Morgunblaðið - 08.11.2019, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 08.11.2019, Qupperneq 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2019 ✝ Marteinn Guð-jónsson fæddist í Reykjavík þann 27. desember 1936. Hann lést eftir skammvinn veik- indi á Hrafnistu í Hafnarfirði 19. október 2019. Foreldrar hans voru Guðjón Mar- teinsson, sjómaður, f. 7.11. 1903, d. 11.2. 1976, og Steinunn Guð- björg Árnadóttir, húsmóðir, f. 18.6. 1898, d. 11.7. 1990. Þau eignuðust þrjá syni en Þor- steinn, f. 1933, og Hafsteinn, f. 1934, létust báðir í frum- bernsku. Marteinn ólst upp í Vesturbæ Reykjavíkur. Hann lauk gagn- fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, lærði bifvélavirkj- un, lauk sveinsprófi og öðlaðist síðan meistararéttindi í þeirri grein og vann um tíma hjá Ræsi í Reykjavík. Hann lauk prófi í véltæknifræði frá Sønderborg Teknikum í Danmörku og prófi í uppeldis- og kennslufræði frá KHÍ. Marteinn starfaði hjá Ís- KR. Marteinn var mikill nátt- úruunnandi. Marteinn bjó í Hafnarfirði frá árinu 1984. Eftirlifandi eiginkona Mar- teins er Gerður Hannesdóttir, f. 1.2. 1941, frá Akureyri. Hún er dóttir Hannesar J. Magnús- sonar, f. 22.3. 1899, d. 18.2. 1972, rithöfundar og skóla- stjóra, og Sólveigar Einars- dóttur, f. 29.8. 1905, d. 11.5. 1976, kennara og húsmóður. Marteinn og Gerður giftu sig 7.7. 1962 og eignuðust þau þrjú börn: 1) Guðjón, f. 7.8. 1964, kvæntur Hafdísi Huld Stein- grímsdóttur, f. 12.2. 1969, þeirra börn eru Atli, f. 27.3. 1991, Sif, f. 24.9. 1995, Bjarki, f. 8.3. 1998, Bergur, f. 29.11. 2003, og Víðir, f. 19.1. 2005. 2) Halla Björk, f. 7.5. 1966, gift Pétri Heiðari Baldurssyni, f. 30.11. 1965, þeirra börn eru Birkir Þór, f. 6.4. 1997, og Marteinn, f. 3.6. 2005. 3) Hannes Jón, f. 27.11. 1974, kvæntur Hörpu Hrönn Grétarsdóttur, f. 1.11. 1974, þeirra börn eru Guðni, f. 6.8. 2005, Smári, f. 1.11. 2007, og Sólrún Eva, f. 12.3. 2010. Útför Marteins fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 8. nóvember 2019, klukkan 13. lenskum að- alverktökum á Keflavíkurflug- velli, vann við hönnun og eftirlit á hitaveitum á Sel- tjarnarnesi og í Hafnarfirði, hafði eftirlit með bygg- ingu á Búrfellslínu 2, Hrauneyjafoss- virkjun og byggða- línu frá Sigöldu um Jökuldali að Eldgjá og vann að verkefninu Tækniaðstoð við ís- lenskan skipasmíðaiðnað. Hann starfaði á verkfræðideild Flug- leiða og var kennari í stærð- fræði og faggreinum málmiðna við Iðnskólann í Hafnarfirði, hafði eftirlit með nýbyggingum hjá Byggingafulltrúanum í Reykjavík og var í seinni tíð til aðstoðar við yfirsetu prófa hjá Háskólanum í Reykjavík. Mar- teinn var formaður kjaradeildar Tæknifræðingafélags Íslands, sat í stjórn Skíðadeildar KR, í Skíðaráði Reykjavíkur og Skíðasambandi Íslands, var rit- ari og varaformaður í aðalstjórn KR og formaður hússtjórnar Þá er komið að kveðjustund, pabbi minn. Það var erfitt að horfa upp á veikindi þín undanfarið, en sem betur fer stóðu þau stutt yfir. Það er ekki lengra síðan en um páskana í fyrra að þið mamma voruð með okkur á skíðum í Blá- fjöllum. Þó að heilsunni hafi hrak- að eftir það hélduð þið mamma ykkar striki og fóruð í ótal göngu- túra, ekki