirvöld almenning um að lítil sem engin hætta væri á að veiran smit- aðist milli manna. Sú yfirlýsing var síðar dregin til baka. Íbúar Wuhan hafa gagnrýnt yfirfull sjúkrahús og skort á lækningavörum. Læknar sem deildu upplýsingum snemma um sýkingarhættu voru áminntir af lög- reglu fyrir að „dreifa sögusögnum“. Í fordæmalausri ráðstöfun til að hemja útbreiðslu sjúkdómsins hafa kínversk yfirvöld látið loka þeim borgum sem verst hafa orðið úti. Það þýðir að meira en 60 millj- ónir manna eru lokaðar inni. Í einu hverfi Shiyan-borgar í Hubei-héraði hefur verið lýst yfir „stríðsástandi“ sem hindrar íbúa í að yfirgefa eigið íbúðarhúsnæði í tvær vikur. Þar er hverfisnefndum ætlað að dreifa grunnnauðsynjum á ákveðnum tíma og á föstu verði, sem og að aðstoða íbúa við brýn lyfjakaup. Samkvæmt upplýsingum frá Johns Hopkins-háskóla í Banda- ríkjunum, sem tekur saman gögn frá öllum heiminum um veiruna, voru í gær um 1.400 látnir á heims- vísu af völdum veirunnar og 60 þús- und eru taldir smitaðir á heimsvísu. Ekkert bóluefni er til við veirunni og meðferð beinist að einkennum og ástandi sjúklinga. Kona á níræðisaldri lést í Japan eftir sjúkrahúslegu frá því snemma í febrúar. Þar með er þriðja dauðs- fallið staðfest utan meginlands Kína. Áður hafði verið sagt frá dauðsföllum á Filippseyjum og í Hong Kong. Faraldurinn breiðist hratt út og mörg ríki hafa sett á ferðatakmark- anir gesta frá Kína, en þar eru meira en 99 prósent tilkynntra tilfella. david@frettabladid.is Smituðum fjölgar gríðarlega Um 1.400 manns eru nú látnir af völdum Covid-19 kórónaveirunnar og alls eru 60 þúsund taldir smitaðir á heimsvísu. Ekkert bóluefni er til við veirunni og meðferð beinist að einkennum og ástandi sjúklinga. Starfsmenn Jinyintan spítala í Wuhan borg, Kína, í gær . NORDICPHOTOS/AFP 1 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.