síst sl. sumar í blíðunni í Hafnarfirði. Maður getur verið þakklátur fyrir að fá langa og góða ævi, heilsuhraustur með þeim sem manni þykir vænt um. Lífið er ekki eitt ferðalag, heldur mörg. Einstakt ferðalag með mömmu í 60 ár er örugglega mikilvægasta ferðalagið þitt. En þau voru fleiri. Þegar ég hugsa til baka koma upp í hugann minningar um alla útiveruna. Auðvitað Skálafellið, ég er þakklát fyrir að hafa fengið að alast upp að stórum hluta þar. Svo allar ferðirnar norður á Akureyri á sumrin að heimsækja fjölskyld- una hennar mömmu, oftast yfir Sprengisand, sjaldnast þjóðveg- inn. Allar tjaldútilegurnar og ferðalögin sem við fórum í bæði innanlands og erlendis. Þú elsk- aðir að vera á fjöllum, á skíðum eða gangandi. Hálendið var uppá- haldsstaður þinn og síðustu ár hefur verið gaman að fylgjast með ykkur mömmu, alltaf að skipu- leggja ferðalög um landið sem þér þykir svo vænt um og sem þú hefur ferðast svo mikið um. Á ferðalög- um ykkar bæði hérlendis og er- lendis hafið þið kynnst mörgu fólki. Þið hafið boðið alla velkomna til ykkar og verið boðin og búin að sýna fólki landið okkar. Allir vel- komnir hvort sem það voru erlend- ir vinir okkar eða aðrir sem þið hittuð á ferðalögum ykkar um landið. Í gegnum tíðina hefur verið gott að fá stuðning ykkar mömmu í öllu því sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Aldrei efasemdir, alltaf hvatning. Ekki einu sinni þegar mér datt í hug að fara á skíði um mitt sumar í Njarðvíkunum, þá náðir þú í skíðin út í bílskúr og rölt- ir með mér á skíðunum um gras- flötina fyrir utan húsið okkar. Þú varst afskaplega stoltur af öllum barnabörnunum, lagir þig fram við að fylgjast vel með þeim bæði í skólanum og í þeirra tóm- stundum. Sýndir þeim stuðning með því að mæta á tónleika og íþróttamót og ég veit að þú er ánægður með að öll kunna þau að renna sér á skíðum. Strákarnir mínir allir eins og þú sagðir alltaf, Heiðar, Birkir Þór og Marteinn, skila kveðju. Nú er komið að leiðarlokum og þú ert farinn í þitt síðasta ferðalag. Góða ferð, pabbi minn. Halla Björk Marteinsdóttir. Marteinn Guðjónsson, félagi okkar úr skíðadeild KR, er fallinn frá. Marteinn var einn þeirra góðu félaga sem tóku virkan þátt í bygg- ingu skíðaskála félagsins í Skála- felli. Marteinn var frábær skíða- maður og stundaði íþróttina af kappi alla æfi og smitaði börn sín og barnabörn af skíðabakteríunni. Hann var einn af þeim sem stóðu að fyrstu skíðalyftunni á svæðinu og hafði hugmyndir um að koma lyftu að norðan megin í fellinu. Marteinn var einstaklega já- kvæður og hress maður, góður fé- lagi og mikill útivistarmaður sem hreif menn með sér í ferðalög og til góðra verka. Þegar starfsheitið tæknifræð- ingur varð löggilt seint á sjötta áratug síðustu aldar var Marteinn einn af þeim fyrstu sem fóru til Danmerkur og lauk þaðan prófi í véltæknifræði. Hann starfaði m.a. víða á há- lendinu við virkjanir og línulagnir þeim tengdar. Við þau störf sam- einaði hann útivistaráhugann og tækniþekkinguna. Við þökkum fyrir vináttuna og samverustundirnar á liðnum ára- tugum og vottum eiginkonu og fjölskyldu Marteins okkar innileg- ustu samúð. Baldvin Ársælsson, Kolbeinn Gíslason, Kristján Birgir Kristjánsson. Kveðja frá Skíðadeild KR Í dag kveðjum við góðan félaga í Skíðadeild KR, Martein Guð- jónsson, sem við KR-ingar þekkt- um ávallt sem Matta. Matti gekk ungur til liðs við KR og fyrst fara sögur af honum í gamla KR-skál- anum við Grensgil í Skálafelli. Hann varð fljótt góður skíðamað- ur og keppti bæði innanlands sem á erlendri grundu. Gamli KR-skálinn brann árið 1955 og þá tóku við miklir fram- kvæmdatímar hjá skíðadeildinni. Nýr skíðaskáli var reistur á árun- um 1956-1959 og fyrsta varanlega skíðalyfta á Íslandi árið 1961. Var Matti ötull liðsmaður í sveit þeirra dugmiklu ofurhuga sem reistu þessi mannvirki af myndarskap sem eftir var tekið. Matti lærði bifvélavirkjun í Ræsi og hélt síðan utan til náms í véltæknifræði. Eftir heimkomuna tók hann upp þráðinn hjá skíða- deildinni og vílaði ekki fyrir sér að keyra sunnan úr Njarðvík með alla fjölskylduna. Síðar þegar upp- bygging austursvæðisins í Skála- felli hófst árið 1974 varð hann einnig þátttakandi í henni af lífi og sál. Auk starfa fyrir skíðadeildina tók Matti að sér störf fyrir aðal- stjórn KR. Hann var varaformað- ur félagsins um fjögurra ára skeið og síðan formaður hússtjórnar KR í Frostaskjóli um árabil. Fyrir störf sín var hann sæmdur gull- merki KR með lárviðarsveig. Seinni árin tók Matti fram gönguskíðin og mátti þá sjá hann snúast í kringum börn og barna- börn í keppni og leik í Skálafelli. Matti var mikill KR-ingur og bar hag félagsins ávallt fyrir brjósti. Hann var mjög fé- lagslyndur og alltaf jákvæður í allri umgengni. Hann hafði gaman af að kynnast fólki, þekkti alla með nafni og fylgdist alltaf vel með félögum deildarinnar á hvaða aldri sem þeir voru. Hans verður minnst með miklum söknuði. Við í Skíðadeild KR munum sakna Matta og að leiðarlokum þökkum við honum samfylgdina. Hann skilur eftir sig stórt skarð í hópnum og margar góðar minn- ingar. Við sendum Gerði, börnum hans og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja þau í sorg sinni. Far þú í friði góði félagi. Guðmundur Guðjónsson, formaður Skíðadeildar KR. Marteinn Guðjónsson ✝ Stefanía Péturs-dóttir fæddist í Reykjavík 24. jan- úar 1927. Hún lést 24. október 2019. Foreldrar hennar voru Þóra Sigurð- ardóttir frá Fá- skrúðsfirði fædd 1899, d. 1979, og Pétur Sigurðsson háskólaritari, fædd- ur að Ánabrekku í Mýrasýslu 1896, d. 1971. Syst- ur Stefaníu eru Guðríður, f. 1931, maki hennar var Már El- Sigurbjörg Jónsdóttir, f. 1906, d. 1998, og Gísli Halldórsson, f. 1898, d. 1990. Systur hans eru Fjóla sem er látin og Þor- björg. Stefanía og Halldór voru barnlaus. Stefanía gekk í Miðbæjar- barnaskólann og fór síðan í Menntaskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan sem stúdent árið 1947. Hún vann á lög- fræðiskrifstofu Sveinbjörns Jónssonar og Gunnars Þor- steinssonar í nokkur ár. Stef- anía hóf störf hjá Almenna bókafélaginu við stofnun þess árið 1955 og vann þar til loka starfsferils síns, til ársins 1995. Útför Stefaníu verður gerð frá Bústaðakirkju í dag, 8. nóvember 2019, klukkan 13. ísson, f. 1928, d. 2015, Sigríður, f. 1933, maki henn- ar er Úlfur Sig- urmundsson, f. 1934, Sigrún, f. 1941, maki henn- ar var Valur A. Jóhannesson, f. 1936, d. 2018. Þann 3. febr- úar 1973 giftist Stefanía eftirlif- andi eiginmanni sínum Hall- dóri Gíslasyni, f. 1932. Foreldrar hans voru Elín Frá því við systurnar munum eftir okkur hefur Día verið fastur punktur í lífi okkar. Milli hennar og mömmu var mjög náið sam- band og í okkar huga var Día eins og móðursystir. Día var ólík flest- um vinkonum mömmu að því leyti að hún var útivinnandi og lifði sjálfstæðu lífi, fór upp um fjöll og firnindi og lenti í alls konar spenn- andi ævintýrum. Í einni jöklaferð- inni lágu leiðir þeirra Halldórs saman og þar með var framtíð þeirra ráðin. Þau voru einstaklega samrýnd hjón, deildu sameigin- legum áhugamálum sínum, tónlist og ferðalögum og voru bæði víð- sýn og miklir fagurkerar eins og heimili þeirra í Furugerði ber vitni um. Í huga okkar eru nöfnin þeirra samofin, Día og Halldór/ Halldór og Día. Día var mjög hrein og bein og kom til dyranna eins og hún var klædd. Hún hafði mótaðar skoð- anir á mönnum og málefnum og hugrekki til að tala hreint út um hlutina. Áhugi hennar og um- hyggja fyrir fjölskyldu og vinum var einstakur og frændgarðurinn sem naut velvildar hennar nær langt út fyrir landsteinana. Börn okkar og barnabörn hafa svo sannarlega notið góðs af þeirri góðvild. Día kunni þá list að njóta augnabliksins. Hún lifði í takti við tímann, þekkti sín mörk og naut stundarinnar til fulls en kunni að afþakka þegar henni fannst nóg komið. Það var ekkert hálfkák í kring- um Díu. Ef hún tók sér eitthvað fyrir hendur þá var það gert í botn og þegar verkefninu var lokið var þeim dyrum lokað án eftirsjár. Þannig var það t.d. með sumarbú- staðinn sem þau Halldór byggðu ásamt Úlfi og Siggu systur. Þar áttu þau ómældar ánægjustundir, en þegar aldurinn færðist yfir og líkamlegt þrek dvínaði þá vafðist ekki fyrir Díu að kveðja sumarbú- staðartímabilið og fela bústaðinn í hendur komandi kynslóðar. Að leiðarlokum viljum við þakka fyrir að hafa fengið að vera samferða Díu og njóta umhyggju hennar og trygglyndis. Halldóri sendum við innilegar samúðar- kveðjur. Ragnheiður, Svana og Þóra. Kær frænka mín, Stefanía Pét- ursdóttir, er fallin frá eftir erfið veikindi. Á þessari stundu er sorg- in efst í huga mér, en ég veit að hún mun víkja með tímanum og eftir mun standa minningin um allt það góða og skemmtilega sem við Día áttum saman. Ég minnist þess frá barnæskunni að hún spurði mig hver er „uppáhalds- frænka þín“? Rétta svarið var auðvitað að það væri hún og það var ekki erfitt að segja það, því Día var alltaf skemmtileg og hafði frá mörgu að segja. Raunveruleg og náin kynni okkar hófust samt ekki fyrr en hún og Halldór byggðu ásamt for- eldrum mínum sumarbústaðinn í Úthlíð. Þar kynntist ég röggsemi hennar, hve hún hafði gaman af að hreyfa sig, elda góðan mat og njóta stundarinnar inni eða fyrir utan bústaðinn. Uppáhald Díu var að fá sér lítið staup rétt fyrir mat- inn. Hennar drykkur var Campari en hún átti alltaf sérrí handa mér. Við sátum oft mörg fyrir utan sumarbústaðinn í góða veðrinu og ræddum landsins gagn og nauð- synjar. Þetta voru góðar stundir. Þegar foreldrar mínir bjuggu í Bandaríkjunum varð það að vana að fara til Díu og Dóra í sunnu- dagsmat. Þar ræddum við um það sem hafði á daga okkar drifið þá vikuna. Día sagði frá bókaútgáf- unni og Dóri var alltaf að vinna að smíðaverkefnum, gjarnan í bíl- skúrnum á Rauðarárstíg. Hin síðari ár höfum við mjög oft spjallað saman í síma. Día hafði alltaf frá einhverju að segja. Hún sagði fréttir af frændsystk- inum mínum og afkomendum þeirra, af afkomendum Bebbíar og Víkings, frá afkomendum Þor- bjargar systur Dóra ásamt fleiri ættingjum og vinum. Fyrir mér voru þessi samtöl sem brú á milli kynslóða og ættingja. Við töluðum líka um tónleika sem þau höfðu nýlega notið eða voru að fara á. Oft sagði hún frá því sem gerðist á námskeiðum hjá Endurmenntun- arstofnun Háskóla Íslands þar sem hún og Dóri sóttu fjölmörg námskeið ásamt því að segja frá ferðum með námsfélögum. Día frænka mín var að lokum orðin veik og þreytt og hefur nú fengið hvíldina sem hún þráði. Ég mun ætíð minnast hennar sem já- kvæðrar og hlýrrar konu, sem gat samt verið ákveðin þegar þess þurfti. Ég er þakklát fyrir allt sem hún og Dóri gerðu fyrir mig og fjölskyldu mína. Þóra Sæunn Úlfsdóttir. Elsta móðursystir okkar, Stef- anía Pétursdóttir, eða Día eins og hún var alltaf kölluð, lést að morgni fimmtudagsins 24. októ- ber síðastliðins á 93. aldursári. Día átti sérstakan stað í huga og hjarta okkar allra systkinanna og var nokkurs konar ígildi móður þegar svo bar undir. Við lærðum strax í barnæsku að það hlýddu allir Díu, eða svo fannst okkur þá. Ekki er þetta þó meint á neikvæð- an hátt, öðru nær. Hún hafði góða og elskulega nærveru og einhvern veginn var ekki hægt annað en fylgja henni. Það er skemmtilegt að rifja upp að einn af bekkjar- bræðrum hennar úr MR, háttsett- ur embættismaður, sagði okkur einu sinni að allir hlýddu Díu. Í samheldnum bekknum var það gjarnan hún sem leiddi hópinn. Día var hlý í viðmóti og bros- mild, en einnig hreinskilin og ófeimin að segja okkur skoðanir sínar, sem við kunnum alltaf vel að meta. Enda var gaman að heim- sækja hana, fyrst á Aragötuna og ekki síður til þeirra Halldórs í Furugerðið eða í sumarbústaðinn. Við minnumst einnig með mikilli hlýju stuttra heimsókna á skrif- stofu Almenna bókafélagsins í Austurstræti þegar við vorum börn, en Día tók alltaf vel á móti okkur þegar við lögðum í slíkar ævintýraferðir í miðbæinn. Í seinni tíð snerust umræðurnar oftast um fjölskyldur okkar og ekki síst börnin en Día bar hag þeirra mjög fyrir brjósti, var for- vitin um hvaðeina sem þau tóku sér fyrir hendur. En Día sagði okkur líka sögur af ættingjum, m.a. af afa Pétri og ömmu Þóru, betur þekkt sem afi og amma á Aragötu, og stórum frændgarði þeirra. Við heyrðum af lífinu í „Tukthúsinu“ á Skólavörðustíg en þar var langafi, Sigurður Péturs- son, yfirfangavörður um langt skeið. Þegar við eldri systkinin vorum börn var oft farið í labbitúr frá Aragötunni og niður að Tjörn eða til að skoða babúinn hans Nonna frænda í slökkviliðsstöð- inni við Tjarnargötu, en Jón Sig- urðsson afabróðir okkar var þá slökkviliðsstjóri í Reykjavík. Día var yfirleitt fyrst allra að hringja, oft snemma morguns, á afmælisdögum til að óska okkur til hamingju, venjulega með þeirri skýringu að þau Halldór væru að fara út, eða væru að stússa eitt- hvað og hún vildi ekki gleyma að hringja seinna. Það var alltaf nóg að gera og ekki mátti hangsa held- ur þurfti að koma hlutunum í verk. Día var mikil útivistarmann- eskja á yngri árum. Hún var m.a. í Jöklarannsóknarfélaginu og fór margar hálendisferðir í þeim fé- lagsskap. Þau hjónin voru miklir unnendur klassískrar tónlistar og voru fastagestir á tónleikum Sin- fóníuhljómsveitar Íslands um langt árabil. Þótt Díu og Halldóri hafi ekki orðið barna auðið áttu þau stóran hóp „barnabarna“, því börn systrabarna hennar og barnabörn Stefaníu Gísladóttur og Víkings Arnórssonar voru eins og þeirra eigin, svo mikil var frændsemin og alúðin. Það var eitthvað svo einstakt við hana Díu, hjartahlýjan, ástúð- leg ákveðnin sem hana einkenndi og hinir hrífandi persónutöfrar sem nú skilja eftir mikinn söknuð í huga okkar en einnig ljúfar minn- ingar sem munu verma okkur um ókomna tíð. Pétur, Elís, Marteinn, Þóra og Gróa Más- og Guðríðarbörn. Stefanía Pétursdóttir fæddist 24. janúar 1927. Hún var elst fjög- urra systra, dætra Péturs Sig- urðssonar háskólaritara og konu hans Þóru Sigurðardóttur. Ég man fyrst eftir Díu, en það var hennar gælunafn, sem bekkjar- systur bróður míns í barnaskóla. Seinna urðum við bekkjarsystur í MR og samstúdentar 1947. Hún var okkar foringi á mörgum svið- um, varð sem dæmi „inspector“ bekkjarins. Við tókum þátt í störf- um Herranætur. Eitt sinn var ég að þakka aðstoðarfólki okkar leik- húsfólks, þegar Día var hvíslari og sagði: „Ég vil þakka hvíslara hennar störf en hún er kvenmaður í ár.“ Gert var grín að þessu. Af þessu má sjá að ekki var sjálfsagt að kona væri hvíslari í þá tíð. Eitt sumar á menntaskólaárun- um réðum við okkur nokkrar bekkjarsystur í kaupavinnu hjá bændum í Hrunamannahreppi. Día var á Dalbæ. Alla tíð síðan var hún í vináttusambandi við heim- ilisfólkið á bænum. Minnisstæðar eru kvöldkaffi- stundirnar á Oddagötu, þar sem báðir foreldrar sátu með okkur unglingunum. Pétur var ræðinn og sagði skemmtilega frá lífinu í bænum á hans unglingsárum. Hann var hafsjór fróðleiks. Día var fyrirmyndarhúsmóðir líkt og móðir hennar. Hún fór í Húsmæðraskóla Reykjavíkur til frekara náms. Starfsvettvangur hennar var skrifstofustörf. Hún starfaði á lögfræðistofu Svein- björns Jónssonar og seinna hjá Almenna bókafélaginu til starfs- loka. Día giftist Halldóri Gíslasyni, málara og smið. Þau voru Día og Dóri, aldrei annað nefnt án hins. Þau voru unnendur góðrar tónlist- ar, voru fastagestir á sinfóníunni og sóttu ýmsa tónlistarviðburði. Síðustu árin sóttu þau ýmis nám- skeið á vegum Endurmenntunar Háskólans og fóru í margar ferðir bæði innanlands og utan í tengslum við það. Día var í bekkjarráði okkar stúdentsárgangs. Hún hafði veg og vanda af samkomum okkar og ferðalögum. Ég og trúlega við öll bekkjarsystkinin höfum saknað hennar í veikindum hennar. Ég votta Halldóri og öðrum ástvinum Díu samúð mína. Ég var beðin fyrir kveðjur og þakklæti frá bekkjarfélögum í ár- gangi stúdenta 1947. Takk fyrir samfylgdina, hvíl í friði. Elín Guðmanndóttir. Stefanía Pétursdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.